Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 836
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af William Sillar fyrir útgáfu leikskrár.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Héraðsskjalasafn A-Hún 308
Sigurður Jónsson (d.16.5.1987) smiður frá Balaskarði sonur Guðnýjar Pálsdóttur (d.13.6.1942) frá Ytra-Hóli og Jóns Sigurðssonar (d.1945).
Jósef H Sigurðsson - safn 026
Á þessari mynd eru fimm af átta börnum Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) og Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Eitt barnið dó í frumbernsku en á myndinni eru: aftast er Jósep Hjálmar fæddur 1961, í næstu röð eru Sigríður fædd 1963 og Magnús Elías fæddur 1963 (d.16.9.2018). Fremst eru svo Hjörtur Þórarinn fæddur 1965 (d. 9.5.2015) og Rósa Dröfn fædd 1967. Líklega hefur myndin verið tekin um jólin 1970.
Héraðsskjalasafn A-Hún 465
Gunnar Grímsson (d.11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955 fyrir Höfðahrepp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 466
Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) verslunarmaður frá Ásgarði á Skagaströnd. Björn var oddviti Höfðahrepps 1939 - 1942 eða fyrsti oddviti hins nýstofnaða hrepps. Áður hafði hann verið oddviti Vindhælishrepps sem skipt var upp í hreppana þrjá 1939: Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 474
Sólbjörg Benediktsdóttir (d.1.10.1984) frá Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson668
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu. Krakkarnir á leikskólanum tóku fullan þátt í skemmtuninni en eins og svo oft þá gekk fullorðna fólkinu illa að finna barnið í sér og hélt að sér höndum.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 060
Stúkan Höfðaborg nr. 267 starfaði á Skagaströnd á árunum 1950 - 1954 með fundarhöldum og skemmtunum. 1952 fóru stúkufélagar í ferðalag til Akureyrar og þessi mynd var líklega tekin í þeirri ferð. Í öftustu röð eru frá vinstri: Ásalaug Hafsteinsdóttir, Vera ?? og Guðrún Sigurðardóttir. Næst aftast frá vinstri: Kristinn Ásgrímsson (d.21.12.1971), Arvid ??, óþekktur og Jóhann Bjarnason (d.14.9.2015). Næst fremsta röð frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), óþekktur, Úlfar Björnsson og Jón Jónsson (d.9.7.1991). Fremsta röð frá vinstri: Hörður Ragnarsson, óþekktur og Hallbjörn Hjartarson. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 278-279)<br>
Jósef H Sigurðsson - safn 036
Systkinin Hugrún Sigurðardóttir og Jósep Sigurðsson njóta veðurblíðunnar fyrir utan heimili sitt í Hólaneshúsinu. Það er engu líkara en fíflar séu að vaxa úr nösum Hugrúnar sem var gamansöm og uppátækjasöm stúlka.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 025
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru: Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir til vinstri og Danica Zupancic sem störfuðu í saltfiskvinnslu Hólaness hf.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 028
Myndin var tekin á skátamóti í Vaglaskógi einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum. Stúlkan á myndinni gæti verið Guðrún Þórbjarnardóttir úr Sigurfara á Skagaströnd. Það er þó ekki víst því myndin er óskýr.
Árni Geir Ingvarsson - safn 756
Á myndinni eru þrír áhugamenn um mótorkross-akstur að útbúa braut fyrir sig í krúsinni á melunum fyrir ofan Spákonufellsrétt. Eftir að hún var tilbúinn var hún vel nýtt af hópi áhugamanna á Skagaströnd í nokkur ár. Eftir alvarlagt slys á svæðinu dró úr notkuninni og undir það síðasta (2016) hefur brautin verið lítið notuð. Áhugamennirnir á myndinni eru frá vinstri: frændurnir Björn Sigurðsson, Björn Hallbjörnsson og Ragnar Einarsson sem stendur hjá þeim.
