Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 63
Hallbjörg Jónsdóttir
Ólafur Bernódusson 582
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Tanja Rán Einarsdóttir og Stefán Velemir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Björn Ingi Óskarsson starfaði fjölda ára í Rækjuvinnslunni hf. Á myndinni er hann að vinna við þrif í vinnslusalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn041
Eldri borgara á ferðalagi skoða dómkirkjuna að Hólum. Frá vinstri: Gestur Jónsson (d.27.1.2015), Ottó Ákason (d. 17.9.2005) stendur aftan við Sigríði Vilhjálmsdóttur (d.21.1.2012), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jónína Valdimarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 684 - Copy
Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) Myndin var tekin 15. október 2017 á 100 ára afmælisdegi hennar.
Helga Berndsen 031
Þessi mynd var tekin 1960 þegar Guðrún Einarsdóttir, sem situr á sleðanum, var tveggja ára. Barnapían sem stendur hjá henni er frændi hennar, Sævar Rafn Hallgrímsson.
Helga Berndsen 037
Þessi mynd var tekin 29.8. 1961 í þriggja ára afmæli Guðrúnar Einarsdóttur í Karlsskála. Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Ester Axelsdóttir, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Brynja Axelsdóttir, Anna Hannesdóttir og Eygló Gunnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Laufey Berndsen, afmælisbarnið Guðrún Einarsdóttir, Axel Hallgrímsson, Unnur Gunnarsdóttir, Baldur Hannesson og Adolf H. Berndsen.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 089
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) með dætur sínar Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttur til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1975.
Ólafur Bernódusson 618
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Valgerði Ingvarsdóttur að spila á þverflautu við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur kennara og Elínar Óskar Björnsdóttur (til hægri) sem spila fjórhent á píanóið.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn067
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Á þessari mynd eru konurnar að æfa kántrýdans undir leiðsögn Lindu Ævarsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri: Bryndís Guðjónsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, óþekkt, Linda Ævarsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir og Kristjana Jóhannsdóttir.
Ólafur Bernódusson 599
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Lindu Rún Einarsdóttur eftir að hún hefur lokið leik sínum.
Ólafur Bernódusson 625
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda keppnina en vorið 2010 var hún haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á þessari mynd sitja næst okkur dómarar keppninnar þetta sinn og eru að merkja inn á einkunnablöðin sín. Næst okkur er Magnús B. Jónsson þá Sigrún Grímsdóttir og síðan Gísli Grímsson en þau tvö eru börn Gríms heitins. Auk þeirra er svo dómari sem kemur að sunnan á vegum keppninnar. Aftan við Gísla sitja hjónin Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir. Í öftustu röðinni eru frá vinstri: Ágúst Þór Bragason, Guðrún Benediktsdóttir, Jón Guðmundsson Fagranesi, Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri Blönduskóla, Jón Ægir Jónsson Fagranesi og Jakobína Halldórsdóttir Fagranesi. Aðrir áheyrendur á myndinni eru óþekktir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 015
Helga Berndsen hefur klifrað upp í tré í skemmtiferð líklega í Vaglaskóg kringum 1950.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 144
Ragnar Smári Ingvarsson heima í eldhúsinu á Bogabraut 16 að hjálpa til við að setja krem á mömmukökurnar vorið 1966.
Jón Jónsson 488
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga af prúðbúnum hestamönnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 94
Vinirnir Árni Geir Ingvarsson og Hallbjörg Jónsdóttir. Myndin var tekin kringum 1970.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 074
Ekki ferðuðust þau langar leiðir á Deutzinum, hjónin Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Guðrún Sigurðardóttir. Á þessari mynd eru þau samt saman á dráttarvélinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í baksýn er Straumnes á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 658
Biopol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri hafa starfað náið saman frá stofnum Biopol 2007. Þessi mynd var tekin eftir undirskrift á endurnýjuðum samstarfssamningi milli aðila 2013. Frá vinstri: óþekkt, Stefán B. Sigurðsson rektor HA, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Adolf H. Berndsen oddviti og stjórnarformaður Biopol og Dr. Magnús Stefánsson starfsmaður HA með starfsstöð hjá Biopol á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 298
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), faðir eigenda Víkur, að salta yfir í kari.
