Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 817
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Fritz Hendrik Berndsen, Bergþór Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Jón Arnarson.
Hallgrímur Kristmundsson safn019
Ef myndin er skoðuð vel sést að það er mikið um að vera þegar hún var tekin. Tvær skemmur í byggingu, eitthvað er verið að bjástra við Karlsskála sem er húsið næst skemmunum og einnig er fólk á hestbaki utan við Læk sem er húsið örlítið fjær. Fólkið í göngutúr er Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka, óþekkt kona í miðið og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) kona Jóhanns til hægri. Börnin á myndinni eru líka óþekkt. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1945.
Héraðsskjalasafn A-Hún 411
Á þessari fjölskyldumynd eru hjónin í Hólskoti í Vatnsdal, Júlíus Jónsson (d.22.9.1959) frá Borðeyri og Helga Björnsdóttir (d. 12.7.1972) frá Holti með börn sín. Milli þeirra hjóna situr Ingibjörg Júlíusdóttir (d.23.2.2012) en standandi eru, frá vinstri: Finnbogi Björn Júlíusson (d.18.6.2004), Guðrún Júlíusdóttir (d. 24.9.1981) og Magnús Júlíusson (d.24.8.1944).
Héraðsskjalasafn A-Hún 289
Jóhannes Jóhannesson (1874-17.7.1937) frá Iðavöllum á Kálfshamarsnesi. Húsið Iðavellir var síðan rifið á Kálfshamarsnesinu og endurbyggt á Skagaströnd þar sem það stendur enn (2016) skammt sunnan kirkjunnar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn085
Þessi hópur var verðlaunaður eftir golfmót á Hágerðisvelli 7. ágúst 1991. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Adolf H. Berndsen (fjær), Sigurður Berndsen (nær), Sigurbjörn Kristjánsson með óþekkt barn, Rolf Árnason (d. 3.6.2014), Guðmundur Kristinsson, Dagný Simarsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Fríða Hafsteinsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 004
Þessi mynd var tekin í matsalnum á ókunnu skipi af þeim skipsfélögum Jósep Sigurðssyni vinstra megin og Erni Berg Guðmundssyni (Assa) til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 229
Hjónin Árný M. Hjaltadóttir og Kristján Kristjánsson (d. 10.10.2007) bændur á Steinnýjarstöðum í Skagahreppi (nú Skagbyggð).
Elínborg Jónsdóttir - safn 29
Á myndinni er verið að þó ull. Fyrst var hún þvegin í heitu vatni í pottinum á myndinni og síðan var hún skoluð í bæjarlæknum. Að því loknu var hún breidd út á grasbala til að þurka hana. Áður fyrr var notuð keyta (staðið hland) til að þvo ullina og ná úr henni fitunni. Hún var svo að sjálfsögðu skoluð vel á eftir og þurkuð áður en farið var að vinna frekar með hana. Myndin var tekin nálægt Másstöðum í Vatnsdal en ekki er vitað hvenær og fólkið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 988
Sigtryggur Benediktsson (d. ?) frá Hæli en bjó á Brúsastöðum síðustu árin. Sigtryggur var faðir Jökuls Sigtryggssonar frá Núpi í Laxárdal og Ingvars Karls Sigtryggssonar (d.10.7. 1988) á Skagaströnd.<br> <br>
Jósef H Sigurðsson - safn 016
Björn Sigurðsson (d.30.12.1996) úr Hólaneshúsinu.
Hallgrímur Kristmundsson safn030
Sjómennska er ekki bara eintómt puð og pus. Á þessari mynd taka menn sig saman og spila á gítara og syngja sitjandi á síldarnótinni aftur á í skipi sínu. Einn getur þó ekki stillt sig um að taka í kríulöpp á meðan. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 080
Hér lyfta glasi á góðri stund vinirnir og vinnufélagarnir, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) frá Kárastöðum til vinstri og Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsinu til hægri, sumarið 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 995
Frændurnir Heiðar Elvan Friðriksson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri. Mæður þeirra voru systurnar Björg Ólafsdóttir (1.3.2007) og Karitas Laufey Ólafsdóttir. Myndin var tekin 1963 líklega af frænda þeirra Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson - safn 818
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, Óli Hjörvar Kristmundsson, Guðmunda Ólafsdóttir nær, William Sillar fjær, tvö óþekkt, Steindór Haraldsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Þorvaldur Skaftason, óþekkt, Viggó Magnússon, Ingimar Oddsson, Kristín Jónsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Bergþór Gunnarsson og Sigrún Jónsdóttir. Stákarnir fremst á myndinni eru Jónas Þorvaldsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri.
Jón Jónsson 358
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006).
