Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn114
Í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlílok 1996. Hjónin Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018). Börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 652
Guðlaug Grétarsdóttir skreytir piparkökur með dætrum sínum þeim Guðrúnu Rós Hjaltadóttur til vinstri og Lilju Dögg Hjaltadóttur til hægri í Barnabóli á piparkökudaginn 21. desember 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Ólafur Bernódusson 644
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slaka nokkrir strákar á eftir að kynningum var lokið og gestum farið að fækka. Frá vinstri: Kristmar Ragnarsson, Arnar Páll Guðjónsson og Ingvar Hallgrímsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 049
Brunaæfing í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960. Námsmeyjar látnar síga niður af þriðju hæð í kaðli.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 74
Guðbjörg Gylfadóttir á ferðalagi, líklega kringum 1980.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 010
Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) mátar sig í hnakkinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum fyrir utan bæinn á Höfðahólum.
Barnaból - safn364
Ísabella Líf Tryggvadóttir að leira í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 588
Áramótin 2008 - 2009 var þétt logndrífa á Skagaströnd. Fólk lét það ekki á sig fá en mætti með kyndlana sína í gönguna að áramóta-bálkestinum þar sem kyndlarnir voru notaðir til að kveikja í brennunni.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 014
Ingvar Þór Jónsson í vörubílaakstri fyrir utan heimili sitt að Bogabraut 14. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 162
Frændurnir Heiðar Elvan Friðriksson til vinstri og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Myndin var tekin 7. maí 1968 á ljósmyndastofu Lofts í Reykjavík.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 011
Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri með tvo hesta.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 046
Adolf J. Berndsen heldur á afastrák í Kálfshamarsvíkinni líklega Sverri Brynjari Berndsen.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 075
Þetta prúðbúna fólk er frá vinstri: hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015) og Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) frá Akurgerði og Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, systir Aðalbjargar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 029
Félagarnir Gunnar Lárusson (d.14.2.2016) frá Garðshorni í Kálfshamarsvík til vinstri og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) Skagaströnd til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 969
Vinnuflokkur á Djúpavík líklega að vinna að byggingu síldarverksmiðunnar þar 1934 - 1935. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Lengst til hægri í aftari röð er Þórarinn Eiríksson á Finnbogastöðum. Í fremri röð númer 5 er Bernharð Andrésson Norðurfirði, nr. 6 Benedikt Valgeirsson Árnesi, nr. 8 Jón Guðmundsson Stóru-Ávík og maðurinn lengst til hægri í fremri röð er Sveinn Guðmundsson í Djúpuvík.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 066
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 127
Mynd tekin í Reykjarfirði syðri á Ströndum. Konan er Unnur ?? og maðurinn er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940. <br>
Guðrún Sigurðardóttir - safn 006
Guðrún Guðbjörnsdóttir
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn069
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Á þessari mynd er Helga Bergsdóttir að skemmta sér.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn056 - Copy
Hjónin Sigurlaug Hermannsdóttir og Hlynur Tryggvason skemmta sér á Kántrýbæ 2. október 2004
Árni Geir Ingvarsson - safn 816
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: William Sillar, Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Bóel Hallgrímsdóttir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 030
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) frá Þórsmörk fyrir utan heimili sitt með fallegan hrút. Siggi Mona, eins og hann var kallaður, átti nokkrar kindur í kofa lóðinni hjá sér eins og svo margir aðrir Skagstrendingar á sínum tíma. Myndin hefur líklega verið tekin á sjötta áratugnum.
Barnaból - safn394
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni fylgjast krakkarnir með leikskólakrökkum syngja. Frá vinstri á myndinni: Sæþór Ágústsson, Guðmundur Árnason, Kristmar Ingi Ragnarsson, Aron Fannarsson, Róbert Ingvarsson og Elvar Geir Ágústsson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 110
Þessi mynd var tekin á pallinum við Stórholt (Bankastræti 3) líklega 1954 eða 1955. Barnið á henni er Kristján Helgi Gunnarsson sem ólst upp á neðri hæðinni í Stórholti.
