Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Gréta 121
Líklega er þetta Gréta Jónsdóttir úr Laufási. Myndin var líklega tekin 1956 eða 1957.
2001010
Myndin var tekin á tröppum Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1960 - 1965 af skátunum í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, óþekkt, Jóhanna Valdimarsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, ?Hrefna Júlía Júlíusdóttir?, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Önnur röð, frá vinstri: Kristinn Lúðvíksson, Helga Ólafdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, ?Jóhanna Hallgrímsdóttir? og Sigurður Bjarnason. Þriðja röð, frá vinstri; Lárus Ægir Guðmundsson, Pálfríður Benjamínsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Anna Skaftadóttir, Sigrún Jósteinsdóttir (Siddý) og Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi). Fjórða röð, frá vinstri: Ísleifur Haraldsson, óþekkt, Guðrún Þórbjarnardóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Birgir Júlíusson. Efsta röð, frá vinstri: Búi Þór Birgisson, Stefán Ingólfsson, Ómar Þorbjörnsson, Árni Sigurðsson, Grétar Haraldsson og Hallbjörn Björnsson. Aftan við hópinn standa félagsforingjarnir, Þórður Jónsson til vinstri og Ingólfur Ármannsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 451
Anna Dröfn Guðjónsdóttir kemur í mark í Víðavangshlaupi Íslands á Miklatúni í maí 1986. Anna var ein af fleiri keppendum úr USAH.
Ingibergur Guðmundsson 542
Verðlaunahafar í einum aldursflokki í Landsbankahlaupi Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Drengurinn lengst til hægri er Jónas Þorvaldsson en hinir tveir eru óþekktir. Maðurinn í hægra horninu er Róbert Þórðarson (d.26.11.2011) sem var útibússtjóri bankans á Skagaströnd um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 090
Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli með börn sín og Rósabergs G. Snædal (d.9.1.1983). Börnin eru, frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d.31.12.2015), Gígja Snædal og Húnn Snædal. Myndin var líklega tekin einhverntíma upp úr 1950.
20231028_170201
Myndin var tekin þegar smíða á fuglaskoðunarhúsinu Kristall á Höfðanum var í gangi. Trégrindin er komin en eftir er að klæða húsið með Plexigleri. Börnin á myndinni eru systkinin Eliot Atli Martel og Sóley June Martel.
Ingibergur Guðmundsson 442
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla dansa syngjandi kringum jólatré á litlu jólum 1985. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Katrín Sigurjónsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Elíasbet Hallbjörnsdóttir, þrjú óþekkt, Rafn Ingi Rafnsson, óþekkt, Davíð Reynisson og tvær óþekktar. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1067
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd eru, frá vinstri: óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, ?? þórðarson, ?Sigurbjörn Kristjánsson? (nær), Ólafur Guðmundsson (fjær), Jón Ingi Ragnarsson, Magnús Filip Sævarsson (fjær), Stefán Agnar Gunnarsson (nær), Gunnlaugur Briem (fjær), óþekktur (nær), Guðjón Ebbi Guðjónsson (fjær), Leó Kristberg Einarsson (nær), Guðni Már Lýðsson, Lýður Ragnar Arason, Árni Halldór Eðvarðsson, Hermann Freyr Guðjónsson og Daníel Guðmundsson.
Ingibergur Guðmundsson 366
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, brýnir ljá á hverfisteini sumarið 1965. Kristinn Guðmundsson (d.1.2.1986) fylgist með til vinstri og Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) dáist að handbrögðum Kristjáns á steininum.
Gréta 064
Aftan á þessari mynd stendur: "Viðar Sverrisson Tekið 1957". Annað er ekki vitað um Viðar en gaman væri að fá upplýsingar um hann ef þú veist hver hann er.
Ólafur Bernódusson1171
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni er Georg Þór Kristjánsson að koma fram á sviðinu.
Ólafur Bernódusson1231
Myndin var tekin á grímuballi Höfðaskóla vorið 1987 í Fellsborg. Á henni er Guðbjörg Kristinsdóttir með son sinn Hákon Unnar Þórarinsson klæddan sem dama. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 380
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni eru Stefán Sveinsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri að smakka á sykurfrauði, sennilega í fyrsta sinn.
