Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 134
Unnið við snyrtingu við færiband í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Sigrún Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 181
Salóme Jóna Þórarinsdóttir við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 674
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ólafur Bernódusson snýr baki í okkur í blárri peysu og sama gerir Ingibergur Guðmundsson til hægri. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 166
Adtan á þessa mynd er skrifað: "Jónatan Herman Jónatansson og Ól. Hillm.". Myndin var tekin hjá: Stanton Photo Novelty Co. Springfield Ohio.
Ólafur Bernódusson597
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á togurum Skagstrendings hf og Fisk Seafood tekur þátt í fundi með æðstu mönnum Hafrannsóknarstofnunar á Skagaströnd 16. október 2001. Árni var með fiskifræði sjómannsins á hreinu.
Höfðaskóli - safn 317
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari í sínu rétta umhverfi við vinnu á bókasafninu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 192
Guðrún Magnúsdóttir í símanum í verkstjórakompunni í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 146
<p>Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, er Dennis Lumbard , eigandi fyrirtækisins, að afhenda Guðjóni Ebba Sigtryggssyni skipstjóra á Örvari Hu 21, til hægri, viðurkenningu fyrir góða vöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum persónulegan viðurkenningarskjöld.</p>
María Magnúsdóttir - safn 014
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Jón Jónsson (d. 9.7.1991) framkvæmdastjóri, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir. Líklega var myndin tekin kringum 1980.
Höfðaskóli - safn 212
Þrír kennarar Höfðaskóla taka þátt í morgunsöng í vinnuviku einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir, Einar Haukur Arason og Stefán Ægir Lárusson.
María Magnúsdóttir - safn 042
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987) frá Syðra Hóli.
Fisk Seafood - safn 125
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Lengst til vinstri má þekkja Lárus Ægi Guðmundsson en hægra megin við borðið eru, frá vinstri: Sveinn Ingi Grímsson, Líney Jósefsdóttir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Jón Helgason, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Bára Þorvaldsdóttir, Gunnar Sveinsson og Heiðdís Sigurðardóttir.
Fisk Seafood - safn 035
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Þá var þessi mynd tekin af nokkrum starfsstúlkum fyrirtækisins. Frá vinstri við línuna: Erna Rós Magnúsdóttir, Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) og Þórunn Þorláksdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 047
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi, Bogabraut 24.
María Magnúsdóttir - safn 061
Aftan á þessari mynd stendur: "Sveinbjörn Albertsson með Björn Magnússon Syðra-Hóli". Sveinbjörn var bróðir Jóhönnu Albertsdóttur móður Björns. Myndin var að öllum líkindum tekin í klettafjörunni neðan við Syðra Hól.
María Magnúsdóttir - safn 096
Kristjana Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (Hólabraut 9).
María Magnúsdóttir - safn 116
Aftan á þessari mynd stendur: "Þettað eru Jónatan og Jóhann elstu sinir Línu minnar tekið í situ stofuni hjá okkur". Myndin var líklega tekin í Bandaríkjunum eða Kanada en ekki er vitað hvenær. Strákarnir á myndninni voru tengdir eða skyldir Maríu Magnúsdóttur sem á myndina.
Ólafur Bernódusson606
Í september 2001 kom nýr slökkvibíll til Slökkviliðs Skagastrandar. Gamli bíllinn, sem er til hægri á myndinni, hafði þjónað liðinu í áratugi en þótti orðinn gamaldags og ekki næganlega góður. Gamli bílinn var af Bedford gerð en sá nýi er Benz. Á myndinni stendur Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri framan við nýja bílinn.
Höfðaskóli - safn 342
Nemendur úr 10. bekk Höfðaskóla í heimsókn á skólakynningu. Myndin var tekin annað hvort í FNV á Sauðárkróki eða VMA á Akureyri. Í sömu ferð komu krakkarnir við í MA. Krakkarnir fá kynningu á skólunum í slíkum heimsóknum og eru leidd gegnum allar deildir þeirra. Stundum voru slíkar heimsóknarferðir farnar með Blönduskóla og Húnavallaskóla. Þessi mynd var tekin 1993 eða 1994. Frá vinstri: Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, óþekktur kennari, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Sigurður Berndsen, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, óþekkt, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, óþekkt, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir og óþekkt.
Fisk Seafood - safn 032
Þessar tvær konur unnu mjög lengi hjá Hólanesi hf í frystihúsinu. Anna H. Aspar (d.1.9.1999) til vinstri og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (d. 8.12.2003) til hægri. Myndin var tekin 13. janúar 1989 en þá var tekin í notkun ný flæðilína í frystihúsinu.
