Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jósef H Sigurðsson - safn 085
Myndin var tekin í sal frystihúss Hólaness hf þar sem í dag (2017) er listamiðstöðin Nes. Á miðri mynd er Sigurður Magnússon (d.2.8.2015) verkstjóri. Ragnheiður Sigurjónsdóttir úr Sunnuhlíð er lengst til vinstri og bak við hana er Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d.6.3.2007) frá Læk. Á móti Diddu er Guðný Finnsdóttir og við hliðina á henni er Hrafnhildur Jóhannsdóttir úr Blálandi. Maðurinn sem ber yfir Sigurð, í hvítum jakka með dökkan sixpensara, er Árni Kristófersson (d.11.10.1982) frá Árnesi og flakarinn lengst til hægri er Ari Ólafsson úr Sævarlandi. Ari snýr baki í Jón Árnason (d.11.4.1986) frá Náttbrún/Ólafsvöllum en á móti Jóni, með hvíta húfu, er Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum. Milli Sigurðar og Árna er líklega Lilja Ásmundsdóttir? (d.2.4.1990) frá Holti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 874
Leitarflokkur staddur í Grjótdal fyrir ofan Reykjarfjörð. Mennirnir voru við leit að Jakobi Söbeck frá Reykjarfirði sem hvarf að heiman, en fannst þarna í dalnum. Mennirnir eru: efri röð frá v/ Kristinn frá Kambi, Páll Sæmundsson Djúpuvík, Neðri röð frá v/ Kristmundur Sörlason frá Gjögri Guðmundur Ágústsson frá Kjós, Marteinn Þorláksson frá Veiðileysu og Kristján frá Flareyri.
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina. Herbert vann við byggingu verksmiðjunnar sem unglingur og síðan í vinnslunni þar í nokkur ár. Hann var afkastamikill áhugaljósmyndari og eignaðist sína fyrstu myndavél mjög snemma, löngu áður en þær urðu almenningseign.
Héraðsskjalasafn A-Hún 370
Pétur Hansen (d.19.11.1937) og Guðlaug Jónsdóttir (d.19.11.1931) frá Vindhæli. Pétur fæddist á Saurum 1849 en kom sem tökubarn að Vindhæli 1853 og elst þar upp til fullorðinsára. Guðlaug fæddist 1852 í Holtskoti í Biskupstungum. 1869 kemur hún, þá sautján ára, sem vinnukona að Vindhæli. Vorið 1875 giftust þau Pétur og Guðlaug og voru þá vinnuhjá hjá Árna Jónsssyni á Þverá í Hallárdal. Þaðan fara þau hjón 1876 til Nova-Scotia í Kanada bjuggu þar á nokkrum stöðum en áttu síðast heima í Hallson í N-Dakota þar sem þau dóu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 262
Elín Rannveig Briem (d. 4.12.1937) og Stefán Jónsson (d. 1910) maður hennar, sem var verslunarstjóri á Sauðárkróki. Elín var skólastjóri eða forstöðukona Kvennaskólans á Ytri-Ey 1883 - 1895. Stofnaði Hússtjórnarskóla Reykjavíkur 1897 og rak hann til 1901 en þá flutti hún norður á Blönduós og tók við stjórn Kvennaskólans á Blönduósi, sem var arftaki skólans á Ytri-Ey. Elín skrifaði Kvennafræðarann sem fyrst kom út um áramótin 1888-1889. Bókin seldist svo vel að það þurfti að endurprenta hana fjórum sinnum. Elín hlaut hina Íslensku fálkaorðu 1921 fyrst kvenna ásamt Þórunni Jónassen.
Hallgrímur Kristmundsson safn058
Ekki er vitað hvaða prúðbúna fólk þetta er. Ágiskun er konan til vinstri sé Guðrún Helgadóttir (d. 15..4.1987), maðurinn með hattinn sé Kristmundur F. Jakobsson (d. 1.5.1976) og við hlið hans sé konan hans Jóhanna Árnadóttir (d.5.1.1941). Maðurinn með húfuna er óþekktur. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd til að leiðrétta ágiskunina ef hún er röng.
Jósef H Sigurðsson - safn 056
Bræðurnir Kolbeinn Vopni Sigurðsson og Jósep Hjálmar Sigurðsson. Kolbeinn fæddist 1972 en Jósep 1961. Myndin hefur líklega verið tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 820
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: óþekktur, Guðmunda Ólafsdóttir, Steindór Haraldsson, Birna Blöndal, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Þórey Jónsdóttir, Ólafur Benródusson, Jónas Þorvaldsson, Rut Jónasdóttir, Magnús B. Jónsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson nær, Herborg Þorláksdóttir fjær, Ingibergur Guðmundsson, Þorvaldur Skaftason, óþekkt og Viggó Magnússon.
