Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 816
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: William Sillar, Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Bóel Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 660
Kennarar og starfsfólk Höfðaskóla hittast gjarnan kvöldstund til að halda upp á lok skólaársins einhverntíma í lok maí. Þá leika þessir aðila sér og grínast á margvíslegan hátt m.a. stundum með því að klæðast einhverjum búningum og fara í ýmsa partýleiki. Þessi mynd var tekin vorið 2007 af borðhaldinu í Bjarmnesi. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir, Herdís Baldvinsdóttir, Ágúst Ingi Ágústsson, Hildur Ingólfsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Heiðrún Tryggvadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 175
Kristbjörg Una Guðmundsdóttir á sólríkum fermingardegi sínum vorið 2001.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 086
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir.
Elínborg Jónsdóttir - safn 18
Myndin er af óþekktu fólki í náttúrulegri laug. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn053
Hjónin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) (Daddi).
Árni Geir Ingvarsson - safn 905
Óþekktar konur á Djúpuvík líklega einhverntíma á fimmta áratugnum. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 088
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Angantýr Jónsson (d.28.7.1983).
Árni Geir Ingvarsson - safn 858
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fjórum óþekktum blómarósum sem sóttu þennan viðburð.
Adolf H Berndsen - safn067
Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri á Skagaströnd 1972 - 1985 á skrifstofunni sinni í Fellsborg.
Adolf H Berndsen - safn059
Þessi börn eru systkini, börn Gísla Ísleifssonar (d.9.9.1932) sýslumanns Húnavatnssýslu 1897-1912 og konu hans Lucinde Jóhannsdóttir Möller (d.28.4.1927). Aftan á myndinni stendur:" Dætur Gísla Ísleifssonar sýslum. dóu allar ungar úr berklum. Sonurinn lifði og á afkomendur í Reykjavík". Nöfn barnanna eru óþekkt.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn069
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Á þessari mynd er Helga Bergsdóttir að skemmta sér.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn056 - Copy
Hjónin Sigurlaug Hermannsdóttir og Hlynur Tryggvason skemmta sér á Kántrýbæ 2. október 2004
Adolf H Berndsen - safn 092
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru nokkrir áhafnarmeðlimir togarans ásamt mökum. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, óþekktur, Hlíf Sigurðardóttir, Gylfi Guðjónsson (fjær), óþekktur og Magnús B. Jónsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson (fjær), óþekkt og Sævar Hallgrímsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn088
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru konurnar að borða á óþekktum veitingastað. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og tvær óþekktar. Hægra megin eru: óþekkt, Helga Bergsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir og Helga Ólína Aradóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 42
Guðbjörg Gylfadóttir er sennilega sá íþróttamaður frá Skagaströnd sem hefur náð lengst. Keppnisgrein hennar var kúluvarp en Íslandsmet hennar - 16,33 metrar var sett á móti í Bandaríkjunum 17.5. 1992. Metið stendur enn 2017. Guðbjörg var líka mjög liðtæk í öðrum kastgreinum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 23
Myndin af þessum peysufatakonum var tekin við Másstaði í Vatnsdal, líklega kringum 1940. Lengst til vinstri er Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) en hún fæddist og ólst upp á Másstöðum. Hinar konurnar eru óþekktar en Elínborg átti þrjár eldri hálfsystur samfeðra; Þorbjörgu, Guðrúnu og Oddný og má leiða líkur að því að konurnar á myndinni séu þær systur. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 046
Þessi mynd var tekin í pásu í Rækjuvinnslunni hf. Mennirnir tveir til vinstri komu frá fyrrum Júgóslavíu en nöfn þeirra eru ókunn. Hjá þeim situr Þráinn Bessi Gunnarsson. Ef þú þekkir mennina tvo vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn091
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru nokkrar konur að fá sér drykk eftir matinn. Frá vinstri: Vigdís Ósk Ómarsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Elva Þórisdóttir.
Elínborg Jónsdóttir - safn 32
Þessi mynd var tekin undir bæjarveggnum á Másstöðum í Vatnsdal af heimilisfólkinu þar. Maðurinn með hattinn er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi þar og við hlið hans, með skotthúfu eru kona hans Halldóra Gestsdóttir (d. 17.9.1977) og dóttir þeirra Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) hallar sér upp að móður sinni. Aðrir á myndinni eru óþekktir en Jón bóndi átti þrjár dætur og einn son af fyrra hjónabandi þannig að líkum má leiða að því að þetta sé það fólk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 236
Félagsstarf aldraðra á Skagaströnd var um tíma í Höfðaskóla og þar var þessi mynd tekin. Ekki er vitað hvenær það var en á myndinni eru vinstra megin við borðið: Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og Guðrún Guðmundsdóttir leiðbeinandi fólksins. Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Guðný Finnsdóttir.
