Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 187
Margrét Jóhannesdóttir (d. ?) frá Lundi á Skagaströnd. Margrét var gift Ole Aamundsen (d. ?).
Héraðsskjalasafn A-Hún 10
Pétur Sigurður Ágústsson (1902 - 1980) bróðir Stefáns Ágústssonar bónda á Ytri-Ey.
Árni Geir Ingvarsson - safn 652
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru þau Þórey Jónsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson í hlutverkum sínum. Bak við Halldór grillir í Guðlaug Hjaltason að spila á gítar. Ártalið er óþekkt.
Hallgrímur Kristmundsson safn029
Ekki er vitað í hvaða skipi þessi mynd var tekin og mennirnir eru óþekktir. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn024
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) á tröppunum við Kaupfélagshúsið. Þó ekki sé vitað nákvæmlega hvenær myndin var tekin var á þeim tíma verslun í húsinu á tveimur neðri hæðunum en skrifstofa og fleira á efstu hæðinni. Húsið var byggt 1929 -1930 fyrir Verslunarfélag Vindhælinga sem seinna breyttist í Kaupfélag Skagstrendinga eins og stendur á húsinu.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 048
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Erna Rós Magnúsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, þrír óþekktir og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 743
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Kindunum var smalað í aðhaldið sem sést á myndinni þar sem Rúnar Jóhannsson er að athuga markið á þeim svo hægt sé að finna eiganda kindanna. Sjá einnig mynd nr 10073.
Héraðsskjalasafn A-Hún 200
Árni Árnason (d. ?) frá Höfðahólum á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari 391
Elínóra Rafnsdóttir kennari á kennarastofunni í Höfðaskóla 1986.
Héraðsskjalasafn A-Hún 287
Steinunn Guðbjörg Árnadóttir (1898-11.5.1990) frá Ásgarði á Skagaströnd og maður hennar Guðjón Marteinssson (1903 - 11.2.1976) sjómaður frá Reykjavík.
Jón Jónsson 404
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Á þessari mynd er verið að afhenda blóm fyrir einhver afrek sem nú eru gleymd. Fullorðnu konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Aðalheiður Harðardóttir og Árný Helgadóttir. Börnin eru: lengst til vinstri Guðrún Elsa Helgadóttir, milli Ingu Láru og Aðalheiðar sér í Árný Guðrún Ólafsdóttir. Milli Aðalheiðar og Árnýjar sést Elva Dröfn Árnadóttir. Ljóshærða stúlkan hægra megin við Árný er Heiðrún Níelsdóttir og lengst til hægri er Guðjón Hall Sigurbjörnsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 091
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) var verkstjóri í frystihúsi Hólaness hf um langt árabil. Eitt af skyldustörfum verkstjórans var að greiða fólki út laun fyrir vinnu sína. Þegar þessi mynd var tekin 1965, fékk fólk útborguð laun sín í peningum í umslagi. Þá þurfti Sigurður að telja seðla og smámynt í umslag hvers og eins og allt þurfti auðvitað að stemma. Þetta var fyrir tölvuöld og bankar voru fjarlægar stofnanir á Skagaströnd. Þessa "aukavinnu" vann Sigurður heima hjá sér í Hólaneshúsinu eftir langan dag í frystihúsinu.
Óþekktur ljósmyndari 385
Guðmundur Rafnsson (d. 23.9.1968) úr Sunnuhlíð. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Jón Jónsson 359
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Krakkarnir, sem voru öll í sama bekk, eru, talið frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, standandi: Svanur Árnason, Jóhannes Ægir Óskarsson og Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), sitjandi: Guðmundur Henry Stefánsson, Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007), Börkur Árnason og lengst til hægri með rauðleita hárkollu er Þröstur Árnason.
Jósef H Sigurðsson - safn 010
Mennirnir tveir um borð í þessum óþekkta bát eru að bíða meðan færið er dregið. Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og ?Hjalti Indriðason? til hægri. Ekki er vitað hver báturinn er né hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 728
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Alma Eik Sævarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 390
Árni Björn Kristófersson (d. 11.10.1982) frá Árnesi á Skagaströnd
María Magnúsdóttir - safn 112
Aftan á þessari mynd stendur:"Fjóla Sigurðardóttir Laufási dóttir Margrétar Björnsdóttur frá Syðra Hóli". Fjóla (d.15.7.1988) en Margrét (d. 11.9.1993).
