Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 647
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er Kristjana Jóhannsdóttir á æfingu á skemmtiatriðunum. Ártalið er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari 396
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn sem var gríðarlegur eins og sjá má. Maðurinn með talstöðina er Sigurjón Ingólfsson og yfir öxlina á manninum í græna samfestingnum (Karl Berndsen?) má þekkja Hallbjörn Björnsson með gleraugu og síðhærði maðurinn er Vilhelm Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 094
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 219
Stefán Þór Árnason verkstjóri hugar að vélbúnaði í Rækjuvinnslunni við endurbætur þar árið 2003 eða 2004.
Árni Geir Ingvarsson - safn 685
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Stefánsdóttir. Maðurinn með gítarinn lengst til vinstri er Hans Birgir Högnason. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 297
Aftan á myndinni stendur: "Dísa og Gulli á Akranesi 17. september 2000". Dísa er Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 151
María Björnsdóttir frá Svangrund.
Héraðsskjalasafn A-Hún 7
Guðbjörg Jónsdóttir (1864 - 1959) kona Ólafs Eyjólfssonar (d.5.5.1947) á Björgum á Skaga.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 005
Sungið á sviðinu í Fellsborg líklega á einhverju þorrablóti þó ekki sé vitað hvenær. Frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir með gítar, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Hans Birgir Högnason með gítar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 297
Jóhanna Pálsdóttir (1866 - 1949) frá Stapadal í Arnarfirði prófastsfrú á Bíldudal, kona séra Jóns Árnasonar (d. 12.4.1944) frá Þverá í Hallárdal.
Héraðsskjalasafn A-Hún 213
Diðrik Ludvig Knudsen (d.30.4.1930) fæddur á Hólanesi á Skagaströnd, prestur á Bergsstöðum og Breiðabólsstað og kona hans Sigurlaug Björg Árnadóttir (d.1949) frá Höfnum á Skaga.
Héraðsskjalasafn A-Hún 131
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) vélstjóri og tollvörður á Skagaströnd. Oddviti Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1974 - 1978.
María Magnúsdóttir - safn 179
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015) í ökumannssæti á Farmal Cub á túninu við Syðra Hól. Myndin hefur verið tekin kringum 1950.
Jón Jónsson 425
Fermingarbörn vorið 1981 ganga til Hólaneskirkju ásamt séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) eftir að hafa klæðst fermingarkirtlunum úti í skóla, sem sést í baksýn til hægri. Fremst fara Bergþóra Birgisdóttir og séra Pétur. Næstar koma Laufey Vilmundardóttir til vinstri og Birna Sveinsdóttir til hægri. Þá koma tvær óþekktar stúlkur en stóri drengurinn fyrir aftan þær er Arnar Arnarsson. Aftan við Arnar eru svo Hafsteinn Pálsson til vinstri og Ingvar Þór Jónsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 372
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Sólveig Eiðsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 219
Jóhanna Björnsdóttir (d. 28.8.1991) frá Syðra Hóli.
Héraðsskjalasafn A-Hún 220
Björn Jörgen Sigurbjörnsson Hlíð í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 408
Jón Sveinn Pálsson kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd. Jón tók við af föður sínum, Páli Jónssyni (d.19.7.1979), sem skólatjóri 1966 og gegndi því starfi til 1986.
María Magnúsdóttir - safn 027
Þessi mynd var líklega tekin í reisugilli í húsi Kaupfélags Húnvetninga (nú Samkaup á Skagaströnd )því skálað er í plastglösum. Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Rúnar Kristjánsson, Ingvar Sigtryggsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002), Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) og Þórbjörn Jónsson (d. 22.11.1996). Guðmundur Lárusson rak trésmíðaverkstæði og var verktaki við byggingu hússins en karlarnir voru í vinnu hjá honum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975.
María Magnúsdóttir - safn 249
Aftan á þessari mynd stendur: " Lárus Finnbogason Sigurlaug Jóhannsdóttir". Meiri upplýsingar höfum við ekki um þetta fólk né barnið en myndin var tekin í Winnipeg eins og sést í neðra horninu til hægri.
Fisk Seafood - safn 215
Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Í ferlinu var vinnslusalnum breytt með nýjum klæðningum og uppsetningu á veggjum og skilrúmum. Hér vinna við klæðninguna, frá vinstri: Helgi Gunnarsson smiður, Baldvin Hjaltason starfsmaður rækjuvinnslunnar,í rauðum samfestingi, og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) smiður.
