Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 770
Þeir eru miklir golfáhugamenn Hafþór Gylfason til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri. Á myndinni eru þeir að búa í haginn á golfvellinum með því að smíða eitthvað, líklega girðingastiga, til að koma fyrir á Háagerðisvelli. Aðstöðu fyrir smíðina fengu þeir í áhaldahúsi hreppsins þar sem myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 259
Fólk frá Höfnum og Víkum í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Myndin var tekin við bæjardyrnar í Höfnum undir útskornu listaverki Guðmundar Pálssonar myndskera, sem kallaður var bíldur. Á myndinni eru Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir sem er dökkklædd og stendur í dyragættinni. Konan til vinstri við Guðrúnu er líklega Elinborg Teitný Björnsdóttir (d.2.5.1971) , fyrri eiginkona Jóns Benediktssonar (d.30.12.2002) bónda í Höfnum. Faðir Elinborgar var Björn Teitsson, bróðir Guðrúnar Teitsdóttur, svo þær Elinborg voru náskyldar. Drengurinn framan við Elínborgu er líklega sonur hennar, Benedikt Jónsson og telpan framan við Guðrúnu sennilega Lára Bjarnadóttir dóttir Elínborgar og fósturdóttir Jóns. Hin stúlkan, sem stendur framan við óþekkta manninn er þá Birna Jónsdóttir sem er dóttir Elínborgar og Jóns. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern af hinu fólkinu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn043
Guðmundur Jóhannesson líklega í Listigarðinum á Akureyrir einhverntíma kringum 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 972
Þetta prúðbúna fólk er líklega statt á Djúpavík. Konan til vinstri er líklega Jósefína Njálsdóttir sem bjó á Djúpavík á síldarárunum. Ungi maðurinn í miðið er Helgi Jónsson (25.3.2013) frá Reykjarnesi í Árneshreppi en konan til hægri er óþekkt. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 748
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir eru að prófa nýju kastalann, sérstaklega rennibrautina. Í henni er Sindri Björnsson en hin börnin eru óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 11
María Ólafsdóttir (d.4.7.1975) tíu ára gömul 1913. María giftist síðar Páli Tómassyni (d.3.6.1963) og bjó með honum á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð árin 1923 - 1960. Saman eignuðust þau níu börn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 376
Fjölskylda. Hjónin eru Jón Árnason (1864-1944) prestur frá Þverá í Hallárdal og konan er Jóhanna Pálsdóttir (1866-1949). Börnin eru frá vinstri: Sigríður Jónsdóttir (1892-1977), Anna Guðrún Jónsdóttir (1900-1982), Svanlaug Jónsdóttir (1903-1983) og Páll Jónsson (1895 - 1910). Séra Jón var sóknarpretsur í Otradal í Barðastrandasýslu og síðar á Bíldudal.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 027
Þessi mynd var tekin 25. febrúar 1993. Ekki er vitað um tilefnið né hvar hún var tekin en á henni eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), óþekktur, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Bjarnhildur Níelsdóttir og Elva Dröfn Árnadóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 437
Björn Árnason (1870 - 24.8.1932) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Björn fæddist að Þverá í Hallárdal en varð seinna bóndi, hreppsstjóri og kennari á Syðri-Ey.
Héraðsskjalasafn A-Hún 278
Hjónin Sigurður Indriðason (1863- 25.11.1949) frá Ytri-Ey og Guðrún Pálsdóttir kona hans. Sigurður var tvígiftur og bjó með fjölskyldu sinni til skiptis á Íslandi og í Kanada þar sem hann lést 25.11.1949. Sigurður var bróðir Indriða Jóns á mynd 10016 og Regínu Sigríðar á mynd 10017.
Árni Geir Ingvarsson - safn 719
Kaffitími í áhaldahúsinu. Alma Eik Sævarsdóttir til vinsri og Sigurbjörg Írena Rúnarsdótttir til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 265
Sýslunefndarmenn úr Austur Húnavatnssýslu á fundi nefndarinnar. Frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd, Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum, Sigurður Þorbjörnsson (d. 5.3.2002) frá Geitaskarði, Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli og Sveinn Sveinsson frá Tjörn.
Jón Jónsson 450
Myndin var tekin 1985 í Rækjuvinnslunni hf. Á henni eru karlarnir á vaktinni í kaffipásu. Frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Sigurður Bjarnason og Grétar Haraldsson.
Jón Jónsson 439
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru gestir hans úti á verönd að taka lagið saman. Frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Guðmundur Jóhannesson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Guðný Finnsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Elín Njálsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Sigfús Jónsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) og Sveinn Ingólfsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 740
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er verið að vinna á lóðinni. Vilhjálmur Jónsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri leggja hellusteina á göngustíg og Gunnar Þór bílstjóri fylgist með.
Hallgrímur Kristmundsson safn052
Snorri Gíslason (d.29.5.1994). Myndin var líklega tekin í Listigarðinum á Akureyri einhverntíma kringum 1950.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 091
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Stundum tók Hallbjörn Hjartarson, eigandi Kántrýbæjar, lagið með listamönnunum sem komu. Á myndinni er Hallbjörn í góðu stuði á sviðinu 22.október 1994.
