Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 377
Hjónin í Réttarholti á Skagaströnd. Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-30.6.1970) og Jón Jónas Sölvason (1889-17.8.1969).
Árni Geir Ingvarsson - safn 854
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki sem sótti hátíðina en það gerðu fjölmargir. Í Borgarvirki má finna rústir af tveimur hlöðnum húsum og einnig samanhruninn brunn.
Hallgrímur Kristmundsson safn025
Ekki er vitað hvaða glaða barn þetta er. Ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 929
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) og vinkona hans með hvannir í fanginu líklega í Kúvíkum þar sem Herbert átti heima. Myndina tók Herbert líklega kringum 1940. Konan er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 787
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Frá vinstri: Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, Guðjón Árnason hljóðmaður, Árni Geir Ingvarsson ljósameistari og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 792
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af þeim Herborgu Þorláksdóttur til vinstri og Þórey Jónsdóttur til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 435
Ólafur Austfjörð Björnsson (d.22.2.1958) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 455
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og séra Pétur.
Hallgrímur Kristmundsson safn047
Mynd tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950 af þeim félögum Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Hallgrími Kristmundssyni (d.9.10.1998) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 844
Bára Þorvaldsdóttir leikskólastjóri með nokkur börn í útivist. Börnin eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 873
Hér er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með tveimur óþekktum vinkonum sínum líklega í Djúpuvík í Reykjarfirði kringum 1940.
Jón Jónsson 447
Þessi mynd, sem var líklega tekin 1985, er af þeim Þórunni Óladóttur til vinstri, Þórarni Hjartarsyni (d. 28.1.1991) og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d. 10.9.1997) til hægri að vigta og pakka rækju í neytendapakkningar í Rækjuvinnslunni hf. Greinilegt að Þórarni leiðist ekki í vinnunni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 399
Guðrún Björnsdóttir (1854 -24.8.1946) frá Örlygsstaðaseli í Skagahreppi (nú Skagabyggð) seinna í Mánaskál í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 836
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af William Sillar fyrir útgáfu leikskrár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 826
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu en leikararnir eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Birna Blöndal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 763
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd eru nágrannar Árness að fylgjast með framkvæmdum við húsið. Frá vinstri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Heiðar Sigurbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir en þau bjuggu í Miðnesi á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 835
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Kristínu Jónsdóttur fyrir útgáfu leikskrár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 284
Anna Stefanía Berndsen (1.3.1868 - 15.4.1941).
Jón Jónsson 391
Myndin er af þeim Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Sigurði Bjarnasyni til hægri í vinnunni við hreinsikeflin í Rækjuvinnslunni hf. Eftir að rækjan hafði verið soðin fór hún eftir þessum keflum sem slitu af henni skelina áður en hún fór áfram á færibandið þar sem lokahreinsun fór fram áður en hún fór í frystingu og pökkun.
Árni Geir Ingvarsson - safn 848
Þórarinn Brynjar Ingvarsson að moka frá dyrunum heima hjá sér á Bogabraut 16. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Þórarinn fæddist 1968 þannig að myndin gæti hafa verið tekin kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 935
Þessar tvær konur eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina, líklega á fimmta áratugnum, í Kjós, sem er stutt fyrir innan Djúpavík. Ekki er vitað hvar hún var tekin. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 800
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Þorvaldur Skaftason, Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson, William Sillar og Sigrún Jónsdóttir.
Jón Jónsson 385
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Það hefur/hafði sínar ljósu hliðar m.a. að þá kom nægur snjór í skíðabrekkuna í Spákonufelli þegar þar var skíðalyfta og oft mikið fjör. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er ungur skíðamaður Brynjar Pétursson? á fleygiferð í brekkunni.
