Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn549
Kristín Gyða Guðmundsdóttir í berjamó á Höfðanum haustið 1998 með leikskólanum Barnaból. Eins og sjá má voru þá ennþá uppistandandi olíutankarnir þar. Shell tankurinn stóð uppi á stallinum þar sem nú er lítið hringtorg en tveir Olís (BP) tankar stóðu neðan við stallinn. Allir tankarnir eru nú horfnir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1338
Danssýning 12. október 2012 í íþróttahúsinu. Krakkarnir á myndinni stíga hringdans undir stjórn Köru Arngrímsdóttur danskennara.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1306
Myndin var tekin 14. ágúst 2012 af krökkum að leika sér að synda í sjónum við Skúffugarðinn. Daði Snær Stefánsson er uppi á bryggjunni á sundskýlu, óþekkt stúlka er á leið upp stigann en Harpa Hlín Ólafsdóttir hangir í landfesti Benna Ólafs meðan hún bíður eftir að komast í stigann. Strákurinn í bláu íþróttatreyjunni er Birkir Freyr Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 885
Viktor Már Einarsson í Höfðaskóla rétt fyrir jólin 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1005
Elías Gunnar Hafþórsson spilar á trommur í hljómsveit á söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - í Fellsborg 6. mars 2008.
Barnaból - safn500
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn126
Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) með móðurömmu sinni Kristbjörgu Torfadóttur (d.22.5.1987). Líklega var myndin tekin kringum 1968.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 891
Tanja Rán Eirnarsdóttir og Harpa Hlín Ólafsdóttir undirbúa litlu jólin í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn121
Ólafur Bernódusson. Myndin var líklega tekin 1958 eða 59.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1341
Vinirnir Auðunn Árni Þrastarson til vinstri og Páll Halldórsson til hægri njóta góða veðursins á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1113
Guðmundur Árnason til vinstri og Guðlaugur Ómar Guðmundsson til hægri á gleði- og grilldegi vinnuskólans sumarið 2010.
Ólafur Bernódusson 932
Myndin er af leikskólabörnum úr Barnabóli þegar þau komu í kirkjuna í desember 1998 með jólagjafir handa fátækum börnum. Gjafirnar eru í kössunum framan við hópinn. Börnin eru: í fremstu röð frá vinstri: tvær óþekktar, Sigurjón Elí Eiríksson, tvö óþekkt, Telma Dögg Bjarnadóttir og óþekkt. Aðrir frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, óþekkt, Indriði Theódór Hjaltason, Brynjar Max Ólafsson, tvö óþekkt, Eva Dís Gunnarsdóttir, óþekkt, Viktor Örn Valdimarsson og óþekkt. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1625
Skólahljómsveitin Dornik spilar í Fellsborg 4. febrúar 2012 á þorrablóti. Krakkarnir eru frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Heba Líf Jónsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Barnaból - safn525
Halla Björk Víðisdóttir í leiksólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn492
Guðrún Anna Halldórsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn528
Bryndís Brá Liljudóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1233
Prúðbúin börn í Hólaneskirkju 2. desember 2012. Líklega var þá haldið aðventukvöld þar og krakkarnir sungu í barnakór. Í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Óðinn Örn Gunnarsson, Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir, Sóley Sif Jónsdóttir og Ísabella Líf Tryggvadóttir. Miðröð, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Andri Már Gunnarsson og Gabríel Goði Tryggvason. Aftasta röð, frá vinstri: systurnar Rakel og Karen Elvarsætur og Ingólfur Eðvald Björnsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir106
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017), tengdadóttir Jóns, með dóttur sína Ásdísi Þórbjarnardóttur í fanginu.
Barnaból - safn626
Hallgrímur Egilsson í fjögurra ára afmæli sínu í leikskólanum Barnaból 12. september 1997. Með honum við borðið eru Eva Dís Gunnarsdóttir í rauðri peysu. Telma Dögg Bjarnadóttir er í grænum bol en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir stúlkuna við borðsendann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 911
Rebekka Heiða Róbertsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn107
Systurnar Halla Björg Bernódusdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1955.
