Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 430
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á henni eru dætur hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981). Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015) og Guðrún Sigurðardóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 158
Fjölskylda frá Syðra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Hjónin eru María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) og Björn Magnússon (d.1921). Börnin eru frá vinstri: Ólafur Björnsson (d. 10.10.1972), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) og Jóhanna Björnsdóttir (d. 28.8.1991) sem situr í fangi föður síns.
Jón Jónsson 411
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Gísli Kristjánsson, Guðmundur J. Björnsson og óþekkt.
Fisk Seafood - safn 174
Halldór Gunnar Ólafsson, í blárri skyrtu til hægri, rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd, í skoðunarferð í Rækjuvinnslu Bakka í Bolungavík. Maðurinn í gráu peysunni er Ásgeir Hjörleifsson en hann kom að smíði nokkurra véla sem notaðar voru í rækjuvinnslum á landinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 687
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, er Ingibergur Guðmundsson að lesa kynningu á næsta atriði. Ártalið er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 18
Þessi mynd var tekin 1941. Frá vinstri: Ingiríður Jónsdóttir (d. 21.10.2011), Una Jónsdóttir (d. 1.5.2009), Jón Hinrik Árnason (d. 10.12.1986) bóndi á Steinnýjarstöðum faðir þeirra, Jakobína Pálsdóttir (d. 28.11.2003) og María Ólafsdóttir (d. 3.7.1975) móðir hennar, húsmóðir á Bakka og hálfsystir Jóns af móður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 355
Hjónin Auðbjörg S. Albertsdóttir (d. 13.9.1994) og Sigurður Guðlaugsson (d. 19.7.1992) bændur á Hafursstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson 571
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd sýna þrjár ungar konur peysur úr framleiðslulínu Violu. Frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Margrét Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson586
Nokkrum sinnum hefur vetrarstarfið í Höfðaskóla verið brotið upp með vinnuviku eða starfsviku þar sem allir nemendur og kennarar skólans vinna að sameiginlegu verkefni með mismunandi nálgun allt eftir aldri og getu nemendanna. Hér gefur að líta nokkra nemendur í vinnu í einni slíkri viku líklega einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir kennari, óþekktur, Svava Magnúsdóttir (nær), Aðalheiður Árnadóttir (fjær), Margrét Anna Jóhannsdóttir, óþekktur (fjær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (nær), Baldur Eðvarðsson, Jón Pálsson skólastjóri, óþekkt (fjær), Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir og tvær óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 22
Hjónin Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og Hulda Pálsdóttir (d.29.9. 2011). Þorfinnur var oddviti og sveitarstjóri á Skagaströnd á árunum 1954 - 1972 ásamt því að vera framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar. Þá var hann varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Norðurlandi Vestra og settist á þing um tíma í maí 1969.
Héraðsskjalasafn A-Hún 397
María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Syðra-Hóli verslunarmaður og kennari á Skagaströnd og bjó þá í Asparlundi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 169
Hjónin Rafn Georg Sigurbjörnsson og Ingibjörg Margrét Ólafsdóttir Örlygsstöðum II í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson634
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Hjalti Reynisson fallbyssuskytta að gera sig kláran fyrir að skjóta úr fallbyssunni góðu sem hleypt var af í tilefni dagsins.
Ólafur Bernódusson704
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Signý Richter, Björk Sveinsdóttir og Steindór Haraldsson.
Ólafur Bernódusson608
Viggó Brynjólfsson, glæsilegur að vanda, á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 057
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) á góðri stundu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 381
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin ná af hvaða tilefni. Á henni eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) Skagaströnd, séra Gísli H. Kolbeins, Jón Stefánsson (d.24.11.1973) frá Kagaðarhóli, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli (fjær) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) frá Skagaströnd. Dómhildur og séra Pétur voru hjón.
Héraðsskjalasafn A-Hún 9
Elín Rannveig Briem (1856 - 4.12.1937). Elín var skólastýra kvennaskólans að Ytri-Ey og seinna aftur þegar skólinn hafði verið fluttur á Blönduós. Hún skrifaði bókina Kvennafræðarinn sem út kom um áramótin 1888 -89 og seldist afar vel og hafði mikil áhrif á íslenska matargerð, hússtjórn og hreinlæti á heimilum. Elín starfaði mikið að kvenréttindamálum sérstaklega þeim sem tóku til menntunnar kvenna.
