Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 354
Rakel Sara Gunnarsdóttir að vinna í smíðastofunni í Höfðaskóla, líklega í vinnuviku 1989.
Ingibergur Guðmundsson 590
Drengurinn á myndinni er óþekktur. Þarna er hann að fara gegnum jafnvægisþraut á flippíþróttadegi Höfðaskóla. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1233
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1990. Krakkarnir eru að bíða eftir að fá grillaða pylsu á útivistardegi í Höfðaskóla. Strákurinn með skyggnið er Kristján Gunnar Guðmundsson og vinstra megin við hann er Steinþór Karlsson. Strákurinn sem hallar sér út úr röðinni, nær okkur, er óþekktur en aftan við hann er Birkir Rafn Gíslason. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 535
Gróðursetningarhópur úr Höfðaskóla í hlíðum Spákonufellsins líklega kringum 1994. Fullorðna fólkið er frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir, Guðrún Hrólfsdóttir, Ágúst Bragason og Jóney Gylfadóttir. Ágúst er að kenna krökkunum vinnubrögðin við plöntunina en börnin á myndinni eru óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 482
Í allmörg ár var haldið Norræna skólahlaupið í skólum á Íslandi. Þessi mynd var tekin haustið 1984 þegar yngri nemendur Höfðaskóla eru að búa sig undir að hlaupa. Maðurinn með húfuna er Jón S. Pálsson skólastjóri. Í rauðum anorak vinstra megin við hann er Björk Axelsdóttir kennari. Konan í hvíta íþróttajakkanum er Guðrún Guðmundsdóttir kennari. Börnin eru, frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, óþekkt, Berglind Karlsdóttir?, Svanur Árnason, Börkur Árnason, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Viggó Maríasson?(næst), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (fjærst), tvö óþekkt á milli Viggós og Önnu, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir í rauðri úlpu og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir í blárri úlpu. Framan við þær systur eru óþekkt börn. Strákur í brúnni úlpu með blá vettlinga er líklega Kristján Gunnar Guðmundsson og við hlið hans í blárri úlpu með röndótta húfu er Þorlákur Ómar Guðjónsson. Í blárri peysu og rauðum buxum er Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir?. Við hlið Jóns skólastjóra, rauðklædd með gleraugu, er Særún Níelsdóttir og framan við hana er systir hennar Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir. Strákurinn með hvítu vettlingana er Steinþór Karlsson. Önnur frá hægri er Arna Guðrún Jónsdóttir og lengst til hægri er Sigríður Margrét Oddsdóttir. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1186
Kynnar á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2017. Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Birgitta Rut Bjarnadóttir til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 551
Tvö óþekkt börn að renna sér á snjóþotu í Tjaldklaufinni. Þar er mjög góð og mikið notuð aðstaða til að leika sér á skíðum og sleðum þegar nægur snjór er á vetrum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 414
Myndin var tekin 1987 þegar Jane Sillar er að kenna Önnu Dröfn Guðjónsdóttur að spila á píanó í Höfðaskóla.
Ingibergur Guðmundsson 375
Tvíburasysturnar Vilborg og Áslaug Jóhannsdætur eru eineggja tvíburar og mjög líkar. Báðar voru þær góðar í íþróttum. Á þessari mynd frá 1988 er önnur hvor þeirra systra með verðlaunagrip eftir íþróttamót USAH á Skagastrandarvelli.
Ingibergur Guðmundsson 346
Erla María Lárusdóttir einbeitir sér við að mála útlínumynd af sjálfri sér í Höfðaskóla líklega árið 1989. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 454
Þessi mynd var tekin á Norðurlandsleikum æskunnar 1985 á Sauðárkróki. Á henni eru nokkrir krakkar úr umf Fram í USAH. Krakkarnir eru, talið frá hægri: Vilhjálmur Jónsson, Skúli Tómas Hjartarson, Jón Heiðar Jónsson, Guðný Finnsdóttir, Brynjar Pétursson og Reynir Lýðsson. Ljóshærða konan í bláum stakk og rauðri peysu er Þórhalla Guðbjartsdóttir en aftan við hana er Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 076
Strákarnir þrír á myndinni eru í sparifötunum sínum. Líklega var myndin tekin rétt fyrir 1950. Strákarnir eru, frá vinstri: Gunnar Davíðsson (d.14.8.1989) frá Neðri Harrastöðum, Guðmundur Kristjánsson (d.2.5.1977) frá Háagerði og Reynir Davíðsson frá Neðri Harrastöðum.
2001039
Á myndinni, sem líklega hefur verið tekin kringum 1957, er Reynir Sigurðsson hægra megin en strákurinn til vinstri er óþekktur (??Árni Ólafur Sigurðsson??).