Árni Geir Ingvarsson - safn 711
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en stúlkan í appelsínugula samfestingnum er Helga Dögg Jónsdóttir. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 134
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 276
Þetta eru hjónin Indriði Jón Indriðason (1857-1904) og Valgerður Þorsteinsdóttir. Í blaðinu Heimskringla sem út kom í Winnipeg 8. september 1904 er eftirfarandi minningargrein um Indriða:

Æfiminning
Indriði Indriðason frá Ytri-Ey á Skagaströnd i Húnavatnssýslu andaðist af blóðeitrun á almenna
sjúkrahúsinu í Winnipeg, þann 5. ágúst sl. og var jarðaður í Brookside grafreitnum 7. s. m. af séra
Runólfi Marteinssyni, sem flutti lipra ræðu við gröfina.
Indriði var sonur Indriða Jónssonar og konu hans Súsönnu Jóhannsdóttur og fæddur að Reykjaströnd 3. júní 1857. Hann fór á unga aldri til vandalausra og var ýmist í vistum eða lausamaður þar til árið 1889, að hann fluttist til Ameríku og staðnæmdist í Sayerville. Árið 1900 giftist hann Valgerði Þorsteinsdóttur, ættaðri úr Rangárvallasýslu. Nœsta ár fluttu þau til Perth Amboy og voru þar í 3 ár; fluttu því næst til Glouchester og dvöldu þar í 5 ár, og síðan fluttu
þau til Cavalier, þar sem ekkja hans býr nú í eigin húsi þeirra. Indriði sál. aflaði sér talsverðrar
almennrar mentunar og bar glögt skyn á viðburði sinnar tíðar. Hann var glaðlyndur og gestrisinn, og
hafði ánægju af að gera þeim sem heimsóttu hann komuna sem ánægjulegasta. Hann var allvel efnum búinn og notaði þau til að gleðja sig og aðra. Til Íslands ferðaðist hann með konu sína og
ferðaðist þar víða um; og hér í landi fór hann og all-víða. Hann var því fróður um margt, er aðrir
báru eigi skyn á. Engan kostnað sparaði hann til að prýða heimili sitt og gera það sem ánægjulegast. En ekki var hann félagslyndur, eins og það er alment skoðað, og ekki vildi hann ganga í lífsábyrgð, því hann hafði sérkennilegar skoðanir á þvi máli, sem mörgum öðrum.
Hann var fáskiftinn um hagi annara og dulur í skoðunum, en vel látinn af öllum er til hans
þektu.
Vinur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 135
Ólafur Á. Lárusson (d. 1953) fyrsti kaupfélagsstjóri á Skagaströnd (1912 - 1936). Ólafur varð póstmeistari og símstöðvarstjóri á Skagaströnd eftir að hann hætti sem kaupfélagsstjóri. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir samfélagið á Skagaströnd á sínum tíma var m.a. hreppsnefndarmaður Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1946 - 1950. Kona Ólafs var Björg K. Berndsen (d.?) sem tók við sem póst- og símstöðvarstjóri að manni sínum látnum.
(heimild: Byggðin undir Borginni" eftir Bjarna Guðmarsson og fleiri)
Hallgrímur Kristmundsson safn012
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd með tvær yngismeyjar upp á arminn. Anna Kristmundsdóttir er til vinstri og Ingibjörg Kristmundsdóttir til hægri.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 020
Myndin var tekin leikárið 1980 - 1981 í Fellsborg en þá setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Ólafur Bernódusson. Myndina tók Jónas Baldursson.
María Magnúsdóttir - safn 159
Þormóður Pálsson (d.18.8.2007) frá Njálsstöðum
Ólafur Bernódusson604
Myndin var tekin í Hólaneskirkju á Gospelnámskeiði í júlí 2001 undir stjórn Óskars Einarssonar. Námskeiðinu lauk svo með messu þar sem tveir einsöngvarar sungu með kórnum. Á þessari mynd
eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir (nær), Elva Dröfn Árnadóttir (fjær), óþekkt, Þórey Jónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir (nær), Agnes Sævarsdóttir (fjær), Kristjana Jóhannsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir (nær), Björn Hannesson? (fjær), Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekkt, Inga Rós Sævarsdóttir, Sigurður Bjarnason (fjær), Hjördís Sigurðardóttir (nær), Guðbjörg Viggósdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir (fjær), Aðalheiður Árnadóttir (nær), Sigurjón Guðbjartsson, Berglind Guðmundsdóttir, Fannar Viggósson (fjær), Guðrún Sigurðardóttir (nær), Óskar Einarsson stjórnandi, Þórarinn Grétarsson og einsöngvararnir Páll Rósinkrans og Mikael Jón Clark.
