Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 913
Óþekktir menn í Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir manninn fremst á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 023
Systkini í Hólaneshúsinu. Frá vinstri: Jósep Sigurðsson, Sigríður Sigurðardóttir og Magnús Sigurðsson (d.16.2018). Myndin var tekinn einhverntíma kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 840
Þeir eru sáttir við lífið og hjólin sín Jóhannes Sveinsson til vinstri og Einar Ásgeirsson til hægri fyrir utan verslunina sem þá var útibú Kaupfélags Húnvetninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 837
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Fritz Hendrik Berndsen fyrir útgáfu leikskrár.
Elínborg Jónsdóttir - safn 26
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) í kyrtli. Myndin var tekin við Másstaði í Vatnsdal en ekki er vitað hvenær.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn032
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, óþekkt, Ásthildur Guðmundsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, óþekkt og Bryndís Guðjónsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson685
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni er Ágúst Ingi Ágústsson kennari við Höfðaskóla á þessum tíma.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 038
Mikið fjör á hótel Dagsbrún hjá félögum í kirkjukór Hólaneskirkju. Frá vinstri: Hildur Inga Rúnarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Myndin var tekin vorið 1994 þegar kórfélagar voru að kveðja Julian og Rosemary Hewlet sem voru að flytja burt. Julian var stjórnandi kórsins en Rosemary söng í kórnum auk þess að spila oft í kirkjunni á þverflautu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 880
Myndin er tekin á svokallaðri lægri-brún beint fyrir ofan Djúpuvík. Þarna hefur vinnuflokkur frá verksmiðjunni nýlokið við að losa krapastíflu í Djúpavíkurá. Hún var þá stífluð vegna kraps fyrir ofan brúnina og óttast var að stíflan mundi að endingu bresta og áin, með sínu krapaflóði, steypast fram af brúninni og lenda á verksmiðjunni. Nokkrar ljósmyndir er til af þessum atburði en þessa mynd tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) árið 1949.
Ólafur Bernódusson648
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd eru Grímur Gíslason og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) að spjalla saman. Bæði voru þau og eru þekkt fyrir áhuga sinn á íslensku máli, bókmenntum og sagnfræði og fyrir framlag sitt til þeirra fræða.
Árni Geir Ingvarsson - safn 979
Myndin af þessum konum var tekin á þeim fáfarna stað, Árbakkasteini. Til vinstri er Hrefna Björnsdóttir en hin konan er óþekkt. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 079
Þessi mynd var tekin yfir flökunarsalinn í frystihúsi Hólaness hf þar sem í dag (2017) er listamiðstöðin Nes. Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri úr Hólaneshúsinu sést neðst í horninu til vinstri. Flakarinn í dökku peysunni með hvítar ermar er Ari Ólafsson úr Sævarlandi, Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði er í dökkri peysu með munstri yfir brjóstið og Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996) úr Sóllundi er lengst til hægri með dökkar ermar. Í miðjunni aftan við bandið er Björn Guðmundsson (Biddi) frá Árbakka og aftan við hann eru Jóhann Jakobsson (d.24.3.2987) frá Blálandi og Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) á Iðavöllum. Maðurinn framan við Bidda er líklega Ólafur Guðlaugsson? (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 919
Konan á myndinni og stúlkan í baksýn eru óþekktar. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir konuna eða stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 064
Kenny Hallbjörnsdóttir einhverntíma á unglingsárunum
Hjördís Sigurðardóttir - safn099
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli 11. júlí 1994. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Ingibergur Guðmundsson og Guðmundur Kristinsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 092
Jósep Sigurðsson í sínu fínasta pússi á jólum með dóttur sína Helgu Sigurbjörgu sem fæddist 14. júní 1985.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 020
Reynir Sigurðsson í Þórsmörk. Myndin var tekin kringum 1957. Húsið aftan við Reyni er Stórholt en til hægri við það glittir í lítið hús, Draumaland, sem horfið er fyrir áratugum síðan.
Elínborg Jónsdóttir - safn 28
Á myndinni er verið að breiða úr ull á grasvelli til þurkunar eftir að hún hafði verið þvegin í stórum potti með sjóðandi vatni og síðan skoluð í bæjarlæknum. Myndin var tekin hjá bænum Másstöðum í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær og fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn038
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn var að fagna á hótel Dagbrún, því að hafði gengið á Spákonufellið fyrr um daginn eða í maí 1996. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri til hægri:Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, tvær óþekktar, Kristín Ólafsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Íris Valgeirsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Halla Lýðsdóttir og Signý Richter.
