Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 230
Fritz Hendrik Berndsen (d. 20.6.1927) kaupmaður Hólanesi á Skagaströnd.
Jón Jónsson 417
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum síðar. Þau eru frá vinstri: standandi: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir og Svanhvít Halla Pálsdóttir.
Jón Jónsson 371
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Fremst á myndinni má sá bakið á Guðmundi Jóhannessyni og Hrafnhildi Jóhannsdóttur að dansa. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Jónsdóttir (stendur), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) (situr), Þórey Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir en hinar konurnar eru óþekktar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 185
Hjónin Þuríður Lilja Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) og Ólafur Jón Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti á Skagaströnd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 029
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni er Helgi Marínó Magnússon í góðum gír en hann var einn af kennurunum á námskeiðinu.
Ólafur Bernódusson646
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd er Sonja Sif Ólafsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, að lesa upp fyrir fullan sal af gestum í félagsheimilinu Fellsborg.
Hérðasskjalasafn A-Hún 151
Hjónin María Hjaltadóttir og Reynir Davíðsson bændur á Neðri-Harrastöðum í Skagabyggð.
Hallgrímur Kristmundsson safn005
Ekki er vitað hvað mennirnir á myndinni í fjörunni eru að gera. Þeir virðast vera að safna þangi upp á einhvers konar grind hvort sem það hefur verið til að nýta sem skepnufóður eða hvort grindin er í raun hlunnar og þangið mokað yfir þá til að auðvelda að setja upp bát í hálu þanginu. Maðurinn í ljósa jakkanum til hægri er Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) en hinir mennirnir eru óþekktir. Í baksýn til vinstri er einhverskonar bryggja, gangfjöl eða holræsisútrás fram í sjó. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það gæti þó hafa verið í fjörunni sem var neðan við sundlaugina og skerið í baksýn væri þá eitt af djúpskerjunum, upp úr á há fjöru.
Jón Jónsson 403
Í mörg ár bauð umf Fram upp á leikjanámskeið fyrir yngri krakka á Skagaströnd. Hér er einn hópurinn af fara í hjólatúr saman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremsti hjólagarpurinn er <br>Elva Þórsdóttir næstur er líklega Magnús Filip Sævarsson þá Gunnar Helgason en aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson673
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er hópurinn nýlagður af stað og labbar í fallegum brekkum í Hólkotsdal.
Jón Jónsson 375
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Díana Kristjánsdóttir með gítar, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Sigurður Bjarnason.
Héraðsskjalasafn A-Hún 148
María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) og Björn Magnússon (d. 1921) frá Syðra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 245
Svanlaug Björnsdóttir (d. 6.1.1916) frá Þverá í Hallárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 089
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 27. ágúst 1994 hefur ömmubarn Bjarnhildar, Kristbjörg D. Ragnheiðardóttir, fengið að koma með í undirbúninginn og fengið að bregða sér á bak á tréhestinum sem var á efri hæð Kántrýbæjar.
Ólafur Bernódusson633
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að lýsa leiðinni og rekja aðdragnda að gerð hennar. Friðmar Eiríksson situr og hlustar meðn tveir óþekktir strákar skoða kort af leiðinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 432
Þessi kona er óþekkt en myndin kom til Héraðsskjalasafnsina frá Þormóði Pálssyni frá Njálsstöðum. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 354
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd sem tekin var eftir frumsýningu eru Þresti færð blóm og þakklæti Leikklúbbsins fyrir vel unnið starf. Á myndinni eru frá vinstri:óþekkt, Sigríður Ásgeirsdóttir?, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Jón Indriðason, Þröstur Guðbjartsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Sigrún Jónsdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Steindór Haraldsson, Þorvaldur Skaftason og Rut Jónasdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 361
Sigfús Haukur Andrésson (d. 27.11.2010) frá Ásholti á Skagaströnd. Sigfús var sagnfræðingur og skjalavörður á Þjóðskjalasafninu. Hann skrifaði m.a.: "Verzlunarsaga Íslands 1774 -1807" sem út kom 1988 og "Þjóðskjalasafn Íslands. Ágrip af sögu þess og yfirlit um heimildasöfn þar" sem fyrst kom út 1979.
Jósef H Sigurðsson - safn 096
Bræður úr Hólaneshúsi. Magnús Elías Sigurðsson til vinstri og Jósep Hjálmar Sigurðsson til hægri. Magnús fæddist árið 1962 en Jósep 1961 þannig að líklega hefur myndin verið tekin 1962 eða 1963.
Jón Jónsson 424
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Hökuldsstaðakirkju en líklega hefur það verið einhverntíma 1978-1980. Tilefnið gæti verið fjölskyldumessa eða sunnudagaskóli. Á öðrum bekk næst okkur er Ólafur Kristjánsson frá Höskuldsstöðum og við hlið hans er Magnús Björnsson frá Syðra-Hóli. Konan í gráa jakkanum með gleraugu er Ingibjörg Jósefsdóttir frá Enni en á næsta bekk þar fyrir aftan er Einar Guðmundsson frá Neðri-Mýrum í dökkum jakka með vasaklút í brjóstvasanum. Enn aftar situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) í pretsskrúða. Gráhærða konan út við vegg tveimur bekkjum aftar er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Skagaströnd en áður á Syðra-Hóli. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson635
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að hlusta á tölu Magnúsar B. Jónssonar sveitarstjóra í skjóli fyrir kaldri norð-austan gjólunni sem var þennan dag. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Guðrún Pálsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Signý Richter.