Héraðsskjalasafn A-Hún 79
Gísli Brandsson (d. 1902) frá Úlfagili húsmaður á Breiðavaði og Balaskarði. Hann var stundum kallaður Laufagosi því hann hafði gaman af að spila. Hann smíðaði spæni fyrir fólk eins og þann sem hann hefur í hægri hendi á myndinni, Gísli var hagyrðingur og gerði töluvert af lausavísum. Hér er ein þeirra líklega gerða af gefnu tilefni:<br> Enginn tekur upp í nef<br> Enginn vekur samviskuna<br> Einhver sekur er um þef<br> Einhver rekur við til muna. <br>
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn007
Skátamót eru ekki bara hopp og hí úti um mela og móa. Það þarf líka að elda mat og ... vaska upp.<br>Hér er uppvask í fullum gangi hjá skátaforingjum. Frá vinstri: Jón Ísberg (d.24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, óþekktur, óþekkt, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi á Skagaströnd og Hrefna Tynes (d.10.5.1994) kvenskátahöfðingi á Íslandi. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 709
Á myndinni er Jóhann Björn Þórarinsson að gera við vél-hjólbörur uppi á Höfða. Börurnar voru notaðar við stígagerð á Höfðanum en hann er vinsælt útivistarsvæði þar sem margur fær sér hressandi göngutúr eftir merktum göngustíg.
Héraðsskjalasafn A-Hún 443
Það eina sem vitað er um þessa mynd er að þetta er Jakob frá Skrapatungu með konu sinni og fjórum börnum. Ef þú veist nöfn einhverra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 366
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Á miðri mynd er Gunnar Halldór Hallbjörnsson að lesa upp en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson677
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er Hafþór Gylfason að láta líða úr sér uppi á Borgarhausnum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 304
Sigurjón Ólafsson (d.20.7.1946) sem var maður Önnu Pétursdóttur (d. 30.10.1958) frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 736
Myndin er af Vilhjálmi Jónssyni þar sem hann er að hlaða steinavegg á skólalóð Höfðaskóla.
Héraðsskjalasafn A-Hún 324
Gurid Sandsmark Sveinbjörnsson (d. 26.4.2007) Hlíð í Skagahreppi (nú Skagabyggð) áður frá Rogalandsfylki í Noregi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 269
Björg Jónsdóttir (d. ?) frá Háagerði. Björg var móðir Halldóru Bjarnadóttur (d.1981) kennara og skólastjóra.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 063
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, vinstra megin við borðið: Ingibjörg Skúladóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórhalla Þórhallsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Svava Sigurðardóttir og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir. Hægar megin við borðið eru: óþekkt og Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016).
Páll J. Pálsson safn 12
Hjónin María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) og Páll Tómasson (d. 3.6.1963) á hlaðinu á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð þar sem þau bjuggu 1923 - 1960. Þessi mynd var tekin 1946.
Árni Geir Ingvarsson - safn 718
Sumarstarfsmenn sveitarfélagsins Skagaströnd í reykingapásu fyrir utan áhaldahúsið. Frá vinstri: Amy Ósk Ómarsdóttir og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson656
Fasteignaeigendur í Smábæ buðu gestum og gangandi í heimsókn á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2010. Eins og sjá má hafði mikil vinna verið lögð í að gera Smábæ sem snyrtilegastan og boðið var upp á brúðuleikhús í tilefni dagsins. Fljótlega eftir að þessi mynd var tekin splundraðist hópurinn út um allt því yfir flaug flugvél og kastaði út karamellum sem þurfti að flýta sér að tína upp.
Ólafur Bernódusson626
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri á spjalli við Einar Haraldsson (d.14.11.1983) fyrir sunnan Rækjuvinnsluna. Einar var gjarnan kenndur við bæ þann sem hann hafði áður búið á og kallaður Einar frá Kjalarlandi eða jafnvel bara Einar Kjali. Á Skagaströnd bjó hann í Dagsbrún ásamt fjölskyldu sinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 762
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá hvernig bíslagið var byggt við húsið og Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að snúast við húsið.
Héraðsskjalasafn A-Hún 211
Jakob Jósefsson (d. 1907) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún virðist hafa verið tekin um borð í skipi.
Jón Jónsson 443
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Vinstra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt og Svanhildur Lýðsdóttir. Hægra megin við borðið, frá hægri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, óþekkt, Gréta Haraldsson og Ingvar Þór Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 004
Hjónin Steinunn Steinþórsdóttir og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) á ferðalagi í rútu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 170
Hjónin Helga Guðrún Guðmundsdóttir og Kristján Guðmundur Sigurðsson (d.4.12.2019) frá Höskuldsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 438
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru þau hjónin Lárus Ægir og Bjarney Valdimarsdóttir að taka á móti gestum við heimili sitt á Hólabraut 24.