Jósef H Sigurðsson - safn 039
Á þessari mynd eru hálfbræðurnir Björn Sigurðsson (d. 30.12.1996) til vinstri og Jósep Sigurðsson til hægri. Myndin var líklega tekin við fermingu Jósefs vorið 1975.
Hjördís Sigurðardóttir - safn060
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) spilar fyrir dansi á jólaballi í skólanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Páll Jóhannesson teymir tvo hyrnda hrúta hjá gömlu torfhúsi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn096 - Copy
Kristján Pétur Guðjónsson í september 2005.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 092
Dagný Marín Sigmarsdóttir vandar sig við prjónaskap. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1000
Til vinstri er Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) og líklega er bróðir hans Heiðar Elvan Friðriksson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin líklega hefur það verið um 1960 því Vigfús fæddist 1953.
Árni Geir Ingvarsson - safn 977
Þessi kona og drengurinn með henni eru óþekkt. Bak við þau er síldarverksmiðjan á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir konuna eða drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 898
Óþekkt kona í Djúpuvík líklega einhverntíma á fimmta ártugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.32007). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 071
Mæðgurnar Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir nær og Laufey Berndsen fjær staddar í veislu í stofunni á Höfða í júní 2001. Tilefni veislunnar er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 648
Ólafur Bernódusson og Guðlaug Grétarsson í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 044
Skemmtiatriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Finnur Kristinsson í rauðri peysu og Egill Bjarki Gunnarsson dregnir á snjóþotum á steyptu planinu. Áhorfendur skemmta sér vel. Lengst til vinstri í búnum buxum og með dökk gleraugu er Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002). Næstur honum er Guðmundur Haukur Sigurðsson í brúnum jakka. Ingvar Jónsson er ljóshærður í ljósbláum og dökkbláum jakka og hvítum skóm og við hlið hans í ljósum jakka er Hafþór Gylfason. Hjörtur Guðmundsson er í hvítri peysu og heldur uppi kaðlinum. Við hlið hans í rauðum jakka með krosslagðar hendur er Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 472
Signý Benediktsdóttir (d.7.1.1991) frá Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson645
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd er Sara Rut Fannarsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, að lesa upp fyrir fullan sal af gestum í félagsheimilinu Fellsborg.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 017
Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórsmörk með sonarson sinn, Hafþór Gylfason, í fanginu fyrir utan Þórsmörk. Myndin var líklega tekin 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn 967
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók þessa mynd á Reykjarfirði en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Báturinn á myndinni er óþekktur en á skiltinu á stýrishúsinu má lesa að hann var frá Höfðakaupstað. Ef þú veist hvaða bátur þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn049
Frændurnir Sverrir Brynjar Berndsen til vinstri og Birkir Rafn Gíslason til hægri sitjandi á tröppunum á Fellsborg kringum 1984 sælir með kókið sitt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn106
Golfkonur fyrir utan golfskálann á Háagerðisvelli 23. ágúst 1995. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Dagný Sigmarsdóttir, óþekkt, Fanney Zophoníasdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir, Anna Ármannsdóttir, Bryndís Bragadóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn059
Fríða Hafsteinsdóttir til vinstri með dóttur sína Laufey Berndsen í fanginu og Hjördís Sigurðardóttir með son sinn Adolf H. Berndsen. Fríða og Hjördís eru svilkonur. Myndin var líklega tekin 1959.
Ólafur Bernódusson689
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Alma Vignisdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á dagskránni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 318
Símon Klemensson (d.1932) bóndi frá Kambakoti í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 832
Myndin var tekin á árshátíð eða innanfélags skemmtifundi Leikklúbbs Skagastrandar. Þar gerði fólk sér margt til skemmtunar en á þessari mynd er fólk að drekka kaffi og gæða sér á bakkelsi. Við borðið nær okkur eru: Anna Sjöfn Jónasdóttir vinstra megin við borðið. Hægra megin við borðið frá vinstri: Ólöf Ardís Árelíusdóttir, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Adolf H. Berndsen og Dagný Marín Sigmarsdóttir. Við borðið fjær, vinstra megin frá vinstri: Tveir óþekktir, Herborg Þorláksdóttir, óþekkt, Guðbjörg Viggósdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Vilhelm Þórarinsdóttir. Hægra megin við borðið frá vinstri: Jane Sillar, óþekkt, Rut Jónasdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir?, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Elín Njálsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn093
Þessar golfkonur unnu til verðlauna á golfmóti á Háagerðisvelli 30. ágúst 1993. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir og Fanney Zophoníasdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 33
Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) með þrjú barnabörn líklega heima á Bogabraut 16. Börnin eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson684
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni eru kennararnir Elva Þórisdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri í gervum sínum þetta kvöld.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn070 - Copy
Kynnar á árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Helga Dögg Jónsdóttir og Ívar Gylfason kynna næsta atriði á dagskránni.
