Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 198
<p> Dagný Marín Sigmarsdóttir bókari hjá Skagstrendingi hf við vinnu sína á skrifstofu félagsins. Myndin var líklega tekin kringum 2000. </p>
Fisk Seafood - safn 110
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Hægra megin við borðið nær okkur, frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og óþekktur. Vinstra megin við borðið, frá vinstri: Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), Guðmundur Jóhannesson, Guðný Björnsdóttir, Sveinn Garðarsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Viggó Brynjólfsson, Við hornborðið, frá vinstri: óþekktur, Adolf H. Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir, Signý Richter og Stefán Jósefsson.
Fisk Seafood - safn 105
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Vinstra megin við borðið nær okkur eru: Hjördís Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdótttir, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Kristmundur Ingibjörnsson, Þórunn Óladóttir og óþekkt. Hægra megin við borðið: óþekkt Gunnar Sveinsson, Jón Helgason og Magnús Blöndal (d.7.9.2001).Við hitt borðið snúa baki í okkur: tvær óþekktar, Guðrún Sigurðardóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Benóný Gunnarsson og Hallgrímur Kristmundsson (d.7.10.1998). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 014
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Hallbjörn Hjartarson og Guðný Sigurðardóttir.
María Magnúsdóttir - safn 232
Hjúkrunarkonan er Jóhanna Björnsdóttir (d.23.8.1991) frá Syðra-Hóli. Konan standandi fyrir miðju í aftari röð er líklega Elínborg Ósk Einarsdóttir (d.9.12.1972) frá Síðu og konan fremst til vinstri er líklega systir hennar Magdalena S. Einarsdóttir (d.3.3.1985) frá Síðu. Aðrar konur á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 682
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 304
Hluti af verðlaunasveit í kappróðri kvenna á sjómannadegi. Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, afhendir bikar og verðlaunapeninga. Frá vinstri: Lárus, Lilja Kristinsdóttir, Bára Jónsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Þórðardóttir og Erna Magnúsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 272
Fólkið á þessari mynd er óþekkt. Myndin var tekin í Montana í bandaríkjunum af Helenu Taylor ljósmyndara. Myndin hefur síðan verið send heim til Íslands til ættingjanna þar. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 282
Konan á myndinni er Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir kona Björns Einarssonar frá Síðu. Þau bjuggu á Svansgrund og seinna í mörg ár í Hillebrantshúsi á Blönduósi. Börnin eru óþekkt en líklega eru það barnabörn Hallberu og Björns. <br> <br>
Fisk Seafood - safn 130
Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 037
Það fer vel um þau systkinin Fjólu Jónsdóttur og Gunnar Jón Jónsson í jólaboði á heimili foreldra sinna Maríu Magnúsdóttur og Jóns Jónssonar í Asparlundi (Bogabraut 24). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 241
Þessi mynd var tekin framan við gamla bæinn á Syðra-Hóli líklega kringum 1950. Fullorðna fólkið er talið frá vinstri: Ásdís Magnúsdóttir, Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) , María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016), Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Ragnhildur ? frá Mýrum (d.?), Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963), Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Lárus Björnsson (d. 1985), Ragnheiður Björnsdóttir (d. ?) og Ólafur Björnsson (d. ?). Strákurinn lengst til vinstri er óþekktur en hinir eru; Húnn Snædal til vinstri og Hólmsteinn Snædal til hægri (d. 31.12.2015).
María Magnúsdóttir - safn 090
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli á fermingardaginn sinn vorið 1933.
María Magnúsdóttir - safn 067
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 253
Á þessa mynd er ritað: "Guðmundur Magnússon prófisor í læknisfræði við háskóla Íslands. Myndin tekin á námsárum hans". Guðmundur fæddist í Gröf í Víðidal 12.10.1864. Hann varð landlæknir 1906 og gegndi því embætti til 1931 auk þess að kenna læknanemum í Læknaskólanum þar til læknadeild var stofnuð við Háskóla Íslands 1911 en þá hóf hann kennslu þar. Guðmundur sat í bæjarstjórn Reykjavíkur í nokkur ár var á Alþingi 1905 - 1907 og svo aftur 1913 - 1922. Forseti Efri deildar Alþingis 1916 - 1922 auk þess að stunda lækningar. Hann var formaður Slysavarnafélags Íslands frá stofnun þess 1928 allt til 1932. Guðmundur var tvíkvæntur og eignaðist 14 börn en eitt þeirra fæddist andvana. Hann lét sér fátt óviðkomandi allt frá nýyrðasmíði til byggingar spítala og ljóðaþýðinga. Guðmundur dó 7. maí 1937.
