Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 226
Sambýlisfólkið Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason sjómaður á sjómannadegi á Skagströnd. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 202
<p>Þetta fók starfaði hjá Rækjuvinnslunni hf og sótti námskeið til að öðlast nafnbótina: Sérhæft fiskvinnslufólk. Myndin var tekin við útskrift fólksins 15. desember árið 2000. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Marcello ?, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Magnúsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Vilhjálmur Skaftason, Cristina Silud Boncales, Ólafur Guðmundsson, Róbert Jónasson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Berglind Karlsdóttir (nær), Heiðrún Níelsdóttir (fjær), Linda Kristjánsdóttir, Sigrún Lárusdóttir, Ásta Ásgeirsdóttir og Þráinn Bessi Gunnarsson. </p>
Fisk Seafood - safn 239
Gunnar Þór Gunnarsson var kokkur um borð í Arnari nýja eins og hann var kallaður. Hér er Gunnar við störf sín um borð. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 659
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Kristjana Jóhannsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Fannar Viggósson, Halldór Gunnar Ólafsson, Einar Haukur Arason, Guðlaugur Hjaltason, Hallbjörg Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Elías Árnason og Magnús B. Jónsson. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 119
Þessi mynd af síldarsöltun á Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1943. Stóra húsið á myndinni miðri er Hafnarhúsið sem var fært 1943 -1944 á núverandi stað ofan við Skúffugarð til að hægt væri að reisa síldarverksmiðjuna á lóðinni. Litli skúrinn vinstra megin við Hafnarhúsið var tvöfalt salerni (kamar) sem byggt var þannig að afurðirnar sem skilað var þar fóru beint í sjóinn fyrir neðan. Eins og sjá má hefur umhverfi hafnarinnar, og henni sjálfri, verið breytt mjög mikið með landfyllingum síðan myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 310
Bakstur í heimilisfræðitíma í Höfðaskóla 1987 eða 1988. Kristinn Björgvinsson og Fjóla S. Ómarsdóttir eru næst okkur að hnoða deig. Stúlkan í bleika bolnum til hægri er Kolbrún Jenný Ragnarsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 184
Aftan á myndinni stendur:" Guðrún, Auðbjörg, Indíana Albertsdætur frá Neðstabæ".
María Magnúsdóttir - safn 136
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) frá Syðra Hóli til vinstri og Guðmundur R. Guðlaugsson (d. 8.5.1985) frá Árbakka til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 678
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason og Magnús B. Jónsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 003
Skákþing Norðlendinga var haldið í Fellsborg á Skagaströnd 2.- 5.mars 1989. Hólanes hf var aðalstyrktaraðili mótsins og á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson, lengst til vinstri, framkvæmdastjóri félagsins að afhenda sigurvegurunum verðlaun sín. Verðlaunahafarnir eru því miður óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 218
Vélamennirnir Þórarinn Grétarsson til vinstri og Vilhelm Þórarinsson til hægri vinna að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
María Magnúsdóttir - safn 135
Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra Hóli
Héraðsskjalasafn A-Hún 18
Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri) í sunnudagaskóla eða æskulýðsmessu einhverntíma kringum 1968. Á fremsta bekk sitja frá vinstri: Sigríður Birna Björnsdóttir, Aðalheiður Másdóttir frá Réttarholti, Elsa Lára Blöndal með bróður sinn Kristján Blöndal í fanginu og Hrönn Árnadóttir. Lengst til vinstri á öðrum bekk er Jón Hallur Pétursson síðan koma systkinin Ragnar Högnason og Rósa Björg Högnadóttir. Upp við vegginn, með úlpuhettuna á höfðinu er Sólveig Gunnarsdóttir. Konan með hattinn er Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) kaupkona í versluninni Borg og aftan við hana eru Ástmar Kári Ástmarsson og Gísli Snorrason. Aftast til hægri sér í Guðmund Lárusson (d.15.10.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 080
