Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 654
Herdís Baldvinsdóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla með dóttur sína Emblu Ágústsdóttur að skreyta piparkökur á piparkökudaginn í Barnabóli 21. desember 2006.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 038
Jóla-kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri á myndinni eru: Ingólfur Bjarnason, Guðrún Angantýsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sólveig Eiðsdóttir (fjær), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) (nær) og Björn Ingi Óskarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 069
Tertukaffi í fjölskylduboði. Vinstra megin við borðið sitja, frá vinstri: Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) frá Þórsmörk, Aðalheiður Sif Árnadóttir (nær), Árni Ólafur Sigurðsson (fjær) frá Þórsmörk og Hlíf Sigurðardóttir kona hans. Hægra megin við borðið er Hallbjörg Jónsdóttir næst okkur en lengst frá sér í Gylfa Sigurðsson frá Þórsmörk. Stúlkan sem situr við enda borðsins er líklega Jóney Gylfadóttir. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1980.
Barnaból - safn357
Stefanía Hrund Stefánsdóttir á þriggja ára afmæli sínu í Barnabóli 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 650
Þessi mynd var tekin í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar. Á myndinni bíða bræðurnir Sigurður Aron Björnsson til vinstri og Sindri Björnsson til hægri spenntir eftir ofninum með kökunum sínum í ásamt móður sinni Þórunni Ævarsdóttur.
Elínborg Jónsdóttir - safn 30
Heyskapur á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Þarfasti þjónninn sannar enn einu sinni gildi sitt með því að draga heim sátur af þurru heyi af vellinum. Fólkið á myndinni er óþekkt en í baksýn er Flóðið í Vatnsdalsánni.
Jósef H Sigurðsson - safn 050
Aftan á þessari mynd stendur:"Siggi afi með Helgu, Evu og Sigga". Myndin var tekin í júlí 1989 en Siggi afi, eða Sigurður Magnússon, dó 2. ágúst 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 71
Egill Bjarki Gunnarsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn075
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Þessi mynd var tekin um borð í Hríseyjarferjunni Sævari á leið út í eyjuna. Vinstra megin er Guðrún Sigurðardóttir og Bára Þorvaldsdóttir er hægra megin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 039
Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) með heimilishestinn og dætur sínar tvær, Dagný Sigmarsdóttur til vinstri og Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til hægri. Myndin var tekin suður í Mýri líklega kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 68
Þorlákur Jónsson til vinstri og Gestur Arnarson til hægri í skólaferðalagi. Líklega var myndin tekin vorið 1978 eða 1979.
Barnaból - safn372
Ásgeir Sigmar Björnsson tilbúin í slaginn í leikskólanum Barnabóli á öskudaginn í febrúar 2009.
Ólafur Bernódusson 604
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Sæunni Steingrímsdóttur eftir að hún lauk leik sínum á píanóið.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn033
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Signý Richter, Þorbjörg Magnúsdóttir og baksvipur Guðrúnar Sigurðardóttur.
Ólafur Bernódusson 643
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slaka nokkrir nemendur á eftir að kynningum var lokið og gestum farið að fækka. Frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 042
Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti við vefstólinn í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960.
Ólafur Bernódusson 702
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen (aftar), Dagný Marín Sigmarsdótir (framar), Magnús B. Jónsson (aftar), Snjólaug Jónsdóttir (framar), Guðrún Soffía Pétursdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Jóhann Hafsteinsson, Guðrún Magnúsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Karl Lúðvíksson kennari.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn093
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru nokkrar kvennanna að fá sér drykk eftir matinn á óþekktum veitingastað. Frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Guðrbjörg Viggósdóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 39
Óþekktur starfsmaður Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar sandblæs litla vog. Við þessa vinnu þarf starfsmaðurinn að vera vel varinn og m.a. fá hreint loft í hjálminn svo hann sé ekki að anda að sér sandryki og öðrum óþverra.
Jón Jónsson 479
Feðgarnir Ragnar Jónsson til vinstri og Jón Jónsson til hægri staddir úti á Skaga við ?Þangskála?
Hjördís Sigurðardóttir - safn122
Hjördís Sigurðardóttir við gróðursetningarvinnu á Háagerðisvelli sumarið 1996.
