Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 527
Valgerður Guðný Ingvarsdóttir til vinstri og Harpa Hlín Ólafsdóttir til hægri viðra hund þeirrar síðarnefndu á Fellsbrautinni í september 2014.
Ólafur Bernódusson 726
Sonja sif Ólafsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 630
Sólveig Erla Baldvinsdóttir situr hjá ömmu sinni Maríu Kristjánsdóttur (d.27.6.2017) á Tjörn á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 576
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014. Þá sýndu nemendur leikritið Kardimommubær. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardótir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Elmar Jóhann Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 578
Egill Örn Ingibergsson í hlutverki sínu í Kardimommubænum á árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014.
Ólafur Bernódusson 735
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni syngja yngri börn skólans fyrir gesti við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur en lengst til vinstri á sviðinu er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 648
Myndin af þessum systkinum var tekin 4. desember 2014 þegar kveikt var á jólatré á Hnappstaðatúni. Systkinin eru frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Ísak Andri Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 667
Inga Rós Sævarsdóttir með ömmustrákinn sinn Alexander Sævarsson í fanginu 13. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 643
Myndin var tekin 23. júní 2014 við formlega opnun á göngubrú yfir Hrafná. Á henni eru mæðginin Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Sigurjón Ýmir Alexson að fylgjast með gjörningi spákvennanna úr Spákonuhofinu, sem þær sýndu við þetta tækifæri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 592
Séra Bryndís Valbjörnsdóttir leiðir fermingarbörn sín til kirkju 24. maí 2014. Á myndinni má þekkja frá vinstri: Jóhannes Hólmar Sigurpálsson, Sigurður Aron Björnsson, Georg Þór Kristjánsson, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Harpa Hlín Ólafsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 699
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á grímuballi í gömlu tunnunni. Myndina tók Þórarinn Björnsson en börnin á myndinni eru óþekkt.
Arnar HU 1 - safn 73
Baldur Magnússon með eitt fjögurra barna sinna. Ekki er vitað hvert þeirra þetta er.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 896
Ásdís Erla Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 693
23. janúar 2014 stóð Gleðibankinn fyrir samkomu í Bjarmanesi þar sem María Markovic hélt fyrirlestur og sagði frá dvöl sinni á Salomonseyjum í Suður-Kyrrahafi. María sýndi skemmtilegar myndir frá dvöl sinni þar og var fyrirlestur hennar bæði skemmtilegur og fræðandi. Á myndinni er Maía til hægri en á tjaldinu er mynd af innfæddum karlmanni sem leiðir son sinn. Sigurður Ingimarsson fylgist með fyrir miðri mynd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 906
Sveinn Halldór Hallgrímsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 656
Krakkarnir á myndinni láta snjókomu 4. desember 2014 ekki trufla sig við að nota símana sína útivið. Krakkarnir eru frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Victoría Sif Hólgeirsdóttir og óþekkt stúlka.
