Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson692
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Eva Dís Gunnarsdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta dagskrárlið.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 046
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þar sem fólkið fór saman út að borða. Fólkið er, talið frá vinstri: Magnús Guðmannsson, Erna Högnadóttir, Ása Ásgeirsdóttir, Hólmgeir Kristmundsson, tvö óþekkt, Birgir Árnason (d. 2.2.2005), Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Árni Björn Birgisson, Kristín Sigurðardóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016), Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Haraldur Árnason og í forgrunni myndarinnar er Pálfríður Bjarnadóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 363
Carl Berndsen (d. 15.12.1954) Karlsskála á Skagaströnd. Carl var kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúmlega hálfa öld; 1896 - 1947. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 140-141).
Héraðsskjalasafn A-Hún 265
Sýslunefndarmenn úr Austur Húnavatnssýslu á fundi nefndarinnar. Frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd, Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum, Sigurður Þorbjörnsson (d. 5.3.2002) frá Geitaskarði, Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli og Sveinn Sveinsson frá Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 709
Á myndinni er Jóhann Björn Þórarinsson að gera við vél-hjólbörur uppi á Höfða. Börurnar voru notaðar við stígagerð á Höfðanum en hann er vinsælt útivistarsvæði þar sem margur fær sér hressandi göngutúr eftir merktum göngustíg.
Héraðsskjalasafn A-Hún 443
Það eina sem vitað er um þessa mynd er að þetta er Jakob frá Skrapatungu með konu sinni og fjórum börnum. Ef þú veist nöfn einhverra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 428
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Með henni á þessari mynd eru börn hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981). Á myndinni eru standandi frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson. Sitjandi frá vinstri: Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015), Guðrún Sigurðardóttir, Hallbjörg og Hjördís Sigurðardóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 434
Hafsteinn Jónasson (1901- 11.6.1975) bóndi á Njálsstöðum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 386
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið gert við vígslu einhverrar nýrrar kirkju. Ef það er rétt þá eru leikmenn á myndinni að bera kirkjugripi til hinnar nýju kirkju og prestarnir sem á eftir koma sömuleiðis. Leikmennirnir á myndinni eru óþekktir en presturinn nær okkur í fremstu röð prestanna er séra Jón Kr. Ísfeld (d. 1.12.1991) og nær okkur í annarri röð er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 049
Hugrún Sigurðardóttir á ferðalagi með Helgu Sigurbjörgu Jósefsdóttur litlu frænku sinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hugrún er fædd árið 1973.
Héraðsskjalasafn A-Hún 366
Sigmundur Benediktsson (d.6.5.1965) frá Björgum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 369
Þessi mynd var tekin kringum 1940 í fjörunni, sem þá var, austan við Einbúann, sem er lengst til hægri á myndinni. Konurnar eru María Magnúsdóttir og óþekkt vinkona hennar. María er líklega sú sem situr dökka hestinn. Eins og flestir þekkja er nú komin uppfylling og byggingar á svæðið sem þær stöllur eru að fara um á myndinni.
Elínborg Jónsdóttir - safn 1
Þessi börn eru óþekkt og líka staðurinn þar sem myndin var tekin. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 329
Hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Þau hjón voru oft kennd við heimili sitt Dagsbrún sem Skafti byggði og stækkaði eftir því sem börnum þeirra hjóna fjölgaði en þau urðu fimm sem lifðu.
Jósef H Sigurðsson - safn 069
Myndin var tekin 1996 á fermingardegi Elvars Grétarssonar af fjölskyldunni sem þá bjó á Ránarbraut 7. Talið frá vinstri: Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir, Jóhannes Villiam Grétarsson, Ívar Logi Grétarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Grétar Haraldsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 054
Jósep Sigurðsson fæddist árið 1961. Þessi mynd af honum hefur því líklega verið tekin 1962.
Héraðsskjalasafn A-Hún 339
Myndin var tekin á Hólahátíð en ártalið er óþekkt. Frá vinstri: séra Björn Björnsson Hólum, óþekktur, séra Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum (Skagaströnd), séra Friðrik Friðriksson Húsavík, óþekktur, séra Lárus Arnórsson Miklabæ og séra Páll Þorleifsson Skinnastað.
