Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 85
Guðrún Sigurlína Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir frá Kringlu. Guðrún bjó lengst af í Árnesi á Skagaströnd ásamt fjölskyldu sinni. Árnes er nú safn m.a. um þessa merku konu.
Óþekktur ljósmyndari 398
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn. Ekki þótti óhætt að fara inn í húsið vegna gaskúta sem þar voru og líka hins að húsið var stálgrindahús og hefði getað lagst saman hvenær sem var vegna gríðarlegs hita. Á myndinni má þekkja Gísla Snorrason til vinstri, Jón Ingi Ingvarsson er að fara að setja á sig hjálminn og Ólafur Bernódusson er klár með sprautustút en bíður eftir vatni á slönguna. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 87
Hjónin Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi á Skagaströnd. Þau hjón voru verkafólk og smábændur og eignuðust saman eina dóttur.
María Magnúsdóttir - safn 101
Á þessari mynd situr Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) frá Syðra Hóli framan við börn sín og Rósbergs G. Snædal (d. 9.1.1983). Börnin eru frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d.31.12.2015), Magnús Snædal, Þórgunnur Snædal, Gígja Snædal, Húnn Snædal og Bragi Snædal.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 083
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd dansar fólk af hjartans list/lyst. Guðrún Soffía Pétursdóttir er að dansa en aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin17. júlí 1994 þegar Skytturnar léku fyrir dansi fyrir 125 manns.
María Magnúsdóttir - safn 327
Séra Jón Pálsson (d.1931) prestur og prófastur á Höskuldsstöðum
Héraðsskjalasafn A-Hún 354
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var m.a. Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 eftir að Sellgeth hafði brotnað í ísnum og sokkið. Áhöfnin komst út á ísinn og var seinna bjargað þaðan því fleiri selveiðiskip voru á svæðinu. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán slíkar selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 409
Þrír uppábúnir herramenn á ljósmyndastofu. Mennirnir eru frá vinstri: Björn Sigurðson (d. ?) frá Balaskarði, Árni M. Guðmundsson (1900 - 1923) frá Sölvabakka og Steingrímur Jónsson (1897- 15.1.1992) frá Brúarlandi á Skagaströnd og seinna í Höfðakoti.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 064
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Erna Rós Magnúsdóttir, Rögnvaldur Ottósson, Einar Þór Ásgeirsson, Elísabet Anna Traustadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 688
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Dagný Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 155
Indíana Albertsdóttir (d. 4.2.2001) frá Neðstabæ seinna Eyjakoti og Sauðárkróki
Héraðsskjalasafn A-Hún 214
Mæðgurnar Margrét Sigurðardóttir (d. 22.2.1947) Höskuldsstöðum og Elín Rannveig Jónsdóttir (d. 28.6.1984). Margrét var kona séra Jóns Pálssonar (d. 18.9.1931) prófasts á Höskuldsstöðum og Elín dóttir þeirra.
Héraðsskjalasafn A-Hún 312
Fermingarbörn 1954 í Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Hjalti Skaftason.
María Magnúsdóttir - safn 167
Á þessa mynd hefur verið skrifað:"John Davidson Canada Jónatan fyrri maður Ólínu Hillmann". Myndin var tekin hjá: Stanton Photo Novelty Co. Springfield Ohio.
Héraðsskjalasafn A-Hún 242
Hjónin Kristín Pálsdóttir (d. 27.2.1948) og Frímann Finnsson (d. 18.2.1947) barnakennari, Jaðri Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 41
Ragnheiður Björnsdóttir (d.?) frá Syðra-Hóli.
Óþekktur ljósmyndari 386
Sigursveit unglinga tekur við verðlaunum sínum á sjómannadegi einhverntíma kringum 1965. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson stýrimaður, Magnús B. Jónsson, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (Ingvar hreppsstjóri), Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Ari Ólafsson, Skúli Bjarnason, Haraldur Árnason og Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992). Strákurinn hægra megin uppi á þakinu er Árni Másson frá Réttarholti.
Jón Jónsson 429
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Með Hallbjörgu á þessari mynd er dótturdóttir hennar, Þórey Jónsdóttir með son sinn, Guðjón Hall Sigurbjörnsson í fanginu.
Höfðaskóli - safn 347
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla líklega kringum 1990. Við borðir sitja frá vinstri: tveir óþekktir, Erla María Lárusdóttir, tvær óþekktar, Auður Eva Guðmundsdóttir og Bjarney Katrín Gunnarsdóttir?. Uppi á borðum sitja, frá vinstri: Vignir Örn Hafþórsson, Sverrir Berndsen, Guðjón Ebbi Guðjónsson?, þrír óþekktir, Skúli Már Matthíasson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Linda Jónasdóttir, Bæring Jón Skarphéðinsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Birkir Rafn Gíslason, óþekktur, Magnús Líndal Þrastarson, Eyþór Ernstsson og Patrik Ingi Heiðarsson?. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 197
Á þessari mynd stendur: "Margrét Magnúsdóttir frá Holti. Hún var dóttir Magnúsar "gamla" Péturssonar".
