Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 104
Aftan á þessari mynd stendur nafnið Þórdís Jónasdóttir. Fleira er ekki vitað um myndina.
María Magnúsdóttir - safn 073
Hér eru á hlaðinu á Syðra Hóli, frá vinstri: Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) bóndi og fræðimaður, Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987) sonur hans, situr á Farmalnum, Húnn Snædal afastrákur og Jóhanna Albertsdóttir (d.3.3.1996) kona Magnúsar.
María Magnúsdóttir - safn 048
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24).
Fisk Seafood - safn 005
Myndin var líklega tekin á Hótel Íslandi einhverntíma kringum 1990. Þá bauð Hólanes hf starfsfólki sínu í helgarferð til Reykjavíkur og til skemmtunar og hátíðakvöldverðar á Hótel Íslandi. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Magnús Guðmannsson, Erna Högnadóttir, Pálfríður Bjarnadóttir, Gunnar Jónsson, Hallbjörn Hjartarson, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) og Kenny Hallbjörnsdóttir. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Ágúst Jónsson, Kristín Björnsdóttir (nær), óþekktur (fjær), Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Þór Arason. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 131
Aftan á þessari mynd stendur:" Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra Hóli (Ragna frænka) Myndin er sennilega tekin í Laufási á Skagaströnd".
Fisk Seafood - safn 212
Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Á myndinni eru þeir Einar Haukur Arason smiður til vinstri og Árni Geir Ingvarsson verkstjóri hægra megin að setja upp veggeiningu í vinnslusalnum.
Fisk Seafood - safn 089
Árni Jón Guðmundsson (d.8.1.2006) til vinstri og Jón Arnarsson til hægri unnu við frystitækin í frystihúsi Hólaness hf. Hér eru þeir að sýsla með pönnur með fiskpökkum á leið í frystitækin.
María Magnúsdóttir - safn 138
Aftan á þessari mynd stendur:"Lárus Hillmann bróðir minn".
Ólafur Bernódusson591
Fólkið á myndinni er statt í kjallara Fellsborgar að hlusta á upplestur rithöfunda, Þórarins Eldjárn og fleiri, úr verkum sínum. Ártalið er óþekkt en á myndinni eru frá vinstri: Jón Pálsson, Bjarney Valdimarsdóttir (nær), Björk Axelsdóttir (fjær), Guðrún Pálsdóttir (snýr baki í okkur), Guðný Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016), Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Magnús B. Jónsson og Bernódus Ólafsson (d. 1.9.1996).
Fisk Seafood - safn 197
Sveinþór Ari Arason pakkar rækju í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 44
Á myndinni sýna Björn Jónsson (1848 -1925) frá Háagerði og Hannes Jónsson (1882 - 1960) á Spákonufelli sundtísku karlmanna upp úr aldamótunum 1900. Björn bjó lengi á Veðramóti í Skagafirði og var hreppstjóri og Dannebrogsmaður. Hann eignaðist 12 börn en þeirra á meðal var Haraldur Björnsson (d.1967) sem var þekktur leikari. Hannes frá Spákonufelli eignaðist 7 börn og var þekktur sem góður hagyrðingur. Til gamans eru hér tvær ólíkar vísur eftir hann: Ástin fæðir yndi hrein, ástina glæðir stakan. Ástin græðir andans mein, ástin bræðir klakann. Á því virðist ekkert hik, æra og dyggðir fúna. Hræsni, loforð, lygi og svik, lætur mörgum núna.
Höfðaskóli - safn 277
Jóhann Örn Stefánsson í þungum þönkum í Höfðaskóla kringum árið 2000.
María Magnúsdóttir - safn 111
Aftan á þessari mynd stendur skrifað: "Jóhann Davíð Jónatansson og Ólínu Hillm.". Eins og sést á myndinni var hún tekin í Springfield í Ohio í Bandaríkjunum. Ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Fisk Seafood - safn 207
Einar Karlsson pípulagningamaður vinstra megin og Björn Hallbjörnsson rafvirki við vinnu við endurbætur í Rækjuvinnslunni 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 019
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Um veitingar í veislunni sá Hótel Dagsbrún en þá voru þar við stjórnvölin Líney Jósefsdóttir og Sveinn Ingi Grímsson. Á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Ingi Grímsson, Líney Jósefsdóttir, Ólafur Ingibjörnsson, Hrönn Árnadóttir og baksvipinn á Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006).