Héraðsskjalasafn A-Hún 204
Ólafur Árnason (d. 1915) frá Þverá í Hallárdal í Vindhælisthreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 385
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á myndinni er Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) fyrir miðju. Vinstra megin situr séra Þorsteinn Gíslason í Steinnesi nær en séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991) í Bólstaðahlíð fjær.Hægra megin situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) Skagaströnd og Höskuldsstöðum nær en hinn presturinn er óþekktur. Til vinstri við kórinn má sjá séra Gísla H. Kolbeins fjærst og maðurinn með gleraugun er Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður Húnvetninga. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 55
Færeyskir sjómenn á höfninni á Skagaströnd 1938. Algengt var að Færeyskar duggur kæmu í höfn á Skagaströnd allt fram undir 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 667
Árni Geir Ingvarsson á fæðingardeildinni með nýfædda dóttur sína í fanginu og hinar stelpurnar sínar til sinn hvorar handar. Til vinstri er Silfá Árnadóttir, litla stúlkar fékk nafnið Ásdís Birta Árnadóttir og til hægri er Helga Dögg Jónsdóttir fósturdóttir Árna.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 071
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Valur Friðvinsson, Ása Ásgeirsdóttir, óþekkt, Andri Þór Ómarsson og Elín Ósk Ómarsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 049
Konan á þessari mynd er líklega Guðrún Hafsteinsdóttir frá Njálsstöðum. Ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 374
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Árni Guðbjartsson, Guðrún Angantýsdóttir, Agnar Hávarðarson og Sigurjón Guðbjartsson. Barnið á myndinni er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 163
Þessir ungu drengir eru óþekktir. Myndin kemur úr safni Kristófers Péturssonar. Ef þú þekkir drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Páll J. Pálsson safn 28
Síldarsöltun á Siglufirði sumarið 1963. Líklega er verið að salta síld úr Húna Hu 1 sem var á síldveiðum þetta sumar og landaði m.a. á Siglufirði. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 16
Þorgrímur Pálsson (d.7.9.2013) frá Bakka í Skagahreppi. Myndin var tekin 1971 af Þorgrími þá 45 ára.
Jón Jónsson 402
Í mörg ár bauð umf Fram upp á leikjanámskeið fyrir yngri krakka á Skagaströnd. Hér er einn hópurinn af fara í hjólatúr saman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremsti hjólagarpurinn er Gunnar Karlsson? næstur er Davíð Bragi Björgvinsson þá Þórarinn Ingvarsson og svo Elva Þórsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 030
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Erla Kristinsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Ragnar Jónsson (með skalla) og Helgi Marínó Magnússon.
María Magnúsdóttir - safn 171
Aftan á þessari mynd stendur:"Systurnar á Neðstabæ í Norðurárdal A-Hún. Auðbjörg í karlmannsfötum og Guðrún á hvíta kjólnum".
Árni Geir Ingvarsson - safn 752
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru þrír ungir menn að gera klárt undirlag fyrir steinalagningu. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Almar Freyr Fannarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 745
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og greinilegt að börnin kunna vel að meta nýframkvæmdirnar. Börnin á myndinni eru óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 225
Aftan á myndinni stendur: "Sigríður Árnadóttir fóstra Björns Jónssonar á Ytra - Hóli. Hún bjó lengi á Blönduósi í litlu húsi þar sem nefndist Sólbakki". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Sigríður dó 6.1.1958.
Jón Jónsson 415
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þorvaldur Skaftason og Jökurós Grímsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 310
Ingvar Pálsson (d. 18.10.1968) frá Balaskarði. Ingvar var hagyrðingur og eftir hann er m.a. þessi vísa:
Ég hef fullvel fundið það
í flestum lífsins spilum,
hvað það reynist erfitt að
eiga að standa í skilum.