<p>Þessi mynd var tekin í flökunarsal frystihúss Hólaness hf 1976. Ungi maðurinn, sem heldur á stórþorskinum, er óþekktur en til vinstri, í skugganum, bíður handflakarinn Ingvi Sveinn Guðnason (d. 31.12.1991) með hnífinn í hendinni eftir að fá þorskinn á flökunarborðið hjá sér. Ef þú þekkir unga manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Fisk Seafood - safn 178
Hrefna Þorsteinsdóttir glaðbeitt við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 698
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson sést með gítar lengst til vinstri. Síðan koma: Hans Birgir Högnason, Magnús B. Jónsson, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Ingibergur Guðmundsson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 162
Aftan á þessa fjölskyldumynd stendur: "Páll Steingrímsson Ingibjörg og börn Njálsstöðum". Ljósmyndasafnið veit að tveir af drengjunum munu vera Þormóður Pálsson og Guðmar Pálsson en veit ekki nöfn hinna systkinanna. Ef þú veist nöfnin, og e.t.v. þekkir þau á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 309
Leikskólabörn á öskudegi með kennurum sínum. Konan með pokann er óþekkt en Þórunn Bernódusdóttir er í drapplitri úlpu í miðið og Bára Þorvaldsdóttir er lengst til hægri. Grímubúin börnin eru óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 240
Konan til hægri á myndinni er Ragnheiður Björnsdóttir (d.?) frá Syðra-Hóli en konan til vinstri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 060
Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) frá Syðra Hóli og Steinunn Jakobsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar.
María Magnúsdóttir - safn 011
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins. Sveitin reri fyrir hönd frystihúss Hólaness hf en einn ræðarann vantar á myndina. Frá vinstri: Lárus, Haraldur Árnason, Gunnar Stefánsson, Guðmundur Kristinsson, Jens Jónsson, Magnús Guðmannsson og Gylfi Sigurðsson stýrimaður.
Fisk Seafood - safn 043
3. júní 1987 útskrifaðist hópur starfsfólks Hólaness hf sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Á myndinni afhendir Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Bergljótu Óskarsdóttur (d.22.2.2004) skírteinið sitt í samsæti sem haldið var af þessu tilefni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 6
Gunnar Hermann Grímsson (1907 - 11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955.
María Magnúsdóttir - safn 316
Samkvæmt texta með þessari mynd er þetta Jón Magnússon á Hurðabaki ættaður frá Holti.
Fisk Seafood - safn 163
Þessi mynd var tekin af Adolf H. Berndsen, stjórnarformanni Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
María Magnúsdóttir - safn 271
Þessi kona er óþekkt. Myndin var tekin í Carberry í Manitoba og hefur verið send heim til ættingja á Íslandi. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 035
Til hægri á myndinni er Björn Magnússon (d.13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli en maðurinn vinstra megin er Árni M. Jónsson (d. 18.11.2009) kenndur við Skriðu á Sauðárkróki - Árni í Skriðu. Myndin var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 015
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Líney Jósefsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Bjarnason. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 141
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015).
María Magnúsdóttir - safn 286
Stúlkan á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 313
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Við borðið næst okkur eru: Guðmundur Jóhannesson sem snýr baki í okkur, Benóný Gunnarsson í ljósri skyrtu og Lárus Ægir Guðmundsson. Við næsta borð má þekkja Ólöfu Ardísi Arelíusdóttur en aðrir í kaffistofunni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 022
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), fulltrúi starfsfólksins, í ræðustól í kaffiveislunni. Næst okkur á myndinni eru hjónin Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Guðmundur Jóhannesson. Vinstra megin við Soffíu sér í andlit Guðbjarts Guðjónssonar (d. 23.9.1992), baksvip Adolfs J. Berndsen og Sigurjón Guðbjartsson fjærst. Vinstra megin við Guðmund sitja við borð, frá hægri talið: Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), Gunnar Sveinsson og Gylfi Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 127
Hulda Pálsdóttir frá Njálsstöðum.