Héraðsskjalasafn A-Hún 438
Guðrún Sigurðardóttir (1875-9.1.1964) bóndakona á Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Guðrún fæddist á Keldulandi í Skagahreppi (nú Skagabyggð) og varð seinni kona Björns Árnasonar (d. 24.8.1932) í Syðri-Ey.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn035
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: tvær óþekktar, baksvipur Kristínar Ólafsdóttur, Sigrún Jónsdóttir, Garðar Geirfinsson, óþekkt, Elva Dröfn Árnadóttir, baksvipur Geirþrúðar Guðmundsdóttur, Sigrún Líndal (nær) og Rebekka Jóelsdóttir (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 999
Hjónin á Bogabraut 16. Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) og Karitas Laufey Ólafsdóttir. Saman eignuðust þau sex börn: Rúnar Þór, Ragnar Smára, Grétu Kristjönu, Árna Geir, Völu Rós og Þórarinn Brynjar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 406
Þessi mynd var tekin 1939 á hlaðinu á Karlsminni á Skagaströnd. Því miður er fólkið á myndinni óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 205
Ólafur Árnason (d. 1915) frá Þverá í Hallárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 362
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru krakkar að sýna fimleika undir stjórn íþróttakennarans Ingu Matthíasdóttur. Frá vinstri: Inga Matthíasdóttir, Tinna Gunnarsdóttir?, Trausti Magnússon (efst), óþekkt, tvær óþekktar stúlkur, Elva Dröfn Árnadóttir, Kolbrún Ragnarsdóttir og Guðrún Helgadóttir (sitja) Bergþóra Guðjónsdóttir og Guðjón Hall Sigurbjörnsson efst.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 059
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þar sem fólk slakar á við barinn eftir erfiðar verslunarferðir dagsins. Fólkið er, talið frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Rósa Björg Högnadóttir, Grétar Smári Hallbjörnsson (nær) og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir (fjær).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 054
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Árni Björn Birgisson, Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Birgir Árnason (d. 2.2.2005) og Haraldur Árnason.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 093
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd er Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) í afgreiðslunni í Kántrýbæ innan um minjagripi sem seldir voru á staðnum. Amy var eiginkona Hallbjörns Hjartarsonar og því meðeignadi að Kántrýbæ. Myndin var tekin 28. október 1994.
Jón Jónsson 421
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum eftir ferminguna ásamt hluta kennara sinna. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) kennari, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari, Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir, Svanhvít Halla Pálsdóttir og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn011
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni eru þeir að taka pásu áður en lagt er á mesta brattann. Á myndinni eru þekktir nokkrir skátar úr Sigurfara á Skagaströnd. Lengst til vinstri situr Ólafur Bernódusson, fimmta frá vinstri í grárri peysu er Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Gissur Jóhannsson situr við steininn lengst frá okkur. Þorvaldur Skaftason er sá með svarta hattinn, Karl Lúðvíksson krýpur á steininum og Sigurjón Ástmarsson stendur á honum lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Páll J. Pálsson safn 24
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 veturinn 1964 þegar hann var á netaveiðum. Við rúlluna þ.e. lengst til vinstri er Gunnlaugur Árnason stýrimaður. Næstur honum er Jónatan Pálsson og bak við hann, með svart hár, sér í MagSveinbjörn Jónsson. Maðurinn með "sixpensarann" er Steingrímur Einarsson og bak við hann bograr Þorleifur Þórarinsson. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er aftur í ganginum við hliðina á stýrishúsinu að leggja niður netin. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina nær okkur við borðið er Pálmi Einarsson og lengst til hægri, ekki í stakk, er Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
Árni Geir Ingvarsson - safn 754
Hér eru þeir á kunnuglegum slóðum tengdafeðgarnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Viggó Brynjólfsson til hægri. Viggó byrjaði ungur að vinna á eigin jarðýtum og öðrum vinnuvélum og Magnús vann lengi á þessum tækjum hjá tengdaföður sínum.
