Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason303
Systkinin Gígja Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Ásholti í gönguferð á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason381
Hafsteinn Pálsson á fermingardaginn sinn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni sem fermdi hann í Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason390
Þessi bátur, Bliki, endaði ævidaga sína á túninu á Litla Felli eftir að hafa gegnt hlutverki sínu á sjó. Börnin frá Felli skemmta sér um borð. Axel Gígjar Ásgeirsson er í stýrishúsinu, Einar Ásgeirsson heldur á fánanum og hjá honum stendur Ólafur Ásgeirsson. Stúlkan í grænu buxunum er líklega Anna Guðrún Ásgeirsdóttir en barnið í köflóttu peysunni er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason412
Kristín Jónsdóttir frá Gautsdal.
Ólafur Bernódusson162
<p>Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna í lauginni þótti gott að slaka á í heita pottinum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Inga Rós Sævarsdóttir (nær), óþekkt, María Rós Karlsdóttir, Brynjar Pétursson og Róbert Gunnarsson.</p>
Ólafur Bernódusson292
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Á myndinn syngja tveir ungir drengir fyrir áheyrendur. Vinstra megin er Jón Örn Stefánsson en hinn er óþekktur. Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Erla María Lárusdóttir og Rakel Petrea Finnsdóttir bíða eftir að röðin koma að þeim við hljóðnemann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 850
Ívan Árni Róbertsson 17. ágúst 2009.
Þórður Jónsson024
Þessi mynd er tekin á landamóti skáta á Þingvöllum 1962, Bandalag íslenskra skáta átti 50 ára afmæli. All margar stúlkur frá Skagaströnd fóru á mótið, en aðeins 4 drengir, þeir voru Stefán Ingólfson (d.21.10.2004), sem var foringi. Steindór Haraldsson varaforingi, Helgi Bjarnason ritari og Þórir Ágústson birgðavörður. Á myndinni er Stefán Ingólfsson að fara með ruslið úr tjaldbúðum Sigurfara á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson569
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Á myndinni eru krakkarnir á torginu framan við Amalienborg. Strákurinn í ljósa bolnum til vinstri er Magnús Líndal Þrastarson síðan koma talið frá vinstri: Gunnar Helgason, Geirþrúður Guðmundsdóttir, óþekktur, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, María Markovic, óþekkt, Elín Anna Konráðsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 039
Aftan á þessari mynd stendur: Helga Ragnheiður Gunnlaugsdóttir 13 ára 1972.
María Magnúsdóttir - safn 182
Á þessa mynd er skrifað:"Páll Ögmundsson Sauðárkrók".
María Magnúsdóttir - safn 071
Maðurinn á myndinni er Kristján Fjeldsteð og líklega er barnið Sveinn sonur hans. Kristján var giftur Erlendsínu (Erlu) Erlendsdóttur frá Kambakoti.
María Magnúsdóttir - safn 113
Sigurður Pálsson Neðstabæ
María Magnúsdóttir - safn 116
Aftan á þessari mynd stendur: "Þettað eru Jónatan og Jóhann elstu sinir Línu minnar tekið í situ stofuni hjá okkur". Myndin var líklega tekin í Bandaríkjunum eða Kanada en ekki er vitað hvenær. Strákarnir á myndninni voru tengdir eða skyldir Maríu Magnúsdóttur sem á myndina.
María Magnúsdóttir - safn 166
Adtan á þessa mynd er skrifað: "Jónatan Herman Jónatansson og Ól. Hillm.". Myndin var tekin hjá: Stanton Photo Novelty Co. Springfield Ohio.
María Magnúsdóttir - safn 186
Á myndinni stendur:"Stína 15 ára 1947".
María Magnúsdóttir - safn 110
Bræður frá Syðra Hóli. Björn Magnússon (d. 13.11.2010) til vinstri og Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) til hægri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1930.
María Magnúsdóttir - safn 033
Þessi mynd af Gunnari Jóni Jónssyni í Asparlundi var sennilega tekin af honum á fermingardaginn hans 1970.
María Magnúsdóttir - safn 092
Drengurinn á myndinni er Magnús B. Jónsson. Buxurnar voru saumaðar af Guðrúnu Ösp Jónsdóttur, föðursystur hans, sem fannst ófært að ungir drengir gengju í síðbuxum í sólskini. Buxurnar voru því ætið nefndar "sólskinsbuxur"
María Magnúsdóttir - safn 117
Aftan á þessa mynd stendur skrifað: "Jóhannes Guðmundsson 14 ára 14 ágúst 1943 Kær kveðja til Ragnheiðar Björnsdóttur"
María Magnúsdóttir - safn 087
Fjóla Jónsdóttir með litla bróður sinn, Ragnar Jónsson, í fanginu. Myndin var sennilega tekin 1964.
María Magnúsdóttir - safn 154
Aftan á þessari mynd stendur: "Páll Arnljótsson Sauðárkrók sonur Sigurbjargar Pálsdóttur frá Bústöðum og Arnljóts Kristjánsson Hafgrímsstöðum".
María Magnúsdóttir - safn 044
Systkinin Magnús B. Jónsson, Gunnar Jón Jónsson og Fjóla Jónsdóttir heima í Asparlundi (Bogabraut 24). Myndin var líklega tekin 1958 eða 1959.
María Magnúsdóttir - safn 175
Aftan á myndina er ritað: "Ragnheiður Margrét Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði,
María Magnúsdóttir - safn 187
Aftan á myndini stendur:"Lundfríður Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði".
María Magnúsdóttir - safn 089
Fermingarsystkin frá Höskuldsstaðakirkju líklega vorið 1933. Stúlkan lengst til vinstri er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Syðra Hóli. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 163
Aftan á myndinni stendur, ritað með blýanti: "Magnús Guðmundsson 9 ára 15 október 1943 Til Ragnheiðar Björnsdóttir".