Árni Geir Ingvarsson - safn 676
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Sitjandi frammi á sal eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 319
Systkini frá Mánaskál í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Frá vinstri: Sigtryggur Bergsson (1891-. 8.8.1928), Sveinsína Bergsdóttir (1894- 20.12.1981) og Ellert Bergsson (1903- 30.1.1950).
Hallgrímur Kristmundsson safn018
Á þessari mynd er Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) lengst til hægri af þeim sem standa. Konurnar við hlið hans gætu verið Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) Karlsskála ljósklædd og ?Sigríður Ásgeirsdóttir? (d. 11.12.2006) Lækjarbakka dökklædd. Þau/þeir sem sitja eru óþekktir/óþekkt. Ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 363
Carl Berndsen (d. 15.12.1954) Karlsskála á Skagaströnd. Carl var kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúmlega hálfa öld; 1896 - 1947. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 140-141).
Árni Geir Ingvarsson - safn 806
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, Herborg Þorláksdóttir nær, óþekktur fjær og óþekktur.
Hallgrímur Kristmundsson safn062
Líklega er þetta Kristmundur F. Jakobsson (d.1.5.1976) frá Árbakkabúð. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 299
Árni Stefán Björnsson (1898-1978) tryggingafræðingur sonur Björns Árnasonar (1870-1932) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) með konu sinni Sigríði Björnsdóttur (d.?). Myndin var tekin af þeim hjónum á ferð í Róm.
Jósef H Sigurðsson - safn 002
Vinirnir Jósep Sigurðsson úr Hólaneshúsinu og Kenny Hallbjörnsdóttir úr Brimnesi bregða á leik fyrir ljósmyndarann.
Héraðsskjalasafn A-Hún 463
Bræðurnir séra Helgi Konráðsson (1902 -30.6.1959) prestur á Hökuldsstöðum og Sauðárkróki og Hjálmur Konráðsson (1895 -17.12.1933) framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 741
Á myndinni er verið að steypa kantsteina í beygjunni vestan við Einbúann. Verktakar komu og steyptu slíka kanta víðs vegar um bæinn en síðan hafa víða verið gerðar gangstéttar innan við kantsteininn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 223
Fjölskylda á Stóra-Bergi (seinna á Hjalteyri) Kristján Pálsson (d. 27.5.1943 ? ) og Margrét Jónsdóttir (d. ?) með barn sitt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 436
Stefán Jón Björnsson (1905 - 29.8.1998) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Stefán starfaði á Skattstofu Reykjavíkur 1930 - 1975 fyrsti sem almennur starfsmaður en frá 1941 sem skrifstofustjóri þar.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 079
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 22. mars 1994 er Bjarnhildur í góðum höndum dansara sem nefndu sig "American Male Dancers". 70 -80 manns sóttu sýningu dansaranna í Kántrýbæ, mest kvenfólk, enda dönsuðu þessir myndarmenn fáklæddir og fengu þjórfé frá hrifnum áhorfendum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 834
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Rut Jónasdóttur fyrir útgáfu leikskrár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 232
Systurnar Kristín Pétursdóttir (d. 5.12.1989), Sigurlaug Pétursdóttir (d. 7.9.1986) og Jóna Pétursdóttir (d. ?) Karlsminni á Skagaströnd áður frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 758
Bræðurnir Guðmundur J. Björnsson til vinstri og Sigurður F. Björnsson til hægri við framkvæmdir vegna endurbyggingar Árness sem sést lengst til vinstri á myndinni. Guðmundur rak vélaleigu, þar með talið gröfuþjónustu, í áratugi á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 729
Hallbjörn Björnsson rafverktaki hjá Neistanum sinnir einhverri fínvinnu við dælu eða mæli á ókunnum stað.
Héraðsskjalasafn A-Hún 446
Þessar kvenfélagskonur eru óþekktar. Hjá Héraðsskjalasafninu er ranglega sagt að þetta séu konur úr kvenfélaginu Eining á Skagaströnd því það eru konurnar ekki. Ef þú þekkir einhverja þessara prúðbúnu kvenna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 737
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er verið að vinna á lóðinni. Ómar Ingi Ómarsson er næstur okkur að vökva og þökuleggja. Til hægri eru Stefán Sveinsson og Vilhjálmur Jónsson að hlaða vegg úr steinum og helluleggja kringum leiktækin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 428
Konan á myndinni er Filppía Helgadóttir. Jón Karlsson (d.20.4.1997), með gleraugu, stendur aftan við mann Filippíu, Magnús Daníelsson (d. 1.6.1993). Magnús og Filippía voru bændur á Syðri-Ey en Jón var frá Blönduósi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 18
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 393
Kvenfélagskonur úr kvenfélögum á Blönduósi, Torfalækjarhreppi, Engilhíðarhreppi og Höskuldsstaðasókn. Ekki eru þekktar nema fáeinar kvennanna en vonandi hefur fólk gaman af að skoða myndina og finna á henni konur sem það þekkir.
1
…
120
121
122
…
167
Leita í myndasafninu
Leita