Héraðsskjalasafn A-Hún 388
Þessi mynd var líklega tekin við kirkjuvígslu eða þegar séra Sigurður Stefánsson var vígður sem vígslubiskup 1959 á Hólum í Hjaltadal. Prestarnir á myndinni eru frá vinstri: herra Ásmundur Guðmundsson fráfarandi biskup, séra Sigurður Stefánsson prófastur og vígslubiskup á Möðruvöllum í Hörgárdal, herra Sigurbjörn Einarsson biskup og séra Bjarni Jónsson vígslubiskup.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 001
Hér hefur fólkið stillt sér upp til myndatöku framan við óþekkt fjárhús árið 1961. Þá var algengt að skepnuhús væru byggð úr asbesti á trégrind, eins og sést bak við fólkið, enda vissu menn þá ekki um hve heilsuspillandi efni asbest er. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi, Edda Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir (Valdimars Núma Guðmundssonar), Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) frá Brúarlandi, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) í Straumnesi dóttir hennar og Margrét Guðbrandsdóttir (d.30.3.2004), móðir Eddu á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 917
Mennirnir eru frá hægri: Guðbrandur Þorláksson frá Veiðileysu, Vilhelm Páll Lýðsson frá Víganesi - seinna bóndi í Reykjarfirði og óþekktur maður. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir manninn lengst til vinstri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 431
Bára Svavarsdóttir frá Sauðárkróki og Páll Pétursson (1889-1963) frá Réttarholti á Skagaströnd. Bára er móðir Guðbjargar Ólafsdóttur á Hólabraut á Skagaströnd.
Jósef H Sigurðsson - safn 003
Skipsfélagarnir og vinirnir Jósep Sigurðsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020) til hægri um borð í einhverjum bát sem þeir voru hásetar á.
Ólafur Bernódusson669
Ólafur Bernódusson fær sér kaffisopa á toppi Tindastóls austanverðum í súldarveðri 26. ágúst 2007. Sauðárkrókur sést í baksýn, vestari hvísl Héraðsvatna rennur til sjávar og stóra vatnið er Miklavatn en næst því er svo Áshildarholtsvatn en nær sjónum er Tjarnartjörn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 452
Vilhelmína Andrésdóttir (1894- 24.8.1977) Ásgarði Skagaströnd og Sigríður Kristmundsdóttir (1870- 15.6.1941) Sigurðarhúsi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 274
Jón Sveinn Pálsson kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd. Jón tók við af föður sínum, Páli Jónssyni (d.19.7.1979), sem skólatjóri 1966 og gegndi því starfi til 1986.
Hjördís Sigurðardóttir - safn047
Systurnar Guðrún Björg Berndsen vinstra megin og Steinunn Berndsen til hægri. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1968.
Árni Geir Ingvarsson - safn 970
Óþekktur sjómaður um borð í bát sínum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 343
Guðrún Stefánsdóttir (d. 6.1.1992) með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur (d. í maí 1995). Guðrún var ráðskona og bústýra hjá Sigurði Árnasyni bónda á Höfnum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) í nokkur ár og er Sigríður dóttir hans. Guðrún giftist aldrei og náði tæplega 102 ára aldri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 459
Sitjandi á þessari mynd er Ólafur Lárusson (1887 -30.5.1953) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1912-1936. Standandi er Ásgeir Þorvaldsson (d.25.1.1962) úr Ásgeirshúsi á Blönduósi.