Barnaból - safn450
Felix Arnkell Guðmundsson í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Barnaból - safn648
Þessi stúlka sendi starfsfólki leikskólans Barnaból jólakveðju jólin 1984. Undirskriftin er Björk en föðurnafn hennar er óþekkt. Ef þú veist hvers dóttir Björk er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn115
Á myndinni frá því í mars 1963 eru systkinin Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) og Ólafur Bernódusson að kjassa verðlaunahrútinn Sóma sem faðir þeirra átti. Ólafi var treyst til að passa bæði Lilju og hrútinn þegar honum þurfti að koma milli túna. Sómi var mikil rólyndis skepna þannig að oftar en ekki fékk Lilja að sitja á baki hans meðan þau þrjú röltu milli staða.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1268
Vinkonurnar Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) með reiðhjól og Ásdís Birta Árnadóttir á gangi 13. júlí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1362
Myndin var tekin 27. maí 2012 í Nes listamiðstöðinni. Á henni eru að kynnast og leika sér saman, Loppa Laglínudóttir og Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1249
Harpa Hlín Ólafsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Barnaból - safn516
Indriði Theódór Hjaltason í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1456
Myndin var tekin 9. september 2011 í sundlaugarpartrýi kvöldið áður en lauginni var lokað fyrir veturinn. Fyrir tilkomu hitaveitu var sundlauginni lokað að loknu skólasundi í september og ekki opnuð aftur fyrr en í maí, þegar skólasund hófst á ný. Síðasta kvöldið áður en hleypt var úr lauginni var haldið partý fyrir krakkana í unglingadeildinni í Höfðaskóla. Eins og sjá má var vinsælt að fara í froðubað í heita pottinum.
Ólafur Bernódusson 875
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að leika kennslustund eins og hún var um 1939 þegar Höfðaskóli var stofnaður. Frá vinstri á myndinni: Óþekktur (sitjandi), Tinna Björk Gunnarsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Ragnar Már Björnsson, Eyþór Vilhjálmsson, Anna Dúna Rúnarsdóttir og Jón Atli Magnússon. meðal áhorfenda má þekkja Patrik Snær Bjarnason með svarta húfu.
Barnaból - safn482
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Ólafur Bernódusson 843
Landsbankahlaupið, sem var víðavangshlaup, var haldið á vorin í nokkur ár á vegum útibúsins á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 5. maí 2007 af sigurvegurum í víðavangshlaupinu á sínum flokki. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Svandís Lilja Hallgrímsdóttir og Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1262
Þetta unga fólk er að ganga í hús 27. mars 2012 að safna tómum flöskum til að selja í endurvinnslu. Ekki er vitað hvað þau ætluðu að gera við peningana en líklega hafa þeir verið ætlaðir Rauða krossinum. Krakkarnir eru frá vinstri: Elísa Bríet Björnsdóttir, Ingólfur Eðvald Björnsson, Magnús Sólberg Baldursson og Sindri Freyr Björnsson.
Ólafur Bernódusson 972
Myndin var tekin í efra gangi Höfðaskóla 1984. Börnin á myndinni eru óþekkt en þessi staður í skólanum er gerbreyttur í dag. Þarna er nú vinnuaðstaða kennara og fuglaskápurinn fyrir enda gangsins er horfinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1312
Myndin var tekin 10. ágúst 2011 af Eymundi Lórens Grétarssyni á spjalli við ömmu sína Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) utan við heimili hennar í Brimnesi.
Barnaból - safn459
Kristmar Ingi Ragnarsson í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1251
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkurinn að sýna atriðið sitt. Frá vinstri: ? Jónasdóttir?, Páll Halldórsson, óþekkt, Linda Rún Einarsdóttir, óþekkt, Sæunn Steingrímsdóttir og Anton Þór Einarsson. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn110
Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) prófar nýja þríhjólið sitt í mars 1966 á stéttinni við heimili sitt í Stórholti (Bankastræti 3). Við húshornið stendur bróðir Lilju, Ólafur Bernódusson, þungur á brún og framan við hann vinur Lilju, Ástmar Kári Ástmarsson. Upp við vegginn er heimasmíðaður vörubíll á hvolfi en hann er á fjöðrum úr girði eins og strákar smíðuðu sér á þeim tíma.