María Magnúsdóttir - safn 056
Þórgunnur Snædal með stúdentshúfuna sína.
Fisk Seafood - safn 221
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Þessi mynd var tekin á skrifstofu eiganda fyrirtækisins, Denis Lumbards, þegar nokkrir starfsmenn Skagstrendings hf heimsóttu Norbrit í Grimsby. Frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Denis Lumbard framkvæmdastjóri Norbrit Fish Sales Limited og óþekktur maður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 744
Á myndinni er verið að slá upp undirstöðu - sökkli - fyrir bílskúr við Lækjarbakka á Skagaströnd. Smiðirnir eru Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Rúnar Kristjánsson til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 23
Ólafur Austfjörð Björnsson (d. 22.2.1958) frá Syðri-Ey.
Héraðsskjalasafn A-Hún 158
Fjölskylda frá Syðra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Hjónin eru María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) og Björn Magnússon (d.1921). Börnin eru frá vinstri: Ólafur Björnsson (d. 10.10.1972), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) og Jóhanna Björnsdóttir (d. 28.8.1991) sem situr í fangi föður síns.
Árni Geir Ingvarsson - safn 691
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Halldór Gunnar Ólafsson, Kristín Kristmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Ártalið er óþekkt.
Jón Jónsson 393
þessi mynd var tekin af kennaraatriði á árshátíð Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Sveinn Pálsson skólastjóri, Jónas Baldursson, Sigurður Guðmundsson, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015), Ólafur Bernódusson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, og Magnús B. Jónsson. Bak við Guðmund sér í Elínborgu M. Jónsdóttur (d. 7.1.2007). Barnið fremst til vinstri er líklega Friðrik Gunnlaugsson.
María Magnúsdóttir - safn 140
Aftan á myndina er skrifað: "X er Manni frændi (Hermann Hillmann) og vinur hans".
Héraðsskjalasafn A-Hún 131
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) vélstjóri og tollvörður á Skagaströnd. Oddviti Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1974 - 1978.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 086
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd skála gestir á góðri stund 1. ágúst 1994 líklega við undirspil Rúnars Þórs og hljómsveitar hans. Á myndinni eru frá vinstri: tveir óþekktir, Súsanna Þórhallsdóttir, Einar Þór Ásgeirsson, Kjartan Bjarnason, Elísabet Anna Traustadóttir, Gunnar Þröstur Ásgeirsson og Erlingur Ottósson?
Ólafur Bernódusson 565
Vorinu fylgir veiði á grásleppu. Mörgum þykir sigin grásleppa vera hnossgæti. Öðrum þykir hún versti matur sem til er eða jafnvel að hún sé alls ekki matur yfirleitt. Á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að búa sig undir að hengja upp nýskornar grásleppur í hjallinn. Eins og sést í í hjallinum í baksýn eru grásleppur þar að síga á mörgum hæðum. Þær þurfa að hanga 10 - 20 daga eftir verðurfari áður en þær eru tilbúnar í pottinn. Myndin var tekin einhverntíma seint á níunda áratugnum. <br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 175
Jónas Benedikt Hafsteinsson (d. 22.11.1995) frá Njálsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 235
Óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 161
Sigurjón Jóhannsson (d.20.11.1967) kennari í Vindhælishreppi og á Skagaströnd oft kenndur við heimili sitt að Baldursheimi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 358
Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) Miðnesi Skagaströnd. Björgvin var sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Skagastrandar, hreppsnefndar- og sýslunefndarmaður fyrir Höfðahrepp (nú Sveitarfélagið Skagaströnd). Þá var hann formaður SARK eða Samtaka um aðskilnað ríkis og kirkju og mikill verkalýðssinni.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 008
Þessi mynd var tekin á hótelgangi en ekki er vitað hvar né hvenær. Þarna hlæja saman þau Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995).
Ólafur Bernódusson617
Dorgveiðikeppni á hafnarsvæðinu var eitt af atriðunum sem boðið var upp á á kántrýhátíð í ágúst 2001. Þessi þrjú voru meðal þeirra sem tóku þátt og ætluðu sér að vinna. Engar sögur fara af aflabrögðunum. Fólkið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 188
Sigríður Gestsdóttir skrifstofustúlka hjá Skagstrendingi hf við skrifborðið sitt í vinnunni. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 695
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason og Kristín Kristmundsdóttir. Ártalið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson581
Sólveig Birna Stefánsdóttir frá Kagaðarhóli hélt myndlistarsýningu í Kántrýbæ líklega einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Þar sýndi hún myndir af uppáhalds viðfangsefni sínum, hestum.
María Magnúsdóttir - safn 288
Magnús B. Jónsson frá Asparlundi (Bogabraut 24) og Gréta Jónsdóttir frá Laufási. Myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma upp úr 1960.