Páll J. Pálsson safn 29
Þessi mynd var tekin við útför Maríu Ólafsdóttur (d. 4.7.1975) frá Bakka 14. júlí 1975 frá Hofkirkju. Kistuberar eru talið frá vinstri: Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) bóndi Skeggjastöðum, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013) sonur Maríu, Hilmar Árnason (d. 16.3.1988) bóndi á Hofi, Helgi Pálsson (d.22.1.2011) sonur Maríu, Páll J. Pálsson sonur Maríu og Sigurður Björnsson (d. 10.5.1987) bóndi á Örlygsstöðum. Konan sem stendur á tröppunum er Lilja Guðrún Pálsdóttir dóttir Maríu og maður hennar Gunnar Guðmundsson (d. 13.10.2010) er hjá henni í tröppunum. Aftan við Gunnar eru systurnar María Pálsdóttir og Jakobína Pálsdóttir (d. 28.11.2003) dætur Maríu. Pilturinn í kirkjudyrunum er Kolbeinn Högnason sonur Jakobínu en konan lengst til hægri á myndinni er Guðríður Jónasdóttir (d. 20.4.1982) frá Steinnýjarstöðum kona Kristjáns Guðmundssonar (d. 14.2.1979) bónda þar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 755
Harpa Hlín Ólafsdóttir klikkar ekki á að vera með reiðhjólahjálminn þegar hún ferðast um á hjólinu sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 764
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Útveggir hússins voru illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson til vinstri og Einar Gunnarsson til hægri á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar við að bera á klæðninguna utanhúss fyrir opnunina.
Jón Jónsson 414
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur, Jökulrós Grímsdóttir, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Erna Sigurbjörnsdóttir.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn003
Skátaforingjarnir Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd og Gunnhildur Þórmundsdóttir foringi á Blönduósi. Myndin var tekin kringum 1960 á einhverju skátamóti.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 072
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Andri Þór Ómarsson, Elín Ósk Ómarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993).
Jón Jónsson 449
Myndin var líklega tekin 1985. Á henni er fólk að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf við að hreinsa frá skeljabrot og annað sem ekki á heima á borði neytenda. Konurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990).
Héraðsskjalasafn A-Hún 122
Jón Árnason (d.1888) bókavörður og þjóðsagnasafnari frá Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 275
Björk Axelsdóttir kennari frá Skagaströnd
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 085
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 5. ágúst 1994 treður upp unglingahljómsveitin T-Rex fyrir 50 manns. Hljómsveitin var skipuð ungum strákum frá Skagaströnd en þeir eru frá vinstri: Birkir Rafn Gíslason, Sigurður Berndsen, Jón Ólafur Sigurjónsson og Pétur Herbertsson. Birkir er sá eini þeirra sem lagt hefur tónlistina fyrir sig sem atvinnugrein.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 088
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Auðvitað gengur svona skemmtanahald ekki upp án starfsmanna. Á myndinni er Kristín Kristmundsdóttir að vinna "á bakvið" 20. ágúst 1994.
Héraðsskjalasafn A-Hún 379
Magnús Daníelsson (d. 1.6.1993) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 765
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd er Árni Geir Ingvarsson að vinna við þökulagningu á lóðinni umhverfis Árnes fyrir opnunina.
Héraðsskjalasafn A-Hún 186
Klemensína Karitas Klemensdóttir (d. 12.6.1966) frá Ægissíðu á Skagaströnd. Myndin var tekin af Klemensínu 1910 þegar hún var 25 ára gömul.
Jósef H Sigurðsson - safn 032
Hjalti Indriðason líklega um borð í Hafrúnu Hu 12 á netaveiðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson 368
Þessi mynd var tekin í Lystigarðinum á Akureyri. Aftan á myndina er skrifað með penna: "Fjölgun 5 í viðbót" en þar fyrir neðan með býanti: "Stúkan í sömu ferð" . Þetta virðist því hafa verið tekið í einhverri skemmtiferð stúkunnar á Skagaströnd en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Í aftari röð eru Úlfar Björnsson ljóshærður næst lengst til vinstri. Jón Jónsson er fjórði frá vinstri með ljósan sixpensara. Framan við Jón krýpur Gunnar Albertsson en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

116
117
118

167
Leita í myndasafninu
Leita