María Magnúsdóttir - safn 105
Aftan á þessa mynd er skrifað:" Margrét Björnsdóttir frá Syðra - Hóli standandi til hægri". Margrét (d.11.9.1993) bjó lengi í Laufási á Skagaströnd. Hinar konurnar tvær á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 106
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Vinstra megin við borðið nær okkur: Sigurður Bjarnason, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Adolf J. Berndsen, óþekkt, Lárus Ægir Guðmundsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Kristmundur Ingibjörnsson og óþekkt fólk. Hægra megin við borðið: Sigrún Lárusdóttir, Hallbjörn Björnsson, Guðný Sigurðardóttir og óþekkt fólk. Við litla borðið til hægri má þekkja Önnu H. Aspar (d.1.9.1999) og óþekkt fólk. Við borðið Vinstra megin snúa baki í okkur: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), tveir óþekktir, Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og óþekkt fólk. Hinum megin við þetta borð eru: Guðmundur Jóhannesson, Guðný Björnsdóttir, Sveinn Garðarson og Viggó Brynjólfsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 120
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri: Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990), Eiður Hilmarsson, Marías Bjarni Viggósson og Heiðdís Sigurðardóttir.
Hérðasskjalasafn A-Hún 154
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 648
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er séra Magnús Magnússon sem var veislustjóri á einu blótanna að næra sig á æfingu. Hjá honum í eldhúsinu er Fjóla Ævarsdóttir úr kvenfélaginu. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 107
Lárus Björnsson (d. 1985) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 036
Þessi mynd var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli. Samkvæmt texta aftan á myndinni eru á henni, talið frá vinstri: Hjónin Hólmfríður Magnúsdóttir og Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983) , hjónin Sigurbjörg Jónsdóttir (d.15.1.1985)og Stefán Einarsson (d.25.6.1969) frá Höskuldsstöðum og hjónin á Syðra Hóli Jóhanna Albertsdóttir(d.3.3.1996) og Magnús Björnsson (d.20.7.1963). Tilefni myndatökunnar var ferming Ásdísar Magnúsdóttur frá Syðra Hóli 20. maí 1945.
Jón Jónsson 422
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari, Jörundur Þorgeirsson, Edda Þórarinsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Finnur Kristinsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 165
<p>Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri skála hér í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin 23. desember 1999 og eftir að hafa skálað hvor við annan skálaði öll áhöfnin með þeim félögum. Myndin var tekin í brúnni á Arnari. </p>
María Magnúsdóttir - safn 317
Á þessa mynd er skrifað: "Björn Magnússon Syðra-Hóli og Margrét systir hans Múla".
María Magnúsdóttir - safn 311
Guðmundur Jóhannesson við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd. Í baksýn er Sigurður Bjarnason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 24
Árni Stefán Björnsson (d. 1978) sonur Björns Árnasonar (d. 1932) frá Syðri Ey.
Héraðsskjalasafn A-Hún 94
Halldóra Runólfsdóttir (d. 1918) Vatnahverfi eiginkona Eggerts Eggertssonar (d. ?) í Vatnahverfi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 149
Hólmfríður M. Guðjónsdóttir (d.1974) frá Neðstabæ í Vindhælishreppi og María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) frá Syðra-Hóli Vindhælishreppi (nú Skagbyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 395
Cora Balvinnssen Paulsen (1904 - 31.8.1986) var kona Jóhanns D. Baldvinssonar - Jóa norska (d.9.4.1990) en þau bjuggu á Skagaströnd í mörg ár m.a. í Skálholti.
Árni Geir Ingvarsson - safn 665
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var í eldhúsinu í Fellsborg í pásu frá æfingu á skemmtiatriðunum, eru talið frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Fannar Viggósson og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 152
Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf og síðar hjá Fisk Seafood ehf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 732
Tveir ungir drengir að fylgjast með framkvæmdum á skólalóðinni líklega árið 2008 eða 2009. Daði Stefánsson er með hjálminn og Einar Ari Einarsson fyrir aftan hann.
María Magnúsdóttir - safn 273
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Eins og sjá má þá var myndin tekin í Pittsburg í Montana í Bandaríkjunum. Ef þú þekki manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 561
Lárus Ægir Guðmundsson tekur í hönd Sveinbjörns Blöndal (d. 7.4.2010) á yfirlitssýningu þess síðarnefnda á málverkum sínum. Aftan við Sveinbjörn stendur kona hans Birna Blöndal. Myndin var líklega tekin á sjómanndegi en ártalið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 677
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, fylgist Ólafur Bernódusson með æfingu á sviðinu. Ártalið er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari 389
Myndin var tekin af hreppsnefnd Höfðahrepps ásamt nokkrum mökum 1987 í opinberri heimsókn til Sandgerðis en sveitarfélögin höfðu þá nýlega stofnað til formlegs vinabæjarsambands. Frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri (1986 - 1990), Heimir Fjeldsteð hreppsnefndarmaður, Herborg Þorláksdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson hreppsnefndarmaður, Torfhildur Stefánsdóttir sveitastjórafrú, Guðmundur Haukur Sigurðsson hreppsnefndarmaður, Bjarney Valdimarsdóttir, Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður, Guðbjörg Viggósdóttir, Hallur Hilmarsson bílstjóri, Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen hreppsnefndaroddviti.