María Magnúsdóttir - safn 098
Á þessari mynd er Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996) með dætrum sínum við skógarlundinn sinn í túninu heima á Syðra Hóli. Frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013), Ásdís Magnúsdóttir, Jóhanna og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
María Magnúsdóttir - safn 108
Systkini frá Syðra Hóli. Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) til hægri og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri. Milli þeirra stendur bróðir þeirra, Björn Magnússon (d. 13.11.2010). Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1930.
María Magnúsdóttir - safn 055
Þessi kona, sem virðist vera íklædd hermannajakka, er Ingibjörg Steinvör Þórarinsdóttir Bozin frá Skúfi. Til gamans má geta þess að aftan á myndinni stendur skrifað: eg sendi þér þessa mynd að gamni mínu. Gettu hver þar er
María Magnúsdóttir - safn 092
Drengurinn á myndinni er Magnús B. Jónsson. Buxurnar voru saumaðar af Guðrúnu Ösp Jónsdóttur, föðursystur hans, sem fannst ófært að ungir drengir gengju í síðbuxum í sólskini. Buxurnar voru því ætið nefndar "sólskinsbuxur"
Fisk Seafood - safn 090
Kaffistofa Hólaness hf er mjög aðlaðandi og býður upp á ýmsa möguleika. Stöku sinnum tók starfsfólk fyrirtækisins sig saman og hittist að kvöldi til á kaffistofunni og átti þar notalega stund. Þessi mynd var tekin á einni slíkri samkomu. Frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Þorgeir Jónsson, tvær óþekktar, Valdís Valdimarsdóttir og Sólveig Eiðsdóttir.
Fisk Seafood - safn 223
Hér er fagnað 10 tonna rækjuholi um borð í Helgu Björg Hu 7. Frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Jón Jósefsson og Hjalti Indriðson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Árni Geir Ingvarsson - safn 666
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var í eldhúsinu í Fellsborg í pásu frá æfingu á skemmtiatriðunum, eru talið frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Kristjana Jóhannsdóttir, Guðlaugur Hjaltason, Einar Haukur Arason, Ingibergur Guðmundsson og Fannar Viggósson. Ártalið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson605
Í september 2001 kom nýr Benz slökkvibíll til Slökkviliðs Skagastrandar. Gamli bíllinn, sem er til hægri á myndinni, var af Bedford gerð og hafði þjónað liðinu í áratugi en þótti orðinn gamaldags og ekki næganlega góður. Á myndinni er hluti af slökkviliðinu að skoða nýja bílinn og prófa hann. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Tryggvi Hlynsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri, Gunnar Stefánsson, Sigurður Björnsson, Helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Baldvin Hjaltason, Þröstur Líndal og Ari Þórsson.
Fisk Seafood - safn 167
Myndin var tekin 23. desember 1999 þegar áhöfnin á Arnari Hu 1 skálaði í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Á þessari mynd er Gunnar Þ. Ásgeirsson í forgrunni, vinstra megin við hann sér í Hallbjörgu Jónsdóttur en hægra megin við hann eru Hólmgeir Kristmundsson? og Sævar Berg Ólafsson.
María Magnúsdóttir - safn 258
Aftan á myndinni stendur: "Fjóla Sigurðardóttir frá Laufási Skagaströnd. Fædd í Vestmannaeyjum 25/9 1929". Fjóla dó 15.7.1988.
Fisk Seafood - safn 070
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Þessi mynd var tekin í kaffitíma af starfsfólkinu í salthúsinu. Frá vinstri: Gunnar Albertssson, Erla Theódórsdóttir, Danica Zupancic, Ingunn Kristjánsdóttir, Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, óþekkt, Sigrún Benediktsdóttir og Ottó Ákason (d.17.9.2005). Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 088
Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) frá Syðra Hóli með son sinn Hún Snædal í fanginu. Myndin hefur líklega verið tekin 1945 eða 1946.