Jón Jónsson 409
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Sveinn S. Ingólfsson kennari, Guðmundur Guðmundsson, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Hlíf Sigurðardóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 146
Sigurður "stóri" Jóhannsson (d. 17.12.1913) frá Fjalli í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Sigurður var fæddur á Hróarsstöðum 24.júlí 1869. Hann drukknaði á siglingu frá Kálfshamarsvík út að<br>Hrauni 17.des.1913 ásamt Baldvini Gíslasyni frá Víkum. Líkamsleifar Sigurðar rak í mars 1914 á svonefndum Langatanga, vestarlega í Hraunsvík. Kista var að þeim gerð og þær jarðsettar í Hofskirkjugarði. Magnús á Syðra-Hóli skrifaði merkan þátt um Sigurð í bókaflokknum Svipir og sagnir IV.
María Magnúsdóttir - safn 230
Aftan á þessari mynd stendur: "Jóhanna, Ragna, Ólafur, Fríða og Lárus". Þetta munu vera systkini frá Syðra-Hóli, Björns-börn.
María Magnúsdóttir - safn 275
Fólkið á myndinni er óþekkt. Eina sem vitað er um myndin er að hún var tekin af Birni Pálssyni ljósmyndara á Ísafirði. Hann rak ljósmyndastofu þar á árunum 1891 -1913 þannig að þessi mynd hefur verið tekin einhverntíma á því tímabili. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 034
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru nemendurnir og kennararnir á "skólamynd". Fólkið er, talið frá vinstri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Ársæll Guðmundsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Erna Sigurbjörnsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Kristján Birgisson, Erla Sigurbjörnsdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Hrönn Valgarðsdóttir, Hulda Birna Frímannsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Rut Jónasdóttir og Helgi Marínó Magnússon.
Jón Jónsson 387
Síðustu árin sem fiskvinnsla var í frystihúsi Hólaness hf voru þorskhausar þurrkaðir í hjalli sem var upp á hæðinni sunnan og ofan við Spákonufellsrétt. Á þessari mynd er Pétur Ingjaldur Pétursson að hengja upp seilaða hausa í hjallinum. Bak við hann má þekkja bróður hans, Jón Hall Pétursson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 720
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann, sem er húsið með brúna þakinu á myndinni. Húsið lengst til hægri er gamli lyftuskúrinn en hann stendur einn eftir af því sem tengdist skíðalyftunni en hún lá frá skúrnum og langt upp í hlíð fjallsins. Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010.
María Magnúsdóttir - safn 197
Á þessari mynd stendur: "Margrét Magnúsdóttir frá Holti. Hún var dóttir Magnúsar "gamla" Péturssonar".
María Magnúsdóttir - safn 267
Því miður er ekkert vitað um þessa mynd. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 693
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 126
Ragnheiður Björnsdóttir
Héraðsskjalasafn A-Hún 201
Carl Berndsen (d. 1954) verslunar- útgerðar- og póstafgreiðslumaður Karlsskála á Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 063
Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6.1977).
Ólafur Bernódusson619
Eins og sjá má var fjölmenni við varðeld á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð í ágúst 2001.
Ólafur Bernódusson609
Hallbjörn Hjartarson (með hatt) innan um gesti á kántrýhátíð í ágúst 2001. Hallbjörn Var frumkvöðull að kántrýhátíðunum og skemmti á þeim öllum.
María Magnúsdóttir - safn 238
Þetta fólk er óþekkt. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 322
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) frá Syðra-Hóli
Árni Geir Ingvarsson - safn 645
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er Fannar Viggósson að spila á bassa á æfingu á skemmtiatriðunum. Ártalið er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 067
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Jóhanna Harðardóttir og Aðalheiður Harðardóttir (Dússý).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 086
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd skála gestir á góðri stund 1. ágúst 1994 líklega við undirspil Rúnars Þórs og hljómsveitar hans. Á myndinni eru frá vinstri: tveir óþekktir, Súsanna Þórhallsdóttir, Einar Þór Ásgeirsson, Kjartan Bjarnason, Elísabet Anna Traustadóttir, Gunnar Þröstur Ásgeirsson og Erlingur Ottósson?