Ólafur Bernódusson 687
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Þessi mynd er af Óla Axel Óskarssyni björgunarsveitarmanni þar sem hann bíður skipsins með börgunarsveitarbílinn tilbúinn til að flytja duflið á eyðingarstað.
Barnaból - safn403
Andri Már Gunnarsson til vinstri og Mikael Örn Benjamínsson til hægri að byggja í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 140
Ragnar Smári Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1965.
Barnaból - safn390
Myndin var tekin 28. nóvember 2008 á lóð leikskólans Barnabóls. Óðinn Örn Gunnarsson er strákurinn í bláa snjógallanum en aftan við hann er Freyja Dís Jóhannsdóttir aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 634
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd eru frá vinstri: Alma Vignisdóttir, Saga Lind Víðisdóttir og Erna Björgvinsdóttir að kynna verk síns hóps.
Ingibergur Guðmundsson 114
Jónína Valdimarsdóttir til vinstri og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) hægra megin í 85 ára afmælisveislu Láru Kristjánsdóttur (d.6.9.1993) 6. apríl 1986.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 062
Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987) frá Þórsmörk með hluta barnabarna sinna. Þau eru frá vinstri: Sigurður Berndsen (nær), Aðalheiður Árnadóttir (fjær), Elva Dröfn Árnadóttir í fangi ömmu sinnar, Halla Kristín Árnadóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Jóney Gylfadóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1981.
Ingibergur Guðmundsson 254
Róbert Gunnarsson málar um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1989. Róbert var hluti af hópi unglinga sem fengin voru til að ryðberja og mála togarann ofandekks undir verkstjórn fullorðinna.
Barnaból - safn346
Stefanía Hrund Stefánsdóttir púslar í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Ingibergur Guðmundsson 188
Þessi mynd var tekin 17. júní 1985 fyrir utan Fellsborg eftir víðavangshlaup umf. Fram. Upp við vegginn standa frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Heimir Sigurbjörnsson, Rúnar Loftsson, tvö óþekkt börn og Lárus Ægir Guðmundsson. Sitjandi lengst til vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Ægir Jónsson, Hans Birgir Högnason, Jón Arnarson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000) og Kristjana Jónsdóttir með óþekkt barn í fanginu. Sigfús Jónsson situr til hægri í stuttbuxum en framan við hann í blárri úlpu er Reynir Lýðsson. Hvítklædd er Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir en aftan við hana með fléttur er Soffía Lárusdóttir og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir í hvítum skóm. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 603
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Freydísi Kristjánsdóttur að spila á þverflautu. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennari spilar undir á píanóið.
Adolf H Berndsen - safn 041
Á myndinni eru félagar úr Badmintonklúbbi Skagastrandar að gera sér glaðan dag í Kántrýbæ að vori til eftir starfsemi vetrarins. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Guðmundur J. Björnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Hafþór S. Gylfason, Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) og Hafþór F. Sigmundsson. Myndin var tekin á tíunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 906
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er á myndinni með óþekktri vinkonu sinni. Myndin hefur líklega verið tekin í Kúvíkum við Reykjarfjörð syðri. Ekki er vitað hvenær en Herbert var fæddur 1920.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 124
Kardimommubærinn var settur upp í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Þessi mynd er úr leikritinu. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Guðlaugur Hjaltason, Jóney Gylfadóttir, Jensína Lýðsdóttir, Steindór R. Haraldsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Ingólfur Bjarnason og Rúnar Jóhannsson.
Barnaból - safn348
Leikur í Barnabóli 2008 - 2009. Frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Óðinn Örn Gunnarsson, Mikael Örn Benjamínsson, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir og tvö óþekkt börn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 132
Aftan á þessari mynd stendur að þetta sé Sveinssína í Kjós. Hér er að öllum líkindum um að ræða Sveinssínu Ágústsdóttur (d.3.11.1987) frá Kjós í Reykjarfirði á Ströndum.
Adolf H Berndsen - safn050
Undirbúningur fyrir 17. júní hátíðahöld í fullum gangi. Kennararnir Ólafur Bernódusson með bindi og Ingibergur Guðmundsson með bláa húfu fara yfir málin með hópi krakka úr Höfðaskóla. Lengst til hægri á sviðinu er Guðný Sigurðardóttir sem var kynnir á 17. júní skemmtuninni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 984
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) laumar aukabita í heimilishestinn sinn í Djúpavík í Reykjarfirði. Sonur Þórunnar, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina sennilega í kringum 1940. Þau mæðgin fluttu síðar til Skagastrandar einhverntíma kringum 1950 og bjuggu saman þar, lengst á Akri eða Hólabraut 13.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 010
Sigurður Árnason (d.26.3.2013) tekur lagið á harmoniku um borð í Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 146
Þessi kona er óþekkt (?Jóninna Pálsdóttir??) með óþekkt barn í fanginu. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 774
Gunnar Sveinsson til vinstri og Þröstur Líndal Gylfason til hægri við kaffiborðið í áhaldahúsinu 20. nóvember 2002.