2001024
Á myndinni sem tekin var um jólin 1961 eru skátar úr Sigurfara að sýna leikrit í gömlu Tunnunni (nú Spákonuhof). Skátarnir á henni eru, frá vinstri: óþekktur, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, Þórir Ágústsson, óþekktur, Guðrún Þórbjarnardóttir, tveir óþekktir, Ester Axelsdóttir og tveir óþekktir. Þórður Jónsson hefur sent vini sínum, Ingólfi Ármannssyni, myndina og skrifaði aftan á hana: "Ska.10/1 ´62. Kæri vinur Þessi mynd var tekin á jólatréskemmtun hjá okkur og sýnir Grýlu og Leppalúða með nokkra syni sína. Við skreittum sinuns eiins og þú sérð og geði þetta mikla lukku. Skemmtuninn tókst mjög vel og skemmtu allir sér konunglega. Það komu um 130 manns um daginn og tæpir 100 um kvöldið og þó var veðrið mjög....."
Gréta 006
Myndin var líklega tekin um 1960. Vinstra megin á henni eru: systkinin Magnús B. Jónsson og Fjóla Jónsdóttir úr Asparlundi. Svo koma systur úr Akurgerði, frá vinstri: Guðbjörg J. Þorbjarnardóttir og Hrefna Þorbjarnardóttir, sem situr með barn í fanginu. Líklega er það eins systirin enn, Heiðdís Þorbjarnardóttir.
Ólafur Bernódusson1075
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta krakka úr Höfðaskóla draga um það hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Eldri krakkar og fullorðnir fylgjast með í nepjunni.
Ingibergur Guðmundsson 400
Á skólamóti á Húnavöllum veturinn 1987 kepptu þessir drengir, ásamt fleirum, á vegum Höfðaskóla. Strákarnir í aftari röð eru, frá vinstri: Baldur Magnússon, Björn Sigurðsson, Atli Þór Þórsson, Reynir Lýðsson og Jón Heiðar Jónsson. Í fremri röð, frá vinstri: Friðrik Gunnlaugsson, Börkur Hrafn Árnason og Gunnar Halldór Hallbjörnsson.
Ingibergur Guðmundsson 597
María Markovic. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1228
Jónas Þorvaldsson kemur fyrstur, í sínum aldursflokki, í mark í Landsbankahlaupinu í maí 1987.
Ólafur Bernódusson1046
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból.
Ingibergur Guðmundsson 481
Myndin var tekin 1985 á tröppum Fellsborgar af krökkum úr umf Fram. Líklega var tilefnið unglingamót USAH á Húnavöllum og þetta því keppendur á því með farastjóranum Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Fólki er eftirlátið að þekkja sjálf sig og aðra á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 475
Sveinn Jónasson bakar smákökur í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
Ólafur Bernódusson1153
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Helga Margrét Steingrímsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, Ísabella Tryggvadóttir, Óðinn Örn Gunnarsson og Sóley Sif Jónsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 543
Verðlaunahafar í einum aldursflokki í Landsbankahlaupi. Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Drengurinn í græna jakkanum er óþekktur en á efsta palli er Jóhannes William Grétarsson og númer 10 er Albert Ingi Haraldsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 072
Jónína Davíðsdóttir frá Neðri Harrastöðum með dúkkuna sína. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 124
Aftan á þessari mynd stendur: "Kári Sigurbjörn Lárusson 3. ára Tekið í marz 1956". Kári ólst upp í Ási á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson1047
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin standa stolt hjá afmælistertunni sem gestum var boðið upp á í tilefni dagsins. Börnin eru, frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Elna Ragnarsdóttir (nær), Ívar Gylfason (fjær), Ómar Ísak Hjartarson, Þórey Fjóla Aradóttir, Guðjón Örn Arason og Sunna Gylfadóttir.
Gréta 073
Systkini frá Neðri Harrastöðum, börn Önnu Gísladóttur (d.22.7.1998) og Davíðs Sigtryggssonar (d.3.7.1971). Aftast eru Jóhanna Davíðsdóttir til vinstri og Aðalheiður Davíðsdóttir til hægri. Í miðröðinni er Gunnar Davíðsson (d.14.8.1989) vinstra megin og Reynir Davíðsson hægra megin. Fremst er svo Jónína Davíðsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1950.
Ingibergur Guðmundsson 588
Sindri Njáll Hafþórsson og Kritbjörg Una Guðmundsdóttir keppa á hoppubelgjum á flippíþróttadegi í Höfðaskóla. Hoppubelgirnir voru ein af þrautunum sem nemendurnir þurftu að fara í gegnum á deginum. Allt var þar í gamni gert þannig að ekki var um raunverulega íþróttakeppni að ræða.
