Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn127
Áhorfendur láta fara vel um sig í sólinni á Háagerðisvelli sumarið 1986. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Sigurður Berndsen og Adolf J. Berndsen (d.8.2018).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 043
Hrönn Árnadóttir til vinstri og Guðrún Angantýsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn123
Karl Berndsen (d.28.1.2020) lengst til vinstri, Adolf H. Berndsen og Fríða Hafsteinsdóttir gróðursetja tré á Háagerðisvelli sumarið 1996.
Jón Jónsson 483
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 811
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Viggó Magnússyni fyrir útgáfu leikskrár.
Jón Jónsson 494
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974 að Hólum í Hjaltadal. Þar lék hópur fremstu leikara landsins leikrit um Jón Arason biskup að Hólum og aftöku hans. Mikill mannfjöldi fylgdist með í blíðu sumarveðri.
Hjördís Sigurðardóttir - safn110
Golfkonur á Háagerðisvelli í júlí 1996. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 795
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af ljósameistaranum Árna Geir Ingvarssyni.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn061
Guðbjörg Viggósdóttir skreytir matborðið fyrir veislu félagsskaparins Líkami og sál sem haldin var í Fellsborg á þrettándanum 2003.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 064
Hjónin Lúðvík Jóhann Ásgeirsson og Guðrún Björg Berndsen.
Adolf H Berndsen - safn107
Ungur nemur, gamall temur segir máltækið. Á myndinni er Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) að kynna leikskólakrökkum úr Barnabóli golfíþróttina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 580
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 8. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekktur, Ernst Guðni Hólmgeirsson, óþekkt, Alma Dröfn Vignisdóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Linda Rós Ómarsdóttir og Saga Lind Víðisdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 897
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær né hvar. Ef þú þekkir einhvern mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 891
Hér hefur orðið óhapp þar sem afturhásing vörubílsins hefur sópast undan bílnum. Ekki er gott að segja hvernig svonalagað gerist en allavega er ljóst að bíllinn fer ekki lengra í bili. Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi segir um þessa mynd: "Veit ekki hvenær myndin er tekin en giska á að það sé um 1950 -1955 eða um það bil. Mér finnst vörubílarnir vera frá þeim tíma. Ég tel að þetta óhapp hafi orðið á búnni yfir Árfarið sem er við vegamótin ínn í Vatnsdal að austan. Mér finnst, með því að stækka myndina og rýna í hana þannig, að ég sjái bæina Hnausa nær og Sveinsstaði fjær og svo mótar fyrir Vatnsdaldhólunum til vinstri á myndinni og svo Hnausatjörnina vinstra megin. Ég var búinn að sjá mynd af sama óhappi sem sýnir betur bílinn sem er út af. Þar sést greinilega að á bílnum er Ferguson dráttarvél og þær voru að koma um eða upp úr 1950". <br> Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Jósef H Sigurðsson - safn 005
Systkinin Hugrún Sigurðardóttir og Kolbeinn Vopni Sigurðsson úr Hólaneshúsinu. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1977.
