Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 657
Biopol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri hafa starfað náið saman frá stofnum Biopol 2007. Á þessari mynd er verið að skrifa undir endurnýjun á samstarfssamningi milli þessara aðila eftir sex ár 2013. Frá vinstri: Stefán B. Sigurðsson rektor HA, Adolf H. Berndsen stjórnarformaður Biopol og Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri Biopol.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 018
Þessir ungu menn fór saman nokkra veiðitúra norður í Laxá í Aðaldal. Á myndinni eru þeir að fá sér drykk fyrir kvöldmatinn. Frá vinstri: Steindór Gíslason (d. 1985), Adolf H. Berndsen, Jón Hallur Pétursson og Sigurbjörn Björgvinsson.
Adolf H Berndsen - safn066
Fólk á leið í útreiðartúr framan við Karlsskála á Skagaströnd. Fólkið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 089
Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) sem ungur maður.
Jón Jónsson 466
Guðrún Sigurðardóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 70
Anna Sjöfn Jónasdóttir. Myndin var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla 1978 eða 1979.
Ingibergur Guðmundsson 310
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 126
Halla Björg Bernódusdóttir með son sinn Einar Hauk Arason á handlegg. Myndin var tekin 1966.
Ingibergur Guðmundsson 217
Ingibergur Guðmundsson hleypur með friðarkyndilinn meðfram Blöndu frammi í Langadal í júlí 1987. Hann var einn af mörgum félögum í umf. Fram sem tóku þátt í að hlaupa með kyndilinn eftir Langadalnum og niður að Blönduósi þar sem félagar í umf. Hvöt á Blönduósi tóku við honum og hlupu með kyndilinn áfram áleiðis til Reykjavíkur.
Ólafur Bernódusson 609
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af tríói sem lék á tónleikunum. Ernast Guðni Hólmgeirsson spilar á bassa, Elías Gunnar Hafþórsson á trommur og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015) á gítar.
Ingibergur Guðmundsson 169
Á myndinnni er Lárus Ægir Guðmundsson að kynna Gunnlaug Árnason (d.14.9.2016) við heiðrun Gunnlaugs á sjómannadegi 1993 fyrir langan og farsælan sjómennskuferil.
Ólafur Bernódusson 676
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd hafa yfirmenn stofnunarinnar og starfsfólk greiðslustofunnar stillt sér upp til myndatöku. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofu, Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Þorbjörg Bjarnadóttir, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Kristín Leifsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Eva Gunnarsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 73
Sigurjón Ingólfsson í Námaskarði líklega kringum 1980.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Á myndinni er í gangi skemmtiatriði á sjómannadegi. Adolf H. Berndsen til vinstri býr sig undir að tannburst Finn Kristinsson sem situr í heimagerðum kassabíl. Finni til aðstoðar við skolun er ?Ari Þórsson? en maðurinn sem drekkur kók aftan við bílinn er óþekktur. Eins og sjá má eru Adolf og Finnur með húfur merktar MacLaren formúlu liðinu.
Barnaból - safn385
Sóley Sif Jónsdóttir glaðhlakkaleg í leikskólanum Barnabóli 23. febrúar 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 136
Sigtryggur Benediktsson (d.?) faðir Ingvars Karls Sigtryggssonar (d.10.7.1988) sem lengi bjó á Bogabraut 16 með fjölskyldu sinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 164
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 608
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Aldísi Björnsdóttur að spila á klarinet.
Ingibergur Guðmundsson 104
Myndin af þessum systkinum var tekin í 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar á Kárastöðum 5. desember 1984. Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) situr framan við bræður sína, frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989), afmælisbarnið Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) og Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 153
Áð á ferðalagi. Frá vinstri Þórey Ólafsdóttir (d.?) frá Árbakka, Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) og óþekktur maður. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Barnaból - safn338
Yngri deildin í leikskólanum Barnabóli 2008 -2009. Fremst standa, frá vinstri: Stefanía Hrund Stefánsdóttir, Guðbjörg Eva Jóhannesdóttir og Brynja Ýr Jónsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Mikael Örn Benjamínsson, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Ásgeir Sigmar Björnsson, Óðinn Örn Gunnarsson, Sóley Sif Jónsdóttir, Gunnar Snorri Guðjónsson, Valdimar Viggó Baldursson, Hugrún Antónía Sigurðardóttir, Ísabella Líf Tryggvadóttir og Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir.
Ólafur Bernódusson 685 - Copy
"Ég finn svo sem engan mun á mér frá í gær", svarar Jóhanna spurningunni um hvernig það sé að vera orðin 100 ára. Jóhanna, sem býr á dvalarheimilinu Sæborg, er heilsuhraust og hefur alltaf verið. Sem dæmi um það má segja sögu af því þegar hún fór í augnaðgerð á níræðisaldri. Hjúkrunarkonan sem var að undirbúa Jóhönnu fyrir aðgerðina spurði hana hvaða lyf hún tæki. Jóhanna sagðist ekki vera að taka nein lyf og hefði aldrei gert það. Hjúkkan þráspurði Jóhönnu um þetta og nefndi hinar ýmsu lyfjategundir sem Jóhanna þvertók fyrir að nota. Þá gafst hjúkkan upp og kallaði Gísla, son Jóhönnu, á eintal og bað hann að segja sér hvaða lyf mamma hans tæki;"... því hún mamma þín vill ekki segja mér það". Gísli sagði konunni að þetta væri bara rétt hjá mömmu sinni hún tæki engin lyf og hefði aldrei gert. <br>Jóhanna fæddist á Fjalli í þáverandi Vindhælishreppi 15. október 1917 en dó 7.ágúst 2020og ólst þar upp. Hún giftist Angantý Jónssyni (og Guðrúnar frá Lundi - syni) og fóru þau að búa á Mallandi á Skaga þar sem foreldrar hans bjuggu. Þaðan fluttu þau svo að Fjalli og bjuggu þar. Þegar bærinn brann ofan af þeim fluttu þau til Skagastrandar. Þau eignuðust þrjár dætur, tvíburana Guðrúnu og Sigurbjörgu (d.10.9.1997) og Bylgju áður en þau skildu. Jóhanna flutti síðan suður á land, bjó þar í nokkur ár og eignaðist eina dóttur í viðbót, Dagný Hannesdóttur. Heim kom hún svo aftur til Skagastrandar þar sem hún hefur átt heima alla tíð síðan. Hér eignaðist hún sitt yngsta barn, drenginn Gísla Snorrason. <br>Jóhanna vann verkakvennavinnu alla tíð eftir heimkomuna, lengst af í frystihúsinu. Þar stóð hún við að snyrta og pakka fiski þar til frystihúsinu var lokað. Þá var Jóhanna farin að nálgast áttrætt. Jóhanna minnist vinnunnar í frystihúsinu með gleði . "Ég væri þarna enn ef þeir hefðu ekki lokað", sagði þessi kankvísa og hressa samferðakona okkar á 100 ára afmælisdegi sínum.