Héraðsskjalasafn A-Hún 444
Í textanum með þessari mynd hjá Héraðsskjalasafninu stendur: Hlíf - mynd frá Skrapatungu - póstkort til Sigþrúðar Stefansson Gimli. Ef þú veist hver konan á myndinni er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Elínborg Jónsdóttir - safn 11
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður í peysufötum. Myndin var líklega tekin við Másstaði í Vatnsdal þar sem hún fæddist og ólst upp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 349
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) í predikunarstólnum í Þingeyrarkirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn 934
Fjör um borð í nótabát, harmónikuspil og gaman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega í Siglufirði?. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 415
Haraldur W. Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum á Skagaströnd þar sem hann bjó með konu sinni, Sigurlaugu Björnsdóttur (d.7.9.1982) frá Örlygsstöðum, og þremur sonum þeirra.
Jósef H Sigurðsson - safn 018
Jósep Sigurðsson í töffarastíl innan um myndir af öðrum töffurum á veggnum heima hjá sér í Hólaneshúsinu.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn001
Á myndinni, sem líklega var tekin kringum 1960, eru skátar í útilegu. Frá vinstri: Ingólfur Ármannsson félagsforingi í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd, óþekktur skáti, Jónas B. Jónsson (d.1.4.2005) skátahöfðingi frá Torfalæk og Gunnhildur Þórmundsdóttir skátaforingi í skátafélagi Blönduóss. Ef þú þekkir unga skátann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 364
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Frá vinstri: Ástmar Sigurjónsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, tvö óþekkt, Jóhann Sigurjónsson en önnur börn eru óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn053
Jóhann Jaokobsson (d. 24.3.1987) til vinstri og Kristmundur Jakobsson til hægri.
Hjördís Sigurðardóttir - safn079
Þessi mynd af strákum, sem ólust upp í Bankastræti, var tekin við olíutankana uppi á Höfða einhverntíma kringum 1980. Á myndinni eru, frá vinstri: Björn Sigurðsson, Sigurður Berndsen, Árni Jón Guðmundsson (d.8.1.2006) og Erlingur Ottósson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 055
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) sem lengst af bjó á Litla-Bergi.
Hallgrímur Kristmundsson safn039
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Hann hefur tyllt sér á kaðalhönk og virðir fyrir sér síldarnótina eða trollið fyrir framan sig. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 445
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Á myndinni eru frá hægri: Guðný Sigurðardóttir, Hrönn Árnadóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Svanhildur Lýðsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 825
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin í lokin á æfingu þegar Þröstur var að gefa þreyttum leikurum leiðbeiningar. Frá vinstri: bakið á Þresti leikstjóra, Þórhildur Jakobsdóttir, Fritz Hendrik Berndsen, Sigrún Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Rut Jónasdóttir, Bergþór Gunnarsson, Wiliam Sillar og Þórey Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 990
Rúnar Þór Ingvarsson er fæddur 1950 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1952-53.
Héraðsskjalasafn A-Hún 447
Hjónin séra Helgi Konráðssson (d.30.6.1959) og Jóhanna Petrea Þorsteinsdóttir (d.1973). Helgi var prestur á Bíldudal síðan á Höskuldsstöðum og síðast á Reynistað. Hann sat á Sauðárkróki var prófastur Skagafjarðarprófastsdæmis og var kennari og skólastjóri gagnfræðaskólans þar um tíma. Eftir Helga liggur líka 342 blaðsíðna bók um Bertel Thorvaldsen sem út kom 1944 á vegum Þorleifs Gunnarssonar.
Ólafur Bernódusson662
Konur á Skagaströnd voru duglegar að taka þátt í átakinu "Á réttri leið - bætt heilsa, betri líðan" sem hófst þegar þessi mynd var tekin 16. febrúar 2011. Átakið hófst með að allar konurnar mættu á hafnarvigtina þar sem hópurinn var vigtaður sem heild. Niðurstaðan var að konurnar á myndinni voru fimm tonn og 360 kíló við upphaf átaksins, sem fól í sér ýmis konar líkamsrækt en jafnframt andlega uppbyggingu. Ekki liggur fyrir hve mörg kíló hurfu við átakið en þau skiptu hundruðum kílóa hjá hópnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 952
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) er lengst til vinstri á þessari mynd sem Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók í Listigarðinum á Akureyri 1956. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 360
Björn Helgason (d.11.3.1983) frá Efri Læk á Skagaströnd, verkamaður og sjálfþurftabóndi.
Jósef H Sigurðsson - safn 055
Jósep Sigurðsson í vinnuhorninu sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 23
Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) skipstjóri og útgerðarmaður.
