Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 358
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni er skólakór undir stjórn Julian Hewlett að syngja á sal fyrir aðra nemendur og kennara. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Ólína Laufey Sveinsdóttir?. Halla Kristín Árnadóttir er lengst til vinstri í annarri röð og Hafdís Hanna Ægisdóttir í öftustu röð. Aðrar á myndinni eru óþekktar nema Julian sem spila á píanóið.
Ólafur Bernódusson1076
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta yngstu nemendur Höfðaskóla draga um hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Adolf H. Berndsen oddviti fylgist með ásamt öðrum Skagstrendingum. Hávaxinn til vinstri, í bláum jakka, er Helgi Gunnarsson, sem sá um byggingu hússins.
Ingibergur Guðmundsson 427
Hafdís Þorvaldsdóttir til vinstri og Elín Rafnsdóttir til hægri einbeita sér í vinnunni í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987.
Ólafur Bernódusson1154
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Sólveig Baldvinsdóttir, Stefanía Hrund Stefánsdóttir, óþekktur og Þórunn Hólmgeirsdóttir.
Ólafur Bernódusson1111
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni er óþekkt stúlka að hoppa gegnum "Hoppubrautina" og Páll Pálsson kennari tekur tímann. Rebekka Ólafsdóttir bíður eftir að röðin komi næst að henni og Hákon Unnar Þórarinsson fylgist með. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1470
Fótboltaæfing á vellinum við Fellsborg. Páll Halldórsson er með boltann. Anton Þór Einarsson fylgist með lengst til hægri og Elmar Jóhann Grétasson reynir að ná boltanum af Páli. Fyrir aftan þá eru bræður Jóhannessynir en nöfn þeirra eru óþekkt. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001010
Myndin var tekin 1964 eða ´65 af Óskari Þór Kristinssyni á hlaðinu hjá Þórsmörk. Húsin í baksýn eru, frá vinstri: Höfðakot með áfastri hlöðu, Dvergasteinn framan við Höfðakot, Höfðaberg, Skálholt og Þórhamar. Skálholt og Þórshamar eru enn í notkun en hin húsin hafa verið rifin.
Ingibergur Guðmundsson 516
Ekki er að sjá annað en vinátta ríki hjá nemendum Höfðaskóla á þessari mynd. Hún var tekin í maí 1985 þegar krakkarnir voru í skólaferðalagi. Þau gistu á gólfinu í einhverjum skóla og eru þarna að búa sig undir að fara að sofa. Erlingur Ottósson er í bláköflóttri peysu til vinstri og krýpur yfir óþekktum. Jóhanna Sigurjónsdóttir er komin ofan í svefnpokann sinn nær okkur en drengurinn fjær okkur er óþekktur (?Jóhann Ásgeirsson?). Eiríkur Lýðsson er ber að ofan við hlið Kristjönu Jónsdóttur og Dagbjartar Jóhannsdóttur. Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) er með hatt og nær okkur er Jón Arnarsson. Lengst til hægri er svo Óli Hjörvar Kristmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1183
Á myndinni eru krakkar fædd 2003 sem voru bekkjarfélagar í Höfðaskóla. Myndin var tekin 2015 eða 2016. Strákarnir eru, frá vinstri: Jón Árni Baldvinsson, Ólafur Halldórsson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Magnús Sólberg Baldursson, Pétur Atli Árnason og Ívan Orri Eiríksson. Stelpurnar eru, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Guðrún Björgvinsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir og Ástríður Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson1117
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni er píramítinn fullbyggður og hjá honum stendur Páll Svavarsson mjólkurbússtjóri á Blönduósi ásamt stoltum nemendum, sem sáu um að líma og byggja píramítann.
Ljósmyndakeppni 2022 57
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Valgerður Guðný Ingvarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
2001016
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en það var gert 1965. Á henni er Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júddý) til hægri en hin stúlkan er óþekkt.
Höfðaskóli - safn532
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Fellsborg af þessum nemendum Höfðaskóla. Strákarnir eru, frá vinstri: Kristinn Björgvinsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson, Sigurður Haukur Grétarsson og Gunnar Dór Karlsson.
Ingibergur Guðmundsson 429
Jósef Ægir Stefánsson vinnur við líkan af hafnarsvæðinu í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987.
Höfðaskóli - safn509
Myndin var tekin í eyjasiglingu elstu nemenda Höfðaskóla í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum. Nemendurnir eru fæddir 1971 og 1972 þannig að myndin var líklega tekin vorið 1987. Frá vinstri: Hjalti Kristjánsson, tveir óþekktir, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Viggó Magnússon, Ægir Jónsson, óþekktur, Óskar Þór Óskarsson og Baldur Bragi Eðvarðsson. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1214
Krakkar að hlaupa af stað í einu af víðavangshlaupum umf Fram, sem haldin voru í mörg ár í byrjun sumars. Mikil þátttaka var í hlaupunum hjá yngri kynslóðunum en keppt var í nokkrum aldursflokkum. Lárus Ægir Guðmundsson var stjórnandi og ræsir keppnanna. Myndin var tekin vorið 1993.