Ólafur Bernódusson615
Tívolí á skólalóðinni á kántrýhátíð í ágúst 2001. Í þessu tæki var hægt að hoppa í tvöfaldri teygju og fá verulegt kitl í magann.
Fisk Seafood - safn 156
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá tók fjölmenni á móti skipinu á hafnarbakkanum. Flestir Skagstrendingar áttu hluti í Skagstrendingi hf og því um leið hlut í hinu nýja skipi. Því má leiða rök að því að meirihluti fólksins á myndinni hafi átt í Örvari sem þarna var boðinn velkominn í heimahöfn. Aftast á myndinni eru, frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir, óþekkt, Skarphéðinn Ragnarsson með myndavél um hálsinn og Jónas Baldursson bak við myndavél á þrífæti. Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) situr á bekk en hægra megin við hana eru Vigdís Viggósdóttir, Vilhelm Þórarinsson og Fannar Viggósson. Framan við Vilhelm eru Georg Hjartarson (d.13.9.2001 ) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003 ). Lengst til vinstri gráhærður með sólgleraugu er Björgvin Jónsson (d.4.5.1992 ),óþekkt kona er framan við hann en síðan kemur Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011 ) með gleraugu og Halldóra Þorláksdóttir við hlið hennar. Framan við Aðalheiði er Fritz Hendrik Berndsen og Ingvar Þór Jónsson hægra megin við hann. Framan við Fritz Hendrik sér í Hinrik Jóhannesson en konurnar við hlið hans eru Guðrún Sigurðardóttir og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 094
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Oft var mikið fjör á þessum tónleikum/dansleikjum. Þessi mynd var tekin við eitt slíkt tækifæri 1994. Á myndinni má þekkja Guðjón Árnason í köflóttri skyrtu, Róbert Gunnarsson við hlið hans og Sigríði Ásgeirsdóttur lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 359
Þessar ungu stúlkur í sparifötunum sínum í Höfðaskóla eru líklega á diskóteki þar einhverntíma í 1993 - 1995. Frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og María Guðrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 696
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason og Kristín Kristmundsdóttir. Ártalið er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 283
Jón Ingi Ragnarsson við undirbúningsvinnu í Höfðaskóla fyrir 60 ára afmælishátíð skólans í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 264
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er Kristinn Daníel Guðmundsson í vinnu við skólablað sem gefið var út í sambandi við afmælið.
María Magnúsdóttir - safn 010
Margt er gert til gamans á sjómannadeginum á Skagaströnd og er þá ekkert heilagt hvað skemmtiatriði snertir. Hér eru að skemmta í kvennmannsfötum, frá vinstri: óþekktur, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Finnur Kristinsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
María Magnúsdóttir - safn 186
Á myndinni stendur:"Stína 15 ára 1947".
Fisk Seafood - safn 141
Matratími á hótel Dagsbrún. Vinkonurnar Guðný Sigurðardóttir til vinstri og Guðrún Pálsdóttir til hægri unnu lengi saman á skrifstofum Hólaness hf og Skagstrendings hf en skrifstofurnar voru báðar á hæðinni ofan við hótelið í stjórnsýsluhúsinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 232
<font size="1"><font size="2"> Á þessari mynd vinna þeir Óskar Kristinsson til vinstri og Gunnlaugur Árnason til hægri við að setja síðustu fiskana í síðasta kassann sem fyllir lestina á Örvari Hu14 alveg upp í lúgu. Örvar Hu 14 var annar af fyrstu ísfisktogurunum á Íslandi sem ísaði allan afla í plastkassa en Skagstrendingur hf keypti skipið frá Noregi 1970. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font> </font></font>
María Magnúsdóttir - safn 133
María Sveinsdóttir (d.7.1.2011) frá Tjörn á Skaga.
María Magnúsdóttir - safn 260
Á þessari mynd, sem tekin var á ljósmyndastofu á Sauðárkróki, stendur: "Ögmundur Magnússon söðlasmiður Sauðárkróki. Kristín". Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Ögmundsdóttir, Magnús Ögmundsson og Ingibjörg Ögmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Kristín Björg Pálsdóttir (d.17.8.1942) situr með Sigríði Ögmundsdóttur, Páll Ögmundsson, Ögmundur Magnússon (d.9.8.1968) situr með Jóhönnu Ögmundsdóttur. <br>
Fisk Seafood - safn 151
Þessi mynd var tekin þegar Einar Benediktsson þáverandi forstjóri Olís og stjórnarmaður í Skagstrendingi hf, lengst til hægri, afhenti Jóel Kristjánssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf viðurkenningu fyrir góð viðskipti í áratugi. Lengst til vinstri er svo Adolf H. Berndsen þáverandi stjórnarformaður Skagstrendings hf. Myndin var sennilega tekin árið 2000.