Ingibergur Guðmundsson 284
Myndin var tekin við vígslu skíðaskálans á Skagaströnd 5. apríl 1985. Á henni eru þrír ungir drengir sem höfðu gaman af að fara á skíði í brekkunni við skálann, frá vinstri: Sigurður Berndsen, Arnar Ólafur Viggósson og Gunnar Guðmundsson.
Adolf H Berndsen - safn102
Galvaskir golfarar í golfskálanum á Háagerðisvelli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Rafn Ingi Rafnsson og Vilhelm Jónssson.
Barnaból - safn404
Gunnar Andri Elvarsson í Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn044
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011).
Árni Geir Ingvarsson - safn 939
Maðurinn í trjágróðrinum er Júlíus Ágústsson frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvar eða hvenær.
Árni Geir Ingvarsson 2 36
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) við kaffiborðið í áhaldahúsi hreppsins þar sem hann vann um tíma
Adolf H Berndsen - safn047
Vinirnir Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Jón Ingi Ingvarsson til hægri í nóvember 1997.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 45
Systkinin Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og Karitas Ólafsdóttir (d.15.10.2019) á góðri stund eftir að hafa verið að vaða á óþekktum stað. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 048
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 stilla sér upp til myndatöku á efstu hæð skólans. Í miðjunni í öftustu röðinni eru Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti til hægri. Aðrar eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn109
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er verið að flyta sér útgáfu af ævintýrinu um Rauðhettu. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir sögumaður, Jóhanna Sigurjónsdóttir Rauðhetta, Þórunn Bernódusdóttir veiðimaður, Bára Þorvaldsdóttir amman og Jensína Lýðsdóttir sem lék úlfinn.
Adolf H Berndsen - safn074
Þessi mynd var líklega tekin í einhverri starfsmannaferð Hólaness hf. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Fólkið á mydninni er frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Vilhelm B. Harðarson, Sævar Bjarnason, Eygló Guðbjartsdóttir, óþekkt, Jónas Jónasson, Agnes Sævarsdóttir, Valdimar Viggósson, Adolf H. Berndsen og Dagný Sigmarsdóttir. Bak við Dagný sér í Svein Jónasson.
Ólafur Bernódusson 608
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Aldísi Björnsdóttur að spila á klarinet.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 084
Jóhanna Jónasdóttir er lengst til vinstri á myndinni og önnur frá vinstri er skáldkonan Guðrún Árnadóttir (Guðrún frá Lundi) (d.22.8.1975), sem var tengdamóðir Jóhönnu. Þá koma Magnea Árnadóttir (d.18.12.1968) frá Syðri-Ey, Kristín Árnadóttir?, Ingibjörg Árnadóttir, Jónína Árnadóttir og Helga Daníelsdóttir sem er dóttir Magneu. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn105
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er Jensína Lýðsdóttir að flytja skemmtiatriði.
Barnaból - safn411
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból að leika sér á rampinum utan við skólann með starfskonunni Helenu Möru Velemir veturinn 2009 - 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Thelma Sif Jónasdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Helena Mara og óþekkt stúlka.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 056
Hér er hópur fólks á ferðalagi árið 1961. Ekki er vitað á hvaða bjargbrún myndin var tekin (Gullfoss?). Fólkið í myndinni er frá vinstri: óþekktur (?Ingvar Jónsson í Sólheimum?), Hörður Ragnarsson, Sigmundur Magnússon frá Sólvangi, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Gunnar Sveinsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 83
Guðbjörg Gylfadóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 640
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd hvíla þær sig Saga Lind Víðisdóttir til vinstri og Amla Vignisdóttir til hægri. Framan við þær situr Sandra Ómarsdóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn066
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Þá var þessi mynd tekin af frumkvöðlum félagsskaparins. Frá vinstri: Eva Dögg Berþórsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Hjálmfríður Guðjónsdóttir,
Ólafur Bernódusson 602
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Sunnu Steingrímsdóttur að spila á gítar. Hjá henni situr Benidikt Blöndal kennari og spilar með.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn050
Ottó Ákason(d. 17.9.2005) í Auðunnarstofu að Hólum í Hjaltadal. Ottó var á ferðalagi með eldri borgurum í september 2004 þar sem m.a. var stoppað á Hólum og byggingar þar skoðaðar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn082