Gréta 102
Elínborg Ásdís Árnadóttir. Myndin var tekin kringum 1990.
Ingibergur Guðmundsson 360
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1975 að flytja skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Krakkarnir eru, frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Linda Rós Haukdal Rúnarsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Börkur Hrafn Árnason og Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 396
Myndin var tekin á Húnavöllum veturinn 1987 þegar þar fór fram skólamót í íþróttum. Krakkarnir á myndinni kepptu fyrir hönd Höfðaskóla á mótinu. Þau eru, frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Brynjar Pétursson, Björn Sigurðsson og Hugrún Pálsdóttir.
2001015
Upp úr 1960 ákváðu skátarnir í Sigurfara á Skagaströnd að byggja sér skála í Brandaskarðinu. Hafist var handa við bygginguna og steyptur sökkull (og plata?) sem skátarnir gerðu undir leiðsögn vanra manna. Einhverra hluta vegna varð aldrei meira úr framkvæmdum í Brandaskarðinu en í stað þess byggður skáli í suðurhlíðum Spákonufellsins. Myndin var tekin af framkvæmdunum í Brandaskarðinu. Á henni eru, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Jóhann Björn Þórarinsson, Frímann Lúðvíksson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson (aftar), Steindór Rúniberg Haraldsson (nær), Árni Ólafur Sigurðsson, Ísleifur Haraldsson, Gissur Jóhannsson (aftar), Sævar Rafn Hallgrímsson (nær), Hallbjörn Björnsson, Pétur Jóhannsson (aftar), Reynir Sigurðsson (nær), Jóhann Ingibjörnsson og Bergur Jón Þórðarson
Gréta 125
Stúlkan á myndinni er líklega Sigrún Jósteinsdóttir sem var í Sólvangi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvert barnið er.
Höfðaskóli - safn601
Myndin var líklega tekin kringum 2000 af þeim Baldri Magnússyni kennara að taka Sigurgeir Snævar Árnason til bæna að gamni sínu í geymslunni við smíðastofunni í Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson1160
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Birta Dögg Bessadóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Freydís Kristjánsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Jón Árni Baldvinsson og Snæfríður Guðmundsdóttir.
2001040
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af krakkahóp á skólatröppunum en það hefur líklega verið kringum 1963. Á henni eru, vinstra megin, talið upp tröppurnar; Rúnar Jósefsson, Reynir Sigurðsson og Óskar Þór Kristinsson. Milli Reynis og Óskars sér í Berg Jón Þórðarson. Lengst til hægri, talið upp tröppurnar: Sævar Rafn Hallgrímsson, óþekktur, Ísleifur Þorbjörnsson, Fritz M. Bjarnason og Jóhannes Pálsson. Stelpan sem er með hendur í vösum í úlpu með hvítum kraga er Kristín Björnsdóttir, aftan við hana til hægri er Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir , en síðan kemur Sigríður Einarsdóttir. Aftan við Kristínu til vinstri er Björn Bragi Sigmundson. Við hlið hans hægra megin sér í Guðmund Rúnar Kristjánsson og síðan Ólaf H. Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Þessir krakkar voru öll fædd 1951 og því saman í bekk í Höfðaskóla.
Ljósmyndakeppni 2022 31
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erla María Lárusdóttirog sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ingibergur Guðmundsson 401
Íþróttastrákar úr Höfðaskóla á skólamóti í Húnavöllum veturinn 1987. Aftari röð, frá vinstri: Sigvaldi Guðmundsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson, Skúli Tómas Hjartarson og Óskar Óskarsson. Í fremri röð, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Brynjar Pétursson, Hólmgeir Kristmundsson og Stefán Sveinsson.
Ólafur Bernódusson1249
Anna Dröfn Guðjónsdóttir nær okkur og Soffía Lárusdóttir fjær spila fjórhent á píanó í Höfðaskóla á vortónleikum tónlistarskólans líklega kringum 1990. Til vinstri er kennarinn þeirra, Steinunn Berndsen.
Gréta 103
Kári Sigurbjörn Lárusson frá Ási á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1965.