Ólafur Bernódusson 747
Myndin var tekin 15. 11. 2012 á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni eru nemendur að flyta einhvert skemmmtiatriði. Frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson og Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 785
Mynd tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni eru Birgitta Rut Bjarnadóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri að skoða götuskreytingu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 940
Kristmar Ingi Ragnarsson til vinstri og Elvar Geir Ágústsson til hægri í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 921
Lilja Svandís Hallgrímsdóttir til vinstri og Guðrún Anna Halldórsdóttir til hægri niðsokknar við jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 172
Skagaströnd skiptist óformlega í innbæ og útbæ. Á myndinni, sem líklega var tekin kringum 1958 framan við Höfðabrekku (Bankastræti 10), eru nokkrir krakkar úr útbænum. Frá vinstri: óþekkt stúlka, Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), óþekktur strákur, Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Árni Björn Ingvarsson, Heiðar Elvan Friðriksson, Örn Berg Guðmundsson (Assi), Ólafur Bernódusson og Steindór Haraldsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 738
Myndin var tekin á Elíborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2011. 16. nóvember er dagur Íslenskrar tungu og er hans minnst á ýmsan hátt í grunnskólum. Í Höfðaskóla er dagurinn nefndur Elínborgardagur eftir Elínborgu Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara og starfsmanns skólans í hálfa öld. Krakkarnir á sviðinu eru frá vinstri: Arnrún Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Gunnar Andri Elvarsson, Gunnar Snorri Guðjónsson, Helga Steingrímsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, Ísabella Tryggvadóttir, Óðinn Gunnarsson, Sóley Sif Jónsdóttir, Sólveig Erla Baldvinsdóttir, Stefanía Hrund Sveinsdóttir, óÞorkell ?r og Þórunn Hólmgeirsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 898
Harpa Hlín Ólafsdóttir í Höfðaskóla 6. desembar 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 902
Tryggvi Fjölnisson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 923
Magnús Jens Magnússon til vinstri og Birkir Freyr Gunnarsson til hægri í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 998
Unnar Leví Sigurbjörnsson spilar á gítar á söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, sem haldin var í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 916
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsinu - 10. desember 2007. Á myndinni eru frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen og Egill Örn Ingibergsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 733
28. janúar 2015 héldu krakkarnir í Höfðaskóla gala-kvöld í veitingahúsinu Borg. Krakkarnir sáu um undirbúning, hjálpuðu til við matreiðslu sáu um framreiðslu og frágang eftir máltíðina sem fjöldi fólks keypti sig inn á. Á myndinni eru krakkarnir að gera klárt fyir kvöldið. Frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson?, Anton Þór Einarsson, Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, Victoria Hólmgeirsdóttir, Trostan Agnarsson kennari (fjær), Jóna Margrét Sigurðardóttir (nær), óþekkt og Sigurður Aron Björnsson.
Ólafur Bernódusson 855
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af frænkunum Elísabetu Eik Guðmundsdóttur til vinstri og Hólmfríði Önnu Ólafsdóttur (Díu Önnu) til hægri með nýju reiðhjólin sín en líklega hefur það verið kringum 1985. Margir sem komnir eru á miðjan aldur minnast þeirrar stóru stundar þegar þeir eignuðust fyrsta reiðhjólið sitt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 907
Anton Þór Einarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 577
Á árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014 buðu nemendur upp á leiksýninguna Kardimommubærinn. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Sigurður Aron Björnsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Rebekka Heiða Róbertsdóttir.
Ólafur Bernódusson 725
Sara Rut Fannarsdóttir að syngja í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 557
Systkinin Anna Marie Gruenberger til vinstri og Mathis Gruenberger til hægri hvíla lúin bein utan við Strandgötu 10, 16. apríl 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 646
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri kveikir á jólatré á Hnappstaðatúni 4. desember 2014. Hjá honum stendur ungur hjálparsveinn hans, Ísak Andri Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 655
Viktor Már Einarsson til vinstri og Auðunn Árni Þrastarson til hægri í versluninni á Skagaströnd 4. desember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 525
Vatnsslagur á þvottaplaninu í ágúst 2014. Strákurinn í grænu peysunni er Snæbjörn Arnarsson en sá með hjálminn er Ellert Atli Þrastarson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 8
Strákarnir eru að leika sér á tröppunum á Bankastræti 9 (Höfðaborg) að norðanverðu. Lengst til vinstri er Vilhelm Þórarinsson, sá í miðið er óþekktur en til hægri er Adolf H. Berndsen. Myndin var líklega tekin kringum 1970. Ef þú þekkir strákinn í miðjunni vinlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 10
Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018). Mynd var líklega tekin kringum 1970.
