Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 237
Félagsstarf aldraðra á Skagaströnd var um tíma í Höfðaskóla og þar var þessi mynd tekin af leiðbeinandanum Guðrúnu Guðmundsdóttur. Það var alltaf líf og fjör í þessum samkomum eldra fólksins með Guðrúnu eins og sést á myndinni þar sem hún er eitthvað að grínast með fólkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 596
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af þeim stöllum Heklu Guðrúnu Þrastardóttur til vinstri og Örnu Rún Arnarsdóttur til hægri að spila á blokkflauturnar sínar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 076
Kristján Karlsson um borð í skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunet. Í baksýn sést Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988) frá Kambakoti. Við Óskina liggur önnur skekta sem líka var notuð við umvitjuna. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem sá þriðji skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu. Eins og sjá má var ekki óalgengt að selir slysuðust í netin sem þótti heldur verra því þeir drógu úr veiðgetu netanna sem þeir vöfðu stundum um sig.
Hjördís Sigurðardóttir - safn129
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Þór Gunnlaugsson.
Ingibergur Guðmundsson 287
Veturinn 1984-85 vann fjöldi sjálfboðaliða, um helgar, að því að klæða skíðaskálann innan með panel og innrétta hann. Á myndinni er kaffipása hjá þeim sem þá voru að vinna. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Halldór Gunnar Ólafsson, Þorbjörg Magnúsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 137
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 183
Útskriftardagur Stefáns Ægis Lárussonar úr Menntaskólanum á Akureyri. Frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) afi, Stefán Ægir Lárusson nýstúdent, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) amma og Lárus Ægir Guðmundsson pabbi Stefáns.
Ólafur Bernódusson 595
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Stefáni Jónassyni kennara sem spilar undir blokkflautuleik Daða Snæs Stefánssonar.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn043
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir, Guðný Finnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðrún Angantýsdóttir og óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 133
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu) með prestinum sínum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni(d.1.6.1996). Fremsta röð frá vinstri: Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Séra Pétur, Inga Stefánsdóttir og Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson og Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Sveinn Hall Másson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson og Ingibergur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 81
Tveir töffarar á ferð, Ernst Berndsen til vinstri og Ástmar Kári Ástmarsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 98
Ólöf Jóhanna Smith eða Lólý eins og hún er gjarnan kölluð.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 082
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) um borð í Ósk Hu 33 á grásleppuveiðum. Þær systur hafa fengið að fljóta með því karlarnir þeirra voru í áhöfn Óskar við þriðja mann.
Adolf H Berndsen - safn099
Hópur golfara fylgist með verðlaunaafhendingu eftir golfmót á Háagerðisvelli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 76
Sigrún Jónsdóttir, líklega kringum 1980.
Ólafur Bernódusson 590
Áramótin 2008 - 2009 var þétt logndrífa þegar fólk kom til að horfa á áramótabrennuna það árið. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Einar Ásgeirsson og Finnur Kristinsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 989
Rúnar Þór Ingvarsson í rúminu sínu með pelann sinn. Rúnar er fæddur 1950 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1950 eða 1951.
Ólafur Bernódusson 641
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd eru vinirnir Einar Ari Einarsson og Guðjón Ólafsson fræðslustjóri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 086
Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).
Helga Berndsen 040
Adolf H. Berndsen með nýsmíðað seglskip á tröppunum á Karlsskála. Myndin var tekin sumarið 1963.
Ólafur Bernódusson 695
Karl Olsen um borð í Öldunni Hu 112 bíður eftir króknum í löndun eftir góðan línuróður 26. mars 2013.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 083
Guðrún Angantýsdóttir situr aftast í skektunni. Börnin eru Jón Hilmar Indriðason til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason til hægri. Maðurinn lengst til vinstri er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), maður Guðrúnar og faðir Þeirra bræðra.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 074
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Kristján Karlsson um borð í skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunet. Í baksýn sést Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988). Við Óskina liggur önnur skekta sem líka var notuð við umvitjuna. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem sá þriðji skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu. Eins og sjá má var ekki óalgengt að selir slysuðust í netin sem þótti heldur verra því þeir drógu úr veiðgetu netanna sem þeir vöfðu stundum um sig.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 57
Ekki er vitað um tilefni samsætisins á myndinni. Myndin, sem var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd, var líklega tekin seint á áttunda áratugnum eitthvað í tengslum við hestamennsku. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Gunnar Sveinsson, Kári Lárusson, Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) (nær), Sveinn Ingi Grímsson (fjær), Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Þorvaldur Skaftason og Sigrún Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 178
Hallgrímur Örn Karlsson er hér á milli afa síns og ömmu þeirra Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) og Guðmundar Jóhannessonar (d.17.4.2018).