Ingibergur Guðmundsson 469
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Skólastjórinn Jón Sveinn Pálsson ávarpar nemendurna. Á myndinni eru, frá vinstri: baksvipur Stefáns Ægis Lárussonar, Þráinn Bessi Gunnarsson., baksvipur Davíðs Reynissonar (nær), óþekktur (fjær), Jón skólastjóri, tvö óþekkt og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Ólafur Bernódusson1190
Helena Mara Velemir kynnir næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla í Fellsborg. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en líklega var það kringum 2006.
Ólafur Bernódusson1109
Myndin var tekin í maí 1996 á útivistardegi Höfðaskóla. Eitt af verkefnum dagsins var að nemendur drógu bíldruslu gegnum bæinn frá höfninni og að sorpmóttökunni við Fjörubraut. Á þessari mynd eru krakkarnir að byrja að draga upp brekkuna frá höfninni.
2001014
Reynir Sigurðsson á hlaðinu fyrir utan heimili sitt í Þórsmörk 1965. Húsin í baksýn eru frá vinstri: Höfðakot, Dvergasteinn (nær) Höfðaberg, Skálholt og Þórshamar. Fyrstu þrjú húsin eru löngu horfin.
Ólafur Bernódusson1131
Myndin var tekin í apríl 1996 þegar brúðuleikhús kom í heimsókn til nemenda í Höfðaskóla og úr leikskólanum Barnaból. Auk barnanna á myndinni er hægt að finna nokkra kennara: Guðrúnu Sigurðardóttur, Birnu Blöndal (d.26.10.2018), Helgu Ólínu Aradóttur, Guðrúnu Hrólfsdóttur og Þórunni Bernódusdóttur. Þú verður sjálf/ur að finna konurnar og þau börn sem þú þekkir á myndinni.
Ólafur Bernódusson1132
Myndin var tekin í desember 1995 á eldvarnardegi í Höfðaskóla. Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) þáverandi slökkviliðsstjóri til hægri að spjalla við nemendur. Reykkafarinn til vinstri er líklega Gunnar Stefánsson slökkviliðsmaður. Börnin á myndinni eru, frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson (nær), óþekkt, Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari, Maríanna Ástmarsdóttir, Sigþór Ottó Hallgrímsson (fjær), Ívar Kristberg Einarsson (nær) og Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006).
Höfðaskóli - safn458
Gunnar Már Sæmundsson og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir í myndmenntatíma í Höfðaskóla 7. október 1999.
Gréta 067
Gréta Jónsdóttir í Laufási er til vinstri á myndinni og Anna Margrét Kristjánsdóttir frá Háagerði til hægri. Myndin var líklega tekin sumarið 1962.
Ingibergur Guðmundsson 465
Kristjana Jónsdóttir og Jón Arnar Arnarsson sigurvegarar í sínum aldursflokki á 17. júní móti umf Fram 1985. Í baksýn, frá vinstri: Heimir Guðmundsson, Sigfús Jónsson, Rúnar loftsson, Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), tveir óþekktir (nær), Arnar Arnarsson (fjær), óþekktur og Erla María Lárusdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 534
Elva Mjöll Þórsdóttir vandar sig við að planta tré í hliðum Spákonufellsins. Myndin var líklega tekin kringum 1994.
Ingibergur Guðmundsson 484
Myndin var tekin í september 1984. Á henni eru börn að taka upp í skólagörðunum sem þá voru starfræktir við Ránarbraut þar sem nú eru raðhúsin númer 19 - 23. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1151
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2014. Á henni eru, frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Guðmann Einar Magnússon og Friðmar Kári Eiríksson. Á myndinni eru þeir að draga út vinningshafa í tertuhappadrættinu sem var einn af liðunum á dagskrá árshátíðarinnar.
Gréta 019
Aðalheiður Másdóttir úr Réttarholti til vinstri og Gréta Jónsdóttir úr Laufási til hægri í dúkkuleik í Höfðanum.
Ingibergur Guðmundsson 430
Rakel Petrea Finnsdóttir stendur á skemli við að baka snúða í eldhúsi Höfðaskóla í vinnuviku í febrúar 1987.
2001016
Upp úr 1960 ákváðu skátarnir í Sigurfara á Skagaströnd að byggja sér skála í Brandaskarðinu. Hafist var handa við bygginguna og steyptur sökkull (og plata?) sem skátarnir gerðu undir leiðsögn vanra manna. Einhverra hluta vegna varð aldrei meira úr framkvæmdum í Brandaskarðinu en í stað þess byggður skáli í suðurhlíðum Spákonufellsins. Myndin var tekin af framkvæmdunum í Brandaskarðinu. Á henni eru, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Jóhann Björn Þórarinsson, Frímann Lúðvíksson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Þórður Jónsson félagsforingi, Ísleifur Haraldsson (aftar), Sævar Rafn Hallgrímsson (nær), Reynir Sigurðsson, Hallbjörn Björnsson, Jóhann Ingibjörnsson, Pétur Jóhannsson og Bergur Jón Þórðarson.
