Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn119
Feðgarnir Hendrik Berndsen til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri við golfskálann á Háagerðisvelli í september 1996.
Elínborg Jónsdóttir - safn 27
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal prúðbúin við reynitré í garðinum við Másstaði.
Hjördís Sigurðardóttir - safn086
Hópur fólks að þökuleggja flötina -"greenið"- á einni af brautunum á golfvellinum á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Guðmundur Kristinsson er með appelsínugulu gúmmívetlingana en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Páll Jóhannesson teymir tvo hyrnda hrúta hjá gömlu torfhúsi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn096 - Copy
Kristján Pétur Guðjónsson í september 2005.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 092
Dagný Marín Sigmarsdóttir vandar sig við prjónaskap. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Hjördís Sigurðardóttir - safn088
Beðið eftir næsta skammti af þökum til að leggja á flötina á braut 4 á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Adolf H. Berndsen, óþekktur drengur og Sigurður Berndsen. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 846
Konan sem er með þessi börn af leikskólanum er óþekkt. Barnið sem skyggnir fyrir augu er Haukur Ragnarsson. Framan við hann í appelsínugulum buxum er Kristján Gunnar Rúnarsson en stelpan með rauða dúskinn í húfunni er Elísabet Eik Guðmundsdóttir. Aðrir eru óþekktir. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 896
Ekki er vitað hvað er verið að halda upp á í Djúpavík. Líklega eru þessar prúðbúnu konur, í skrúðgöngunni, síldarstúkur sem voru í vinnu við síldarsöltun á planinu í Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 769
Stefán Jósefsson í sínu eðlilega umhverfi um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að gera klárt fyrir grásleppuveiðarnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 903
Síldarsöltun á plani og síldarbræðsla í verksmiðjunni í fullum gangi á Djúpuvík. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Hjördís Sigurðardóttir - safn045
Þessi spariklæddu frændsystkini eru, í fremri röð frá vinstri: Laufey Berndsen með Hendrik Berndsen í fanginu, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Guðrún Björg Berndsen og Steinunn Berndsen. Í aftari röð frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Myndin var líklega tekin 1967.
Jósef H Sigurðsson - safn 097
Þessi mynd var tekin á skírnardegi Sigríðar Sigurðardóttur árið 1963. Á myndinni er hún í fangi móður sinnar Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Faðir Sigríðar, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002), situr með bróður hennar Magnús Sigurðsson en annar bróðir hennar, Jósep Sigurðsson situr á milli foreldra sinna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 2
Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988).
Árni Geir Ingvarsson - safn 813
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: óþekkt, Þórhildur Jakobsdóttir, Ingimar Oddsson, William Sillar, Kristín Jónsdóttir, Fritz Hendrik Berndsen og Þórey Jónsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 055
Ekki er vitað um tilefni veislunnar sem er í gangi á myndinni. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson og Sigurður Bjarnason.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 049
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) landar grásleppum um borð í Ósk Hu 33 þar sem Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) tók við þeim og skar. Óskin dróg skektuna sem Indriði fór svo um borð í og vitjaði um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan Indriði hinir fór í næstu trossu.
Ólafur Bernódusson678
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns á aldrinum 6 til 74 ára kom með í gönguna í blíðu veðri. Að fjallgöngunni lokinni beið göngufólksins kaffiveisla í golfskálanum á vegum kvennanna í Spákonuhofinu. Á myndinni eru þeir Stefán Jósefsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að njóta veðurblíðunnar uppi á Borgarhausnum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn117
Adolf H. Berndsen á Háagerðisvelli í september 1996. Adolf er meðal ötulustu forystumönnum Golfklúbbs Skagastrandar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn065
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) situr á tröppunum heima hjá sér á Bankastræti 9 með þrjú elstu börnin sín. Næst honum situr Guðrún Björg Berndsen þá Steinunn Berndsen og lengst til hægri er Adolf H. Berndsen. Myndin var tekin 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 724
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru ?Ellen Lind Sigurjónsdóttir? til vinstri og Indriði Björnsson til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 067
Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) fyir utan heimili sitt á Hólabraut 3. Í barminum er hann með heiðursorðu sjómannadagsins, sem hann hlaut 1998, og líklega hefur myndin verið tekin á sjómannadaginn það ár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 464
Haraldur Jónsson (1907-1981) á Skagaströnd frá Ósi á Blönduósi.