Ljósmyndakeppni 2022 64
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Linda Rún Einarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Höfðaskóli - safn539
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1990 fá afhent vitisburðarblöðin sín eftir veturinn á sviðinu í Fellsborg. Aftan við ræðupúltið sér í Ingiberg Guðmundsson skólastjóra. Nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhann Már Berry, óþekkt, Sunna Gylfadóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Arís Eva Vilhelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Katrín Guðmundsdóttir og Helga Dögg Jónsdóttir. Myndin var líklega tekin kringum árið 2000.
Höfðaskóli - safn599
Viðar Guðmundsson hlustar á spólu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
20250729_101643
Myndin var tekin sumarið 2025 þegar börn á leikjanámskeiði ungmennafélagsins Fram voru að fá að prófa Kajaka. Lengst til hægri er Valtýr Sigurðsson sem sá um börnin við þetta tækifæri ásamt nokkrum unglingum. Myndin var tekin í smábáthöfninni á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 431
Bakað í eldhúsi Höfðaskóla í vinnuviku í febrúar 1987. Lengst til vinstri er Rakel Petrea Finnsdóttir en fremst á myndinni eru Kristinn Björgvinsson til vinstri og Fjóla S. Ómarsdóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn555
Ekki er vitað hvar þessir strákar úr Höfðaskóla eru i skólaferðalagi. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Strákarnir eru, frá vinstri: Sigþór Ottó Hallgrímsson, Ómar Ingi Ómarsson, Björn Viðar Jóhannsson, Oddur Valdimarsson, Óðinn Örn Sævarsson og Sindri Jóelsson
Höfðaskóli - safn613
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á þessari mynd eru nokkrir strákar að undirbúa verkefni dagsins. Frá vinstri: óþekktur (nær), Davíð Reynisson (fjær), Jón Arnarsson, Brynjar Pétursson og Viggó Magnússon.
Ólafur Bernódusson1136
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari búin að koma hópnum sínum gegnum reykkófið. Bára er fyrir miðri mynd og leiðir Guðmund Inga Ólafsson (d.8.11.2006). Stúlkan til vinstri er Maríanna Ástmarsdóttir en til hægri eru, frá vinstri: óþekkt, Sigþór Ottó Hallgrímsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001023
Á myndinni frá 1968 er Sóley Benjamínsdóttir framan við heimili sitt í Skálholti. Húsið til vinstri er Gunnarshólmi (Grafarbakki) en til hægri sér í fiskhjalla og iðnaðarhús sem enn stendur við Mánabraut. Sóley hefur lengst af búið í Danmörku.
Höfðaskóli - safn616
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru þeir Viggó Magnússon til vinstri og Ægir Thorberg Jónsson til hægri að stjórna skólaútvarpinu sem sendi út þessa viku.
Ólafur Bernódusson1145
Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri á sviðinu í Fellsborg kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla 2014.
Ingibergur Guðmundsson 378
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni eru Stefán Sveinsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri í hringekju en þeir voru hluti af hópnum sem fór.
Ingibergur Guðmundsson 448
Unglingar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi um Snæfellsnes í maí 1986. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir,Óskar Óskarsson, Vigdís Ómarsdóttir, Viggó Magnússon, Jón Arnar Arnarsson og Sveinn Jónasson.
Gréta 100
Tvíburarnir Þröstur Árnason til vinstri og Svanur Árnason til hægri á fermingardaginn sinn vorið 1989.
Höfðaskóli - safn510
Myndin var tekin í skólaferðalagi elstu nemenda Höfðaskóla líklega vorið 1987. Nemendurnir eru, frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorlákur Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Jóhann Ásgeirsson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Davíð Reynisson, Hallgrímur Oddsson, Hólmgeir kristmundssonog óþekktur bílstjóri.
Ljósmyndakeppni 2022 28
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi inn í flokkinn "Skuggar". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ólafur Bernódusson1049
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Barnið vinstra megin inni í stýrishúsinu er óþekkt en til hægri er Þórður Indriði Björnsson. Utan við húsið er Telma Dögg Bjarnadóttir?
Höfðaskóli - safn565
Elstu nemendur Höfðaskóla fóru í skólaferðalag til Danmerkur einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Þá var þessi mynd tekin af þeim Óðni Erni Sævarssyni og Elvu Þórisdóttur kennara.
Ljósmyndakeppni 2022 29
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggar". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ljósmyndakeppni 2022 31 (2)
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Lára Guðmundsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ólafur Bernódusson1135
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari að fylgja nokkrum af nemendum sínum gegnum reykkófið. Nemendurnir eru, frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Ásþór Óðinn Egilsson og Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006). Allir eru bognir eða skríða eins og maður á að gera ef til eldsvoða kemur
Ólafur Bernódusson1164
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Anita Ragnarsdóttir, Benný Blær Sæmundsen, Helgi Sveinn Árnason og Róbert Andri Bogason?.
