Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Dagný Sigmarsdóttir - safn 064
Tveir af starfsmönnum Rækjuvinnslunnar hf. Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 810
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af þórhildi Jakobsdóttur en hún lék á harmóniku í sýningunni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn135
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Linda Kristjánsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 065
Hér er fólk að velja sér tjaldstæði við þjóðveg 1 fyrir ofan Höfn í Hornafirði. Fólkið var á ferðalagi með Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf árið 1974. Fremst á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997). Aðrir á myndinni eru óþekktir.<br>
Guðrún Sigurðardóttir - safn 022
Jón Sigurðsson (d.26.7.1967). Jón var sonur Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) og Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) í Þórsmörk en alinn upp í Broddanesi hjá Guðbjörgu systur Hallbjargar.
Hallgrímur Kristmundsson safn059
Fjórir félagar í sparigallanum við innsiglingavörðuna á Hólanesinu. Húsið til hægri er Bjarmanes (Gamli skólinn). Mennirnir eru frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), óþekktur, Birgir Árnason (d.2.2.2005) og Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 884
Þessi mynd var tekin í Djúpuvík í Reykjarfirði líklega einhverntíma kringum 1940. Maðurinn á myndinni er óþekktur en er sennilega einn af síldarspekúlöntunum eða einhver sem tengist síldarvinnslu á einhvern hátt. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Hjördís Sigurðardóttir - safn089
Það lá vel á körlunum við þökulagningu á flötinni á 4. braut á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Ólafsson og Adolf H. Berndsen.
Ólafur Bernódusson657
Hljómsveitin Janus kemur fram í samkomutjaldinu á Kántrýdögum 13. ágúst 2010. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Þórarinn Grétarsson, Þorvaldur Skaftason, Kristján Blöndal, Hjörtur Guðbjartsson og Guðmundur Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 96
Þessi tvö börn eru úr stórum systkinahópi þeirra Þorbjörns Jónssonar (d.2.9.1986) og Aðalbjargar Sigurðardóttur (d.10.12.2015) sem bjuggu í Akurgerði (Hólabraut 9). Ekki er vitað hvað börnin heita.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 085
Frænkurnar Sigrún Kristófersdóttir til vinstri og Vala Rós Ingvarsdóttir til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 004
Systurnar Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Þórey Jónsdóttir til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1966 en græna húsið í baksýn er Brautarholt.
Jón Jónsson 472
Fjölskyldan í Réttarholti og gestir. Aftari röð: Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008), Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017) kona hans vinstra megin en Sigurður Ísólfsson og óþekkt kona hans hægra megin. Lengst til hægri er Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988). Framar standa frá vinstri Erla Björg og Vilborg Másdætur. Myndin var tekin við Réttarholt sumarið 1972.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 016
Nokkur hópur fólks frá Skagaströnd fór í skemmtiferð, líklega í Vaglaskóg, kringum 1950. Á þessari mynd er Ásdís Pálsdóttir búin að klifra upp í tré en Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) styður við hana.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 157
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 2001. Frændsystkinin Anna Sjöfn Jónasdóttir og Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) spjalla saman. Milli þeirra er móðir Önnu, Þórunn Bernódusdóttir en í kerrunni er sonur Önnu, Bernódus Óli Einarsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 020
Þessi mynd var tekin í skemmtiferð, líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Á henni eru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti og Vilborg Jónsdóttir (d.?) Stóra -Bergi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn072
Mynd tekin heima á Karlsskála. Systurnar Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) til vinstri og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1986) til hægri með barnahóp. Börnin eru frá vinstri: Karl Berndsen (d.28.1.2020), Hendrik Berndsen, Laufey Berndsen og Guðrún Björg Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 579
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 3. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Jóhannes Sigurpálsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Valgerður Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Auður Eva Guðbjargardóttir, Tryggvi Fjölnisson Arnrún Ösp Guðjónsdóttir og Sigurður Aron Björnsson.
Ólafur Bernódusson 651
Árið 2006 var piparkökudagurinn var haldinn í Barnabóli 21.desember. Á þessari mynd eru hjónin Þórunn Ævarsdóttir og Björn Sigurðsson með syni sína þá Sindra til vinstri og Sigurð Aron til hægri á milli sín. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn054
Myndin var tekin á Hveravöllum 1994 af gestum frá Finnlandi á vinabæjarmóti á Skagaströnd. Frá vinstri: hjónin Matti og Aila Saarinen og svo gestgjafarnir og hjónin Adolf H. Berndsen og Dagný Sigmarsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn062
Fólkið á þessari mynd er óþekkt en aftan á henni stendur:" Herra Carl Berentsen ! Með þöck fyrir þófann sem því miður varð eftir á Þingeyrum hjá Jóni Pálmasyni, og ekki síður fyrir góða viðkynningu". Gaman væri að fá upplýsingar um fólkið á myndinni þannig að ef þú veist eitthvað um það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 012
Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það hefur sennilega verið við gamla bæinn í Höfðahólum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri og svo kemur Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001)með börnin sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Guðríður Gígja Axelsdóttir er í fangi móður sinnar, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) er í röndóttri peysu og Óskar Axelsson er lengst til hægri. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54.