Fisk Seafood - safn 052
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er Magnús B. Jónsson í ræðustól að fara með gamanmál. Í forgrunni eru hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir.
Fisk Seafood - safn 034
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Þá var þessi mynd tekin af nokkrum starfsstúlkum fyrirtækisins. Frá vinstri við línuna: Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) og Þórunn Þorláksdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 164
Aftan á myndinni stendur:"Lloyd Andersson ingsti sonur Línu Hann er 18 ára".
María Magnúsdóttir - safn 307
Sigursveit á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. Maðurinn í ræðustólnum er líklega Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins. Fyrir aftan hann eru frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, tveir óþekktir, Ómar Jakobsson, tveir óþekktir og Árni Guðbjartsson. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 023
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd bíður yngri kynslóðin eftir veitingunum í upphafi veislunnar. Standandi eru frá vinstri: Sveinn Ingi Grímsson og Kristinn Guðmundsson. Við borðið sitja frá vinstri: Viktor Pétursson, Þröstur Árnason?, Svanur Árnason, óþekktur, Reynir Lýðsson og óþekktu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari 394
Bryndís Guðjónsdóttir líklega 1986
María Magnúsdóttir - safn 128
Ingibjörg Sveinsdóttir Tjörn á Skaga.
María Magnúsdóttir - safn 236
Á myndinni stendur: "Rúna frá Neðstabæ". Það mun vera Guðrún Albertsdóttir sem dó 1970.
María Magnúsdóttir - safn 007
Sigursveit í kappróðri unglinga á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins. Frá vinstri: Lárus, Ingimar Oddsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Guðmundur Oddsson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000) og Vilhjálmur Skaftason stýrimaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 182
Ásta Ásgeirsdóttir til vinstri og Guðrún Magnúsdóttir til hægri að pakka rækju í Rækjuvinnslunni hf fyrir neytendamarkað. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 235
Þessi mynd var líklega tekin um borð í Arnari Hu1, síðutogaranum, sem var fyrsta fiskiskip Skagstrendings hf. Á myndinni eru frá vinstri: Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
María Magnúsdóttir - safn 110
Bræður frá Syðra Hóli. Björn Magnússon (d. 13.11.2010) til vinstri og Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) til hægri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1930.
Fisk Seafood - safn 092
Kaffistofa Hólaness hf er mjög aðlaðandi og býður upp á ýmsa möguleika. Stöku sinnum tók starfsfólk fyrirtækisins sig saman og hittist að kvöldi til á kaffistofunni og átti þar notalega stund. Þessi mynd var tekin á einni slíkri samkomu. Við borðið nær okkur eru , frá vinstri: Sveinn Jónasson, Vilhelm Harðarson, Kristín Kristmundsdóttir, fjórar óþekktar, Hafdís Þorvaldsdóttir, Erna Magnúsdóttir og Linda Krsitjánsdóttir sitja við enda borðsins, óþekkt, Þórey Jónsdóttir, Inga Matthíasdóttir, Ingibjörg Skúladóttir og ?Erna Sigurbjörnsdóttir?. Guðrún Magnúsdóttir og Þorgeir Jónsson sitja svo við þverborðið en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari 400
Á myndinni borða nokkrir Skagstrendingar saman einhversstaðar í útlöndum. Vinstra megin við borðið eru: Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og Högni Jensson. Hægra megin við borðið eru frá hægri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og tvær óþekktar konur. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari379
Þessi mynd var tekin á tröppum Höfðaskóla einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum af skátunum í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Fremsta röð frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Jóhanna Valdimarsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Hrefna Júlía ?, Sigrún Kristófersdóttir Sunnuhvoli og Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Röð nr.2. frá vinstri: Kristinn Lúðvíksson Steinholti, Helga Ólafsdóttir Suður Skála, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir Asparlundi, Magdalena Axelsdóttir Læk og Sigurður Bjarnason Bjargi. Röð nr 3 frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Halla Björg Bernódusdóttir Stórholti, Anna Skaftadóttir Dagsbrún, Sigrún Jósteinsdóttir Sólvangi og Jóhann Björn Þórarinsson Höfðaborg. Röð nr 4. frá vinstri: Ísleifur Haraldsson Jaðri, Sigurbjörg (eða Guðrún) Kristjánsdóttir Háagerði, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti og Birgir Júlíusson Höfðabergi. Röð nr. 5. frá vinstri: Búi Birgisson Straumnesi, Stefán Ingólfsson Ólafsvöllum, Ómar Þorbjörnsson Akurgerði, Árni Sigurðsson Sólvöllum/Hólanesi, Grétar Haraldsson Iðavöllum og Hallbjörn Björnsson Jaðri. Aftast standa, frá vinstri, skátaforingjarnir: Þórður Jónsson (d.25.12.2009) og Ingólfur Ármannsson.