María Magnúsdóttir - safn 095
Konurnar á þessari skemmtilegu mynd eru óþekktar. Ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 83
Jónína Jónsdóttir Berndsen (d. 8.10.1933) kaupmannsfrú frá Hólanesi
María Magnúsdóttir - safn 301
Systkini alin upp í Asparlundi (Bogabraut 24), börn Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) og Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991). Frá vinstri: Magnús Björn Jónsson, Ragnar Hlynur Jónsson, Fjóla Jónsdóttir og Gunnar Jón Jónsson. Myndin var líklega tekin kringum 1964.
María Magnúsdóttir - safn 191
Sigrún Eiðsdóttir
María Magnúsdóttir - safn 114
Aftan á þessari mynd stendur skrifað: "Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir á Blönduósi".
Héraðsskjalasafn A-Hún 268
Hólmfríður Árnadóttir (1905-1983) og Sigurður Pétursson (1904-1961) frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson595
Íþróttahúsið á Skagaströnd var vígt 15. mars 1998. Á þessari mynd er Helgi Gunnarsson yfirsmiður hússins ásamt konu sinni Ragnheiði Sigurjónsdóttur með stóran lykil sem hann afhenti formlega við vígsluna sem tákn um að verkinu væri lokið.
María Magnúsdóttir - safn 242
Á myndina er skrifað: "Ásta og Solla frá Eyjarkoti". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hérðasskjalasafn A-Hún 153
Hjónin Aðalbjörg Hafsteinsdóttir póstmeistari og Hörður Ragnarsson bifreiðastjóri á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 715
Torfi Friðrik Magnason vinnur við þökulagningu í slakkanum norðan við stóru mjölskemmuna á vegum vinnuskólans á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson602
Myndin var tekin í Hólaneskirkju á Gospelnámskeiði í júlí 2001 undir stjórn Óskars Einarssonar. Námskeiðinu lauk svo með messu þar sem tveir einsöngvarar sungu með kórnum. Á þessari mynd eru á æfingu, frá vinstri: Árdís Indriðadóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Elva Dröfn Árnadóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt (fjær) Óskar Einarsson stjórnandi (nær), Erna Berglind Hreinsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir (fjær), Ingibjörg Björgvinsdóttir (nær), Agnes Sævarsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, séra Magnús Magnússon, Kristjana Jóhannsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, óþekkt (fjær), Inga Rós Sævarsdóttir (nær), Björn Hannesson?, Sigurður Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson (fjær) og Þórarinn Grétarsson (nær)
Fisk Seafood - safn 210
Vilhelm Þórarinsson vélamaður við vinnu í rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Héraðsskjalasafn A-Hún 164
Ingibjörg Jónsdóttir (d. 15.7.1970) frá Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) við ullarþvott.
Jón Jónsson 394
Myndin var tekin af kennaraatriði á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1986 - 1991. Á myndinni eru, frá vinstri: Einar Haukur Arason, Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri, Ólafur Bernódusson, óþekktur, Páll Leó Jónsson skólastjóri, Jóhanna Jónsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Hjördís ?, Vilborg Magnúsdóttir, Margrét Harðardóttir og Sigríður Einarsdóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 022
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Fólkið á myndinni er að taka þátt í fjöldasöng á henni eru frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, þrjár óþekktar konur, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Gylfi Sigurðsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
María Magnúsdóttir - safn 343
Þessi hárprúðu börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 691
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Halldór Gunnar Ólafsson, Kristín Kristmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 295
Sveinbjörn Albert Magnússon (d. 13.11.1987) frá Syðra-Hóli. Sveinbjörn var alltaf kallaður Atli af þeim sem hann þekktu.
Höfðaskóli - safn 382
Hér mæta þau prúðbúin í skólann Viktor Pétursson og Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 1992 eða 1993.
Héraðsskjalasafn A-Hún 25
Á þessari mynd eru herramennirnir Carl Emil Berndsen (d. 1939) kaupmaður á Hólanesi til vinstri og Oddur Sigurðsson (d. ?) skipstjóri frá Hrísey. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar né hvenær myndin var tekin.
Páll J. Pálsson safn 26
Húni Hu 1 á netaveiðum 1963. Karlarnir eru að draga færið á einni trossunni. Mennirnir eru, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason stýrimaður, Þorleifur Þórarinsson, sem dregur af koppnum, og bræðurnir Steingrímur Einarsson og Pálmi Einarsson.