Barnaból - safn341
Valdimar Viggó Baldursson púslar í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 589
Á myndinni horfa í eldinn á áramótabrennunni 2008 - 2009, frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir og Hilmar Sigurjónsson. Barnið fremst á myndinni er óþekkt.
Barnaból - safn376
Þessi mynd var tekin í leikskólanum Barnabóli 28. nóvember 2008. Frá vinstri: Ásgeir Sigmar Björnsson, Sóley Sif Jónsdóttir og Valdimar Viggó Baldursson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 59
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) á heimahögum vestur á Ströndum. Líklega er brúin í baksýn brúin yfir Fossá skammt norðan við Asparvík.
Ólafur Bernódusson 665
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Þá var þessi mynd tekin af þeim mágkonunum Sigríði Stefánsdóttur til vinstri og Drífu Óttarsdóttur eiginkonu Magnúsar Stefánssonar þáverandi félagsmálaráðherra.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 068
Brosandi frændsystkin. Frá vinstri: Halla Kristín Árnadóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Jóney Gylfadóttir. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 065
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir með dætur sínar. Árni situr með Elvu Dröfn Árnadóttur og Hlíf með Höllu Kristínu Árnadóttur. Milli þeirra situr Aðalheiður Sif Árnadóttir. Myndin var tekin 1981 eða 1982.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 091
Gréta Ingvarsdóttir á tröppunum heima á Bogabraut 16.
Ólafur Bernódusson 632
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti gesta á sýningunni að fylgjast með kynningu einhvers af hópunum á sýnu verki.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 012
Gylfi Sigurðson frá Þórsmörk heldur kátur á lúðu um borð í Aðalbjörg Hu 7. Í brúarglugganum er skipstjórinn, Þórhallur Árnason (d.4.2.2008). Á þessum bát voru þeir hætt komnir ásamt fleirum eitt sinn í línuróðri á Skagagrunni. Leki kom að bátnum þannig að vélarúmið hálf fylltist af sjó. Betur fór þó en á horfðist því þegar drepið var á vélinni hætti lekinn því það hafði farið sundur slanga þannig að vélin dældi kælivatninu út í vélarúmið í stað þess að dæla því út. Eftir að gert hafði verið við slönguna var vélin sett í gang, báturinn lensaður og róðurinn kláraður.
Ólafur Bernódusson 630
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti hópsins sem fjallaði um þekkta vestur íslendinga. Krakkarnir kynntu þekktustu persónur úr þeim hópi með söng, upplestri, veggspjöldum og líkönum. Á myndinni eru frá vinstri: Daði Snær Stefánsson í fanginu á Ernu Björgvinsdóttur, Viktor Einarsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Sigurður Aron Björnsson stendur aftan við Maríu, Alma Vignisdóttir, Leifur Ragnarsson og Gunnþór Kristjánson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 99
Halla Björg Bernódusdóttir um tveggja ára aldur.
Adolf H Berndsen - safn 094
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru eiginkonur nokkurra áhafnarmeðlima eða stjórnarmanna í fyrirtækinu eða starfsmenn þess. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir,Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Ólafur Bernódusson 629
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á myndinni eru sigurvegarnir í þetta skipti. Albert Óli Þorleifsson úr Blönduskóla er í miðjunni en hinir krakkarnir eru óþekktir. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 181
Nýstúdentinn Unnur Elfa Guðmundsdóttir með Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) afa sínum og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) ömmu sinni.
Ólafur Bernódusson 627
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á myndinni er Aldís Embla Björnsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, í ræðustólnum.
Ingibergur Guðmundsson 211
1989 var hlaupið friðarhlaup eftir hringveginum allt í kring um landið. Umf. Fram tók þátt og útvegaði hlaupara sem hlupu með friðarkyndilinn ofan úr Langadal og niður á Blönduós. Þessi mynd sýnir hópinn á hlaupum í dalnum. Frá vinstri í fremstu röð: Gunnar Tryggvi Ómarsson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Rebekka Ólafsdóttir, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Viktor Pétursson, Jón Örn Stefánsson, Árni Max Haraldsson og óþekktur. Hlauparnir sem eru aftar á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 591
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Aron Breka Hjartarsyni eftir að hann hefur lokið leik sínum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 077
Þessi mynd hefur að öllum líkindum verið tekin á fermingardegi tvíburasystranna Guðrúnar Angantýsdóttur og Sigurbjargar Angantýsdóttur (d.10.9.1997) 1954 af þeim með föður sínum Angantý Jónssyni (d.28.7.1983). Guðrún er vinstra megin við föður sinn og Sigurbjörg hægra megin.