Jósef H Sigurðsson - safn 083
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) heldur hér á einu af börnum sínum á skírnardegi þess. Ekki er vitað hvert barnið er né hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 847
Hér eru vinirnir Áslaug Gunnarsdóttir og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) fyrir utan útibú Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Ólafur Bernódusson 576
Egill Örn Ingibergsson með kyndilinn sinn að fylgjast með áramótabrennunni 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 888
Þessir þrír prúðbúnu menn eru óþekktir. Myndin hefur sennilega verið tekin í eða við Djúpuvík einhverntíma kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 451
Páll Jónsson (1893-1910). Páll drukknaði en séra Jón faðir hans var Árnason frá Þverá í Hallárdal og var prestur á Bíldudal.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 069
Hér situr Angantýr Jónsson (d.28.7.1983) milli tvíburadætra sinna. Guðrún Angantýsdóttir er til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) til hægri.
Jósef H Sigurðsson - safn 040
Rósa Dröfn Sigurðardóttir heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Rósa fæddist árið 1967.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 020
Reynir Sigurðsson í Þórsmörk. Myndin var tekin kringum 1957. Húsið aftan við Reyni er Stórholt en til hægri við það glittir í lítið hús, Draumaland, sem horfið er fyrir áratugum síðan.
Elínborg Jónsdóttir - safn 28
Á myndinni er verið að breiða úr ull á grasvelli til þurkunar eftir að hún hafði verið þvegin í stórum potti með sjóðandi vatni og síðan skoluð í bæjarlæknum. Myndin var tekin hjá bænum Másstöðum í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær og fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 997
Ragnar Smári Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Ragnar fæddist árið 1954 þannig að myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma rétt eftir 1960.
Jósef H Sigurðsson - safn 034
Þessi mynd var líklega tekin við Óseyri á Skagaströnd. Veiðimennirnir eru feðgar úr Hólaneshúsinu, frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) og Björn Sigurðsson (d.30.12.1996). Björn var sonur Sigurðar af fyrra hjónabandi en Kolbeinn af því síðara.
Ólafur Bernódusson693
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta dagskrárlið.
Jósef H Sigurðsson - safn 068
Kenny Hallbjörnsdóttir .
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Þessir þrír voru vinnufélagar hjá Trésmiðju Helga Gunnarssonar í fjölda ára. Þeir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Hrólfur Pétursson og Baldvin Hjaltason. Myndin var tekin á Hólabraut 10 í innflutningspartýi hjá Hjalta Indriðasyni og Cristinu Silod Yecyec sem áttu húsið. Karlarnir á myndinni unnu við byggingu hússins.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 066
Frændurnir Guðjón Hall Sigurbjörnsson til vinstri og Jón Ólafur Skigurjónsson til hægri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1983.
Hallgrímur Kristmundsson safn069
Guðmundur Jóhannesson. Guðmundur var kafari á sínum yngri árum og fór þá víða um hafnir landsins og kafaði í sambandi við framkvæmdir á hverjum stað. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1950.
Jósef H Sigurðsson - safn 089
Þessi mynd var tekin 1970 í fimmtugsafmæli Sigurðar Magnússonar í Hólaneshúsinu. Á henni eru prúðbúnir gestir með Sigurði. Frá vinstri: Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) frá Kárastöðum, Ólafur Guðlaugsson (d.17.5.1996) frá Sævarlandi, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsi, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) úr Þorfinnshúsi og kona hans Hulda Pálsdóttir (d.2011).