Hjördís Sigurðardóttir - safn121
Hópur golfara við golfskálann á Háagerðisvelli eftir spilamennsku á góðum degi. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Anna Ármannsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Rolf Árnason (d.3.6.2014), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Stefán Jósefsson (fjær), Ragnheiður Erla Stefánsdóttir (nær), Lilja Kristinsdóttir (fjær), Júlíana Guðmundsdóttir (nær), Stefán Kristinsson (d.19.5.2011), Hjördís Sigurðardóttir, óþekkt, Steinunn Friðriksdóttir, Jón Örn Stefánsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Birkir Rafn Gíslason (nær), Sigurður Berndsen (fjær), Jón Ingvar Valdimarsson (fjær), óþekktur, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) ,Sverrir Brynjar Berndsen, Guðmundur Kristinsson, óþekktur, Eyþór Ernstsson (nær), Guðrún Björg Berndsen (fjær), Karl Berndsen (d.12.2.1995), Gunnar Helgason (nær) og Adolf J. Berndsen (fjær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 1991 eða 92.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 040
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 af Hartmann Jóhannessyni (d.22.12.1976) nær og Viggó Maríusson (d. ?) fjær. Ekki er vitað í hvaða höfn myndin var tekin né heldur hvenær.
Jósef H Sigurðsson - safn 021
Sigríður Sigurðardóttir - Sirrý - heima hjá sér í Hólaneshúsinu, líklega kringum 1973-75.
Ólafur Bernódusson686
Þessi mynd var tekin 28. október 2009 í Höfðaskóla. Vikurnar þá á undan höfðu krakkarnir á myndinni ungað út 5 andarungum í útungunarvél í stofunni sinni. Ungarnir vöktu mikla hrifningu nemenda skólans og jafnvel hörðustu töffarar urðu mjúkir eins og smjör meðan þeir umgengust ungana litlu. Þegar ungarnir vor orðnir þriggja vikna gamlir var þeim svo komið fyrir í varanlegt fóstur á sveitabæ í nágrenninu. 10. bekkingarnir á myndinni eru frá vinstri: Ingimar Guðjónsson, Viktor Valdimarsson, Stefán Velemir, Torfi Friðrik, Tanja Rán Einarsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Ellen Sigurjónsdóttir, Telma Bjarnadóttir, Elías Gunnar Hafþórsson, Eva Dís Gunnarsdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson og Þorgerður Guðmundsdóttir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 047
Kvennaskólastúlkur í Kvennaskólanum á Blönduósi hafa búið sig upp í búninga fyrir einhverja skemmtun. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Guðrún Guðbjörnsdóttir er lengst til vinstri en hinar stúlkurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja af óþekktu stúlkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 922
Trilla full af fólki beygir fyrir bryggjuendann í Djúpavík í blíðviðri. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina einhverntíma kringum 1940.
Ólafur Bernódusson698
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru krakkar úr mörgum bekkjum að syngja. Krakkarnir eru frá vinstri: Standandi: Rebekka Róbertsdóttir (nær), Silfá Sjöfn Árnadóttir (fjær), Andrea Björk Kristjánsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sæunn Steingrímsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir (fjær), Svandís Hallgrímsdóttir (nær), Guðmann Magnússon, Sveinn Hallgrímsson, Ísak Tryggvason, Páll Halldórsson, Heba Líf Jónsdóttir, Eymundur Lorens Grétarsson, Ísabella Róbertsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Karen Ósk Sigurðardóttir og Birkir Gunnarsson. Sitjandi frá vinstri: Bjarndís Annþórsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Arnrún Guðjónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir, Tryggvi Fjölnisson og Kristján Róbertsson.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn014
Á þessari mynd er hópur skáta úr Sigurfara á Skagaströnd ásamt óþekktum gestum þeirra. Myndin var tekin í Höfðaskóla sennilega 1960 eða 1961. Á gólfinu sitja, frá vinstri: Óþekktur, Ómar Þorbjörnsson, óþekktur, Bergur Jón Þórðarson, óþekktur, Gissur Jóhannsson, ? Magdalena Axelsdóttir?, María Bjarnadóttir (d. 1984), tvær óþekktar, Helga Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Ingibjörg Kristinsdóttir. Aftan við þennan hóp sitja tvær óþekktar konur með Ingólf Ármannsson félagsforingja Sigurfara á milli sín. Í þriðju röðinni eru frá vinstri: Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), óþekktur, Hallbjörn Björnsson, Jóhann Ingibjörnsson, Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016), Birgir Júlíusson, Sigurður Bjarnason, Ísleifur Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Anna Skaftadóttir, óþekkt, Bergdís Sigmarsdóttir, Helga Ólafsdóttir, Sigrún Jósteinsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, Ester Axelsdóttir? og Þórður Jónsson (d.25.12.2009) seinna félagsforingi Sigurfara. Aftasta röð frá vinstri: Fimm óþekktir, Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004), Búi Birgisson (d.18.9.2009), þrír óþekktir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Pálína Benjamínsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Sigrún Kristófersdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn016
Líklega eru þetta þær Sigríður Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) á Lækjarbakka til vinstri og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) á Karlsskála til hægri. Ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson688
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru þau Stefán Velemir og Laufey Inga Stefánsdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði.