Gréta 101
Guðrún Guðmundsdóttir með nýfædda dóttur sína 1986. Litla stúlkan fékk nafnið Elínborg Ásdís Árnadóttir.
Ingibergur Guðmundsson 473
Friðrik Gunnlaugsson smíðar í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
Ingibergur Guðmundsson 432
Ragna Gunnarsdóttir slæst við naglaspýtu í vinnuviku í höfðaskóla í febrúar 1987.
2001001
Sigurður Björnsson í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 485
Á myndinni svífur Hugrún Pálsdóttir yfir rána á unglingamóti USAH líklega 1985. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ýmislegt009
Sumarið 1986 voru kofasmíðar barna á vegum umf Fram staðsettar sunnan við Höfðaskóla þar sem nú í dag er bílastæði skólans. Eins og sjá má á myndinni var mikill áhugi hjá krökkunum fyrir að smíða sér þak yfir höfuðið. Húsið til hægri er Drangey sem hefur verið rifið og sama gildir um hlöðuna í baksýn til vinstri.
Barnaból - safn610
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið rétt fyrir jólin líklega einhverntíma á árunum 2001 - 2003. Börnin prúðbúnu eru 43 en starfsmennirnir á myndinni eru 10.
URL
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1250
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir situr á sviðsbrúninni, Benóný Bergmann Sæmundsen og Helgi Sveinn Árnason.
Gréta 124
Aftan á þessari mynd stendur: "Kári Sigurbjörn Lárusson 3. ára Tekið í marz 1956". Kári ólst upp í Ási á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson1218
Myndin var tekin í maí 2005 eða 2006 þegar Lárus Ægir Guðmundsson er að ræsa hóp barna af stað í víðavangshlaupi umf Fram. Börnin í röðinni eru, frá vinstri: ?? Helenudóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir,fjórar óþekkta stúlkur, Páll Halldórsson, þrjú óþekkt börn og Birkir Freyr Gunnarsson. Aftan við börnin eru, frá vinstri: Telma Bjarnadóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Stefán Velemir, Alex Már Gunnarsson?, Gígja Óskarsdóttir og Sæþór Ágústsson. Lengst til hægri á myndinni er Róbert Björn Ingvarsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin endilega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 069
Bræðurnir Húnn Snædal til vinstri og Hólmsteinn Snædal (d.31.12.2015) til hægri. Þeir voru synir Rósbergs G. Snædal (d.9.1.1983) frá Ægissíðu og Hólmfríðar Magnúsdóttur (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli.
Ingibergur Guðmundsson 541
Lárus Ægir Guðmundsson ræsir einn riðil, af nokkrum, í Landsbankahlaup. Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en gaman að sjá fótabúnað keppendanna.
Ingibergur Guðmundsson 554
Skúli Már Matthíasson á leið heim úr skólanum á hjólinu sínu. Myndin var tekin á Strandgötunni einhverntíma kringum 1994.
2001013
Árni Ólafur Sigurðsson 1965. Á myndinni er Árni hjá verksmiðjunni og tl hægri sér í mastur sem hélt uppi stóru röri frá verksmiðjunni yfir í mjölskemmuna (nú fiskmarkaðurinn). Eftir rörinu var síldar/fisk mjölinu blásið og síðan var það sekkjað í skemmunni.
2001006
Þessi mynd var sennilega tekin snemma á sjöunda áratugnum á hlaðinu hjá Þórsmörk. Strákarnir neðst í hægra horninu eru bræðurnir Reynir, vinstra megin og Árni Ólafur Sigurðssynir sem áttu heima í Þórsmörk. Húsið til hægri er Þórshamar og framundan því sér í horn á Skálholti. Lengst frá, fyrir miðju, er Höfðaberg, sem er löngu horfið. Til vinstri er svo Höfðakot með áfastri hlöðu, sem eru einnig löngu horfin. Framan við Höfðakot sér í lítið hús, Dvergastein, sem ekki er heldur til lengur. Í öllum þessum húsum bjuggu stórar fjölskyldur á þeim tíma sem myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1223
Sundlaugin á Skagaströnd var tekin í gegn og endurbætt 1986. Þessi mynd var tekin á "endurvígsludegi" laugarinnar 31. ágúst 1986. Á henni eru krakkar að láta líða úr sér í heita pottinum eftir busl í lauginni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Arnar Haukur Ómarsson, óþekkt (nær), Guðbjörg Kristmundsdóttir (nær), Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir (fjær), Guðmundur Henry Stefánsson, tveir óþekktir og Viktor Pétursson.