Jón Jónsson 461
Sjómannadagur á köldu vori því sjá má nokkra litla ísjaka í höfninni. Bjarni Loftsson (d.?) er ræðarinn í miðjunni. Næst fremstur er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) en fremstur er ?Sveinn Ingólfsson? Aðrir eru óþekktir. Bátarnir í baksýn eru Stígandi Hu 9 til vinstri og Ósk Hu 33 til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 027
Heyskapur á Brúarlandstúninu. Hjónin Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987) frá Þórmörk fá hjálp frá Ólöfu J. Árnadóttur (d.11.5.1973)(Lóu á Bakkanum) í Gunnarshólma sem er á milli þeirra hjóna. Barnið í flekknum er Marías Bjarni Viggósson sonur Lóu. Húsið, sem sést á milli Sigurðar og Lóu, er Efri-Lækur sem nú er löngu horfinn. Myndin var tekin 1960.
Ingibergur Guðmundsson 119
Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) í apríl 1986.
Jósef H Sigurðsson - safn 001
Jósep Hjálmar Sigurðsson úr Hólaneshúsinu.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 087
Angantýr Jónason (d.28.71983) skáld og verkamaður. Angantýr var sonur skáldkonunnar Guðrúnar frá Lundi (d.22.8.1975)(Guðrún Árnadóttir) en hann gaf út tvær ljóðabækur og kvæði eftir hann birtust í blöðum og tímaritum.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 016
Systkinin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson (d.26.7.1967) nálægt Broddanesi á Ströndum þar sem Jón var alinn upp. Myndin var tekin einhvertíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 102
Um borð í mb Sæljóni Re 317 á netaveiðum 1960. Á myndinni er verið að leggja netin og bogni maðurinn er að henda út steinunum jafn óðum. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 78
Í skemmtiferð á vegum Hólaness hf líklega kringum 1980. Aftast er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Magnús Jónsson til vinstri, Ottó Ákason (d. 17.9.2005) til hægri og Hlíf Sveinbjörnsdóttir kona Magnúsar lengst til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 058
Þessi mynd var tekin sumarið 1964 af Jóni Sigurðssyni (d.26.7.1967) með lítinn óþekktan dreng með sér á heyvagni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 954
Djúpavík á velmektardögum sínum 1940. Prúðbúið fólk á ferð á hátíðardegi. Húsið hægra megin á myndinni var "Kvennabragginn" sem hýsti stúlkurnar sem unnu við síldarsöltun á Djúpavík. Í húsinu er nú rekið Hótel Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 107
Kátir karlar frá Skagaströnd sumarið 1964. Neðst er Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) frá Vík, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka er í miðjunni og Árni Björn Ingvarsson í Sólheimum er efstur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 111
Jóhannes Sveinsson í september 2002 í bílskúrnum að Fellsbraut 15.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 057
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) frá Ægissíðu spilar á harmoniku 1967.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn028
Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Valgerður Guðmundsdóttir og Arnór Gíslason í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Ólafur Bernódusson 668
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni er Þorbjörg Bjarnadóttir starfsstúlka greiðslustofu ásamt manni sínum Búa Þór Birgissyni (d.18.9.2009).
Barnaból - safn386
Ísabella Líf Tryggvadóttir einbeitt í leikskólanum Barnabóli 23. febrúar 2009.
Hjördís Sigurðardóttir - safn108
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) með húfu afhendir Stefáni Kristinssyni (d.19.5.2011) verðlaun fyrir golleik á Háagerðisvelli í júlí 1996. Vinstra megin við Stefán sér í Önnu Ármannsdóttur. Á milli þeirra félaga er Rolf Árnason (d.3.6.2014) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 158
Bernódus Óli Einarsson með mömmu sinni á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 60
Ekki er vitað um tilefni samsætisins á myndinni. Myndin, sem var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd, var líklega tekin seint á áttunda áratugnum eitthvað í tengslum við hestamennsku. Greinilega var ekkert kynslóðabil í samkvæminu og dansinn stiginn af hjartans list. Á myndinni eru frá vinstri: þrjú óþekkt, Gunnar Tryggvi Ómarsson, Gunnar Sveinsson bak við Gunnar Tryggva, Jóhannes Sveinsson, Ásta Ásgeirsdóttir og Salóme Rúnarsdóttir að dansa en yfir höfuð Salóme sér í Jón Gunnar Jósefsson. Lengst til hægri dansa Þorvaldur Skaftason og Kristín Sigurðardóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 081
À tessari mynd er Sigurbjörg Jònasdòttir með tvíburadætur dòttur sinnar Jôhönnu Jònasdòttur, Guðrúnu Angantýsdóttur og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d.10.9.1997). Ekki er vitað hvor stúlknanna er hver.