Ingibergur Guðmundsson 177
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessari fjölskyldu en sennilega hefur það verið við fermingu Hallgríms. Frá vinstri: Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Fjóla Björk Karlsdóttir, Hallgrímur Örn Karlsson og Karl Guðmundsson.
Jón Jónsson 452
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin. Konan í gulu peysunni er óþekkt en til hægri er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016).
Barnaból - safn339
Hér fær Ásgeir Sigmar Björnsson hjálp frá vini við að borða makkarónugrautinn sinn í Barnabóli 2008 - 2009. Vinurinn er óþekktur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 066
Hjónin Jóhannes Björnsson (d.14.6.1977) og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004), sem er lengst til hægri á myndinni, með systrum Jóhannesar. Sigrún Björnsdóttir (d. ?) frá Akureyri er lengst til vinstri og Steinunn Björnsdóttir (d.7.2.1994) frá Stafni er á milli þeirra hjóna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn136
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Á myndinni er Ernst Berndsen sem var einn helsti talsmaður þess að koma stöðinni á fót.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 013
Jóhanna Karlsdóttir. Myndin var tekin í sunnudagsrúnti fram í Laxárdal. Ekki er vitað hvenær en líklega hefur það verið á áttunda áratugnum.
Adolf H Berndsen - safn048
Fermingarbörn vorið 1995 í Hólaneskirkju ásamt prestinum séra Agli Hallgrímssyni. Frá vinstri: séra Egill, Ragna Magnúsdóttir, Sverrir Brynjar Berndsen, Birna Ágústsdóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sigrún Líndal, Bæring Skarphéðinsson, Kolbrún Jónasdóttir, Birkir Rafn Gíslason, Elva Dröfn Árnadóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir og óþekktur drengur.
Barnaból - safn425
Leikskólabörn úr Barnabóli í gönguferð niður á höfn veturinn 2009 - 2010. Frá vinstri: Guðjón Dunbar Þorsteinsson, Karen Líf Sigurbjargardóttir, Gabríel Goði Tryggvason og Klara Ósk Hjartardóttir.
Ólafur Bernódusson 577
Kyndilberar úr bálförinni um áramótin 2006 bíða stilltir eftir leyfi brennustjóra til að kveikja í bálkestinum.
Ólafur Bernódusson 671
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru systkinin Magnús Stefánsson þáverandi félagsmálaráðherra og Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 184
Ljósmyndasafn Skagastrandar sendir öllum kveðju og ósk um gleðileg jól 2017 með þessari mynd. Hún er af krökkum að flytja helgileik í kirkjunni okkar á aðventukvöldi í desember 2012 og henni fylgir ósk um að allir finni barnið í sjálfum sér um jólin og njóti þeirra með þeirri gleði sem einkennir börn á jólunum. Á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Hekla Guðrún Þrastardóttir?, Dagný Dís Bessadóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, séra Ursúla Árnadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Aníta Ósk Ragnarsdóttir og Guðný Eva Björnsdóttir.<br>Gleðileg jól.
Hjördís Sigurðardóttir - safn063
Hér hafa frændsystkini og tengdafólk stillt sér upp fyrir sunnan Bankastræti 9 árið 1965. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir með dóttur sína Guðbjörgu Gylfadóttur, Árni Ólafur Sigurðsson með Hafþór Gylfason, Reynir Sigurðsson með Steinunni Berndsen og Ómar Þorbjörnsson með Guðrúnu Björgu Berndsen.
Hjördís Sigurðardóttir - safn090
Pása í blíðunni eftir vel unnið starf við þökulagningu á 4. braut á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir, Soffía Pétursdóttir, Vilhelm Jónsson, Eygló Gunnarsdóttir, Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Ólafsson og Ingibergur Guðmundsson.
Adolf H Berndsen - safn056
Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) að vinna við endurbætur á Bjarmanesi einhverntíma kringum árið 2000.
Ólafur Bernódusson 628
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Áður en keppnin hófst, og í hléi meðan dómarar réðu ráðum sínum, léku þær Sigurbjörg Birta Berndsen til vinstri og Guðrún Anna Halldórsdóttir til hægri, fjórhent á píanó fyrir gesti.
Ólafur Bernódusson 655
Baldur Magnússon aðstoðar son sinn Magnús Sólberg við að skreyta piprkökur á piparkökudaginn í Barnabóli 21. desember 2006. Við borðið hjá þeim situr Ólafur Halldórsson með jólasveinahúfu.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 093
Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) stoppar í við eldhúsborðið heima.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 54
Réttað í Spákonufellsrétt. Því miður er fólkið á myndinni óþekkt þar sem hún er mjög óskýr. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.
1
…
137
138
139
…
167
Leita í myndasafninu
Leita