Ingibergur Guðmundsson 593
Myndin var tekin í frímínútum á flippíþróttadegi i Höfðaskóla líklega kringum 1985. Nemendurnir á myndinni eru, frá vinstri: Anna María Magnúsdóttir, Sigurbjörg Jónasdóttir, Viktor Pétursson og Árný Guðrún Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson1196
Anna Sjöfn Jónasdóttir. Myndin var líklega tekin kringum 1975. Ekki er vitað hver tók myndina.
Gréta 099
Mæðgurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Fjóla Jónsdóttir úr Asparlundi láta fara vel um sig á blettinum framan við Laufás. Myndin var tekin rétt fyrir 1950.
My First Project
Myndin sýnir þegar kötturinn var sleginn úr tunnunni á öskudegi einhverntíma um miðjan níunda áratuginn. Myndina tók Jónas Baldursson sem þá var kennari við Höfðaskóla. Hún er 11 mínútna löng. Einnig er nokkuð um endurtekningar í myndskeiðinu en í myndinni geta nemendur Höfðaskóla þekkt sjálf sig í baráttunni við tunnuna.
Ingibergur Guðmundsson 472
Myndin var tekin í Höfðaskóla í vinnuviku í október/nóvember 1985. Á henni eru Björn Sigurðsson til vinstri og Hjalti Kristjánsson til hægri að smíða sófa, sem enn (2023) eru í notkun í skólanum.
Ingibergur Guðmundsson 359
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fædd 1976 að flytja skemmtiatriði fyrir aðra nemendur skólans og kennarana. Frá vinstri eru: Jósef Stefánsson, óþekkt, Arnar Haukur Ómarsson, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Steinþór Karlsson, Kristján Gunnar Guðmundsson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, óþekkt og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1232
Magnús Líndal Þrastarson á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg vorið 1987.
Ingibergur Guðmundsson 532
Myndin var tekin í pylsupartýi við Höfðaskóla líklega á útivistardegi kringum 1990. Á myndinni eru, frá vinstri: Ástmar Sigurjónsson, Gunnar Guðmundsson og Guðrún Elsa Helgadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001003
Halla Björg Bernódusdóttir í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 515
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í maí 1985. Partý í gangi í einum skólanum þar sem þau gistu í ferðinni. Nemendurnir eru, frá vinstri: Baldur Eðvarðsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Rakel Jakobína Jónsdóttir, Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) og Hulda Magnúsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 466
Yngsti aldursflokkur í víðavangshlaupi umf Fram sumarið 1985. Börnin í röðinni eru, frá vinstri: Halla Kristín Árnadóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Birkir Rafn Gíslason, Sverrir Brynjar Berndsen, óþekkt og Ólafur Guðmundsson. Jósef Stefánsson stendur aftan við Höllu, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir er aftan við óþekktan í ljósbláum fötum og Skúli Tómas Hjartarson er aftan við Sverri. Eygló Gunnarsdóttir er svo aftan við son sinn Ólaf. Lengst til hægri er Birna Sveinsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 080
Ágiskun er að þetta sé Guðrún Gísladóttir með Jóhönnu Sveinsdóttur í fanginu. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin og maðurinn í baksýn er óþekktur. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001020
Myndin var tekin 1966 af Árna Ólafi Sigurðssyni heima í Þórsmörk að hlusta á útvarpið.
Ingibergur Guðmundsson 558
Myndin var tekin á tjaldsvæðinu líklega sumarið 1989 þegar Höfðahreppur hélt upp á 50 ára afmæli sitt. Á henni leiðir Sólveig Gunnarsdóttir bróðurdóttur sína, Evu Dögg Bergþórsdóttur, eftir jafnvægisþrautinni.
2001004
Ása Jóhannsdóttir í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 565
Katrín Guðmundsdóttir í fjöruferð við Sandlækinn með bekknum sínum í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1998.
1
…
20
21
22
23
24
Leita í myndasafninu
Leita