María Magnúsdóttir - safn 139
Á bakhlið þessarar myndar er ritað með blýanti: "þettað er Jennu strákur". Með penna er skrifað: "Ögmundur Rúnar Marvinsson sonur Jennýar Sigurðardóttur og Sumarliða Lárussonar". Rúnar Marvinsson er vel þekktur matreiðslumaður í dag (2016)
María Magnúsdóttir - safn 022
Myndin var tekin í einhverri skólaferð líklega kringum 1976. Frá hægri: Árni Geir Ingvarsson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989), Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Vilhelm Harðarson.
María Magnúsdóttir - safn 179
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015) í ökumannssæti á Farmal Cub á túninu við Syðra Hól. Myndin hefur verið tekin kringum 1950.
María Magnúsdóttir - safn 112
Aftan á þessari mynd stendur:"Fjóla Sigurðardóttir Laufási dóttir Margrétar Björnsdóttur frá Syðra Hóli". Fjóla (d.15.7.1988) en Margrét (d. 11.9.1993).
Ólafur Bernódusson 729
Guðlaugur Ómar Guðmundsson sigurvegari í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Guðmundur Guðnason400
Matthildur Fossdal til vinstri og Sóley Benjamínsdóttir leika sér á sumardegi á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason413
Alda Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson166
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna í lauginni þótti gott að slaka á í heita pottinum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Brynjar Pétursson situr á brúninni í íþróttajakka, María Rós Karlsdóttir, Róbert Gunnarsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir. Stúlkurnar sem snúa baki í myndvélina eru allar óþekktar eins og sloppklæddi drengurinn? til hægri.
Ólafur Bernódusson235
Þessir krakkar stóðu fyrir tombólu, fyrir einhvert gott málefni, eftir að hafa gengið í hús og safnað munum til að selja á tombólunni sinni. Frá vinstri: María Jóna Gunnarsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Bjarney Gunnarsdóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson172
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd hvílast, frá vinstri: Helga Kristmundsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, María Rós Karlsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1511
Ingólfur Björnsson, vinstra megin, hangir með óþekktum vini sínum í leiktæki á skólavellinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir vin Ingólfs vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason062
Aftan á þessari mynd stendur: Gerður og Hólmgeir Helga magra stræti 40. Sennilega er um að ræða Gerðu Snædal og Hólmgeir Snædal.
Ólafur Bernódusson567
<p>Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Gist var á tjaldstæði í nokkrum litlum húsum eins og sést í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Ásdís Lýðsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Adolf Lúðvíksson og Sveinn Jóelsson. </p>
Ólafur Bernódusson566
Ívan Árni Róbertsson og Guðrún Anna Halldórsdóttir brosmild með banana í eldhúsinu hjá ömmu á Bogabraut 27. Myndin var tekin kringum árið 2000.
María Magnúsdóttir - safn 168
Gígja Snædal
María Magnúsdóttir - safn 058
Fjóla Jónsdóttir. Líklega ver myndin tekin 1955.
María Magnúsdóttir - safn 194
Aftan á myndinni stendur: "Guðlaug Jónsdóttir frá Leifsstöðum Svartárdal og dóttursonur hennar Árni Garðar. Guðlaug var sonardóttir Magnúsar Jónssonar bónda á Fjalli á Skagastr.".
María Magnúsdóttir - safn 096
Kristjana Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (Hólabraut 9).
María Magnúsdóttir - safn 160
Aftan á þesssari mynd stendur: "Hólmfríður Stefánsdóttir ? Indíönu Albertsdóttur".
María Magnúsdóttir - safn 051
Lýður Ragnar Arason með spennandi pakka í höndunum.
María Magnúsdóttir - safn 111
Aftan á þessari mynd stendur skrifað: "Jóhann Davíð Jónatansson og Ólínu Hillm.". Eins og sést á myndinni var hún tekin í Springfield í Ohio í Bandaríkjunum. Ekki er vitað hvenær hún var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 102
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) með ömmu- eða langömmubarn við skírn barnsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 108
Systkini frá Syðra Hóli. Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) til hægri og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri. Milli þeirra stendur bróðir þeirra, Björn Magnússon (d. 13.11.2010). Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1930.
María Magnúsdóttir - safn 069
Systkinin Fjóla Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson á reiðhjóli. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1955.
María Magnúsdóttir - safn 141
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015).
María Magnúsdóttir - safn 103
Systkinin Fjóla Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson frá Asparlundi (Bogabraut 24) á Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 090
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli á fermingardaginn sinn vorið 1933.
María Magnúsdóttir - safn 064
Systur frá Syðra Hóli. Frá vinstri: María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016), Guðrún Magnúsdóttir (d.?)og Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013).
María Magnúsdóttir - safn 100
Þetta er mynd af systkinum frá Syðra Hóli. Aftari röð frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Guðrún Magnúsdóttir og Björn Magnússon (d. 13.11.2010). Fremri röð frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) og Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli)(d. 13.11.1987). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1930.
María Magnúsdóttir - safn 174
Aftan á þetta póstkort er skrifað:"Kristín Ágústsdóttir Blönduósi. Dóttir Ágústs Jónssonar bílstjóra og Margrétar Jónsdóttur konu hans".
María Magnúsdóttir - safn 085
Hér standa frændsystkin upp við vegg á gamla bænum á Syðra Hóli. Frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015 ), Magnús B. Jónsson og Fjóla Jónsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 181
Húnn Snædal
Ólafur Bernódusson 730
Ásdís Birta Árnadóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
1
2
3
4
5
…
24
Leita í myndasafninu
Leita