Axel Jóhann Hallgrímsson 26
Myndin var tekin á sjómannadegi 2007 af börnum sem sungu fyrir áhorfendur á hátíðahöldum dagsins. Börnin eru frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, óþekkt, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Hallgrímsson og Dagur Freyr Róbertsson. Til hliðar við sviðið til vinstri eru Aldís Embla Björnsdóttir (fjær) og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir (nær). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 749
Myndin var tekin 15. nóvember 2012 á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni eru nemendur að flyja skemmtiatriði fyrir gesti. Frá vinstri: Aníta Ósk Ragnarsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen, Helgi Sveinn Árnason, Róbert Vattnes, Birgitta Bjarnadóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Hallgrímsson og Björn Björgvinsson
Ólafur Bernódusson 727
Andrea Björk Kristjánsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 687
Mæðginin Sigríður Stefánsdóttir og Ólafur Halldórsson fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Arnar HU 1 - safn 133
Guðmundur Henry Stefánsson með unga dóttur sína, Sigríði Kristínu, í fanginu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 2012.
Ólafur Bernódusson 728
Þessar þrjár ungu stúlkur tóku þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008. Þær eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir og Ásdís Erla Steingrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 848
Á hverju vori í nokkur ár var haldið Landbankahlaup við útibú bankans á Skagaströnd. Á myndinni, sem var tekin 5. maí 2007, er Signý Richter, starfskona bankans, að mála barn með andlitsmálningu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 171
Systkinin Heiðar Elvan Friðriksson til vinstri, Ólöf Jóhanna Smith í miðjunni og Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) til hægri. Á myndinni sitja þau framan við heimili sitt í Höfðabrekku (Bankastræti 10). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1958.
Ólafur Bernódusson 823
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 11. apríl 2008. Börnin á sviðinu eru, sitjandi frá vinstri: Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir, óþekkt og Kristján Róbertsson. Standandi frá vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Svandís Lilja Hallgrímsdóttir, Guðmann Magnússon, Sveinn Hallgrímsson, Ísak Tryggvason, Páll Halldórsson (nær), Heba Líf Jónsdóttir (fjær), Eymundur Lórens Grétarsson, Ísabella Róbertsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 608
Þrjár ungar stúlkur að safna dóti á hlutaveltu sem þær héldu til styrktar Rauða krossinum. Stúlkurnar eru frá vinstri: Birgitta Rún Finnbogadóttir, Elsa Fanney Gunnarsdóttir og Katrín Ragna Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 637
Jón Benedikt Tischleder Jensson á einhverri skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg 1. desember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 848
Birta Dögg Bessadóttir 22. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 204
Eftir að hafa unnið í bæjarvinnunni yfir sumarið fóru krakkarnir með leiðbeinendum sínum um haustið í Kántrýbæ og borðuðu saman hamborgara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 2012 eða 2013. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1088
Þessi mynd var líklega tekin sumarið 2010 af vinunum fjórum í vinnuskólanum. Þeir eru frá vinstri: Sigurjón Elí Eiríksson, Aron Snær Fannarsson, Indriði Theodór Hjaltason og Ívan Árni Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 852
Guðný Eva Björnsdóttir 17. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 986
Þessar ungu stúlkur eru að syngja í söngkeppninni "Gargið", á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 6. mars 2008. Stúlkurnar eru frá vinstri: Rakel Jensína Jónsdóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir og Halldóra Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 878
Myndin var tekin rétt fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla. Á henni aðstoðar Magnea Valdimarsdóttir nokkra nemendur við jólaföndrið. Nemendurnir eru, frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson og Arnar Páll Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 908
Laufey Lind Ingibergsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 879
Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Saga Lind Víðisdóttir til hægri föndra fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 904
Benóný Bergmann Sæmundsen í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 881
Leifur Örn Ragnarsson skolar á sér hendurnar 11. desember 2007 í Höfðakóla enda í miðju kafi í jólaföndri með bekknum sínum.
Ólafur Bernódusson 821
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 11. apríl 2008. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Sigurbjörg Birta Berndsen, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), óþekkt, Telma Dögg Bjarnadóttir, óþekkt, Birta Bessadóttir og óþekktur.
1
2
3
4
5
…
24
Leita í myndasafninu
Leita