Hjördís Sigurðardóttir - safn104
Sólskinsdagur á pallinum utan við golfskálann á Háagerðisvelli 23. júlí 1923. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Fríða Hafsteinsdóttir, óþekktur drengur, Anna Ármannsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Rolf Árnason (d.3.6.2014) og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Elínborg Jónsdóttir - safn 14
Með þessari mynd stendur: "fjölskylda í lit". Því miður er ekki vitað um hvaða fjölskyldu er að ræða. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn065
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í fullum gangi. Kristjana Jóhannsdóttir syngur fyrir konurnar en með henni í hópnum eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Jensína Lýðsdóttir. Við borðið sitja og fylgjast með, frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Elva Þórisdóttir, Björk Hlöðversdóttir, óþekkt og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 038
Kolbeinn Vopni Sigurðsson heima í eldhúsi í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Kolbeinn fæddist 1972.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 039
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi einhverntíma kringum 1959 - 1960. Lengst til vinstri í fremri röð er Árný Hjaltadóttir á Steinnýjarstöðum og næst lengst til hægri í þeirri röð er Guðrún Guðbjörnsdóttir á Skagaströnd. Aðrar eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn092
Fríða Hafsteinsdóttir afhendir Rúnari Ingvarssyni verðlaun fyrir golfspilamennsku á Háagerðisvelli 30. ágúst 1993.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 063
Veislukaffi í Rækjuvinnslunni hf. Fólkið á myndinni eru Jón Jónsson (d.9.7.1991) framkvæmdastjóri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) starfsstúlka. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 059
Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015) heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hjörtur fæddist árið 1965.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 067
Konurnar við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf eru frá vinstri: Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008), Ingibjörg Skúladóttir, Díana Kristjánsdóttir og Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Elínborg Jónsdóttir - safn 3
Þessar þrjár litlu stúlkur eru óþekktar nema líklega er það Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) frá Másstöðum sem situr í miðjunni. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 793
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu þegar Þröstur leikstjóri, fremst, er að leiðbeina fólki. Leikararnir eru frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, William Sillar, Fritz Hendrik Berndsen og Bóel Hallgrímsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 075
Á myndinni situr Dóróthea Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) með tvö af börnum sínum í fanginu heima í Hólaneshúsinu. Börnin eru líklega Jósep Sigurðsson og Sigríði Sigurðardóttur. Jósep fæddist 1961 en Sigríður 1963 þannig að myndin hefur sennilega verið tekin 1963 eða 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn 965
Jónas Þorvaldsson að leika sér á vatnsketti á sjónum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn055
Hjónin Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) og Gunda Cecelie Jóhannsdóttir (d.9.11.2013).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 049
Sóley Elsa Magnúsdóttir kom í heimsókn í Rækjuvinnsluna hf um jól og situr í fanginu á Kristínu Sigurðardóttur á þessari mynd. Sóley Elsa hefur líklega komið með mömmu sinni Sólveigu Eiðsdóttur sem vann í vinnslunni á þessum tíma. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn092
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd er Jóhanna Sigurjónsdóttir að fá sér drykk eftir matinn á ókunnu veitingahúsi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn130
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Gísli Snorrason og Stefán Þór Árnason.
Hjördís Sigurðardóttir - safn125
Á þessari mynd frá því í júlí 1996 eru bræðurnir Ernst Berndsen og Karl Berndsen (d.28.1.2020) til vinstri og frændi þeirra Hendrik Berndsen til hægri staddir á Háagerðisvelli.
Adolf H Berndsen - safn108
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból á Skagaströnd í heimsókn á Háagerðisvelli til að kynna sér golfíþróttina með kennurunum sínum. Kennararanir eru aftast og þeir eru, frá vinstri: Helga Bergsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Erna Hreinsdóttir og Sesselja Guðmundsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 815
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin í kaffipásu á æfingu af Bergþóri Gunnarssyni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 045
Margar ungar stúlkur byrjuðu feril sinn á vinnumarkaðnum við pillunar-færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Á þessari mynd er Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir til vinstri og Inga Rós Sævarsdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Adolf H Berndsen - safn051