Páll J. Pálsson safn 10
Myndin var tekin 1946 af Páli Tómasyni (d.3.6.1963) bónda á Bakka í Skaghreppi þar sem hann situr á hestasláttuvél og slær. Til hægri á myndinni eru þrjú börn hans og eiginkona, talið frá vinstri: Björg Þóra Pálsdóttir, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013), Lilja Guðrún Pálsdóttir og eiginkonan María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975).
Héraðsskjalasafn A-Hún 228
Hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir (d. 4.4.1996) og Hilmar Árnason (d. 16.3.1988) bændur á Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 166
Ólafur Pálsson (d. 26.3.2004) frá Króksseli og seinna Björgum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 138
Ytri Hóll í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) ? Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson680
Fjallganga á Spákonufellsborg er hressandi og á allflestra færi enda nýtur leiðin sívaxandi vinsælda. 5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er gönguhópurinn búinn að stilla sér upp til myndatöku við vörðuna uppi á Borgarhausnum. Eins og sjá má er fólkið á öllum aldri 4 - 74 ára þannig að það var 70 ára aldursmunur á yngst og elsta göngugarpinum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 234
Pálina Sigurðardóttir (d. ?) frá Höfnum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 722
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Amy Ósk Ómarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 439
Árni Árnason (1866- 25.9.1953) og Þuríður Kristjánsdóttir (1861-1943) frá Þverá í Hallárdal.
Ólafur Bernódusson650
Helga Ólína Aradóttir þroskaþjálfi og sérkennari böðuð í vetrarsól.
Héraðsskjalasafn A-Hún 330
Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Óseyri og seinna Bjargi og Breiðabliki. Var sambýliskona Bjarna Jóhanns Jóhannssonar (d. 12.9.1971) en þau áttu saman átta börn en eitt þeirra dó í frumbernsku.
Héraðsskjalasafn A-Hún 306
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd flytur hugvekju í ókunnri kirkju.
Jón Jónsson 441
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni leggja eyrun við ræðuhöldum, frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Helga Jóhannesdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og Sólveig Róarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 286
Sigríður Guðmundsdóttir ( 12.2.1862 - 12.1.1912) frá Kollugerði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Guðmundur Helgason faðir Sigríðar var kallaður Guðmundur "Kolluhvellur" en hann var orðlagður söng- og sögumaður og mikið hraustmenni sem til eru margar sögur af.
Hérðasskjalasafn A-Hún 155
Hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Skagaströnd.
Jósef H Sigurðsson - safn 028
Magnús Elías Sigurðsson (d.16.9.2018) heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Magnús fæddist árið 1962.
Jón Jónsson 420
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd er kokkurinn Steindór R. Haraldsson, sem sá um veitingar í samkvæminu, með hjálparstúlkum sínum: Elísabetu Hallbjörnsdóttur til vinstri og Jóney Gylfadóttur til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 227
Hjónin Rafn G. Sigurbjörnsson og Ingibjörg M. Ólafsdóttir Örlygsstöðum II í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 041
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri:Anna Guðrún Ásgeirsdóttir, Erna Högnadóttir, Guðný Björnsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sólveig Róarsdóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016) og Haraldur Árnason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 942
Benedikt Benjamínsson kallaður Strandapóstur. Var póstur norður um Strandir í 25 ár þar af tvö ár alla leið frá Stað í Hrútafirði og norður í Árnes, og um tíma alla leið í Ófeigsfjörð. Gerðist símstöðvarstjóri í Djúpuvík, og síðar útibústjóri fyrir kaupfélag. Þarna er hann á hesti sínum Fálka fyrir ofan símstöðvarhúsið á Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1940. (Heimild: Benedikt Strandapóstur ævisaga)
Ólafur Bernódusson641
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd eru nokkrir krakkar við hringsjána á Höfðanum að finna svör við spurningum í ratleik, sem haldinn var í sambandi við opnunina. krakkarnir eru, frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson, Róbert Björn Ingvarsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir fjær og Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 410
Önnur þessara kvenna er Emma Pálína Jónsdóttir (1890-29.2.1976) en hin er ?Guðrún? Balaskarði. Emma var gift Jakob Jens Jóhannssyni (d.5.6.1935) bónda á Finnsstöðum og seinna á Spákonufelli í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd). Ef þú þekkir þessar konur og getur sagt til um hvor er hver vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn066
Myndin var tekin af smíði á kari í slippnum neðan við (vestan við) Bjarmanes. Körin voru steypt þarna síðan sett á flot og svo dregin á réttan stað og sökkt þar til að mynda hafnargarð/bryggjukant í einhverri íslenskri höfn. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 203
Elín Ólöf Oddbjörg Björnsdóttir (d. ?) frá Syðri-Ey í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 382
Sýslunefndarmenn úr Austur Húnavatnssýslu á fundi nefndarinnar. Frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd, Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum í Sveinsstaðahreppi, Sigurður Þorbjörnsson (d. 5.3.2002) frá Geitaskarði í Engihlíðarhreppi, Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) og Sveinn Sveinsson frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 184
Þuríður Lilja Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) frá Brautarholti á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 760
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að vinna við undirstöðurnar undir bíslagið.