Ólafur Bernódusson687
Þessi mynd var tekin 28. október 2009 í Höfðaskóla. Vikurnar þá á undan höfðu krakkarnir á myndinni ungað út 5 andarungum í útungunarvél í stofunni sinni. Ungarnir vöktu mikla hrifningu nemenda skólans og jafnvel hörðustu töffarar urðu mjúkir eins og smjör meðan þeir umgengust ungana litlu. Þegar ungarnir vor orðnir þriggja vikna gamlir var þeim svo komið fyrir í varanlegt fóstur á sveitabæ í nágrenninu. Krakkarnir á myndinni voru í 10. bekk þegar þetta var og þau eru frá vinstri: Viktor Valdimarsson, Stefán Velemir, Torfi Friðrik, Tanja Rán Einarsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Ellen Sigurjónsdóttir, Telma Bjarnadóttir, Elías Gunnar Hafþórsson og Eva Dís Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 834
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Rut Jónasdóttur fyrir útgáfu leikskrár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 719
Kaffitími í áhaldahúsinu. Alma Eik Sævarsdóttir til vinsri og Sigurbjörg Írena Rúnarsdótttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 806
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, Herborg Þorláksdóttir nær, óþekktur fjær og óþekktur.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn007
Skátamót eru ekki bara hopp og hí úti um mela og móa. Það þarf líka að elda mat og ... vaska upp.<br>Hér er uppvask í fullum gangi hjá skátaforingjum. Frá vinstri: Jón Ísberg (d.24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, óþekktur, óþekkt, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi á Skagaströnd og Hrefna Tynes (d.10.5.1994) kvenskátahöfðingi á Íslandi. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 079
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 22. mars 1994 er Bjarnhildur í góðum höndum dansara sem nefndu sig "American Male Dancers". 70 -80 manns sóttu sýningu dansaranna í Kántrýbæ, mest kvenfólk, enda dönsuðu þessir myndarmenn fáklæddir og fengu þjórfé frá hrifnum áhorfendum.
Ólafur Bernódusson644
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd, sem þá var tekin, er Guðjón Ólafsson skólafulltrúi A-Hún að setja keppnina með stuttu ávarpi.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn013
Skátafélagið Sigurfari á Skagaströnd var stofnað 26. mars 1959. Þessi mynd var því tekin 1964 þegar Sigurfari varð fimm ára. Á myndinni eru helstu foringjar félagsins á þessum tíma ásamt félagsforingjanum, Þórði Jónssyni. Sitjandi frá vinstri eru: þórir Ágústsson (d.24.9.2000), Helga Guðmundsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi. Standandi eru frá vinstri: Helgi Bjarnason (d.1.3.2007), Gunnlaugur Sigmarsson, Guðmundur Guðmundsson og Steindór Haraldsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 704
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir úr vinnuskólanum að slétta svæðið þar sem þrír Olís-tankar stóðu. Svæðið var síðan þökulagt og gert aðlaðandi til útivistar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 350
Leikendur í uppfærslu á Spanskflugunni á Skagaströnd á vegum Leikfélags Skagastrandar í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri á myndinni, sem er tekin í Tunnunni, eru leikararnir: Helga Berndsen, Ægir Einarsson, Kristinn Pálsson, Þorgerður Bogadóttir, Ingvar Jónsson, Hjördís Sigurðardóttir, Ástmar Ingvarsson, Fríða Hafsteinsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, Friðjón Guðmundsson og Steingrímur Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 17
Myndin var tekin í fermingarveislu á Suðurvegi 3 í tilefni af fermingu Kristbjargar Unu Guðmundsdóttur vorið 2001. Fremst á myndinni er faðir fermingarbarnsins, Guðmundur J. Björnsson. Sitjandi til borðs eru, frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hólmfríður Pálsdóttir, Páll Sigurðsson (d. 16.9.2016), Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) (snýr baki í myndavélina), Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Jón Jónsson 378
Í pásum í Rækjuvinnslunni hf var vinsælt hjá starfsfólkinu að skreppa út á pall til að fá sér frískt loft. Á þessari mynd frá 1985 eru þrjú sem eru að spjalla fyrir utan rækjuna. Frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Ari Þórsson með son sinn Sveinþór Ara í fanginu og Ingvar Þór Jónnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 712
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf og afmörkuðu hann með því móti eins og sjá má á myndinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og unga fólkið er óþekkt nema stúlkan sem er næst okkur á myndinni en það er Helga Dögg Jónsdóttir.