Hallgrímur Kristmundsson safn028
Því miður eru þessir sjómenn óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá afhugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 470
Árni Árnason (d. 3.6.1941) bóndi í Höfðahólum á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 839
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Sigurbirni Fanndal Þorvaldssyni (d.13.8.2000). Hvíta húsið í baksýn er horfið en það var Ásbyrgi eða Ásberg en húsið var þekkt undir báðum nöfnunum. Í húsinu bjuggu Frits H. Magnússon (d.19.10.1965) og Karla I. Helgadóttir (d.25.9.1986). Hitt húsið er Breiðablik.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn012
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum uppi í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni hefur hópurinn stillt sér upp við altarið í skálinni en þar er sagt að Guðmundur Arason - Guðmundur góði - hafi reglulega gert bæn sína. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Karl Lúðvíksson, fjórar óþekktar stúlkur, Gissur Jóhannsson situr, Sigurjón Ástmarsson heldur á fánanum, Þorvaldur Skaftason stendur við hlið hans svo kemur óþekktur skáti en þá Bergur Jón Þórðarson með myndvél um hálsinn. Framan við Berg, dökkklædd, situr Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 069
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af hjónunum Ernu Högnadóttur og Magnúsi Guðmannssyni við að borða skelfisk á veitingahúsi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 828
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg þegar fólk skemmti sér við útúrsnúning á texta verksins. Elín Njálsdóttir til vinstri og Herborg Þorláksdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 914
Frídagur í Djúpavík. Drengurinn á myndinni er óþekktur en maðurinn í baksýn er Skúli Alexandersson (d.23.5.2015) alþingismaður frá Kjós. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Jón Jónsson 385
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Það hefur/hafði sínar ljósu hliðar m.a. að þá kom nægur snjór í skíðabrekkuna í Spákonufelli þegar þar var skíðalyfta og oft mikið fjör. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er ungur skíðamaður Brynjar Pétursson? á fleygiferð í brekkunni.
Hallgrímur Kristmundsson safn054
Maðurinn á myndinni er Sigurjón Jóhannsson (d.7.12.1973) frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19) bílstjóri og eigandi bílsins sem var af Chevrolet gerð líklega árgerð 1942. Ekki er vitað hver er með honum í bílnum þegar myndin var tekin. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 22
Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d. 7.4.2011) frá Brandaskarði í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 910
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með óþekktri vinkonu sinni, líklega í Kúvíkum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 781
Óli Hjörvar Kristmundsson
Jón Jónsson 442
Þessi mynd af Jóni Jónssyni var tekin um áramótin 1985-86 þegar hann lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins.
Hallgrímur Kristmundsson safn064
Konurnar tvær á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 421
Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum á Skagaströnd. Sigurbjörn var bóndi og verkamaður sem rak heimili með bróður sínum, Kára, að Kárastöðum og ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur þar til þau fluttu á dvalarheimilið Sæborg 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 789
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir og Steindór Haraldsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 341
Þessi maður er óþekktur en myndin kom til Héraðsskjalasafnsins frá Soffíu Lárusdóttur á Skagaströnd en til hennar úr Vindhælisbúinu. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 475
Jón S. Pálsson skólastjóri Höfðaskóla flytur ræðu í einhverju hófi í félagsheimilinu á Blönduósi en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Maðurinn með gleraugun er Grímur Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ en konurnar tvær á myndinni eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd annað hvort gegnum þessa mynd eða á netfangið:
[email protected]
.
Hallgrímur Kristmundsson safn060
Þetta prúðbúna fólk er, talið frá vinstri: Birgir Árnason (d.2.2.2005), Jóninna Pálsdóttir, Guðmunda Árnadóttir og Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996). Birgir og Guðmunda voru systkin, Jóninna var mágkona þeirra og Þóbjörn var eiginmaður Guðmundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn074
Fermingar- og frændsystkini á fermingardaginn sinn vorið 1975. Frá vinstri: Hafþór Smári Gylfason, Þórey Jónsdóttir og Guðrún Björg Berndsen.
Héraðsskjalasafn A-Hún 359
Axel Helgason (d. 16.7.1971) frá Læk á Skagaströnd, verkamaður, sjómaður og sjálfsþurftabóndi.
Ólafur Bernódusson671
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson kom til hafnar á Skagaströnd í mars 2008 með gamalt tundurdufl sem þeir fengu í trollið. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Á myndinni eru tveir óþekktir skipverjar að koma sprengihleðslunni fyrir á kerru aftan í bíl björgunarsveitarinnar Strandar. Kristján Pétur Guðjónsson úr Strönd og Höskuldur B. Erlingsson lögreglumaður bíða eftir að geta flutt hana á eyðingarstaðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 702
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þeir Almar Fannarsson til vinstri og Indriði Björnsson til hægri að vinna við að gera lítið steinalagt torg þar sem Shell tankurinn stóð við enda vegslóðans upp á Höfðann.