Héraðsskjalasafn A-Hún 198
Þessi mynd af sýslunefnd A-Húnavatnssýslu var tekin einhverntíma á árunum 1980 - 1985. Í fremri röð frá vinstri: Jón Tryggvason (d. 7.3.2007 Ártúnum, Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) Geitaskarði, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður Blönduósi, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra-Hóli og Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) Sveinsstöðum. Aftari röð frá vinstri: Gísli Pálsson (d. 30.1.2013) Hofi í Vatnsdal, Þorfinnur Björnsson Ytri-Löngumýri, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Skagaströnd, Valgarður Hilmarsson Fremsta-Gili (Blönduósi), Sveinn Sveinsson Tjörn á Skaga, Sigursteinn Guðmundsson (d. 20.4.2016) Blönduósi og Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) Kagaðarhóli. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson582
Hópur kántrýdansara sýnir dans við endurvígslu Kántrýbæjar 1998. Dansararnir eru frá vinstri í fremstu röð: Linda Kristjánsdóttir, Kristín Blöndal og Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016). Miðröð frá vinstri: Linda Ævarsdóttir, Sæmundur Gunnarsson og Kristín Kristmundsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Lengst til vinstri á myndinni standa hjónin Hallbjörn Hjartarson og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), eigendur Kántrýbæjar. Fyrir aftan Amy í gulum jakka er Guðrún Pálsdóttir og ljóshærði maðurinn með gleraugun sem sér í yfir höfuð Lindu Ævars er séra Guðmundur Karl Brynjarsson. Hægra megin við dyrnar eru hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir. Maðurinn í dökku jakkafötunum sem stendur upp við súluna er Helgi Gunnarsson. Sitjandi eru frá vinstri: Steinunn Steinþórsdóttir, Jóhanna Harðardóttir (fjær), Sandra Ómarsdóttir (nær), Hrólfur Pétursson (nær) og Ástmar Kári Ástmarsson (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 80
Björn L. Blöndal (d.1906) prestur á Hofi í Skagahreppi og á Hvammi í Laxárdal í Skefilsstaðahreppi 1900-1906 og hreppsnefndaroddviti þar 1902 -1906.
Héraðsskjalasafn A-Hún 450
Sigríður Árnadóttir (1870-6.1.1958) frá Þverá í Hallárdal.
Héraðsskjalasafn A-Hún 323
Hjónin Auðbjörg Sigríður Albertsdóttir (d. 13.9.1994) og Sigurður Guðlaugsson (d.19.7.1992) frá Hafursstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 689
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru þær nýkomnar frá tannlækninum Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Þórey Jónsdóttir til hægri. Ártalið er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 092
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Stöku sinnum fengu minna frægir listamenn að taka lagið í pásu hjá hljómsveitinni. Á þessari mynd eru tvær söngkonur að troða upp í pásu 28. október 1994. Til vinstri er Súsanna Þórhallsdóttir og til hægri er Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 259
Á þessu korti stendur: "Dóra Hillman. Kona Jóns Hermannss. Hillmans".
Jón Jónsson 418
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Finnur Kristinsson, Edda Þórarinsdóttir, Sigurður Þorbjörnsson og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) kennari.
Fisk Seafood - safn 225
Guðlax er sjaldséður fiskur á togslóð. Hér hafa þó þrír slíkir slæðst með í trollið. Sjómennirnir eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Axel J. Hallgrímsson og Ragnar Högnason. Maðurinn fyrir framan er Hilmar Stefánsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Héraðsskjalasafn A-Hún 159
Elín Rannveig Briem (d. 4.12.1937. Elín var skólastýra kvennaskólans að Ytri-Ey og seinna aftur þegar skólinn hafði verið fluttur á Blönduós. Hún skrifaði bókina Kvennafræðarinn sem út kom um áramótin 1888 -89 og seldist afar vel og hafði mikil áhrif á íslenska matargerð, hússtjórn og hreinlæti á heimilum. Elín starfaði mikið að kvenréttindamálum sérstaklega þeim sem tóku til menntunnar kvenna.<br>
María Magnúsdóttir - safn 325
Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra-Hóli.
Héraðsskjalasafn A-Hún 293
Systur frá Ytri-Ey, dætur Indriða Jónssonar (d. 21.4.1921) bónda þar. Frá vinstri: Regína Sigríður Indriðadóttir (1858 - 1913), Rósa Indriðadóttir (1860 - ?), Medónía Indriðadóttir (1861 - ?) og Ingibjörg Indriðadóttir (1868 - ?).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 058
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af Önnu Guðrúnu Ásgeirsdóttur á leiðinni út að borða.
Héraðsskjalasafn A-Hún 78
Gísli Brandsson (d. 1902) frá Úlfagili húsmaðurr á Breiðavaði og Balaskarði. Hann var stundum kallaður Laufagosi því hann hafði svo gaman að spila. Gísli var hagyrðingur og gerði töluvert af lausavísum. Hér er ein þeirra:<br> Upp úr sorpi allt í kring<br> í sinn vasa glaður<br> tínir margan tíeyring<br> Thomsen stórkaupmaður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 41
Ragnheiður Björnsdóttir (d.?) frá Syðra-Hóli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 663
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, syngur Einar Haukur Arason af innlifun. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 049
15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni af hluta fólksins sem þar mætti. Frá vinstri: Jónas Jónasson, Hjalti Indriðason, Jón Indriðason, óþekkt og Hafdís Þorvaldsdóttir. Hægra megin við borðið má sjá Jóhönnu Sigurjónsdóttur og Gylfa Sigurðsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 3
Sigurður Jónsson (1880- 11.1.1968) bóndi á Mánaskál í Laxárdal.
1
…
112
113
114
…
167
Leita í myndasafninu
Leita