Ólafur Bernódusson1170
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni spilar Valgerðu Guðný Ingvarsdóttir á þverflautu sem hluta af skemmtiatriði bekkjar síns. Börnin eru, frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Valgerður, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Margrét Sigurðardóttir.
Ingibergur Guðmundsson 531
Þessi mynd var tekin í sveitaheimsókn yngri nemenda Höfðaskóla að Skeggjastöðum. Magnús Líndal Þrastarson heldur á hænunni en Marta Kristín Jónsdóttir er til hægri. Barnið til vinstri er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1995.
Höfðaskóli - safn 639
Þessi hópur fimleikakrakka úr Höfðaskóla sýndi listir sínar m.a. á árshátíð skólans 1985. Þessi mynd var tekin í Fellsborg af hópnum á æfingu ásamt kennara sínum Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara, sem er til vinstri hjá hópnum. Í neðstu röðinni eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kristjana Jónsdóttir, María Rós Karlsdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Í næst neðstu röð,frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir. Næst efst: Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir vinstra megin og Guðný Finnsdóttir hægra megin. Efst trónir Arna Guðrún Jónsdóttir
Ingibergur Guðmundsson 486
Á myndinni er Anna Dröfn Guðjónsdóttir að keppa í langstökki án atrennu á unglingamóti USAH líklega árið 1985. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001013
Myndin var tekin í sameiginlegri útilegu skáta úr Sigurfara á Skagaströnd og einhverra annarra Ekki er vitað hvar myndin var tekin en líklega var það kringum 1960. Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara situr fremst til hægri. Aftan við hann aftast frá hægri: þrír óþekktir, Jóhann Ingibjörnsson, Frímann Lúðvíksson, óþekktur, Hallbjörn Björnsson (með skátabát á höfðinu), Stefán Ingólfsson, Lárus Ægir Guðmundsson, fjórir óþekktir, Helga Jóhannesdóttir, Sigrún Jósteinsdóttir (Siddý), þrjú óþekkt, Hrefna Júlía Júlíusdóttir, Anna Skaftadóttir og Helga Ólafsdóttir. Í fremmri röðinni eru, frá vinstri: óþekkt, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekkt, Pálfríður Benjamínsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Magdalena Axelsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Ingibergur Guðmundsson 434
Nemendur úr Höfðsakóla hlusta á Þór Gunnlaugsson lögreglumann halda fyrirlestur í vinnuviku í febrúar 1987. Lengst til vinstri sér í Eygló Gunnarsdóttur móður í rauðri peysu, svo koma tveir óþekktir strákar þá Viktor Pétursson, óþekkt stúlka, Auður Eva Guðmundsdóttir (fær), óþekktur (nær), Rakel Sara Gunnarsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og fjórir óþekktir nemendur. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu nemendunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 012
Börnin á myndinni voru öll innbæingar. Þau eru, frá vinstri: Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Magnús B. Jónsson, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Ísleifur Þorbjörnsson (d.28.8.2021) og Lára Berndsen. Þorbjörns systkinin áttu heima í Akurgerði (Hólabraut 9). Systkinin Fjóla og Magnús áttu heima í Asparlundi (Bogabraut 24).
2001515
Á myndinni eru börn á leikskólanum Barnaból árið 2003 - 2004. Krakkarnir á henni eru í eldri deildinni, Sæbóli. Konurnar á myndinni eru Helga Bergsdóttir og Herdís Jakobsdóttir á gólfinu til vinstri. Hægra megin eru Lilja Ingólfsdóttir aftar og Guðbjörg Viggósdóttir á gólfinu. Börnin eru, frá vinstri aftast: óþekkt stúlka og Anton Þór Einarsson. Í miðröð, frá vinstri: óþekkt stúlka, Guðmann Einar Magnússon, Brynjar Guðmundsson, Ísak Karl Tryggvason og Birkir Freyr Gunnarsson. Fremst, frá vinstri: ?Sveinn Hallgrímsson?, Sigurjón Elí Eiríksson og ?Birgitta Bjarnadóttir?.
Gréta 061
Á myndinni er Guðrún Berndsen við afgreiðslu í sjoppunni við Karlsskála meðan þar var m.a. bensínafgreiðsla á vegum BP.
Höfðaskóli - safn490
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Þá fór hluti nemendanna á hestbak í gerði vestan við Spákonufellsrétt. Á myndinni eru, frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson sem teymir undir Dóru Rebekku Sævarsdóttur. Stúlkan í hvíta jakkanum er Eygló Amelia Valdimarsdóttir og lengst til hægri er Eva Rún Rúnarsdóttir.
1
…
20
21
22
23
24
Leita í myndasafninu
Leita