Jón Jónsson 405
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Á myndinni takast í hendur þau Árný Helgadóttir og Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri. Fremst á myndinni sér í Guðný Hjartardóttur (d. 14.3.2011) en konan í bláu úlpunni uppi á sviðinu er Bóel Hallgrímsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 302
Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992). Steingrímur var bátsformaður og útgerðarmaður og seinna verkamaður ættaður frá Brúarlandi á Skagaströnd. Kona hans var Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) en hún var verkakona og húsmóðir. Saman eignuðust þau hjónin fimm dætur og einn son. Steingrímur og Halldóra bjuggu lengst af í Höfðakoti og voru gjarnan kennd við heimili sitt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 221
Jakob Frímannsson (d. 1912) frá Skúfi í Norðurárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Jakob var bóndi og kennari en dó 34 ára gamall úr berklum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 333
Þessi ungi drengur er Kristján Helgi Gunnarsson trésmiður og verktaki frá Skagaströnd. Eftir að myndin kom fram hér hjá Ljósmyndasafninu orti Rúnar Kristjánsson eftirfarandi stöku:<br><br>Margan orkan áfram dregur<br>alla stund frá vöggu.<br>Mikið er hér myndarlegur<br>maðurinn hennar Röggu !
Hallgrímur Kristmundsson safn056
Fremst á myndinni eru Anna Kristmundsdóttir til vinstri og systir hennar Ingibjörg Kristmundsdóttir til hægri. Hinar konurnar á myndinni eru óþekktar nema konan aftast til hægri er líklega Guðrún Helgadóttir? (d. 15.4.1987). Ef þú þekkir óþekktu konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 412
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Elínborg M. Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Örn Berg Guðmundsson og Sigurjón Ástmarsson.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 056
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þar sem fólk er að bíða eftir matnum. Fólkið er, talið frá vinstri: óþekkt, Rögnvaldur Ottósson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Haraldur Árnason, Erna Högnadóttir, óþekkt og Ása Ásgeirsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 383
Myndin var tekin af þessum tveimur heiðursmönnum í tengslum við fund hjá sýslunefnd A-Húnavatnssýslu þar sem þeir voru báðir kjörnir nefndarmenn síns sveitarfélags. Vinstra megin er Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) á Skagaströnd fyrir Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) og til hægri er Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum fyrir Sveinsstaðahrepp (nú Húnavatnshreppur).
Árni Geir Ingvarsson - safn 849
Vala Rós Ingvarsdóttir heima á Bogabraut 16. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Jósef H Sigurðsson - safn 058
Hugrún Sigurðardóttir lætur fara vel um sig heima í Hólaneshúsinu. Hugrún fæddist 1973.
Elínborg Jónsdóttir - safn 15
Texti með þessari mynd segir:"Guðrún". Líklega er þetta Guðrún Halldórsdóttir (d.2.5.2012) forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, kennari og alþingismaður. Hún var mikil vinkona Elínborgar M. Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara og fræðimanns frá Másstöðum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 288
Samkvæmt upplýsingum Héraðsskjalasafns A-Hún eru þetta þær Elín Rannveig Jónsdóttir (1899-28.6.1984), Margrét Jónsdóttir og ókunn frá Hökuldsstöðum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 357
Hjónin Steinunn Þórdís Siemsen (d. 29.10.1953) og Carl Berndsen (d. 15.12.1954). Carl var kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúmlega hálfa öld; 1896 - 1947. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 140-141).
Jósef H Sigurðsson - safn 019
Sigríður Sigurðardóttir skoðar nýfæddan bróður sinn Hjört Þórarinn Sigurðsson (d. 9.5.2015) heima í Hólaneshúsinu. Sigríður, eða Sirrý eins og hún var kölluð á Skagaströnd, hefur verið rúmlega tveggja ára þegar myndin var tekin 1965 því Hjörtur heitinn fæddist 9. júní 1965 og aftan á myndinni stendur að hann hafi verið eins og hálfs vikna gamall þegar hún var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 346
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið að Hólum í Hjaltadal. Ekki er heldur vitað hvenær hún var tekin. Á henni eru frá vinstri prestarnir: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), séra Gísli Kolbeins og séra Sigurður Guðmundsson (d. 9.1.2010) vígslubiskup að Hólum.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 002
Þessi mynd var tekin í saumaklúbb á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi en ekki er vitað hvenær. Á myndinni er Árnína Guðrún Fossdal að lesa í bolla fyrir þær Þórunni Óladóttur til vinstri og Amy Evu Eymundsdóttur (d. 7.3.2012) til hægri.
Jósef H Sigurðsson - safn 012
Gunnar Reynisson um borð í óþekktum bát.
1
…
121
122
123
…
167
Leita í myndasafninu
Leita