Fisk Seafood - safn 118
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri: Karl Berndsen Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Höfðaskóli - safn 313
Vignir Örn Hafþórsson í góðum gír í Höfðaskóla í nóvember 1998.
Fisk Seafood - safn 137
Gunnar Þór Gunnarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma meðan Gunnar vann í Rækjuvinnslunni hf.
Ólafur Bernódusson 567
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd eru þeir Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri Violu til vinstri og Ólafur Bernódusson að sýna prjónajakka sem framleiddir voru hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
María Magnúsdóttir - safn 250
Á þessa mynd er ritað: " Margrét Sigurðardóttir kona séra Jóns Pálssonar prófasts á Höskuldsstöðum á Skagaströnd A Hún". Margrét dó 22.2.1947 en Jón maður hennar dó 18.9.1931.
María Magnúsdóttir - safn 340
Aftan á myndinni stendur: "Guðlaug Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir dætur Jóns Magnússonar Umsvölum. Margrét Björnsdóttir dóttir Björns Magnússonar Syðra-Hóli". Einnig stendur á límmiða með myndinni: "Margrét Björnsd. til hægri og frænkur hennar".
María Magnúsdóttir - safn 097
Vinkonurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli til vinstri og Rannveig? vinkona hennar úr menntaskóla. Föðurnafn Rannveigar er óþekkt en hún flutti snemma til Noregs og hefur búið þar síðan. Ef þú veist föðurnafn hennar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 222
Aftan á þessari mynd stendur: "Börn: Kristínar Pálsd. og Ögm. Magnússonar söðlasmiðs Sauðárkrók. Magnús, Sigurbjörg, Ingibjörg". (Hér mun talið frá vinstri).
María Magnúsdóttir - safn 023
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi bíður eftir að taka við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins sem er í ræðustól á myndinni. Sveitina skipa frá vinstri: Jón Geir Jónatansson, tveir óþekktir, Gestur Arnarson, Kristján Blöndal og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður.
María Magnúsdóttir - safn 196
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 320
Lárus Björnsson (d.30.9.1985) frá Syðra-Hóli.
Fisk Seafood - safn 136
Þessir karlmenn unnu allir lengri eða skemmri tíma í Rækjuvinnslunni hf meðan hún var starfrækt - sumir í áratugi. Fremri röð frá vinstri: Grétar Haraldsson, Guðmundur Jóhannesson og Björn Ingi Óskarsson. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Gunnar Þór Gunnarsson og Ingvar Þór Jónsson.
María Magnúsdóttir - safn 323
Björn Magnússon og María Ögmundsdóttir Syðra-Hóli. Myndin er tekin 1912. Í bréfi til Margétar systur sinnar í Kanada, dags. 24. okt. 1912 segir María: "Elsku systir mín ég ætla að senda þér tvö myndaspjöld ef þú kynnir að hafa gaman af því. Annað er af okkur hjónunum ég lét tilleiðast að sitja fyrir af þrábeiðni barnanna minna. Ég hét á þau í sumar ef faðir þeirra kæmi svo hress aftur að hann gæti það. (Björn hafði verið til lækninga í Reykjavík) Myndin var tekin á afmælisdegi mínum, þá var ég fjörutíu og sjö ára en hún tókst ekki vel, blærinn er svo grá hvítur. Það kom einhver myndasmiðs ræfill hér á ósinn um tíma og við urðum að nota hann".
María Magnúsdóttir - safn 265
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 190
Hjónin Jón Jónsson (d. 1935) og Halldóra Einarsdóttir (d. 1957) frá Kirkjubæ í Norðurárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 293
Viggó Magnússon á þríhjólinu sínu. Myndin hefur verið tekin 1973-1975 en eins og sjá má í bakgrunninum þá stóð yfir mikið framkvæmdatímabil á Skagaströnd á þeim tíma. Húsi er Bogabraut 9 en búið er að grafa fyrir grunnum að Bogabraut 11 og 13.