Adolf H Berndsen - safn098
Þessi hópmynd af golfurum var tekin eftir lokahóf í Kántrýbæ. Hófið var haldið eftir fjölmennt golfmót á Háagerðisvelli en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á miðri mynd er Kúreki Norðursins, og eigandi Kántrýbæjar, Hallbjörn J. Hjartarson með kúrekahatt.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 073
Hjónin Jón Hall Magnússon og Guðrún Bjarnadóttir með barnabarnabarn sitt Guðjón Hall Sigurbjörnsson ný skýrðan í fanginu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn051
Í september 2004 fóru eldri borgara í ferðalag m.a. heim að Hólum til að skoða byggingarnar þar. Á myndinni eru á spjalla í góðviðrinu, frá vinstri: Gestur Jónsson (d.27.12015), Ottó Ákason (d. 17.9.2005), Jónína Valdimarsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og óþekktur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn029
Ester Ösp Víðisdóttirn til vinstri og Fjóla Dögg Björnsdóttir til hægri í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn036
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, óþekkt, Ragnheiður Magnúsdóttir (nær), Björk Sveinsdóttir (fjær), Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Íris Valgeirsdóttir, tvö óþekkt, Garðar Geirfinnsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 582
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Tanja Rán Einarsdóttir og Stefán Velemir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Björn Ingi Óskarsson starfaði fjölda ára í Rækjuvinnslunni hf. Á myndinni er hann að vinna við þrif í vinnslusalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn041
Eldri borgara á ferðalagi skoða dómkirkjuna að Hólum. Frá vinstri: Gestur Jónsson (d.27.1.2015), Ottó Ákason (d. 17.9.2005) stendur aftan við Sigríði Vilhjálmsdóttur (d.21.1.2012), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jónína Valdimarsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn104
Ungir verðlaunahafar í golfi stilla sér upp til myndatöku með kántrýkónginum Hallbirni J. Hjartarsyni í Kántrýbæ eftir að hafa spilað golf á Háagerðisvelli. Myndin var líklega tekin kringum 1998.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn068
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Dagbjört Bæringsdóttir og Vigdís Ómarsdótttir
Ólafur Bernódusson 586
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 10. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Andrea Kristjánsdóttir og Sara Rut Fannarsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn073
Hjónin Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) og Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) í Litla - Bergi.
Adolf H Berndsen - safn081
Ernst Berndsen (d.21.8.1983) í Karlsskála stendur á tröppunum heima hjá sér og fylgist með skipaferðum í kíki eins og hann gerði gjarnan enda vel tengdur sjómennsku sem lóðs í Húnaflóa.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn107
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er verið að flyta sér útgáfu af ævintýrinu um Rauðhettu. Frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir (=rauðhetta), Guðrún Pálsdóttir (=sögumaður) og Bára Þorvaldsdóttir (=amman).
Guðrún Sigurðardóttir - safn 071
Þetta fólk er að heimsækja leiði nákomins ættingja í kirkjugarðinum í Kollafjarðarnesi á Ströndum. Fremri röð frá vinstri: Brynjólfur Jónsson bóndi á Broddadalsá og systurnar Guðbjörg Jónsdóttir (d.?) kona Brynjólfs og Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987) frá Þórsmörk. Fyrir aftan eru frá vinstri: Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk með son sinn Guðmund Gauta Reynisson, Anna Heiður Guðmundsdóttir kona hans og Árni Ólafur Sigurðsson frá Þórsmörk með dóttur sína Aðalheiði Sif Árnadóttur. Ekki er vitað hvenær myndin ver tekin.
Ólafur Bernódusson 600
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Gunýju Evu Björnsdóttur að spila á þverflautu við undirleik kennara síns Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur.
Ólafur Bernódusson 593
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af blokkflaututríói yngst nemendanna. Frá vinstri: Karen/Rakel Elvarsdóttir, Karen/Rakel Elvarsdóttir og Ólafur Halldórsson. Aftan við krakkana stendur kennarinn þeirra, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn102
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Guðrún Pálsdóttir til vinstri og Bára Þorvaldsdóttir til hægri standa upp á stólum og flytja einhver gamanmál. Konan til vinstri er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 218
Þessi hópur frá umf. Fram á Skagaströnd tók þátt í friðarhlaupi í júlí 1987. Fólkið í hópnum hljóp til skiptis ákveðinn spöl með logandi friðakyndil sem var á hringferð um landið í höndum félaga í ungmenna- og íþróttafélögum allt í kringum landið. Það kom í hlut Fram að hlaupa með kyndilinn í Langadalnum niður að Blönduósi þar sem félagar í Hvöt tóku við honum. Á þessari mynd er hópurinn að nálgast mótsstaðinn við Hvöt og þess vegna eru allir með. Frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, óþekktur, Stefán Sveinsson, óþekktir, Skúli Tómas Hjartarson, Adolf J. Berndsen, Atli Þórsson, Vilhelm Jónsson með kyndilinn, óþekktur í bláum bol, Guðný Finnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson með dökk gleraugu, Jóhanna Sveinsdóttir, Baldur Magnússon,Jón Heiðar Jónsson og Kristjana Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 683 - Copy
Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020). Myndin var tekin 15. október 2017 á 100 ára afmælisdegi hennar.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn025
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Óðinn Örn Sævarsson í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Ingibergur Guðmundsson 172
Þessir tveir heiðursmenn voru sæmdir heiðursmerki sjómannadagsráðs á sjómannadaginn 1985. Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) til vinstri og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) til hægri.