Jón Jónsson 440
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Guðbjörnsdóttir og foreldrar Lárusar, Guðmundur Jóhannesson og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010)
Hallgrímur Kristmundsson safn021
Skemmtileg mynd af Skagastrandarhöfn tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944. Bryggjan í forgrunninum, þar sem fiskaðgerð er í gangi, var byggð 1922 -1923 með sameiginlegu átaki sjómanna á Skagaströnd. Hafnarhúsið, sem er á myndinni, var reist 1935 á þessum stað en flutt á núverandi stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir byggingu síldarverksmiðjunnar. Í dag sést því miður hvorki tangur né tetur af gömlu bryggjunni í forgrunninum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 21
Hópmyndataka við Másstaði í Vatnsdal. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Maðurinn með gráa skeggið, sem stendur aftan við steininn á miðri mynd, er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi á Másstöðum. Vinstra megin við hann er kona hans Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977) og vinstra megin við hana er dóttir þeirra Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Það eru þó líklega börn Jóns bónda af fyrra hjónabandi með afkomendur sína og tengdafólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 476
Steinunn G. Þorsteinsdóttir (d. júlí 1919) frá Úthlíð í Biskupstungum var kona séra Jóns Ó. Magnússonar (d.1929) á Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 828
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg þegar fólk skemmti sér við útúrsnúning á texta verksins. Elín Njálsdóttir til vinstri og Herborg Þorláksdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 802
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Óli Hjörvar Kristmundsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, Þórey Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 039
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Hulda Birna Frímannsdóttir, Rut Jónasdóttir, Erla Sigurbjörnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson og Hrönn Valgarðsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 856
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd þegar fólk var að koma sér fyrir inni í virkinu. Ræðustóllinn bíður eftir ræðumönnum sem voru allmargir við þetta tækifæri. M.a. fór prófessor Sigurður Nordal yfir sögu Borgarvirkis.
Jósef H Sigurðsson - safn 031
Magnús Sigurðsson (d.16.9.2018) úr Hólaneshúsi með barn. Barnið er ókunnugt en gæti verið eitt af fjórum börnum hans.
Héraðsskjalasafn A-Hún 449
Lárus Jónsson (d.3.7.1983) læknir frá Haga í Þingi. Lárus var læknir á Skagaströnd 1956 -1966 og var hann síðasti læknir Höfðalæknishéraðs en það var lagt niður 1973 og lagt undir Blönduóslæknishérað sem breytt var í heilsugæslustöð H2 sem hafa skyldi tvo lækna hið minnsta.
Árni Geir Ingvarsson - safn 878
Maðurinn uppi á stýrishúsinu er að skyggnast um eftir síldartorfum. Ekki er vitað hver maðurinn er en báturinn er Sæljón Re 317 sem var mikið aflaskip, varð meðal annars aflahæst síldarskipa 1957. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), sem tók þessa mynd, var lengi háseti á Sæljóninu þar með talið aflaárið 1957. Yfirleitt voru menn inni í skýlinu sem er aftan við manninn - bassaskýlinu - þegar þeir voru á útkikki eftir síldarvöðum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 327
Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) frá Steinnýjarstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 707
Þessir tveir ungu menn taka gjarnan að sér hellu- og steinalagnir fyrir fólk og fyrirtæki. Á myndinni eru þeir að undirbúa hellulögn við hús á Blönduósi. Stefán Sveinsson til vinstri og Vilhjálmur Jónsson til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 042
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Vilhjálms Skaftasonar 1956 af honum á nýju hjóli sem hann hefur líklega fengið í fermingargjöf. Húsið í baksýn er Iðavellir sem eitt sinn var í Kálfshamarsvík en síðan tekið niður þar og flutt til Skagastrandar einhverntíma fyrirmiðja 20. öld.
Elínborg Jónsdóttir - safn 12
Með þessari mynd stendur: Elínborg". Ekki er vitað hvaða Elínborg þetta er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn042
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) og Gestur Jónsson (d. 27.1.2015).
Héraðsskjalasafn A-Hún 249 - Copy
Friðrik Pétur Möller (1846 - 1932) kaupmaður á Skagaströnd og seinna á Eskifirði og síðar póstmeistari á Akureyri. Friðrik var m.a. faðir Ólafs Friðrikssonar sem var umdeildur maður á stjórnmálasviðinu á sínum tíma, stóð t.d. að stofnum Alþýðuflokksins og Alþýðusambandsins og var ritstjóri Alþýðublaðsins um árabil.