Barnaból - safn438
Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri að vinna með nokkrum strákum í Barnabóli í maí 1998. Strákarnir eru frá vinstri: Valþór Óli Vilhelmsson, Alexander Ragnarsson, Guðlaugur Ómar Guðmundsson (nær) og Guðjón Örn Kristjánsson (fjær).
Ólafur Bernódusson 879
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að lesa fyrir fólk úr sögu skólans.
Barnaból - safn465
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 1997 - 98. Stúlkan á henni er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1178
Daði Snær Stefánsson í veiði- og sulltúr í Hrafnánni 8. september 2010.
Barnaból - safn625
Ásdís Rán Kristjánsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1722
Vala Rós Ingvarsdóttir skoðar bing af hörskeljum sem var hent eftir að fiskinum úr þeim hafði verið tekinn til vinnslu. Líklega ver myndin tekin kringum 1980.
Barnaból - safn510
Ásdís Rán Kristjánsdóttir ? í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 963
Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) vinstra megin og Aldís Embla Björnsdóttir hægra megin utan við íþróttahúsið 26. mars 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 948
Enginn er of gamall til að taka þátt í söngnum og leiknum:"Í skóginum stóð kofi einn". Á myndinni eru nemendur að dansa kringum jólatré á litlu jólunum í Höfðaskóla 19. desember 2007 og syngja um litla hérann sem leitar skjóls hjá jólasveininum. Nemendurnir eru frá vinstri: óþekktur, Ásdís Birta Árnadóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Andrea Kristjánsdóttir, Freyja Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir og Sara Rut Fannarsdóttir
Barnaból - safn532
Á myndinni frá 15. júní 1998 er hátíð í bæ í leikskólanum Barnaból þegar boðið er upp á snakk til að maula. Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Halla Björk Víðisdóttir, Hanna Dís Gestsdóttir, Valþór Óli Vilhelmsson, Tanja Rán Einarsdóttir og Einar Ari Einarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir nema Unnar Leví Sigurbjörnsson, sem er næstur okkur hægra megin við borðið.
Barnaból - safn639
Birkir Rafn Gíslason með kórónu lagfærir hárið á Valrúnu Evu Vilhelmsdóttur í leikskólanum Barnaból. Konan í baksýn er Kristín Kristmundsdóttir með Harald Brynjar Sigurðsson í fanginu. Myndin var líklega tekin 1985 eða 86. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 967
Myndin var tekin í danstíma í Fellsborg 9. október 2006. Kara Arngrímsdóttir danskennari leiðir hópinn. Börnin eru, talin frá Köru: óþekktur, Hallbjörg Jóndóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, tveir óþekktir, Dagur Freyr Róbertsson, Sveinn Hallgrímsson, Sunna Steingrímsdóttir, Aníta Ósk Ragnarsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Daði Snær Stefánsson, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og óþekkt. Í andyrinu standa Lilja Nótt Sævarsdóttir til vinstri og Elín Rafnsdóttir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 849
Valgerður Guðný Ingvarsdóttir 7. ágúst 2009.
Barnaból - safn437
Myndin var tekin í Barnabóli vorið 1998. Fremri röð frá vinstri: Valþór Óli Vilhelmsson, Þórður Indriði Björnsson og óþekktur. Aftari röð frá vinstri: Elías Kristinn Sæmundsson, Þórir Óskar Björnsson og Alexander Ragnarsson. Til hægri situr á bekk Davíð Víðisson. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 895
Páll Halldórsson í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1372
Ásdís Birta Árnadóttir í haustlituðum garði 12. október 2012.
Ólafur Bernódusson 890
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar Arnór Snorri Gíslason lagið sitt á píanóið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 935
Guðný Eva Björnsdóttir, Aron Snær Fannarsson í miðið og Kristmar Ingi Ragnarsson til hægri dunda við jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1523
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að leika málshátt sem gestir eiga að giska á hver sé. Málshátturinn í þetta sinn var: " Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi". Leikararnir eru frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1363
Halla Kristín Árnadóttir með dóttur sína Birgittu Björgu Birgisdóttur á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011.
Barnaból - safn443
Eva Dís Gunnarsdóttir í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Barnaból - safn611
Bergrós Helga Hafsteinsdóttir sparibúin á leikskólanum Barnaból. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á árunum 2000 - 2002.
1
…
8
9
10
…
24
Leita í myndasafninu
Leita