María Magnúsdóttir - safn 344
Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra-Hóli sem lengi bjó í Laufási á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 662
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, syngur Dagný Sigmarsdóttir af innlifun. Ártalið er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 20
Bræðurnir Baldvin Hjaltason til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014) frá Skeggjastöðum á leið að smala heimahagana haustið 1959. Myndin var tekin á hlaðinu á gamla bænum á Bakka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 400
Guðný Kristín Guðmundsdóttir (1867 -1951) frá Karlsminni á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 311
Þessi mynd var tekin fyrir utan Hólaneskirkju - eldri af kirkjukórnum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Stefán Kristinsson Herðubreið, Hjördís Sigurðardóttir Þórsmörk, Sigurður Sigurðsson Kaupfélagshúsi, Jón Kristinsson sem síðar varð rafveitustjóri við rafstöðina í Laxá á Ásum. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Engilbertsdóttir, Sigríður Helgadóttir Skálholti móðir Ingibjargar, Páll Jónsson organisti og skólastjóri Breiðabliki, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Ingibjörg Sæmundsdóttir Hólanesi og Sigurlaug Björnsdóttir Iðavöllum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 63
Hjónin Hildigunnur Magnea Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Guðmundur Árnason (d.14.10.2009) í Stórholt (Bankastræti 3). Guðmundur var sjómaður en Hildigunnur var sauma- og verkakona. Saman eignuðust þau þrjú börn.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 001
Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016). Myndin var tekin í saumaklúbbi á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 065
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Rósa Björg Högnadóttir, Grétar Smári Hallbjörnsson, Pálfríður Bjarnadóttir og Sólveig Róarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 017
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Við borðið nær okkur sitja frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000), Jóna Guðjónsdóttir, Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) og svo sér í hálft andlit Sigurbjargar Björnsdóttur (d. 3.4.1981) (Boggu í Grund). Dökkhærði maðurinn við hitt borðið er Sigurður Bjarnason en aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 750
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir fagna nýjum tækjum. Á myndinni eru frá vinstri: Rebekka Róbertsdóttir, Sindri Björnsson, Ólafur Halldórsson, Telma Jónasdóttir, Ingólfur Björnsson og Guðrún Björgvinsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 328
Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) frá Kárastöðum á Skagaströnd. Sigurbjörn var bóndi og verkamaður sem rak heimili með bróður sínum, Kára, að Kárastöðum og ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur þar til þau fluttu á dvalarheimilið Sæborg 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 668
Þessi mynd var tekin á einhverri skemmtun í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Hlynur Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Kristín Jónsdóttir?. Ef þú veist tilefni myndatökunnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 084
Systkini í eldhúsinu heima í Hólaneshúsi. Frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015), Jósep Sigurðsson og Sigríður Sigurðardóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið 1967.
María Magnúsdóttir - safn 170
Hólmfríður Eggertsdóttir
María Magnúsdóttir - safn 331
Þessi kona er óþekkt. Ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 031
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Guðmundsson, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson, Helgi Marínó magnússon og Gunnar Þröstur Ásgeirsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 91
Þetta er bærinn Hátún á Kálfshamarsnesi, fyrir framan bæinn standa Bogi Björnsson til vinstri og Bjarni Th.Guðmundsson til hægri. Þuríður Guðmundsdóttir ljósmóðir seinni kona Bjarna tók myndina. Í Hátúni ólst upp Ingibjörg Sigurðardóttir skáldkona.
Jón Jónsson 413
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ómar Jakobsson og Jón S. Pálsson kennari og skólastjóri.
Ólafur Bernódusson580
Hallbjörn Hjartarson flytur ræðu við endurvígslu Kántrýbæjar í júní 1998 eftir bruna vorið 1997.
Jón Jónsson 381
Þessi mynd var líklega tekin 1985 en hún er af Jóni Jónssyni (d. 9.7.1991) framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf um árabil.Líklega var myndin tekin um borð í Örvari Hu 21.
Jósef H Sigurðsson - safn 011
Jósep Hjálmar Sigurðsson frá Hólaneshúsi á Skagaströnd.
1
…
114
115
116
…
167
Leita í myndasafninu
Leita