Ólafur Bernódusson624
Guðbjartur er einn af fjölmörgum bátum sem gert hafa út frá Skagaströnd gegnum tíðina. 10. október 2007 var hann að fara í línuróður á myrkri nóttu. Á sama tíma var Húnabjörgin, björgunarbátur Landsbjargar á Skagaströnd, að fara í útkall. Þegar Húnabjörgin var við að fara fram úr Guðbjarti, rétt norður af Höfðanum, beygði hann skyndilega á stjórnborð, þvert fyrir Húnabjörgina, sem skall á Guðbjarti af fullum þunga. Afleiðingarnar sjást á þessari mynd því báturinn brotnaði mikið og tæki í stýrishúsinu eyðilögðust. Húnabjörgin skemmdist lítið og gat haldið afram í útkallið eftir að hafa fylgt Guðbjarti til hafnar. Skipstjóri Guðbjarts hafði setið í stólnum, sem var þar sem Húnabjörgin kom á bátinn, niðursokkinn við dýptarmælinn þegar áreksturinn varð. Hann hentist úr stólnum niður á gólf en slapp með skrámur. Á myndinni eru menn að skoða skemmdirnar á Guðbjarti. Frá vinstri: Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013), tveir óþekktir, Hafsteinn Pálsson og Sigurjón Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 877
Myndin var tekin 1960. Vitinn á myndinni er Gjögursviti. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Hjördís Sigurðardóttir - safn119
Feðgarnir Hendrik Berndsen til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri við golfskálann á Háagerðisvelli í september 1996.
Elínborg Jónsdóttir - safn 27
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal prúðbúin við reynitré í garðinum við Másstaði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 997
Ragnar Smári Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Ragnar fæddist árið 1954 þannig að myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma rétt eftir 1960.
Jósef H Sigurðsson - safn 063
Kolbeinn Vopni Sigurðsson í rimlarúminu sínu heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Kolbeinn fæddist árið 1972.
Ólafur Bernódusson683
Fjórar vinkonur á Öskudags-grímuballi Höfðaskóla 6. febrúar 2008. Stelpurnar eru frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Heba Líf Jónsdóttir. Ekki verður reynt að giska á í hvaða gervum þær eru.
Hjördís Sigurðardóttir - safn086
Hópur fólks að þökuleggja flötina -"greenið"- á einni af brautunum á golfvellinum á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Guðmundur Kristinsson er með appelsínugulu gúmmívetlingana en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jósef H Sigurðsson - safn 034
Þessi mynd var líklega tekin við Óseyri á Skagaströnd. Veiðimennirnir eru feðgar úr Hólaneshúsinu, frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) og Björn Sigurðsson (d.30.12.1996). Björn var sonur Sigurðar af fyrra hjónabandi en Kolbeinn af því síðara.
Ólafur Bernódusson693
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta dagskrárlið.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn086
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd er þær niðursokknar við að skoða myndvélarnar sínar inni á veitngastað, Ásthildur Guðmundsdóttir til vinstri og Þorbjörg Magnúsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 986
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er hér með óþekktri konu líklega kringum 1940 á Djúpavík. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 15
Göngutúr um grasagarðinn í Laugardalnum var uppáhalds iðja Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007) eftir að hann settist í helgan stein. Herbert er lengst til vinstri á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin. Á þessum göngutúrum sínum hitti hann oft gamla kunningja og spjallaði við þá yfir kaffibolla. Með Hebba á þessari mynd er óþekktur maður með húfu og svo gamall Skagstrendingur, Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) lengst til hægri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 976
Þetta óþekkta fólk hefur stillt sér upp til myndatöku við síldarverksmiðjuna á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Hjördís Sigurðardóttir - safn116
Bræðurnir Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) til vinstri og Guðmundur Kristinsson til hægri með verðlaun sín í höndunum fyrir utan golfskálann á Háagerðisvelli í september 1996.
Ólafur Bernódusson679
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Jónmundur Ólafsson til hægri að hressa sig á kakósopa uppi á Borgarhausnum áður en haldið er niður aftur. Jónmundur var elstur af þeim sem fóru í gönguna en hann var þá 74 ára og hafði aldrei áður komið á Borgarhausinn. Annars var göngufólkið á öllum aldri eða frá 6 ára til 74 ára.
1
…
129
130
131
…
167
Leita í myndasafninu
Leita