Þessi mynd var tekin við komu nýsmíðarinnar Arnars Hu 1 frá Japan 15. október 1973. Á henni spjallar Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til vinstri við Pálma Jónsson (d.9.7.2017) alþingismann frá Akri og konu hans Aðalbjörgu Helgu Sigfúsdóttur.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 052
Þrír Ingvar Jónssynir saman í andyri Fellsborgar. Frá vinstri Ingvar Jónsson (Jóns Inga Ingvarssonar), Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppstjóri frá Brúarlandi og Ingvar Þór Jónsson (Jóns Ólafs Ívarssonar). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn089
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru konurnar að borða á óþekktum veitingastað. Vinstra megin við borðið er Hildur Ingólfsdóttir og nokkrar óþekktar konur en hægra megin eru frá vinstri: Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, Elva Þórisdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Svandís Hannesdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 130
Aftan á þessari mynd stendur að þetta sé Guðrún Jónsdóttir. Annað er ekki vitað um myndina. Líklega er þetta Guðrún Jónsdóttir (d.2.5.1958) frá Kúvíkum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn075
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Á henni eru frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Fríða Hafsteinsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn115
Konur í golfskálanum á Háagerðisvelli í lok júlí 1996. Frá vinstri: Helga Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Laufey Berndsen og Þórunn Óladóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 139
Systurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Halla Björg Bernódusdóttir til hægri með óþekkt barn á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 77
Gunnar Gunnarsson til vinstri og Kristján Ólafsson til hægri líklega í skólaferðalagi rétt fyrir 1980.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 014
Fólk í skemmtiferð líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Frá vinstri: hjónin Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) (Elsa) og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) og Vilborg Jónsdóttir (d.?) Stóra-Bergi.
Ólafur Bernódusson 615
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Þorgerði Þóru Hlynsdóttur spilandi á harmóniku.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn071 - Copy
Frá árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Unglingar flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekkt, Katrín Guðmundsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Arnrún Finnsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekktur, Rebekka Þórarinsdóttir, tvær óþekktar stúlkur, Eydís Ósk Einarsdóttir og Lena Rut Jónsdóttir.
Barnaból - safn374
Ásgeir Sigmar Björnsson í leikskólnum Barnabóli 28. nóvember 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 953
Þessi óþekkti ræðumaður er líklega að flytja hátíðarræðu við vígslu Borgarvirkis 23.júní 1950 eftir miklar viðgerðir og endurbætur á virkinu. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú veist hver ræðumaðurinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn378
Stefanía Hrund Stefánsdóttir með bangsann sinn í leikskólanum Barnabóli 24. mars 2009.
Ólafur Bernódusson 624
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af stórhljómsveit skólans þetta starfsár. Frá vinstri: Laufey Lind Ingibergsdóttir með þverflautu, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennari og stjórnandi sveitarinnar, Valgerður Ingvarsdóttir á þverflautu (nær), Páll Halldórsson á trommur (fjær), Benedikt Blöndal kennari með ásláttarhljóðfæri, Auðunn Árni Þrastarson með ásláttarhljóðfæri (fjær), Aldís Björnsdóttir með klarinet (nær), Elías Gunnar Hafþórsson með gítar, Elín Ósk Björnsdóttir með trompet, Sigurlaug Máney Sæmundsen með saxófón og Aron Breki Hjartarson einnig á saxófón.
Ingibergur Guðmundsson 143
Magnús B. Jónsson kennari við Höfðaskóla kringum 1975 fer yfir nemendaverkefni á kennarastofunni. Magnús er líklega betur þekktur í dag sem sveitarstjóri á Skagaströnd en sem kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 67
Adolf H. Berndsen til vinstri og Haraldur Árnason til hægri við morgunverðarborð á óþekktu hóteli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 610
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Ólafi Halldórssyni þar sem hann fylgist með öðrum spila og bíður eftir að röðin komi að honum sjálfum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 178
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) skoðar sig um í Þórdísarlundi í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 167
Gunnar Albertsson heiðraður á sjómannadegi 2000 fyrir farsælt starf sem sjómaður og fiskvinnslumaður í áratugi.
1
…
139
140
141
…
167
Leita í myndasafninu
Leita