Ólafur Bernódusson1236
Líklega var þessi mynd tekin í afmælisveislu hjá Ester Ösp Víðisdóttur einhverntíma kringum 1995. Á henni eru, frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Kristján Ýmir Hjartarson og Ester Ösp Víðisdóttir.
Ólafur Bernódusson1213
Carl Erik Lehman Jakobsen kennir sund í litlu sundlauginni á Skagaströnd kringum 1995. Calle snýr baki í myndavélina en nemendur hans eru, frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Arnór Snorri Gíslason, Ívar Gylfason, Kristján Pétur Guðjónsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, ?Ragnheiður Erla Stefánsdóttir?, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, ?Eydís Ósk Einarsdóttir? og Íris Ósk Jóhannesdóttir.
2001043
Á myndinni er Hallbjörg Jónsdóttir með sonardætur sínar. Í fanginu á Hallbjörgu er Elva Dröfn, þá kemur Halla Kristín og sú lengst til hægri er Aðalheiður Sif allar dætur Árna Ólafs Sigurðssonar. Myndin var líklega tekin kringum 1984.
Ólafur Bernódusson1175
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur spennt að fylgjast með af svölunum. Frá vinstri: Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Þór Einarsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Elvar Geir Ágústsson og Páll Halldórsson.
Ingibergur Guðmundsson 468
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Davíð Reynisson, Stefán Ægir Lárusson, Arnar Erlingsson og Ágúst Ómarsson. Sá sem snýr baki í myndavélina er Þráínn Bessi Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson1176
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg annað hvort 2014 eða 2016. Á henni eru Helga Gunnarsdóttir kennari og Georg Þór Kristjánsson nemandi að kynna næsta atriði dagskráinnar.
Ljósmyndakeppni 2022 54
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ingibergur Guðmundsson 530
Þessi mynd var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í fjárhús á Skeggjastöðum kringum 1995. Strákurinn til vinstri er Jón Ingi Ragnarsson en til hægri ?Leó Kristberg Einarsson?. Ef þú getur staðfest að þetta sé Leó vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn398
Þessi vinahópur, fæddur 1989, var saman í bekk í Höfðaskóla. Frá vinstri: þórey Fjóla Aradóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson (fjær), Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006) (nær), Almar Freyr Fannarsson og Sigþór Ottó Hallgrímsson. myndin var líklega tekin 2004 eða 2005.
2001009
Myndin var tekin 1964 eða ´65 af Hrefnu Júlíu Júlíusdóttur á hlaðinu hjá Þórsmörk. Húsið í baksýn er Þórshamar.
Ingibergur Guðmundsson 491
Myndin var tekin á sundmóti líklega 1985 á litla einnota myndavél og því eru gæðin ekki mikil. Á henni er Gunnar Svanlaugsson að leggja strákunum lífsreglurnar. Næst honum, í rauðri skýlu, er Árni Jón Guðmundsson (d.8.1.2006). Aftan við hann í svartri skýlu með höndina fyrir munninum er Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 121
Líklega er þetta Gréta Jónsdóttir úr Laufási. Myndin var líklega tekin 1956 eða 1957.
Ólafur Bernódusson1218
Myndin var tekin í maí 2005 eða 2006 þegar Lárus Ægir Guðmundsson er að ræsa hóp barna af stað í víðavangshlaupi umf Fram. Börnin í röðinni eru, frá vinstri: ?? Helenudóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir,fjórar óþekkta stúlkur, Páll Halldórsson, þrjú óþekkt börn og Birkir Freyr Gunnarsson. Aftan við börnin eru, frá vinstri: Telma Bjarnadóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Stefán Velemir, Alex Már Gunnarsson?, Gígja Óskarsdóttir og Sæþór Ágústsson. Lengst til hægri á myndinni er Róbert Björn Ingvarsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin endilega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 348
Myndin var líklega tekin í vinnuviku í Höfðaskóla 1989. Á henni eru, greinilega að vanda sig, frá vinstri: Elísabet Vattnes Sigurbjörnsdóttir, Þóra Ágústsdóttir og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson1200
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýna þrjár ungar stúlkur nýjustu tísku þess tíma fyrir sinn aldur.
Gréta 077
Reynir Davíðsson frá Neðri Harrastöðum. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1950.
1
…
20
21
22
23
24
Leita í myndasafninu
Leita