Ólafur Bernódusson 573
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Margrét Ólafsdóttir að sýna prjónajakka sem framleiddur var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Fisk Seafood - safn 193
Linda Kristjánsdóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 4
Sigurður Jónsson (1880- 11.1.1968) bóndi á Mánaskál í Laxárdal.
Fisk Seafood - safn 061
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er Rut Jónasdóttir.
Ólafur Bernódusson599
Í september 2001 kom Pétur Eggertsson, þáverandi formaður Rauðakrossdeildar Skagastrandar, færandi hendi í Höfðaskóla. Meðferðis hafði hann reiðhjólahjálma handa fyrstu bekkingum frá deildinni. Á þessari mynd er Sæþór Ágústsson ánægður að máta nýja hjálminn sinn.
Fisk Seafood - safn 206
<p>Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Á myndinni vinna starfsmenn Rækjuvinnslunnar að því að koma hluta nýju tækjanna fyrir. Frá vinstri: Arnar Ólafur Viggósson, Jón Oddur Hjálmtýsson, Árni Geir Ingvarsson (uppi), Sveinþór Ari Arason í ljósri peysu og lengst til hægri sér í Gunnar Stefánsson. </p>
Fisk Seafood - safn 109
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen, Signý Richter, Marco Marcovic, óþekktur, Sigríður Gestsdóttir, Stefán Jósefsson og óþekkt. Við næsta borð má þekkja Svein Garðarsson.
Fisk Seafood - safn 097
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Hér er hópurinn að njóta veitinga á Grillinu á hótel Sögu. Vinstra megin við borðið nær okkur eru: Guðrún Sigurðardóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), fjórir óþekktir, Jóninna Pálsdóttir, Kristófer Árnason og óþekkt fólk en Dagný Sigmarsdóttir er við endann í ljósri skyrtu. Hægra megin við borðið eru: María Magnúsdóttir (d. 2.2..2016), óþekktur, Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og við enda borðsins er Adolf H. Berndsen og Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) við hlið hans. Við hitt borðið má þekkja Bjarney Valdimarsdóttur í rauðum kjól. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 195
Í svokallaðri Vinnuviku, sem haldin var í Höfðaskóla annað hvert ár, var hefðbundið skólastarf lagt til hliðar og nemendurnir fengu önnur verkefni til að fást við. Á þessari mynd, sem tekin var í einni slíkri viku, þar sem áherslan var á heilsu og heilbrigði, er nemendahópur ásamt kennurum, sem buðu upp á heilsusamlegan morgunverð fyrir nemendur skólans. Frá vinstri: Guðrún Björk Elísdóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Líney Jósefsdóttir heimilisfræðikennari, Jóhannes William Grétarsson, Gunnþór Óskar Sæþórsson, Gunnar Dór Karlsson, Ólína Laufey Sveinsdóttir?, Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari, óþekktur, Skúli Már Matthíasson og Eyþór Ernstsson.
Fisk Seafood - safn 030
Kjartan Bjarnason við vinnu í vélasal frystihúss Hólaness hf 13. janúar 1989.
María Magnúsdóttir - safn 004
Að lokinni messu í gömlu Hólaneskirkju. María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) ræðir við óþekkta konu með barn en konan með húfuna er Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 368
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á myndinni er María Markovic á einhverjum óþekktum áningastað í ferðinni.
María Magnúsdóttir - safn 153
Á þessari mynd stendur:" Ólafur Björnsson frá Syðra Hóli myndin er tekin í Laugfási". Systir Ólafs, Margrét bjó lengi í Laufási á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 19
Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri) í sunnudagaskóla eða æskulýðsmessu einhverntíma kringum 1965. Fremst á myndinni, með húfu og í skræpóttri úlpu, er Guðrún Friðriksdóttir (d. 14.2.2008). Konan á næsta bekk er Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) og aftan við hana sér í Lárus Guðmundsson (d.21.9.1981). Strákurinn sem deilir bekk með Guðnýju er Magnús B. Blöndal (d. 7.9.2001). Maðurinn sem er að laga bindið sitt er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og konan í sama bekk er Björk Axelsdóttir og telpan við hlið hennar er líklega dóttir hennar Rannveig Jónsdóttir. Konan með hattinn er Fanney Jónsdóttir og drengurinn sem ber í óþekktu konuna (?Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006)?) á aftasta bekk er Ingvar Ástmarsson. Fullorðni maðurinn á aftasta bekk er Guðmundur Jóhannesson og vinstra megin við hann er sonur hans, Karl Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson610
Fastur liður á kántrýhátíðunum var að halda útimessu á sunnudagsmorgninum. Oftar en ekki voru þá fengnir einhverjir einsöngvarar til liðs við kirkjukórinn ásamt því að auglýst var eftir söngkröftum til að styrkja kórinn. Á þessri mynd, frá hátíðinni í ágúst 2001, er kórinn óvenju fjölmennur en honum stjórnaði Óskar Einarsson sem situr við píanóið. Einsöng með kórnum að þessu sinni söng Páll Rósinkrans þó hann sé ekki á myndinni. Presturinn séra Magnús Magnússon er lengst til hægri en hann tók fullan þátt í söngnum með kórnum.