Héraðsskjalasafn A-Hún 402
Hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 077
Þetta fólk er óþekkt en það er klætt til útivistar eftir tísku síns tíma. Skíðin í horninu vinstra megin benda til að myndin sé tekin um vetur. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd eða þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 147
Hermann Jónsson Hillmann (d.1856) frá Hóli á Skaga og Sigurlaug Margrét Ögmundsdóttir (d.1847) frá Fjalli í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Þau voru búsett í Markervilla í Alberta í Kanada.
María Magnúsdóttir - safn 294
Þetta prúðbúna fólk er frá Syðra-Hóli frá vinstri: Ingunn Hjaltadóttir, Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996), Ingunn María Björnsdóttir og Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987). Myndin var tekin á Bogabraut 24 í fermingarveislu Ragnars Hlyns Jónssonar en hann er ömmubarn Jóhönnu.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 034
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru nemendurnir og kennararnir á "skólamynd". Fólkið er, talið frá vinstri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Ársæll Guðmundsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Erna Sigurbjörnsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Kristján Birgisson, Erla Sigurbjörnsdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Hrönn Valgarðsdóttir, Hulda Birna Frímannsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Rut Jónasdóttir og Helgi Marínó Magnússon.
Jón Jónsson 387
Síðustu árin sem fiskvinnsla var í frystihúsi Hólaness hf voru þorskhausar þurrkaðir í hjalli sem var upp á hæðinni sunnan og ofan við Spákonufellsrétt. Á þessari mynd er Pétur Ingjaldur Pétursson að hengja upp seilaða hausa í hjallinum. Bak við hann má þekkja bróður hans, Jón Hall Pétursson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 720
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann, sem er húsið með brúna þakinu á myndinni. Húsið lengst til hægri er gamli lyftuskúrinn en hann stendur einn eftir af því sem tengdist skíðalyftunni en hún lá frá skúrnum og langt upp í hlíð fjallsins. Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010.
Héraðsskjalasafn A-Hún 60
Hjónin Guðný Finnsdóttir og Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) á Skagaströnd. Kristinn gegndi ýmsum störfum um æfina var m.a. skipstjóri, hafnarvörður og rafmagnseftirlitsmaður. Kristinn gegndi líka ýmsum trúnaðarstörfum var lengi stjórnarmaður í Skagstrendingi hf og hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma. Guðný er verkakona og húsmóðir en saman eignuðust þau Guðný og Kristinn fjögur börn.
Fisk Seafood - safn 177
Linda Kristjánsdóttir til vinstri og Marta Kristín Jónsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 663
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, syngur Einar Haukur Arason af innlifun. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 049
15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni af hluta fólksins sem þar mætti. Frá vinstri: Jónas Jónasson, Hjalti Indriðason, Jón Indriðason, óþekkt og Hafdís Þorvaldsdóttir. Hægra megin við borðið má sjá Jóhönnu Sigurjónsdóttur og Gylfa Sigurðsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 3
Sigurður Jónsson (1880- 11.1.1968) bóndi á Mánaskál í Laxárdal.
Héraðsskjalasafn A-Hún 392
Á myndinni eru Helga Sigurðardóttir (d.?) og Angantýr Jónsson maður hennar (d. 28.7.1983). Angantýr var sonur Guðrúnar Árnadóttur - Guðrúnar frá Lundi- skáldkonu. Hann bjó um tíma á Mallandi á Skaga, var sjómaður og verkamaður á Skagaströnd og flutti svo til Grindavíkur þar sem hann bjó til æviloka. Angantýr gaf út tvær frumsamdar ljóðabækur: Geislar og glæður 1962 og Huldar slóðir 1964. Ein vísa eftir Angantý:<br><br>Hver sem ekki á í sjóð<br>æskubjarta daga,<br>getur aldrei ljúflingsljóð<br>leikið á hörpu Braga.
María Magnúsdóttir - safn 198
Aftan á myndina er ritað: "Jóhanna Hjálmarsdóttir Ísafirði fósturdóttir Jóhönnu Magnúsdóttur Fjalli". Jóhanna Hjálmarsdóttir lést á Ísafirði 29.4.1905 af barnsförum.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 022
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Fólkið á myndinni er að taka þátt í fjöldasöng á henni eru frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, þrjár óþekktar konur, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Gylfi Sigurðsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
María Magnúsdóttir - safn 343
Þessi hárprúðu börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 411
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Gísli Kristjánsson, Guðmundur J. Björnsson og óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 120
Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm háhyrningar voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Nokkru síðar uppgötvuðust tveir hnúfubakar í annarri vök dálítið bnorðar. Þeir voru einnig drepnir og fólk gerði sér mat úr þeim. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að öðrum hnúfubaknum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berndsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir munnlegri frásögn Steingíms Jónssonar). Myndin tók Evald Hemmert.
Héraðsskjalasafn A-Hún 77
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) Brautarholti á Skagaströnd.
1
…
113
114
115
…
167
Leita í myndasafninu
Leita