Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn132
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Jóhann Björn Þórarinsson, Guðmundur J. Björnsson, Stefán Þór Árnason, Haraldur Max Árnason og Bergþór Gunnarsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn061
Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987) frá Þórsmörk á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 31
Á myndinni eru hjónin Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.5.10.2019) og Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988) með börnum sínum, tengdadætrum og barnabörnum. Aftasta röð frá vinstri: Kristín Jónsdóttir kona Ragnars með Jón Inga Ragnarsson í fanginu. Ragnar Smári Ingvarsson, Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Rúnar Þór Ingvarsson. Miðröð frá vinstri: Vala Rós Ingvarsdóttir, Gréta Ingvarsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, óþekkt stúlka og Rósa Margrét Sigursteinsdóttir kona Rúnars. Fremst sitja hjónin en við hlið þeirra er Sigursteinn Ingvar Rúnarsson. Tilefni myndatökunnar er óþekkt en líklega hefur Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tekið myndina.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 070
Systurnar Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Þórey Jónstóttir taldar frá vinstri. Myndin var líklega tekin snemma á áttunda áratugnum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 039
Glaðbeittir starfsmenn Rækjuvinnslunnar hf til margra ára á kaffistofu fyrirtækisins. Guðrún Angantýsdóttir og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 068
Grétar Haraldsson var verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf um árabil. Á myndinni er hann við vinnu þar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn067
Ekki er vitað um tilefni kaffiveislunnar sem er í gangi á myndinni. Næst okkur á myndinni eru frá vinstri: hjónin Gunda Cecelie Jóhannsdóttir (d.9.11.2013) og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) og Halldóra Þórláksdóttir (d.27.12.2017). Milli Þórarins og Halldóru sér í Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn069
Hér eru börn Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) og Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) frá Þórsmörk á ferðalagi á Ströndum ásamt mökum sínum sumarið 2004. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (ds.27.8.2018), Hjördís Sigurðardóttir, Anna Heiður Guðmundsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Reynir Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson 688
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Á þessari mynd er björgunarskipið Húnabjörg að koma til hafnar eftir að hafa skutlað gæslumönnunum tveimur um borð í Bjarna. Á myndinni eru fremst, frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Guðmundur J. Björnsson, Reynir Lýðsson og Stefán Sveinsson. Uppi á stjórnpallinum eru, frá vinstri: Ágúst Ómarsson skipstjóri, Höskuldur Erlingsson lögreglumaður og Bjarni Ottósson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn079
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru þær í "strætisvagni" í Hrísey. Strætóinn er í raun heyvagn með bekkjum dregin af dráttarvél. Frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Elva Þórisdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Bára Hallgrímsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Lilja Ingólfsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 002
Feðgarnir Björn Sigurðsson (d.5.10.1999), með bindi og hatt, og Sigurður Björnsson sonur hans á ferðalagi við Skógarfoss líklega kringum 1945. Björn - Bjössi Máni - var ættaður frá Mánaskál í Laxárdal en bjó með fjölskyldu sinni á Jaðri á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 587
Sævar Bjarnason mætti með kyndil í snjókomunni á áramótabrennuna á Skagaströnd áramótin 2008 - 2009.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn048
Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) í dyrum Auðunnarstofa að Hólum í Hjaltadal í ferðalagi eldri borgara í september 2004.
Hjördís Sigurðardóttir - safn120
Systkinin Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Helga Berndsen í júlí 1996.
Hjördís Sigurðardóttir - safn097
Þrjár golfkonur í golfskálanum á Háagerðisvelli 30. ágúst 1993. Frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Fanney Zophoníasdóttir og Anna Lára Ármannsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn073
Myndin var tekin á fermingardegi Ásdísar Þórbjarnardóttur vorið 1975 í Hólaneskirkju (eldri). með henni á myndinni eru amma hennar Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi og presturinn séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Adolf H Berndsen - safn103
Ungir kylfingar utan við Kántrýbæ eftir að hafa verið á Háagerðisvelli við golfiðkun. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1998.
Elínborg Jónsdóttir - safn 9
Með þessari mynd stendur: "Elín". Ekki er vitað hver Elín er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 803
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson, Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Steindór Haraldsson, Sigrún Jónsdóttir, Rut Jónasdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Þórhildur Jakobsdóttir og Ingibergur Guðmundsson.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 054
Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) til vinstri boxar við óþekktan boxara. Ef þú þekkir óþekkta boxarann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 094
Dagný Marín Sigmarsdóttir. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1975.