Ingibergur Guðmundsson 224
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Helgi Björnsson (d. ?) hleypur í boðhlaupssveit Fram frá Skagaströnd. Maðurinn með hattinn í áhorfendahópnum er Þórður Jónsson (d.25.12.2009) en aðrir eru óþakktir. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 52
Hjónin Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) og Karitas Ólafsdóttir (d.15.10.2019) standa við bíl sinn á ferðalagi á einhverjum ókunnum stað. Hægra megin við bílinn stendur bróðir Karitasar, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 145
Karitas Laufey Ólafsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn082
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Í slíkum ferðum þarf oft að taka þátt í ýmsum skrítnum uppátækjum. Á þessari mynd er Guðrún Soffía Pétursdóttir að renna fyrir fisk með heimagerðum veiðarfærum í fjörunni í Hrísey. Sundgleraugun eru til öryggis ef hún skyldi detta í sjóinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 167
Karitas Laufey Ólafsdóttir við hreinsunarstörf í garðinum sínum að Bogabraut 16.
Barnaból - safn360
Sóley Sif Jónsdóttir að leira í leikskólanum Barnaból 2008 - 2009.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn111
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Eftir að hafa borðað saman góðan mat og verið með heimatilbúin skemmtiatriði brá hópurinn sér yfir í danssalinn í Fellsborg og dansaði kántrýdansa. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, óþekkt, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Signý Richter, Ásthildur Guðmundsdóttir, óþekkt, Erna Hreinsdóttir, óþekkt, Guðbjörg Viggósdóttir, Ásta Ásgeirsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir(fjærst), Dagný Marín Sigmarsdóttir (í miðið), Hjördís Sigurðardóttir (næst), óþekkt, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir (fjær), Helga Ólína Aradóttir (nær) og Jensína Lýðsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 185
Íþróttagarpar frá Skagaströnd á héraðsmóti á Blönduósi 1986. Frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Hjörtur Guðmundsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Birna Sveinsdóttir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 034
Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti fyrir utan kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 þegar hún var ein af námsmeyjunum þar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 048
Ingólfur Bjarnason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir við veisluborð í kaffistofu Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 290
Þessi mynd var tekin norður Bankastræti í apríl 1989. Þá var gríðarlegur snjór á Skagaströnd. Baldur Eðvarðsson er að moka upp bílinn en hjá honum stendur Ágúst ? verkstjóri í frystihúsinu en hann bjó í Bankastræti 10.
Barnaból - safn398
Leikskólabörn úr Barnabóli í útivist veturinn 2009 - 2010. Frá vinstri: óþekkt, ?Hugrún Antonía Sigurðardóttir?, Mikael Örn Benjamínsson og Óðinn Örn Gunnarsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 679
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er í gangi fjöldasöngur eftir að formlegheitum vegna opnunarinnar var lokið. Halldór Gunnar Ólafsson spilar á gítarinn en svo koma frá vinstri:Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Baksvipinn á Jensína Lýðsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn080
Ekki er vitað hvar eða af hvaða tilefni þessi mynd var tekin af þessum glæsilegu framreiðslustúlkum. Frá vinstri: Oddný Jóhannsdóttir, Björg Jóhanna Ólafsdóttir (d.1.3.2007), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d.6.3.2007) og Guðrún Sigurðardóttir.
Jón Jónsson 482
Hér eru bændur úr Svartárdal og víðar að rétta í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 656
Sjúkrasjóður Höfðakaupstaðar hefur starfað í áratugi og safnð fyrir ýmsum lækningatækjum sem sjóðurinn hefur síðan gefið heilsugæslunni á Skagaströnd gegnum árin. Á þessari mynd frá því í júlí 2014 eru fulltrúar Sjúkrasjóðsins að færa Christine Weinert sjúkraþjálfara ýmis tæki til að nota við sjúkraþjálfunina. Frá vinstri: Christine, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Gígja Óskarsdóttir og Ingibjörg Kristinsdóttir.
1
…
140
141
142
…
167
Leita í myndasafninu
Leita