Héraðsskjalasafn A-Hún 251
Steinunn Þórdís Berndsen (Siemsen)(1871 - 1953) með börn dóttur sinnar Bjargar Berndsen (d. 15.12.1963) og Ólafs Lárussonar (d.30.5.1953). Börnin eru frá vinstri: Steinþór Carl Ólafsson (d.19.9.1985), Sigríður Ólafsdóttir, Theodor Lárus Ólafsson og Knútur Berndsen (d.31.8.2013) sem er í fangi Steinunnar. Knútur var ekki sonur Bjargar og Ólafs heldur hálfbróðir Bjargar. <br><br>
Ólafur Bernódusson587
Þessi mynd sýnir glaðbeitt yngri börn úr Höfðaskóla þegar þau fóru í heimsókn að Skeggjastöðum ásamt kennurum sínum. Líklega var myndin tekin kringum 1988. Kennararnir aftan við hópinn eru Björk Axelsdóttir, Vilborg Magnúsdóttir og Jón Pálsson skólastjóri. Erfitt er að þekkja börnin á myndinni því þau eru svo grett upp í sólina þannig að það er látið hverjum og einum eftir að þekkja sjálfan sig eða sín börn. Þó má benda á Jónas Fanndal Þorvaldsson sem er fyrir miðri mynd í dökkri úlpu með húfuna sína í hendinni. Hægra megin við hann, dökkhærður með hendur í vösum og í hvítum buxum er Jón Ólafur Sigurjónsson, og við hlið hans eru bræðurnir Kristján Gunnar Guðmundsson og Hjörtur Guðmundsson báðir með lambhúshettur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 336
Páll Jónsson (d.19.7.1979) frá Breiðabliki, skólastjóri á Skagaströnd. Páll varð fyrsti skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd þegar Höfðahreppur varð til 1939 eftir skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjá hreppa. Sinnti hann því starfi allt til ársins 1966 er sonur hans Jón S. Pálsson tók við.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 075
Leikritið Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir (d.25.6.2009). Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016). Myndina tók Jónas Baldursson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 733
Hallbjörn Björnsson rafverktaki hjá Neistanum sinnir einhverri fínvinnu við dælu eða mæli á ókunnum stað.
Jón Jónsson 398
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né um hvaða leiksýningu er um að ræða. Líklega hefur sýningin þó verið á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Standandi lengst til vinstri er Óskar Óskarsson. Þorvaldur Skaftason situr og er í rauðu vesti. Hægra megin við Þorvald er Guðjón Árnason? Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú veist hvaða leiksýningu er hér um að ræða eða þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson653
Stefán Velemir situr á nýrri sláttuvél sinni og Róbert Björn Ingvarsson aðstaðamaður hans stendur með hrífuna. Stefán byrjaði mjög snemma á að taka að sér garðslátt fyrir fólk. Það þróaðist fljótlega út í allsherjar sláttuþjónustu þar sem hann bætti við sig að slá opin svæði í sveitarfélaginu. Til þess að það gengi upp þurfti hann auðvitað að eiga góð tæki og sláttuvélin á myndinni reyndist honum vel. Myndin var tekin 3. júlí 2009 nokkrum dögum áður en Stefán varð 15 ára.
Héraðsskjalasafn A-Hún 110
Systkini frá Syðra Hóli. Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður er til vinstri, Guðrún Ragnheiður Björnsdóttir (d. 6.11.1958) og Lárus Björnsson (d. 30.9.1985) smiður á Akureyri.
Jósef H Sigurðsson - safn 051
Drífa Kristjánsdóttir og Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015).
Árni Geir Ingvarsson - safn 734
Hér er verið að vinna við undirstöðu skiltis við Tjaldklaufina í Höfðanum. Þarna er nú komið upplýsingaskilti sem sýnir gönguleiðina um Höfðann því þarna er einn af upphafsstöðum hennar. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson og Vilhelm Harðarsson stjórnar bílkrananum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 171
Hjónin Soffía Aðalheiður Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) og Hafsteinn J. Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 710
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið er óþekkt nema stúlkan í miðjum hópnum er Helga Dögg Jónsdóttir frá Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 261
Bjarni Guðmann Jónasson (1896-1981) frá Eyjólfsstöðum til vinstri, Ingvar St. Pálsson (1895-1968) frá Balaskarði og fleiri skólasystkin 1912-1913 í alþýðuskólanum á Hvítárbakka. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
119
120
121
…
167
Leita í myndasafninu
Leita