Ólafur Bernódusson 611
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Haraldi Guðjónssyni eftir að hann hefur lokið leik sínum á píanóinu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn057
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál. Þessi mynd var tekin á skemmtikvöldi félagsins í Kántrýbæ þar sem mökum kvennanna var boðin þátttaka. Söngvararnir á myndinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Hallbjörg Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Kristjana Jóhannsdóttir og Guðlaugur Hjaltason. Við hljómborðið á sviðinu situr Elías Árnason en við borðsendann situr Jökulrós Grímsdóttir.
Ólafur Bernódusson706
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd eru leikstjórinn Bryndís Petra Bragadóttir og leikararnir Bragi Sigurðarson til vinstri og Steindór Haraldsson til hægri að fra yfir athugasemdir eftir æfingu.
Adolf H Berndsen - safn044
Þetta hús hét Brautarholt. Brautarholt stóð vestan í hólnum sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Maðurinn framan við húsið er Ólafur Guðmundsson (d.16.10.1985) en hann bjó þar blindur síðustu æviár sín.
Adolf H Berndsen - safn106
Þessir tveir kylfingar eru heiðurfélagar í Golfklúbbi Skagastrandar. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013). Myndin var tekin í Kántrýbæ á 25 ára afmæli klúbbsins árið 2010.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 016
Systkinin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson (d.26.7.1967) nálægt Broddanesi á Ströndum þar sem Jón var alinn upp. Myndin var tekin einhvertíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 058
Þessi mynd var tekin sumarið 1964 af Jóni Sigurðssyni (d.26.7.1967) með lítinn óþekktan dreng með sér á heyvagni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Viningslið í róðri á Sjómannadegi. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Lilja Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn062
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Konurnar héldu veislu og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg á þrettándanum 2003. Á myndinni er kvöldverðinum að ljúka og skemmtiatriðin um það bil að hefjast. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Elva Þórisdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir og Ásta Ásgeirsdóttir. Hægra megin frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Björk Hlöðversdóttir og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir. Við enda hins borðsins sér í Dagbjörtu Bæringsdóttur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn058
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál. Þessi mynd var tekin á skemmtikvöldi félagsins í Kántrýbæ þar sem mökum kvennanna var boðin þátttaka. Vinstra megin við borðið er óþekkt kona og óþekktur maður en fyrir innan þau er Steinunn Friðriksdóttir. Hægra megin við borðið eru frá hægri: Jökulrós Grímsdóttir, Sigurjón Ástmarsson, Gunnlaugur Sigmarsson, þrjár óþekktar persónur og Eygló Guðbjartsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson695
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru krakkar úr mörgum bekkjum að syngja. Krakkarnir eru frá vinstri: Standandi: Elín Ósk Björnsdóttir, óþekkt, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, óþekkt, Rebekka Róbertsdóttir, Guðmann Magnússon, Sveinn Hallgrímsson, Ísak Tryggvason, Páll Halldórsson og óþekkt. Sitjandi frá vinstri: Arnrún Guðjónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir og Tryggvi Fjölnisson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn024
Birna Lúkasardóttir býður gestum ískalt brennivínsstaup við komuna á þorrablót á Blönduósi 27. janúar 1996.
Hjördís Sigurðardóttir - safn112
Fjör í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlílok 1996. Frá vinstri: Helga Berndsen, Sverrir Brynjar Berndsen, Laufey Berndsen, Guðrún Björg Berndsen og Þórunn Óladóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn054 - Copy
Sungið og spilað í Kántrýbæ 2. október 2004. Tilefni gleðinnar er óþekkt en skemmtikraftarnir á myndinni eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Dagný Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Hjörtur Guðbjartsson,
Guðrún Sigurðardóttir - safn 067
Vinahópur á tröppunum á Bogabraut 14. Frá vinstri: Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Jóney Gylfadóttir. Myndin var tekin kringum 1980.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 059
Jón Ólafur Sigurjónsson er hér í góðum höndum þeirra Sigríðar Bjarkar Sveinsdóttur til vinstri og Bryndísar Guðjónsdóttur á sólríkum degi. Myndin hefur sennilega verið tekin 1979 eða 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 960
Á þessari mynd er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) lengst til vinstri. Hún sendi móður sinni, Þórunni Samsonardóttur (d.11.10.1986) myndina og skrifaði aftan á hana:" Mamma herna serðu fagra mind af okkur Stellu og ungum manni hún er nú ekki góð af mer því nefið á mer er utá annari kynn, frá Boggu. á engra fyrir hebba og pabba". Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 578
Fólk fylgist með áramótabrennunni 2006. Frá vinstri: Signý Richter, María Guðrún Guðmundsdóttir, Ingibergur Guðmundsson leiðir dóttur sína Laufey Lind, óþekkt kona og Þorlákur Guðjónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn350
Óðinn Örn Gunnarsson í útivist í Barnabóli 2008 - 2009.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 001
Fólk á ferðalagi líklega kringum 1945. Maðurinn lengst til vinstri er Högni Sigurðsson (d.?), sem var maður Jakóbínu Pálsdóttur (d.?) frá Bakka. Næst koma hjónin frá Jaðri, Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Björn Sigurðsson (d.15.10.1999) en lengst til hægri er óþekktur maður. Björn styður hönd á höfuð syni sínum, Sigurði Björnssyni. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn048
Ekki er vitað um tilefni að töku þessarar myndar en það gæti hafa verið barnaafmæli einhverntíma kringum 1964. Í fremri röð eru frá vinstri: Laufey Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Unnur Gunnarsdóttir, Baldur Hannesson og Adolf H. Berndsen. Í aftari röð frá vinstri: Brynja Axelsdóttir, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Ester Axelsdóttir?, Anna Hannesdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 768
Tveir heiðursmenn í þungum þönkum er þeir tylltu sér niður í Söluskálanum á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson fyrrverandi sveitarstjóri á Skagaströnd til vinstri og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn og fyrrverandi oddviti Skagahrepps til hægri.