Elínborg Jónsdóttir - safn 31
Sláttur í sumarblíðu á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Í baksýn standa Víðidalsfjöllin á haus í Flóðinu í Vatnsdalsánni. Hestasláttuvélar voru ekki fluttar til landsins í neinu magni fyrr en eftir 1925. Þær þóttu algjör munaður miðað við að áður var allt slegið með orfi og ljá. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 072
Frændsyskinin Sigurður Árnason (d. 26.3.2013) og Guðrún Sigurðardóttir taka saman lagið. Ekki er vitað hver er með harmonikuna lengst til vinstri og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 747
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir eru að prófa nýju hringekjuna. Með þeim er Elva Þórisdóttir kennari sem virðist skemmta sér vel eins og krakkarnir. Elva er í grárri peysu, Viktor Örn Einarsson er að ýta hringekjunni og næst honum situr bróðir hans Anton Einarsson. Nær okkur með svart hárband er svo Elín Ósk Björnsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 052
Fólkið á myndinni er í útsýnisferð í tveggja hæða strætisvagni í London. Myndin var tekin í skemmtiferð starfsmanna Hólaness hf til London. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þórunn Óladóttir, Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og hálft andlit Steinunnar Berndsen.
Héraðsskjalasafn A-Hún 422
Sveinn B. Sigmundsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1960 - 1964 og hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1962 - 1966. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 232 og 293).
Jósef H Sigurðsson - safn 014
Hjörtur Sigurðsson (d. 9.5.2015) úr Hólaneshúsi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 082
Þessi mynd af strákunum þremur var tekin utan við Hólaneshúsið þar sem tveir þeirra áttu heima. Strákarnir eru frá vinstri: Ragnar Högnason úr Miðnesi, Jósep Sigurðsson og Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015) úr Hólaneshúsinu. Ef grannt er skoðað má sjá gömlu Tunnuna í baksýn til vinstri, þá koma Sólvellir, Dagsbrún og Náttbrún eða Ólafsvellir. Tunnan stendur enn (2017) sem Spákonuhof eftir gagngerar endurbætur en hin húsin eru öll horfin. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hjörtur fæddist árið 1965 þannig að myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma á árunum 1967 - 1969
Elínborg Jónsdóttir - safn 8
Með þessari mynd stendur: "Elín". Ekki er vitað hver Elín er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn038
Karlarnir á myndinni eru að vinna við síldarnætur um borð í tveimur nótabátum. Svona bátar voru dregnir á eftir síldarbátum og þegar til veiðanna kom þá var nótin dregin um borð í þessa báta til að þrengja að síldinni í nótinni. Þaðan var hún svo háfuð um borð í síldarbátinn sjálfan. Eins og sjá má er komið spil um borð í bátinn nær okkur en þar sem engin vél var í nótabátunum var spilið handknúið og notað til að snurpa þ.e. loka nótinni að neðan til að búa til poka úr henni.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn049
Eldri borgara á ferðalagi skoða Auðunnarstofu að Hólum í Hjaltadal í september 2004. Frá vinstri: óþekkt, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Ottó Ákason (d. 17.9.2005), Guðný Finnsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007), Ardís Ólöf Arelíusdóttir og María Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 751
Með tilkomu Nes listamiðstöðvar hafa listamenn af ýmsu þjóðerni og ýmsum gerðum dvalið á Skagaströnd í lengri og skemmri tíma. Margir þeirra hafa auðgað mannlífið með nærveru sinni og uppátækjum. Hér hefur einn listamaðurinn sest upp við vegg Hólanesshússins í góðviðri og er að teikna það sem fyrir augun ber í skissubókina sína. Maðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 771
Vinkonurnar Ásdís Birta Árnadóttir og Zelia Kasper. Ásdís Birta er sú ljóshærða á myndinni.
Hallgrímur Kristmundsson safn006
Myndin var líklega tekin í Skagafirði (Þórðarhöfði og Málmey í baksýn?) af þremur sjómönnum á spjalli um borð. Mennirnir eru óþekktir og líka hvenær myndi var tekin. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn045
Myndin var tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950. Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) er til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
127
128
129
…
167
Leita í myndasafninu
Leita