Ólafur Bernódusson696
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni syngja saman þau Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Ívan Árni Róbertsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 011
Jón Sigurðsson (d.26.7.1967). Jón var sonur Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) og Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) í Þórsmörk en alinn upp í Broddanesi hjá systur Hallbjargar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 822
Þessir ungu menn skipuðu hljómsveitina Jójó ásamt Fannari Viggóssyni. Strákarnir eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Viggó Magnússon, Kristján Blöndal og Jón Arnarson. Jójó gerði garðinn frægan um tíma á Íslandi eftir að hafa unnið í Músiktilraunum 1988, sérstaklega með laginu "Stæltir strákar á ströndinni"
Dagný Sigmarsdóttir - safn 054
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 á síldveiðum líklega sumarið 1961. Maðurinn á myndinni er Snorri Gíslason (d.29.5.1994).
Þórunn Bernódusdóttir - safn 025
Þetta eru skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd í "hike" ferð nálægt Skagaströnd vorið 1963. Slíkar ferðir voru gjarnan farnar á vorin og stóðu yfirleitt nokkuð langan dag þó stöku sinnum væru þær tveggja daga með gistingu einhversstaðar yfir nótt. Skátarnir eru frá vinstri: Helgi Bjarnason (d.1.3.2007) í Holti, Steindór Haraldsson í Höfðakoti, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) í Herðubreið félagsforingi Sigurfara , Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016) í Steinholti, Ester Axelsdóttir (d. ?) frá Læk, Helga Guðmundsdóttir úr Skeifunni, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti, Sigurður Pálmason í Pálmalundi og Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka.
Óþekktur ljósmyndari380
Útför Guðmundar Sigvaldasonar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag föstudaginn 24. febrúar og hefst athöfnin kl. 13:30. Guðmundur Sigvaldason fæddist 14. apríl 1954 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu, Birkihlíð 6, Hörgársveit þann 8. febrúar 2017. Hann ólst upp í Garði í Kelduhverfi, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1973, BA-prófi í landafræði og prófi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda við Háskóla Íslands 1978. Eftirlifandi eiginkona hans er Torfhildur Stefánsdóttir grunnskólakennari, frá Tungunesi í Fnjóskadal og eru börn þeirra þrjú; Sigvaldi, Álfheiður og Óðinn. Meginhluta starfsævinnar starfaði Guðmundur í opinberri þjónustu. Hann kenndi við Stórutjarnaskóla, vann hjá Fjórðungssambandi Norðlendinga og var framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Þá var hann verkefnastjóri hjá Sorpeyðingu Eyjafjarðar og Akureyrarbæ og sveitarstjóri á Stokkseyri, á Skagaströnd og í Hörgárbyggð (síðar Hörgársveit). Síðustu tvö árin sinnti hann bókhaldi fyrir ýmis félög. Guðmundur var sveitarstjóri á Skagaströnd á árunum 1986 – 1990. Hans er minnst fyrir hlýlegt og alþýðlegt viðmót og vönduð vinnubrögð við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Síðustu ár þurfti Guðmundur að takast á við erfið veikindi vegna krabbameins í fæti sem varð til þess að taka þurfti fótinn af við mjöðm. Þá kom vel í ljós æðruleysi hans og þrautseigja þar sem hann lét þessa erfiðleika ekki stöðva sig. Krabbamein er hins vegar illvígur sjúkdómur sem lagði góðan dreng að velli eftir snarpa baráttu.
Adolf H Berndsen - safn040
Myndin er af fyrstu sjoppunni á Skagaströnd en hún var rekin í græna timburhúsinu sem stendur vinstra megin við við Karlsskála. Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á Karlsskála var umboðsmaður fyrir olíufélagið BP á Íslandi og rak hann sjoppuna með Helgu dóttur sinni. Bensíndæla frá BP var fyrir utan sjoppuna eins og sést á myndinni. Ein af nýungunum sem sjoppan var með á sínum tíma var að fara að selja ís, pinnaís og ís í pökkum, upp úr frystikistu í sjoppunni. Lengst af var ekki fastur opnunartími í sjoppunni heldur þurfti að fara og banka á dyrnar á Karlsskála og biðja um afgreiðslu. Sjoppan var rekin í allmörg ár á árunum um og eftir 1960. Myndin var tekin á sjómannadaginn 1964 og konurnar á myndinni eru Oddný Þórisdóttir og Bára Þórðardóttir. Strákarnir eru Vilhelm Harðarsson nær og Aðalsteinn Jörgensen fjær.