17. júní hátíðahöld á skólalóðinni. Díana Kristjánsdóttir með gítar og Fannar Viggósson leika undir söng nokkurra stúlkna. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Rúnarsdóttir, María Markovic, óþekkt, Heiða Berglind Fannarsdóttir og óþekkt (?Ólína Sveinsdóttir?). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 982
Maðurinn á myndinni er Benedikt Ágústsson (d.25.9.2016) aflaskipstjóri frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1
Rúnar Þór Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Rúnar er fæddur 1950.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn027
Ívar Gylfason í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 018
Hjördís Sigurðardóttir í frystihúsgallanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 072
Þessar tvær prúðbúnu konur eru tengdamæður barna hvor annarar.Jóhanna Jónasdóttir til vinstri er móðir Bylgju Angantýsdóttur en Helga Ólína Aradóttir (d.27.6.2004) til hægri er móðir Halldórs Einarssonr sem er maður Bylgju. Bylgja og Halldór eru bændur á Móbergi í Langadal.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 037
Bræðurnir Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) til vinstri og Vilberg Jóhannesson (d. 15.11.2002) til hægri við bílskúrinn á Sunnuvegi 2 nýkomnir af hreindýraveiðum og með hausinn af bráðinni í poka.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 44
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Þórarinn Ingvarsson klifra í klettum á óþekktum stað.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn039
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn var að fagna á hótel Dagbrún, því að hafði gengið á Spákonufellið fyrr um daginn eða í maí 1996. Á myndinni eru Íris Valgeirsdóttir til vinstri og Kristín Ólafsdóttir til hægri að kíkja á úrvalið á barnum hjá Steindóri Haraldssyni hótelhaldara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 808
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Ingibergur Guðmundsson og Sigrún Jónsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn091
Við nána skoðun kemur í ljós að persónan á myndinni er ekki pokadýr heldur lítil falleg stúlka. Stúlkan er Sonja Hjördís Berndsen sem hefur brugðið sér í pokann þegar hún var að hjálpa mömmu sinni og pabba við þökulagningu á golvellinum Háagerðisvelli í ágúst 1993.
Elínborg Jónsdóttir - safn 7
Elínborg M. Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og fræðimaður að gefa hænunum heima á Másstöðum í Vatnsdal.
Jósef H Sigurðsson - safn 043
Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) heima í Brimnesi með barn í fanginu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn040
Ungur óþekktur drengur fær að prófa að fara á hestbak við Undirfellsrétt í september 2004. Rúnar Jóhannsson heldur í hestinn og Guðrún Soffía Pétursdóttir passar upp á drenginn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 799
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af leikurunum Þórey Jónsdóttur, Magnúsi B. Jónssyni sitjandi og Þorvaldi Skaftasyni í hlutverkum sínum.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 053
Ómar Þorbjörnsson úr Akurgerði (nú Hólabraut 9) ánægður með skambyssuna sína og kúrekahanskana.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 039
Glaðbeittir starfsmenn Rækjuvinnslunnar hf til margra ára á kaffistofu fyrirtækisins. Guðrún Angantýsdóttir og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003).
Guðrún Sigurðardóttir - safn 054
Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppstjóri í Norður-Skála upphaflega frá Brúarlandi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn131
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sigurbjörn Björgvinsson og Þór Gunnlaugsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 023
Frændsystkinin Hafþór Gylfason og Þórey Jónsdóttir fyrir utan heimili Hafþórs að Bogabraut 12. Í baksýn er verið að byggja framtíðarheimili Þóreyjar að Bogabraut 14. Myndin var tekin 1964.
Hjördís Sigurðardóttir - safn069
Hér eru börn Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) og Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) frá Þórsmörk á ferðalagi á Ströndum ásamt mökum sínum sumarið 2004. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (ds.27.8.2018), Hjördís Sigurðardóttir, Anna Heiður Guðmundsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Reynir Sigurðsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 032
Pása við Einbúann. Standandi maðurinn er óþekktur en liggjandi til vinstri er Adolf J. Berndsen og til hægri er bróðir hans Karl Berndsen (d.12.2.1995).
Barnaból - safn356
Valdimar Viggó Baldursson til vinstri og Sóley Sif Jónsdóttir til hægri, bæði með tárin í augunum út af vonsku heimsins í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Hjördís Sigurðardóttir - safn132
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Jóhann Björn Þórarinsson, Guðmundur J. Björnsson, Stefán Þór Árnason, Haraldur Max Árnason og Bergþór Gunnarsson.
1
…
133
134
135
…
167
Leita í myndasafninu
Leita