Höfðaskóli - safn 335
Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) á sameiginlegri vorsýningu nemenda Höfðaskóla og eldri borgara á Skagatrönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið í kringum 1990.
Páll J. Pálsson safn 7
Myndin var tekin 1946 á hlaðinu á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bóndi á Bakka að járna hest með aðstoð Þorgríms (d. 7.9.2013) sonar síns. Önnur börn Páls fylgjast með en þau eru frá vinstri: Páll Jónatan, María og Björg.
María Magnúsdóttir - safn 173
Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017) og Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) frá Laufási.
María Magnúsdóttir - safn 103
Systkinin Fjóla Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson frá Asparlundi (Bogabraut 24) á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 675
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Hafþór Gylfason og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 330
Þessi kona er óþekkt. Ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 199
Guðrún Pálsdóttir launafulltrúi hjá Skagstrendingi hf við vinnu sína á skrifstofu félagsins. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Fisk Seafood - safn 161
Þessi mynd var tekin af áhöfnum Arnars Hu 1 hinn 23. desember 1999. Þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð. Af þessu tilefni var drifið í myndatöku og á eftir bauð útgerðin upp á léttar veitingar um borð fyrir áhöfnina og aðstandendur þeirra. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Bæring Skarphéðinsson, Guðmundur Andersson (nær), Ólafur Ásgeirsson (fjær), Ernst Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ágúst Ómarsson, Ósvald Indriðason (fjær), Ingibjörg Skúladóttir (d.30.7.2023) (nær), Sigurjón Ingólfsson, Hólmgeir Kristmundsson, Valdimar Viggósson, Indriði Sigurðsson (nær), Hafþór Gylfason (fjær), Jónas Þorvaldsson, Óskar Kristinsson (nær), Einar Ásgeirsson (í miðið), Reynir Lýðsson (fjærst), Þröstur Árnason (fjær), Jóhannes Indriðason (nær), Einar Kristberg, Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason, Guðmundur Gunnlaugsson?, Björn Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) (fjær), Sævar Berg Ólafsson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), Slavko Velemir, Bjarni Ottósson, Guðmundur Henry Stefánsson, Gunnar Reynisson, Alfreð Hafsteinsson, Víðir Jóhannesson og Finnur Kristinsson. Eins og sjá má á borðanum voru aflaverðmætin orðin einn milljarður og 25 milljónir þennan dag. "Milljarðakassinn" er svo fyrir framan hópinn.
María Magnúsdóttir - safn 189
Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 020
Helga Ottósdóttir í heimsókn hjá Kristófer Árnasyni (d.10.5.2000) verkstjóra í Rækjuvinnslunni hf.
María Magnúsdóttir - safn 034
Þessi mynd var tekin á blíðum sumardegi við trjálund í túninu á Syðra Hóli. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 099
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á hótel Sögu, þar sem hópurinn gisti, af hjónunum Gylfa Sigurðssyni og Guðrún Guðbjörnsdóttur.
María Magnúsdóttir - safn 087
Fjóla Jónsdóttir með litla bróður sinn, Ragnar Jónsson, í fanginu. Myndin var sennilega tekin 1964.
Fisk Seafood - safn 201
Þetta voru konurnar á skrifstofunni hjá Skagstrendingi hf á árinu 2000. Frá vinstri: Erla Jónsdóttir fjármálastjóri, Sigríður Gestsdóttir skrifstofustúlka, Guðrún Pálsdóttir skrifstofustúlka og Dagný Marín Sigmarsdóttir bókari.
Fisk Seafood - safn 072
Þessi hópur starfsfólks Hólaness hf útskrifaðist 7. desember 1989 sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Var þetta þriðji hópur starfsfólks Hólaness hf sem útskrifaðist á rúmum tveimur árum. Fremri röð frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004), Signý Magnúsdóttir og Súsanna Þórhallsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Stefán Sveinsson, Þórður Sigurðsson, Úrsúla Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Jónsson og Rut Jónasdóttir.
1
…
107
108
109
…
167
Leita í myndasafninu
Leita