Ólafur Bernódusson638
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að fá kort og blað til að fylla út vegna ratleiks sem haldinn var í sambandi við opnunina. Margir eru lagðir af stað en á myndinni er Sigurður Sigurðarson, með svarta prjónahúfu, að afhenda gögnin. Gylfi Sigurðsson er í brúnum frakka, Guðrún Guðbjörnsdóttir kona hans er með skrautlegan trefil, Steindór Haraldsson er til hægri með gleraugu og Árni Ólafur Sigurðsson rýnir í gögnin. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn124
Rolf Árnason (d.3.6.2014) að mála golfskálann á Háagerðisvelli líklega 1992.
Hallgrímur Kristmundsson safn068
Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1945.
Héraðsskjalasafn A-Hún 460
Hjónin Elísabet Björnsdóttir (1891-1974) og Fritz Hendrik Berndsen (1895-ágúst 1966) kaupmaður í Reykjavík með dætur sínar þrjár. Dæturnar þrjár heita Birna, Steinunn og Björg Ólöf en ekki er vitað hver þeirra er hver. Birna (d.?) og Steinunn (d. 5.1.2002) eru látnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 980
Konan á myndinni er óþekkt. Myndina tók Herbert Ólafsson (25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar (Siglufjörður?). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 994
Þetta eru systkinin Áslaug Jónsdóttir fædd 1943, Ari Jónsson fæddur 1946 og Aðalheiður Jónsdóttir fædd 1945. Þau eru börn Jóns Áskelssonar (d.26.3.1989) framkvæmdastjóra frystihúss Hólaness hf 1946 - 1959 og konu hans Ingibjargar Sæmundsdóttur (d. 7.2.2012). Fjölskyldan bjó í Hólaneshúsinu til 1959 er þau fluttu í Hafnarfjörð. Þessi mynd var líklega tekin utan við Hólaneshúsið 1947. <br>(Heimild: Ari E. Jónsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 915
Skólamynd Finnbogastaðaskóla tekin á Naustvíkurskörðum. Frá vinstri : drengur sem kallaður var Benni og var Sigurðsson frá Djúpuvík. Sörli Ágústsson frá Kjós. Herbert Ólafsson frá Gjögri. Þorsteinn Jónsson frá Gjögri. Helgi Jónsson frá Reykjarnesi. Svanur Jóhannsson frá Djúpuvík. og drengur lengst til hægri sem er óþekktur.<br>(Heimild: Valgeir Benediktsson eftir munnlegri heimild Skúla Alexanderssonar frá Kjós)<br>
Ólafur Bernódusson 594
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Stefáni Jónassyni kennara að spila undir hjá Viktoríu Hólmgeirsdóttur sem leikur á blokkflautu.
Elínborg Jónsdóttir - safn 20
Fjölskyldan á Másstöðum í Vatnsdal. Frá vinstri: Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977), Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jón Kristmundur Jónsson (d.1947).
Árni Geir Ingvarsson - safn 779
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Ekki mátti miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Á þessari mynd er Sigurjón Ástmarsson vörubifreiðastjóri að koma fyrir böndum á bílinn til að geta lyft honum upp úr gjótunni með krananum á bílnum sínum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 19
Jón Kristmundur Jónsson (d. 1947) bóndi á Másstöðum í Vatnsdal á hestbaki.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn060
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þessi mynd var tekin af nokkrum konum í eldhúsinu í Fellsborg að undirbúa kvöldverð og skemmtikvöld sem þær héldu í hópnum. Vigdís Elva Þorgeirsdóttir til vinstri og Eygló Gunnarsdóttir til hægri undirbúa veisluna ásamt fleirum sem eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson631
Lárus Ægir Guðmundsson kann vel við sig úti í náttúrunni enda göngugarpur með afbrigðum. Á þessari mynd, sem tekin í Hólsdal við Siglufjörð, er Lárus á ferð í miðri lúpínubreiðu.
1
…
130
131
132
…
167
Leita í myndasafninu
Leita