Jón Jónsson 487
Hátíðahöld vegna 100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974. Ekki er vitað hvar myndin var tekin,?Húnaver?, Kirkjuhvammur? . Ef þú veist hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 605
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af nafnlausri hljómsveit sem lék á tónleikunum. Lengst til vinstri stendur Benedikt Blöndal kennari en framan við hann situr Ernst Guðni Hólmgeirsson og spilar á bassa. Páll Halldórsson leikur á trommur, Elías Gunnar Hafþórsson handleikur gítar, Aron Breki Hjartarson blæs í saxófón en píanóleikarinn er Sigurbjörg Birta Berndsen.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 021
Þessi mynd var tekin í skemmtiferð líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Á henni eru frá vinstri: Ásdís Pálsdóttir Breiðabliki, Anna H. Aspar (d.1.9.1999) í Stórholti og Guðný Pálsdóttir (d.?) Breiðabliki.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn064
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Þetta frétti Kertasníkir á leið sinni aftur í fjöllin og hann gat ekki stillt sig um að kíkja við hjá konunum. Við borðið lengst til vinstri eru frá vinstri: Kristjana Jóhannsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Milli Hjálmfríðar og Sólrúnar sér í Báru Þorvaldsdóttur. Hægra megin við Kertasníki eru frá vinstri: óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Helga Ólína Aradóttir, Elva Þórisdóttir, Björk Hlöðversdóttir, óþekkt og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir.
Elínborg Jónsdóttir - safn 16
Texti með þessari mynd segir:"Guðrún". Líklega er þetta Guðrún Halldórsdóttir (d.2.5.2012) forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, kennari og alþingismaður. Hún var mikil vinkona Elínborgar M. Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara og fræðimanns frá Másstöðum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 118
Myndin var tekin þegar Arnar Hu 1 kom í heimahöfn 15. október 1973 eftir siglingu frá Japan, þar sem hann var smíðaður. Fólki var boðið um borð að skoða og þiggja veitingar. Lengst til vinstri má þekkja Gissur Jóhannsson með sítt hár og framan við hann er lítill frændi hans, Arnar Arnarsson. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er í dökkum jakka og hvítri rúllukragapeysu en framan við hann, í smekkbuxum, er sonur hans Þórarinn Brynjar Ingvarsson. Til hægri er Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og horfir út úr myndinni til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson672
Viggó Brynjólfssyni er margt vel gefið. Eitt af því er mikil tónlistargáfa. Á myndinni, sem tekin var 31. júlí 2010, heldur hann á geisladiskinum "Viggó B. í tónum", sem hann gaf út. Þar spilar hann á harmoniku þekkt og óþekkt lög með aðstoð Fannars sonar síns á bassa og gítar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn052
Systkinin frá Þórsmörk á Skagaströnd við leiði Jóns B. Sigurðssonar (d.26.7.1967) bróður þeirra í kirkjugarðinum á Kollafjarðarnesi. Krjúpandi eru: Gylfi Sigurðsson og Hjördís Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Guðrún Sigurðardóttir, Árni Ólafur Sigurðsson og Reynir Sigurðsson. Myndin var tekin 4. júlí 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 102
Um borð í mb Sæljóni Re 317 á netaveiðum 1960. Á myndinni er verið að leggja netin og bogni maðurinn er að henda út steinunum jafn óðum. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 936
Maðurinn á myndinni er óþekktur en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 64
Sigrún Jónsdóttir
Hjördís Sigurðardóttir - safn114
Í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlílok 1996. Hjónin Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018). Börnin á myndinni eru óþekkt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn102
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli 25. júlí 1994. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Guðmundur Kristinsson.
Ólafur Bernódusson 644
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slaka nokkrir strákar á eftir að kynningum var lokið og gestum farið að fækka. Frá vinstri: Kristmar Ragnarsson, Arnar Páll Guðjónsson og Ingvar Hallgrímsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 049
Brunaæfing í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960. Námsmeyjar látnar síga niður af þriðju hæð í kaðli.
1
…
135
136
137
…
167
Leita í myndasafninu
Leita