María Magnúsdóttir - safn 324
Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) frá Syðra-Hóli.
Fisk Seafood - safn 170
Myndin var tekin 23. desember 1999 þegar áhöfnin á Arnari Hu 1 fagnaði því að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Á þessari mynd er Óskar Kristinsson, einn úr áhöfninni, í viðtali við útvarpið.
María Magnúsdóttir - safn 312
Vinna í fullum gangi í Rækjuvinnslunni hf. Fremst til vinstri er Kristófer Árnason (d.10.5.2000) verkstjóri. Guðrún Sigurðardóttir er næst okkur á myndinni en í baksýn sér í konurnar við færibandið þar má þekkja Ingu Þorvaldsdóttur (d. 14.12.2012) til hægri en hinar eru óþekktar.
Fisk Seafood - safn 162
Þessi mynd var tekin af Jóel Kristjánssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
Höfðaskóli - safn 375
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt af atriðunum sem sýnd voru var samsöngur þessarra krakka. Frá vinstri: Rósa Björg Einarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir (nær), og Sunna Gylfadóttir. Fremst krýpur Ólína Selma Þórarinsdóttir í einhverju krumma-hlutverki.
María Magnúsdóttir - safn 051
Lýður Ragnar Arason með spennandi pakka í höndunum.
Fisk Seafood - safn 074
15. maí 1990 hlaut starfsfólk frystihúss Hólaness hf viðurkenningu fyrir vandaða framleiðslu frá Coldwater Seafood, sem keypti vörur frá frystihúsinu og dreifði þeim erlendis. Á þessari mynd er starfsfólkið að fylgjast með ræðuhöldum áður en Jóhanna Jónasdóttir tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Við fremsta borðið situr Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir. Við borð nr. 2, frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004) og Kristín Björnsdóttir. Við borð nr. 3, frá vinstri: Sólveig Róarsdóttir, Jóhanna Jónasdóttir og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Við borð nr. 4, frá vinstri: Úrsúla Kristjánsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 116
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Á þessari mynd eru frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), baksvipur Árdísar Indriðadóttur, Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) og Guðrún Angantýsdóttir.
Höfðaskóli - safn 394
Þessi mynd var tekin í vorferð starfsfólks Höfðaskóla. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær en það mun hafa verið kringum 2000. Á myndinni eru Kristín Kristmundsdóttir stuðningsfulltrúi til vinstri og Dagbjört Bæringsdóttir skólaliði til hægri.
Fisk Seafood - safn 008
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á myndinni eru grillararnir í góða veðrinu. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Sigurjón Guðbjartsson, Steindór Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólaness hf, Sigríður Gestsdóttir og Björgvin Karlsson.
María Magnúsdóttir - safn 001
Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) í hátíðaskapi á bryggjunni á sjómannadegi. Maðurinn til vinstri er Ottó Finnsson (d.10.11.1998)en á milli þeirra í baksýn sjást hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir.
Fisk Seafood - safn 084
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Aftari röð frá vinstri: Vilhjálmur Skaftason, Guðrún Pálsdóttir, Óskar Þórðarson, Rósa ? kona hans, Guðný Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, Erla Kristinsdóttir, Bára Kristinsdóttir (fyrir framan föður sinn) Vilborg Magnúsdóttir, Jón Indriðason, Svanur Árnason, Vilhelm Jónsson, Þröstur Árnason og Jón Heiðar Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, óþekkt barn, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), óþekkt, Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Soffía Pétursdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, óþekkt barn, Halldór Gunnar Ólafsson, Bára Þorvaldsdóttir, Stefán Ægir Lárusson og Sylvía Hrólfsdóttir.
Fisk Seafood - safn 038
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Hér standa þeir og bíða spenntir eftir fiskflökum á færibandinu verkstjórarnir: Haraldur Árnason til vinstri og Þorgeir Jónsson til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 333
Þessi mynd er merkt með: "Ólafur Björnsson Syðra-Hóli, Ögmundur Magnússon Sauðárkróki". Ögmundur (d. 9.8.1968) var söðlasmiður á Sauðárkróki. Ólafur (d.10.10.1972) var frá Syðra-Hóli bróðir Magnúsar Björnssonar (d. 20.7.1963) bónda og fræðimanns þar. Myndin var tekin 1912 á Sauðárkróki en þá var Ólafur Björnsson 25 ára.
1
…
105
106
107
…
167
Leita í myndasafninu
Leita