Hallgrímur Kristmundsson safn042
Áning líklega í Listigarðinum á Akureyri í kringum 1950. Frá vinstri: óþekktur, Guðmundur Jóhannesson og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Ólafur Bernódusson691
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru nokkrir krakkar að fara að syngja saman á sviðinu í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir og óþekkt stúlka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 76
Níels Hafstein Jónsson (d. 22.12.1974) frá Balaskarði.
Héraðsskjalasafn A-Hún 222
Jón Hansson (d. 22.4.1940) Syðri Þverá í Vesturhópi með konu sinni Guðrúnu Árnadóttur ásamt fjórum börnum þeirra. Ef þú veist eitthvað meira um þetta fólk, t.d. nöfn barnanna, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson649
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd spilar Guðrún Anna Halldórsdóttir úr Höfðaskóla á píanó fyrir fólk í hléi meðan dómnefnd ræður ráðum sínum og finnur í sameiningu þrjá bestu lesara kvöldsins.
Jón Jónsson 379
Rækjuvinnslan hf var í áratugi einn af burðarásum atvinnulífsins á Skagaströnd. Fyrirtækið var ávallt búið nýjustu tækni við vinnsluna og var í fremstu röð í heiminum í framleiðslu á frosinni rækju í neytendapakkningum. Á tímabilum var fyrirtækið keyrt á þremur vöktum dag og nótt og hafði fjölda starfsmanna. Á þessari mynd sem tekin var 1985, af einni vaktinni, má telja a.m.k. 16 konur við að hreinsa og pakka rækju. Hinum megin við plexiglervegginn voru síðan starfsmenn við móttöku, suðu og frystingu í "vélasalnum". Starfssemi við rækjuvinnslu var síðan lögð niður þegar Skagstrendingur hf, sem átti vinnsluna undir það síðasta, fór undir eignarhald Fisk Seafood á Sauðárkróki.
Héraðsskjalasafn A-Hún 256
Guðrún S. Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi á Skagaströnd er lengst til hægri á þessari mynd. Börnin og hinar konurnar eru óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 263
Systurnar Steinunn Árnadóttir (d. 11.2.2006), Margrét Árnadóttir (d. 2003) og Áslaug Árnadóttir (d. 1996) frá Höfðahólum á Skagaströnd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 023
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Björn Ingi Óskarsson, Óli Axel Óskarsson og Jensína Lýðsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 133
Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi verkamaður og hreppsstjóri í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd). Sýslunefndarmaður 1962 - 1970 í sýslunefnd Auastur Húnavatnssýslu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 804
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Magnúsi B. Jónssyni í hlutverki sínu sem sýslumaður.
Ólafur Bernódusson670
Húnabjörg kemur úr útkalli í mars 2008. Tilefnið var að rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fékk gamalt tundurdufl í trollið og fékk Húnabjörgina sem fylgdarskip til hafnar. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Mennirnir á Húnabjörginni eru, uppi í brú: Ágúst Ómarsson gulklæddur og Bjarni Ottósson í rauðri peysu. Framan við brúna eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Jón Björnsson og Stefán Sveinsson.
Jón Jónsson 360
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Krakkarnir sem syngja eru, talið frá vinstri: Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg /Áslaug Jóhannsdóttir, Særún Níelsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Þröstur Árnason, óþekkt, Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Guðbjörg Kristmundsdóttir, óþekkt,Berglind Karlsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Hólmfríður Oddsdóttir?, Jóhanna Karlsdóttir, Sandra Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 845
Haukur Ragnarsson. Myndin var líklega tekin á leikskólalóðinni en ekki er vitað hvenær.
Héraðsskjalasafn A-Hún 157
Hjónin Sigríður F. Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) og Jóhann F. Pétursson (d. 13.1.1999) Lækjarbakka á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 424
Hjörleifur Sigfússon (1872 -22.2.1963), Marka-Leifi frá Hátúni í Skagafirði. Hjörleifur var oft kallaður "Lifandi markaskrá" því hann kunni markaskrár utanað. Markaskrár voru skrár yfir eyrnamörk kinda og hvaða bóndi átti hvaða mark.