Adolf H Berndsen - safn086
Hjónin Carl Berndsen (d.15.12.1954) kaupmaður á Hólanesi og kona hans Steinunn Berndsen (d.29.10.1953) með börnin sín fimm. Frá vinstri: Carl Emil Berndsen (d.11.1.1939), Carl, Fritz Hendrik Berndsen (d.8.8.1966), Ernst Berndsen (d.21.8.1983), Björg Berndsen (d.15.12.1963), Steinunn og Ása Berndsen (d.?). Myndin var tekin einhverntíma kringum 1910.
Barnaból - safn363
Óðinn Örn Gunnarsson að leira í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Hjördís Sigurðardóttir - safn084
Hér er verið að vinna við að útbúa golfskálann á Háagerðisvelli. Steinþór Karlsson bankar ryk úr gömlum sófa. Vilhelm Jónsson í bláum galla er á leið inn í skálann til að taka til höndunum. Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) er í dyrunum með eitthvað viðkvæmt í höndunum og Sigurður Berndsen er á leiðinni til að hjálpa Steinþóri í baráttunni við rykið. Karl Berndsen (d. 12.2.1995) lengst til hægri hugar að framkvæmdum úti við. Myndin var tekin í júní 1991.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 028
Börn Gylfa Sigurðssonar og Guðrúnar Guðbjörnsdóttur. Frá vinstri: Hafþór Gylfason og Guðbjörg Gylfadóttir með systur sína Jóney Gylfadóttir í fanginu. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1971.
Ingibergur Guðmundsson 170
Myndin var tekin af þeim Lúðvík Kristjánssyni (d.10.2.2001)til vinstri og Gunnari Helgasyni (d.19.10.2007) til hægri þegar þeir voru heiðraðir á sjómannadegi 1994.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 105
Þrír menn á útkíkki uppi á stýrishúsinu á Sæljóninu RE 317 í svarta þoku sumarið 1960.
Hjördís Sigurðardóttir - safn107
Mágkonurnar Fríða Hafsteinsdóttir til vinstri og Helga Berndsen til hægri í eldhúskróknum í golfskálanum á Háagerðisvelli í ágúst 1995.
Barnaból - safn426
Málningavinna í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Málararnir eru frá vinstri: Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Andri Már Gunnarsson og Sindri Freyr Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 920
Guðrún Árnadóttir (d.?) með svuntu. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Guðrún Guðbjörnsdóttir115
Beitingamenn í skúrnum að beita fyrir Vík - útgerðina stoppa augnablik í febrúar 2016 fyrir ljósmyndara úr Listamiðstöðinni Nes. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jóhann Ásgeirsson, Damian Lukasz Kacica og Hjalti Hólmar Indriðason.
Ingibergur Guðmundsson 114
Jónína Valdimarsdóttir til vinstri og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) hægra megin í 85 ára afmælisveislu Láru Kristjánsdóttur (d.6.9.1993) 6. apríl 1986.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn037
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin eftir að hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Katrín Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Signý Richter, Guðrún Sigurðardóttir sem heldur um axlir Báru Þorvaldsdóttur, Þórólfur Tómasson, Elva Dröfn Árnadóttir og Geirþrúður Guðmundsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Bryndís Hrönn Kristjánsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Rósa Jónsdóttir, Helga Bergsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn056
Kaffifundur í Bankastræti 9. Á myndinni eru: Sveinn Ingólfsson með gleraugu, Guðjón Valgeirsson (d.1993) til hægri, baksvipur mannsins í dökka jakkanum er sennilega Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) og maðurinn í köflótta jakkanum til vinstri er líklega Karl Berndsen (d.12.2.1995). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn105
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er Jensína Lýðsdóttir að flytja skemmtiatriði.
Barnaból - safn411
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból að leika sér á rampinum utan við skólann með starfskonunni Helenu Möru Velemir veturinn 2009 - 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Thelma Sif Jónasdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Helena Mara og óþekkt stúlka.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 056
Hér er hópur fólks á ferðalagi árið 1961. Ekki er vitað á hvaða bjargbrún myndin var tekin (Gullfoss?). Fólkið í myndinni er frá vinstri: óþekktur (?Ingvar Jónsson í Sólheimum?), Hörður Ragnarsson, Sigmundur Magnússon frá Sólvangi, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Gunnar Sveinsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 62
Hjónin Þórey Jónsdóttir og Sigurbjörn Björgvinsson
1
…
138
139
140
…
167
Leita í myndasafninu
Leita