María Magnúsdóttir - safn 093
Þessi kona er óþekkt en gæti verið Rannveig?. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 339
Þessi mynd er úr myndaalbúmi Maríu Ögmundsdóttur á Syðra Hóli, við hlið myndar af Jóhönnu Hjálmarsdóttur fóstursystur Maríu. Myndin er tekin á Ísafirði og því eru sterkar líkur á að stúlkan á myndinni sé dóttir Jóhönnu Hjálmarsdóttur og Eiríks Brynjólfs Finnssonar; Jóhanna Ögmunda Eiríksdóttir, f. 14. ágúst 1902 á Ísafirði, d. 30. okt. 1909.
María Magnúsdóttir - safn 334
Við þessa mynd stendur skrifað:"Dóttir Jóns Magnússonar frá Holti". Ef þú veist hvað konan heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari 393
Inga Matthíasdóttir og Björk Axelsdóttir kennarar vinna að einkunnagjöf á kennarastofunni í Höfðaskóla líklega 1986.
Árni Geir Ingvarsson - safn 671
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason og Dagný Sigmarsdóttir. Fyrir framan sviðið situr Magnús B. Jónsson.
María Magnúsdóttir - safn 054
Þetta par er óþekkt. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 681
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Ártalið er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 021
Myndin var tekin leikárið 1980 - 1981 í Fellsborg en þá setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Elín Njálsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 254
Aftan á þetta póstkort stendur skrifað: "Ingibjörg Jóhannsdóttir Thorlaksson og sonur hennar Benedikt, lítill og 3 önnur börn hennar". Þau börn munu heita Sölvi, Aðalbjörg og Anna samkvæmt því sem ritað er framan á kortið. Reyndar hefur litla myndin verið límd á kortið eftir á.
María Magnúsdóttir - safn 187
Aftan á myndini stendur:"Lundfríður Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði".
María Magnúsdóttir - safn 283
Aftan á myndinni stendur: "Gósí". Ef þú veist hver Gósí er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 302
Systkini frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Björn Magnússon (d. 13.11.2010) og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016). Myndin var tekin við húsgaflinn á Syðra-Hóli einhverntíma kringum 1930.
Héraðsskjalasafn A-Hún 62
Hjónin Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) í Höfðakoti. Steingrímur var bátsformaður og útgerðarmaður og seinna verkamaður ættaður frá Brúarlandi á Skagaströnd. Halldóra var verkakona og húsmóðir. Saman eignuðust þau hjónin fimm dætur og einn son.
Héraðsskjalasafn A-Hún 216
Jón Helgason (d. 20.5.1940) frá Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 433
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Með henni á þessari mynd eru synir hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981). Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Fisk Seafood - safn 055
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru þær á spjalli Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir til vinstri og Danica Zupancic til hægri. Lengst til hægri sér svo í Ómar Jakobsson.
María Magnúsdóttir - safn 068
Því miður er ekkert vitað um þessa mynd þannig að allar upplýsingar um fólkið á henni væru vel þegnar. Líklega er hér um bekk í skóla að ræða og þá gæti konan lengst til hægri í miðröðinni verið kennarinn. Endilega, ef þú þekkir einhvern á myndinni, sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari 388
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) gengur niður landganginn á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið sæmdur heiðursmerki sjómannadagsins á Skagaströnd árið 1984.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 033
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Erna Sigurbjörnsdóttir, Hulda Birna Frímannsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Rut Jónasdóttir og Erla Sigurbjörnsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 082
María Magnúsdóttir (d. 2.2.1016) er hér í miðið með tveimur óþekktum vinkonum sínum. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 029
Konurnar sitja við pillunarfæribandi í Rækjuvinnslunni hf. Hægra megin má þekkja Díönu Kristjánsdóttur en vinstra megin eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir?, Jóna Guðjónsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Héraðsskjalasafn A-Hún 21
Ólafur Árnason (d. 2.6.1915) frá Þverá í Hallárdal. Hann var umsvifamikill kaupmaður á Stokkseyri og Eyrarbakka um aldamótin 1900. Ólafur var bróðir Björns Árnasonar bónda á Syðri-Ey.
Árni Geir Ingvarsson - safn 680
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Magnús B. Jónsson, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Ingibergur Guðmundsson. Frammi í sal sést í hnakkann á Ólafi Bernódussyni. Ártalið er óþekkt.
1
…
109
110
111
…
167
Leita í myndasafninu
Leita