Ólafur Bernódusson 575
Þráinn Bessi Gunnarsson með dóttur sinni Dagný Dís fylgist með áramótabrennunni áramótin 2006 - 2007.
Ólafur Bernódusson 677
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er félagsmálaráðherrann Magnús Stefánsson sannarlega á heimavelli með gítarinn í fanginu enda þekktur og vinsæll úr hljómsveitabransanum á Íslandi.
Ólafur Bernódusson 620
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af hljómsveit sem er skipuð, frá vinstri: Magnús Jens Magnússon á bassa, Elías Gunnar Hafþórsson á pákur, Róbert Björn Ingvarsson á gítar og Benedikt Blöndal kennari á gítar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn081
Á ferðalagi á Akureyri. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.82018), Sigríður Ólafsdóttir (Sissa), Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016).
Ólafur Bernódusson 585
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Heba Líf Jónsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir sem eru að leika einhverja úr starfsliði skólans.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 069
Guðrún Sigurðardóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 864
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd inni í virkinu af hluta gesta sem sóttu hátíðina.
Hjördís Sigurðardóttir - safn113
Kaffidrykkja í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlílok 1996. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Fríða Hafsteinsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Karl Berndsen (d.28.1.2020) og Sigurður Berndsen. Yfir höfuð Sigurðar grillir í Helgu Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 26
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 051
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Maðurinn til hægri í dökku peysunni með húfuna er Gunnar Sveinsson og hægra megin við hann er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði. Maðurinn til vinstri er óþekktur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn092
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd er Jóhanna Sigurjónsdóttir að fá sér drykk eftir matinn á ókunnu veitingahúsi.
Adolf H Berndsen - safn069
Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á bryggjunni. Ernst átti oft erindi á bryggjuna því hann var lóðs í Húnaflóa og lóðsaði stór skip inn á hafnirnar í flóanum. Einnig sá hann lengi um skipaafgreiðsluna á Skagströnd og þurfti oft að vera á höfninni þess vegna. Maðurinn bak við Ensa er líklega sonur hans Adolf J. Berndsen en drengurinn til hægri er óþekktur. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 907
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með sex vinkonum sínum. Ef dæma má af klæðnaði kvennanna hafa þær unnið í mötuneyti sem líklega var starfrækt á Djúpuvík vegna síldarverksmiðjunnar þar og söltunarplansins. Myndin er frá 1936 en þá var Herbert 16 ára gamall. Einhverjar kvennanna eru Ragna, Gróa og Gunna Jóns en ekki er vitað hverjar kvennanna þær eru. Hinar konurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn083
Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) á leið heim til Skagastrandar sumarið 1965.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 047
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf einhverntíma um jól. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Sigurður Bjarnason og óþekktur. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 25
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma á árunum 1953-55. Á henni eru frá vinstri: Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Halla Björg Bernódusdóttir, tvö óþekkt börn og Þórunn Bernódusdóttir. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 79
Ottó Ákason (d. 17.9.2005) í skemmtiferð á vegum Hólaness hf líklega kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 104
Færaveiðar um borð í Ásbjörgu Hu 5 í renniblíðu sumarið 1968. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn076
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Þessi mynd var tekin um borð í Hríseyjarferjunni Sævari EA á leið út í eyjuna. Vinstra megin er Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir er til hægri.
Hjördís Sigurðardóttir - safn094
Ungir drengir með verðlaun sín eftir golfmót á Háagerðisvelli 30. ágúst 1993. Frá vinstri: Gunnar Dór Karlsson, Sigurður Berndsen og Birkir Rafn Gíslason.
Ólafur Bernódusson 675
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru starfsfólk og nokkrir gestir sem voru á staðnum. Frá vinstri: Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Þorbjörg Bjarnadóttir, óþekkt, Jensína Lýðsdóttir, óþekkt, Eygló Gunnarsdóttir, óþekkt, Eva Gunnarsdóttir, Kristín Leifsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Sex síðast töldu konurnar eru starfsstúlkur greiðslustofunnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 965
Jónas Þorvaldsson að leika sér á vatnsketti á sjónum.