Sú saga er sögð af Marka-Leifa að eitt sinn mætti hann ungri stúlku á fjallvegi einhversstaðar. "Hvaðan ert þú?" spyr hann. Stúlkan nefnir bæjarnafnið en þá segir Leifi umhugsunarlaust: "Stendur heima, stýft og gagnbitað", en það var fjármrk föður stúlkunnar. Síðan hefur þetta gjarnan verið notað sem orðtak ef eitthvað kemur heim og saman eða stenst fulla skoðun. (heimild: Verkamaðurinn 45. tbl. 1960 bls 6. Höf. Rósberg G. Snædal)
Héraðsskjalasafn A-Hún 313
Myndin, sem sýnir grjótnám í Spákonufellshöfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Grjótið var sprengt og síðan flutt í uppfyllingu og/eða varnargarð við hafnargerð á Skagaströnd. Maðurinn í munstruðu peysunni er líklega Krsitján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Vík og bærinn sem sést á henni var Ægissíða, sem nú er löngu horfin.
Adolf H Berndsen - safn049
Vinirnir Jón Ingi Ingvarsson til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri í lok nóvember 1997.
Héraðsskjalasafn A-Hún 471
Kirkjukór Hólaneskirkju á æfingu með Kjartani Jóhannessyni raddþjálfara frá Stóra - Núpi í Gnúpverjahreppi. Kórfélagar eru frá vinstri talið: Guðrún Árnadóttir (d.1.12.1967), Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990), Erla Lárusdóttir (d.24.8.1995), Jón Kr. Jónsson, Hallbjörn J. Hjartarson, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Jón S. Pálsson, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), Þórey Jónsdóttir (d. 29. 12. 1966), Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) og Guðrún Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 3
Rúnar Þór Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Rúnar fæddist 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 14
Á myndinni eru systkinin Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Á milli þeirra situr sambýlismaður Bjargar, Sturla Pétursson (d.?). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 468
Ólafur Björnsson (d. 1950) bóndi á Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Ólafur var oddviti Vindhælishrepps hins forna um það leiti sem hreppnum var skipt upp í Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp (1939)
Jósef H Sigurðsson - safn 007
Jósep Sigurðsson við stýrið á óþekktum bát (? Hafrún Hu 12?).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 045
Systurnar Gugga, Lilla og Simba eða Guðrún Angantýsdóttir, Dagný Hannesdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997).
Jósef H Sigurðsson - safn 073
Systkini úr Hólaneshúsinu. frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, Jósep Sigurðsson, Hjörtur Sigurðsson (d. 9.5.2015) og Magnús Sigurðsson (d.16.9.2018). Þau voru fædd á árunum 1961 - 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 794
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en Leikklúbburinn fór með sýninguna í nágrannasveitarfélögin og sýndi þar. Á myndinni reynir Steindór Haraldsson sig við píanóið og í baksýn sér í Þorvald Skaftason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 814
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin í pásu á æfingu af þeim Ástmar Kára Ástmarssyni og Guðbjörgu Viggósdóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 19
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn049
Myndin var tekin á Hólanesinu við innsiglingarmerkið þar. Maðurinn til hægri er Guðmundur Karlsson (d. 28.7.2001) en sá til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 389
Lárus Erlendsson (d. 22.11.1934) frá Blönduósi. Samkvæmt Héraðsskjalasafni Skagfirðinga var hann sonur Erlendar Guðmundssonar bónda í Engihlíð og Sigríðar Símonardóttur. Lárus var bóndi lengst í Holtastaðakoti í Langadal og var tengdasonur Bólu Hjálmars. Sjálfur var Lárus hagyrðingur og hjá Héraðsskjalasafninu má m.a. finna eftirfrandi vísu sem er í Vísnasafni Sigurðar J. Gíslasonar:

Ekki brestur áræðið.
Orkan gula lifir.
Bagga og hesta bárum við
Blöndu vestur yfir.

Árni Geir Ingvarsson - safn 2 16
Fermingarsystkin vorið 2001 í Hólaneskirkju með presti sínum. Presturinn er séra Magnús Magnússon en fermingarbörnin eru, frá vinstri í aftari röð: Hanna Lísa Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson. Í fremri röð frá vinstri: Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstsson og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn063
Mennirnir, sem stilla sér upp á tröppunum við Hólaneshúsið, eru óþekktir nema maðurinn með hattinn er Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. Ef þú þekkir menninina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 925
Myndin var líklega tekin í Fögrubrekku sem er stutt frá Gjögri. Konan lengst til hægri er Lilja Jónsdóttir sem bjó á Djúpuvík í áratugi. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega kringum 1940. Ef þú þekkir hinar konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 065
Bræðurnir Jósep Sigurðsson (nær) og Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015) (fjær) vinna saman að einhvers konsar viðhaldi á gólfi heima í Hólaneshúsinu.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn004
Sennilega eru skátarnir á myndinni við fánahyllingu á einhverju skátamóti kringum 1960. Fólkið er frá vinstri talið: óþekktur maður, óþekkt kona, Jónas B. Jónsson (d.1.4.2005) skátahöfðingi frá Torfalæk, Jón Ísberg (d.24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, Gunnhildur Þórmundsdóttir skátaforingi á Blönduósi og Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson630
Reyk- og neftóbakspása á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Óli Axel Óskarsson, Ari Þórsson og Ástmar Sigurjónsson. Óli og Ari eru starfsmenn verkstæðisins en Ástmar er menntaður vélstjóri. Myndin var tekin í febrúar 2007.