Héraðsskjalasafn A-Hún 334
Þessi mynd var tekin á hlaðinu á Þverá í Hallárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Samkvæmt merkingu Héraðsskjalasafnsins er fólkið á myndinni frá vinstri: Jónína, Árni, Svanlaug, Þórey og Björn en börnin eru ekki nefnd. Árni var Jónsson (d.6.10.1918) og Svanlaug kona hans var Björnsdóttir (d. 6.1.1916). þau voru foreldrar Björns (d.24.8.1932) og Þórey, sem var Jónsdóttir (d. 22.3.1914), var fyrri kona Björns. Björn og Þórey bjuggu fyrst á Þverá en seinna á Ytri-Ey þar sem Björn var hreppsstjóri og kennari um tíma.
Héraðsskjalasafn A-Hún 398
Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) fyrrum verksmiðjustjóri í Síldaverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn006
Þessi mynd var tekin á einhverju móti skáta frá Skagaströnd og Blönduósi kringum 1960. Eins og sjá má á fjölda skáta á myndinni var skátastarfið afar vinsælt meðal ungmenna á stöðunum tveimur. Standandi á myndinni eru, frá vinstri: Jón Ísberg (d. 24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, þrír óþekktir, Árni Ólafur Sigurðsson í köflóttri skyrtu, fimm óþekktir, Jóhann Björn Þórarinsson, Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016), Pétur Jóhannsson, Birgir Júlíusson, Hallbjörn Björnsson, Jóhann Ingibjörnsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt, Brynja Axelsdóttir, Frímann Lúðvíksson, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, óþekkt og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd. Krjúpandi frá vinstri: Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004), Örn Berg Guðmundsson, þrír óþekktir, Helgi Bjarnason (d.1.3.2007), Sigurjón Ástmarsson, fjórir óþekktir, ?Sigurður Hjálmarsson?, óþekktur, Steindór Haraldsson (nær), óþekktur (fjær), sjö óþekktir skátar, Margrét Valdimarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, óþekkt, Fjóla Jónsdóttir og Jóhanna Hallgrímsdóttir. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu skátunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd annað hvort með myndinni eða á netfangið:
[email protected]
.
Árni Geir Ingvarsson - safn 940
Þrír sjómenn slaka á um borð. Mennirnir eru óþekktir en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 060
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þegar fjórar konur úr hópnum sungu fyrir hina á pöbbnum. konurnar eru, talið frá vinstri: Fjóla Ævarsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Kristín Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson666
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu. Allir skemmtu sér vel þó sumir vildu taka meiri þátt í leiknum en aðrir.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn010
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni er hópurinn hálfnaður upp og sér yfir Hólastað.
Hallgrímur Kristmundsson safn046
Þeir eru hressir á þessari mynd, frá vinstri: óþekktur, Birgir Árnason (d.2.2.2005) og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998). Ekki er vitað hvar myndin var tekin en pípan var förunautur Hallgríms til æviloka. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 384
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á myndinni er Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) fyrir miðju. Vinstra megin fjær situr séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991) en hinn presturinn er óþekktur. Hægra megin situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) nær en hinn presturinn er óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu prestana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 394
Arnfríður Sigurðardóttir (d. 2.1.1958) verkakona frá Kollugerði. Arnfríður var móðir Jónasar Vermundssonar (d.25.8.1979) frá Aralæk veghefilsstjóra.
Héraðsskjalasafn A-Hún 322
Hjónin Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d. 12.7.2001) og Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 885
Falleg mynd frá Djúpuvík. Greinilega stendur eitthvað til því það er fullt af fólki á bryggjunni. Síldarverksmiðan er til vinstri og söltunarplanið fremst á bryggjukantinum framan við hana. Báturinn, sem sést í forgrunni á myndinni hét Nonni, venjulega kallaður skemmtibáturinn Nonni. Tómas Jónsson frá Reykjanesi sá um þennan bát og var skipstjóri á honum. Báturinn var notaður í sendiferðir fyrir verksmiðjuna, til dæmis út á Gjögur eða yfir fjörðinn með fólk. Þegar lítið var um að vera var farið með fólk i skemmtiferðir um fjörðinn, og jafnvel til Hólmavíkur.<br>Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 2.4.2007) sennilega kringum 1940.
1
…
124
125
126
…
167
Leita í myndasafninu
Leita