Ólafur Bernódusson 653
Guðrún Pálsdóttir mótar piparkökur með ömmustráknum sínum Ólafi Halldórssyni á piparkökudaginn í Barnabóli 21.desember 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 782
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu þegar Þröstur var að gefa fólki nótur um það sem betur mátti fara. Á myndinni eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir nær, óþekktur fjær, Sigrún Jónsdóttir, William Sillar, Ólafur Bernódusson, Óli Hjörvar Kristmundsson aftast, óþekkt í miðið, baksvipur Þrastar Guðbjartssonar, Þórhildur Jakobsdóttir, Steindór Haraldsson, Ingibergur Guðmundsson fjær, Ingimar Oddsson nær, Bergþór Gunnarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, tvær óþekktar konur, Þorvaldur Skaftason, Herborg Þorláksdóttir og lengst til hægri sér í Ástmar Kára Ástmarsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn051
Kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst situr stjórnandinn Julian Hewlett. Í fremstu röð kórfélaga frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Brenda Wilkinson, Rosemary Hewlett, Dagný Hannesdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Í miðröð frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Ása Jóhannsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Ian Wilkinson. Aftasta röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Bjarnason og Gylfi Sigurðsson. Myndin var líklega tekin kringum 1995.
Ólafur Bernódusson 682
Ritnefnd Húnavökuritsins kynnir Húnavökuna 2001 í júní það ár í Kántrýbæ. Frá vinstri: Páll Ingþór Kristinsson, Magnús B. Jónsson, Stefán Á. Jónsson (d.29.6.2009) ritstjóri og Ingibergur Guðmundsson. Lengst til hægri er Björgvin Þórhallsson sem var formaður USAH á þessum tíma en ekki í ritnefndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 918
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er lengst til vinstri á þessari mynd og Guðrún Árnadóttir (d.?) er á milli hans og óþekkts manns. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 í Djúpavík. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sednu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 043
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 skemmta með söng og spili. Lengst til hægri, með gítar, er Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk. Næst henni er Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti en aðrar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 901
Fólkið á myndinni er óþekkt og líka hvar og hvenær hún var tekin. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók hana þannig að sennilega hefur hún verið tekin á Djúpuvík.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn059
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þessi mynd var tekin af nokkrum konum í eldhúsinu í Fellsborg að undirbúa kvöldverð og skemmtikvöld sem þær héldu í hópnum. Frá vinstri eru: Guðrún Magnúsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir en hinar eru óþekktar nema konan í rauðu peysunni er Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 174
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Myndin var tekin af Hebba 28. september 2000 á áttræðisafmælinu hans. Þarna er hann á uppáhaldsstaðnum sínum seinni árin þ.e. í Grasagarðinum í Laugardalnum í Reykjavík.
Adolf H Berndsen - safn090
Landsendarétt stóð við Landsenda, sem er nyrsti endi Spákonufellshöfða, eða á sjávarbakkanum skammt norðan við Réttarholt. Eins og sjá má var meginhluti réttarinnar hlaðinn úr grjóti og enn (í júní 2017) má sjá leifar réttarinnar sem er löngu aflögð sem slík.
Ólafur Bernódusson 614
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Sigurbjörgu Birtu Berndsen eftir að hún hefur lokið píanóleik sínum,.
Adolf H Berndsen - safn071
Sigurður Sölvason (d.24.9.1968) kaupmaðu í versluninni Borg á Skagaströnd við skrifborðið sitt. Verslunin var í litlu húsi sem stóð rétt norðan við stóru mjölskemmuna en hefur nú verið rifið. Ekki er vitað hvenær þessi mynd af Sigga Sölva var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn109
Sigurvegarar í sínum flokkum á golfmóti á Háagerðisvelli 7. júlí 1996. Frá vinstri: Guðmundur Kristinsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 062
Þessir bræður voru heiðraðir á sjómannadegi á Skagaströnd 1995. Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) til vinstri og Kristján Arinbjörn Hjartarson (d.2.8.2003) til hægri. Báðir stunduðu þeir sjómennsku og almenna verkamannavinnu ásamt ýmsu öðru á lífsleiðinni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn101
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli 11. júlí 1994. Frá vinstri: Hendrik Berndsen, Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) og Steindór Haraldsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 037
Námsmeyjar í kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 á tröppunum á íþróttahúsinu - skólanum - á Blönduósi ásamt íþróttakennaranum Axel ?. Lengst til vinstri er Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk og standandi fjórða frá vinstri er Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 667
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. á myndinni eru Sigríður Gestsdóttir til vinstri og Elín Líndal til hægri.
1
…
134
135
136
…
167
Leita í myndasafninu
Leita