Ólafur Bernódusson697
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni syngja saman, frá vinstri: Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 412
Þessi mynd sýnir nýstúdenta í garði Hressingarskálans í Reykjavík að gera sér glaðan dag 30.júní 1933. Myndin er frá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) og er hann einhversstaðar á myndinni. Þér er látið eftir að finna Pétur sem var 22 ára þegar hún var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 24
Þetta eru hjónin Árni Ó. Guðmonsson (d.7.11.1948) og Halla Júlíusdóttir (d.6.11.1980). Þau hjón bjuggu vestur á Ströndum en fluttu til Skagastrandar sumarið 1948.
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908- 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo m.a. á bls 147:
"....Sumarið 1948 fluttu Árni Ólafur Guðmonsson og kona hans, Halla Júlíusdóttir, til Skagastrandar frá Ströndum og með þeim synir þeirra, Baldur og Júlíus. Síðsumar þetta sama ár keyptu þeir feðgar, Árni, Júlíus og Baldur, bátinn Vin ÍS 101 frá Hnífsdal. Þetta var mikil ólánsfleyta og hafði tvisvar týnt manni meðan hann var þar vestur frá og síðan gerðist það að Árni féll útbyrðis af bátnum og drukknaði. Báturinn var seldur til Steingrímsfjarðar og sökk hann á Húnaflóa 28. nóvember 1949. Vinur var líklega aldrei skráður HU. "

Þórunn Bernódusdóttir - safn 024
Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) frá Stóra-Bergi í skemmtiferð í Vaglaskógi kringum 1950.
Héraðsskjalasafn A-Hún 433
Ekkert er vitað um þessa mynd annað en að hún kom til Héraðsskjalasafnsins úr búi Ólafs Guðmundssonar í Brautarholti á Skagaströnd. Líklega er hér um að ræða fermingar- eða skólasystkin og ágiskun er að Ólafur sé sjálfur á myndinni annar frá vinstri í miðröð. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 279
Sigurður Indriðason (1863- 25.11.1949) frá Ytri-Ey með tvö af börnum sínum sjö. Sigurður var tvígiftur og bjó með fjölskyldu sinni til skiptis á Íslandi og í Kanada þar sem hann lést 25.11.1949. Sigurður var bróðir Indriða Jóns á mynd 10016 og Regínu Sigríðar á mynd 10017. Önnur mynd af Sigurði er númar 10018.
Jósef H Sigurðsson - safn 077
Samkvæmt áletrun á þessari mynd var hún tekin á síldarmatnsmannanámskeiði í júní 1955. Ekki er vitað hvar myndin var tekin og mennirnir eru óþekktir nema Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) sem er lengst til vinstri í aftari röð. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 432
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á henni eru tengdadætur hennar, frá vinstri: Hlíf Sigurðardóttir, Anna Heiður Guðmundsdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 331
Hjónin Sigurlaug Margrét Eðvarðsdóttir (d. 16.11.2005) og Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti á Skagaströnd. Jóhannes var bóndi og verkamaður en gegndi jafnframt ýmsum trúnaðarstörfum í sínu samfélagi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 987
Þessi kona er óþekkt en ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 889
Þessar glæsilega klæddu konur eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók þessa mynd af þeim líklega einhvertíma upp úr 1940. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 823
Þessir ungu menn skipuðu hljómsveitina Jójó ásamt Fannari Viggóssyni. Strákarnir eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Kristján Blöndal, Viggó Magnússon og Jón Arnarson. Jójó gerði garðinn frægan um tíma á Íslandi eftir að hafa unnið í Músiktilraunum 1988, sérstaklega með laginu "Stæltir strákar á ströndinni"
Héraðsskjalasafn A-Hún 315
Margrét Hemmert (d. febrúar 1989?) og óþekkt stúlka. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 721
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 807
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Kristín Jónsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 025
Veisla heima í Hólaneshúsinu hjá hjónunum Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004) og Sigurði Magnússyni (d.2.8.2002). Ekki er vitað hvaða barn Dóróthea situr með en þau hjónin eignuðust átta börn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 121
Guðný Jónsdóttir (d. ?) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
1

125
126
127

167
Leita í myndasafninu
Leita