María Magnúsdóttir - safn 025
Myndin var tekin á skjómannadegi af hreppsnefnd Höfðahrepps þar sem nefnadramenn búa sig undir að taka þátt í eggjaboðhlaupi. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, óþekktur, Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Adolf J. Berndsen. Myndin var líklega tekin kringum 1975. Ef þú veist hver óþekkti maðurinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 013
Kaffitími í Rækjuvinslunni hf. Við borðið næst okkur sitja frá vinstri: Erla Valdimarsdóttir (d.29.9.2008), Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Við borðið fjær má þekkja Indriða Hjaltason en aðrir á myndinni eru óþekktir. Líklega var myndin tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 008
Sigursveit í kappróðri kvenna á sjómannadegi bíður eftir að taka við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins sem sést lengst til vinstri. Líklega hafa konurnar skipað sveit frystihúss Hólaness hf. Talið frá vinstri: Lilja Kristinsdóttir, óþekkt, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Þórðardóttir, Erna Magnúsdóttir, Kristín Björnsdóttir og Ómar Jakobsson stýrimaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
María Magnúsdóttir - safn 005
Hjónin séra Hjálmar Jónsson og Signý Bjarnadóttir með tvö af fjórum börnum sínum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega standa þau við eldhúsgluggann á Asparlundi (Bogabraut 24).
Fisk Seafood - safn 121
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Á myndinni eru Bjarney Valdimarsdóttir til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Fisk Seafood - safn 018
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á myndinni er í dyrunum frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004), Ólafur Bernódusson, óþekkt barn, Gylfi Sigurðsson og Bernódus Ólafsson. Neðst í horninu til hægri er Gunnar Helgason (d.19.10.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson603
Myndin var tekin í Hólaneskirkju á Gospelnámskeiði í júlí 2001 undir stjórn Óskars Einarssonar. Námskeiðinu lauk svo með messu þar sem tveir einsöngvarar sungu með kórnum. Á þessari mynd syngur Páll Rósinkrans einsöng en Óskar er við hljóðfærið. Í kórnum eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, þrjár óþekktar konur, Þórey Jónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir (nær), Agnes Sævarsdóttir (fjær), Björn Hannesson? (fjær), Kristjana Jóhannsdóttir (nær), Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekkt (næst), Inga Rós Sævarsdóttir (í miðið), Mikael Jón Clark (fjærst), Sigurður Bjarnason (fjærst), Guðbjörg Viggósdóttir (í miðið), Hjördís Sigurðardóttir (næst), Sólrún Ólína Sigurðardóttir (fjær), Aðalheiður Árnadóttir (nær), Sigurjón Guðbjartsson, Berglind Guðmundsdóttir (nær), Fannar Viggósson (fjær), Guðrún Sigurðardóttir, Þórarinn Grétarsson og séra Magnús Magnússon.
María Magnúsdóttir - safn 193
Samkvæmt því sem stendur aftan á myndinni er þetta Sigurður Helgi Sigurðsson. Meira er ekki vitað um þennan mann.
Höfðaskóli - safn 373
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á þessari mynd eru fimm galvaskir drengir úr Höfðaskóla á ókunnu torgi einhversstaðar í Danmörku. Frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Gunnlaugur Briem, Gunnar Helgason, Jón Gunnar Einarsson og Jón Ingi Ragnarsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 31
Heyskapur á Skagaströnd líklega árið 1906. Húsin til hægri eru verslunarhúsin á Skagströnd.
Höfðaskóli - safn 326
Hér vinnur þriggja manna hópur nemenda úr Höfðaskóla að einhverju smíðaverkefni líklega að leiktjaldasmíð fyrir árshátíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Særún Brynja Níelsdóttir, Ólafur Magnússon og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
1
…
104
105
106
…
167
Leita í myndasafninu
Leita