Jósef H Sigurðsson - safn 095
Þessi mynd var tekin við skírn eins barna Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) í Hólaneskirkju eldri. Sigurður heldur á barninu undir skírn en presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Héraðsskjalasafn A-Hún 335
Guðmundur Kristinn Guðnason (d. 21.11.1988) póstur í Ægissíðu á Skagaströnd. Guðmundur, sem var almennt kallaður Mundi póstur af íbúum Skagastrandar, var áhugaljósmyndari sem skyldi eftir sig mikið magn ljósmynda, en margar þeirra má finna hér hjá Ljósmyndasafni Skagastrandar. Þá var hann organisti í tveimur kirkjum og ávallt mikill áhugamaður um kirkjusöng og aðrar kirkjulegar athafnir. Hann var ógiftur og barnlaus.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 006
Þessi mynd var tekin vorið 1983 í Kaupmannahöfn af vinunum Bernódus Ólafssyni (d.18.9.1996) og Guðrúnu Þórbjarnardóttur. Þar voru þau á ferðalagi með fleiri Skagstrendingum. Tveir þeirra sjást í bakgrunninum, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) nær og Sigurður Bjarnason fjær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 727
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Alma Eik Sævarsdóttir og Ellen Lind Sigurjónsdóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 069
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af hjónunum Ernu Högnadóttur og Magnúsi Guðmannssyni við að borða skelfisk á veitingahúsi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn057
Feðgarnir Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) í bátnum og Adolf H. Berndsen á steininum að snúast við silungsveiði í sjónum við Höfðann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið upp úr 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 875
Ekkert er vitað um þessar sparibúnu stúlkur. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.42007) en ekki er vitað hvar eða hvenær. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 317
Samkvæmt merkingu Héraðsskjalasafnsins er þetta Jónas í Bárunni en myndina afhenti Jón Steindórsson frá Höfðahólum á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson667
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu við góðar undirtektir.
Jón Jónsson 406
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Á myndinni er Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri að hengja verðlaunapeninga um hálsinn á, frá vinstri: Heiðrúnu Níelsdóttur, Elvu Dröfn Árnadóttur og Guðjóni Hall Sigurbjörnssyni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 295
Medónía Indriðadóttir (1861 - ?) frá Ytri-Ey og Sigurður Erlendsson
Héraðsskjalasafn A-Hún 308
Sigurður Jónsson (d.16.5.1987) smiður frá Balaskarði sonur Guðnýjar Pálsdóttur (d.13.6.1942) frá Ytra-Hóli og Jóns Sigurðssonar (d.1945).
Jósef H Sigurðsson - safn 026
Á þessari mynd eru fimm af átta börnum Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) og Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Eitt barnið dó í frumbernsku en á myndinni eru: aftast er Jósep Hjálmar fæddur 1961, í næstu röð eru Sigríður fædd 1963 og Magnús Elías fæddur 1963 (d.16.9.2018). Fremst eru svo Hjörtur Þórarinn fæddur 1965 (d. 9.5.2015) og Rósa Dröfn fædd 1967. Líklega hefur myndin verið tekin um jólin 1970.
Héraðsskjalasafn A-Hún 356
Steinunn Jónsdóttir (d. 6.4.1982) frá Stórholti (Bankastræti 3) á Skagaströnd.
Hallgrímur Kristmundsson safn057
Anna Kristmundsdóttir.
Jón Jónsson 365
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma kringum 1985. Skemmtiatriðunum er lokið og fólk að tygja sig heim. Á myndinni er María Alexandersdóttir með dóttur sína Elvu Ösp Gunnarsdóttur í fanginu og hjá þeim er hin dóttir hennar, María Jóna Gunnarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 914
Frídagur í Djúpavík. Drengurinn á myndinni er óþekktur en maðurinn í baksýn er Skúli Alexandersson (d.23.5.2015) alþingismaður frá Kjós. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Héraðsskjalasafn A-Hún 442
Gunnar Grímsson (d.11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955.
Héraðsskjalasafn A-Hún 467
Björn Guðmundsson (d.24.8.1938) hreppsstjóri frá Örlygsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
1
…
123
124
125
…
167
Leita í myndasafninu
Leita