Barnaból - safn344
Sóley Sif Jónsdóttir einbeitt við að byggja í Barnabóli 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 601
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Arnrúnu Ösp Guðjónsdóttur einbeittri að spila á harmóniku.
Guðrún Guðbjörnsdóttir116
Beitingamenn í skúrnum að beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016. Lengst til vinstri er Jóhann Ásgeirsson að beita. Gylfi Sigurðsson bíður meðan Damian Lukasz Kacica losar þorsk af línunni svo hægt sé að halda áfram að beita.
Adolf H Berndsen - safn097
Ungir golfarar á Háagerðisvelli. Á myndinni eru frændurnir, frá vinstri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sverrir Brynjar Berndsen og Davíð Bragi Björgvinsson. Myndin var tekin sumarið 1994.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 146
Þessi kona er óþekkt (?Jóninna Pálsdóttir??) með óþekkt barn í fanginu. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn078
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru þær í "strætisvagni" í Hrísey. Strætóinn er í raun heyvagn með bekkjum dregin af dráttarvél. Frá vinstri: óþekkt, Hildur Ingólfsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Dagný Úlfarsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir117
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri, beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn081
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Í slíkum ferðum þarf oft að taka þátt í ýmsum skrítnum uppátækjum. Á þessari mynd eru þær Þorbjörg Magnúsdóttir til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttir til hægri að dorga með heimatilbúnum færum sem búin voru til á staðnum út í Hrísey. Ekki fer neinum sögum af aflanum.
Ólafur Bernódusson 662
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru þrjár af nýráðnum starfstúlkum. Frá vinstri: Kristín Leifsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Eva Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 152
Þessar ungu stúlkur, Kristín Gerður Óladóttir til vinstri og Sylvía Ósk Hrólfsdóttir til hægri, búnar að búa sig fyrir diskótek í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenæar myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2005.
Elínborg Jónsdóttir - safn 10
Fjölskyldan á Másstöðum í Vatnsdal. Fremst er Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Foreldrar hennar eru aftar, Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) og Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977). Drengurinn á milli þeirra er líklega uppeldisbróðir Elínborgar, Þorsteinn Guðmundsson (d.22.2.1999), sem þau hjón ólu upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1003
Gréta Ingvarsdóttir
Ingibergur Guðmundsson 149
Skemmtisigling á sjómannadegi er ómissandi hluti hátíðahaldanna á Skagaströnd og nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Ólafur Magnússon Hu 54 úr einni slíkri siglingu í renniblíðu með fullan bát af glöðu fólki. Myndina tók Ingibergur Guðmundsson á sjómannadaginn árið 2000.
Adolf H Berndsen - safn084
Áslaug Hafsteinsdóttir við vinnu sína á símstöðinni. Símstöðin virkaði svipað og skiptiborð í stóru fyrirtæki. Hringt var í símstöðina og beðið um ákveðið númer eða heimili. Stúlkan, Áslaug, gaf síðan samband með því að tengja númerin saman. Símastöðin var opin frá morgni til kvölds en ekki var þjónusta á nóttunni. Einnig var hægt að koma á símstöðina og panta símtöl, t.d. út úr bænum, og fara síðan inn í annan af tveimur símaklefum, sem voru á staðnum, og taka samtalið þar. Símstöðin var staðsett í Bogabraut 10 þar sem nú (2020) er tónlistarskóli A-Hún.
Ingibergur Guðmundsson 243
Rolf Fougner Árnason (d. 3.6.2014) við vinnu sína sem byggingatæknifræðingur hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
1
…
136
137
138
…
167
Leita í myndasafninu
Leita