Adolf H Berndsen - safn076
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi. Frá vinstri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Karl Berndsen (d.12.2.1995), Jón Stefánsson (d.3.8.1991), Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Jón Ingi Ingvarsson og Gunnar Sveinsson. Í ræðustólnum er kynnir dagsins, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 113
Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) til vinstri og Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) til hægri í 85 ára afmælisveislu Láru Kristjánsdóttur (d.6.9.1993) 6. apríl 1986.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 34
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum. Rúnar Jósefsson er glaðbeittur með lamb í fanginu en hjá honum stendur Vilhelm B. Harðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 128
Aftamn á þess mynd er ritað: "Helga, Jóhannes Jensen og Þóra". Annað er ekki vitað um myndina en líkleg er þetta fólk ættað úr Kúvíkum á Ströndum.
Jón Jónsson 490
Hátíðahöld vegna 100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en konan í köflótta jakkanum og röndóttu peysunni er María Magnúsdóttir (d.2.2.2016). Hjónin við hlið hennar eru Þórhallur Bjarnason (d. 23.12.1989) og Þóra Sigvaldadóttir (d. 2.1.1981) frá Hvamstanga.
Barnaból - safn396
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni fylgjast krakkarnir með leikskólakrökkum syngja. Frá vinstri á myndinni: Arnar Páll Guðjónsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, óþekkt, Aldís Embla Björnsdóttir og Sigurbjörg Sigurpálsdóttir
Jón Jónsson 476
Ragnar Jónsson í apaleik með banana uppi í tré.
Ólafur Bernódusson 622
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af harmónikudúett þeirra Hebu Lífar Jónsdóttur til vinstri og Þorgerðar Þóru Hlynsdóttur til hægri.
Barnaból - safn370
Arnrún Hildur Hrólfsdóttir tilbúin í slaginn í leikskólanum Barnabóli á öskudaginn í febrúar 2009.
Ólafur Bernódusson 663
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Þá var þessi mynd tekin af Jensínu Lýðsdóttur sem var einn af starfmönnum greiðslustofunnar og seinna forstöðumaður hennar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn133
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson og Jóhannes Sveinsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn108
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er verið að flyta sér útgáfu af ævintýrinu um Rauðhettu. Guðrún Pálsdóttir til vinstri les söguna, Jensína Lýðsdóttir leikur úlfinn en í bak við hana hugar Rauðhetta (Jóhanna Sigurjónsdóttir) að ömmu gömlu (Bára Þorvaldsdóttir).
Ólafur Bernódusson 607
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Guðmanni Magnússyni að spila á harmóniku.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn104
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er einhvert skemmtiatriði í gangi. Frá vinstri: Sigríður Ásgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og óþekkt kona.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 25
Hörður Aðils Vilhelmsson.
Barnaból - safn373
Sóley Sif Jónsdóttir sýnir hvað hún er stór í leikskólanum Barnabóli 28. nóvember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 38
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Myndin var sennilega tekin við Djúpuvík á Ströndum á velmektarárunum þar. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 670
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru þeir á spjalli Gunnlaugur Sigmarsson frá Landsbankanum til vinstri og Helgi Gunnarsson trésmiður til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 050
Kappróður á sjómannadegi. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Í þetta skipti var róið frá bryggjunni sem fólkið stendur á og austur fyrir Skúffugarðinn. Bátarnir á myndinni eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn082
Skemmtiatriði á gangi á sjómannadegi sem vekur kátínu hjá áhorfendum. Frá vinstri má þekkja: Gunnar Sveinsson, Karl Guðmundsson, Finn Kristinsson í hvítri skyrtu, Jón Geir Jónatansson, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991), Guðmund Guðnason (d.21.11.1988) með myndavél og Jóhönnu Valdimarsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 276
22. nóvember 1985 hélt Leikklúbbur Skagastrandar upp á 10 ára afmæli sitt með því að félagarnir skemmtu hvor öðrum með ýmis konar atriðum sem ekki áttu öll erindi á opinberar skemmtanir. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að flyta einhverjar fréttir í "sjónvarpinu" á sviðinu í Fellsborg.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 041
Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk við vefstólinn í kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960.
Jón Jónsson 493
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974 að Hólum í Hjaltadal. Þar lék hópur fremstu leikara landsins leikrit um Jón Arason biskup að Hólum og aftöku hans. Mikill mannfjöldi fylgdist með í blíðu sumarveðri.
Ingibergur Guðmundsson 204
Á aðalfundi umf Fram í febrúar 1990 var þessum tveimur veittir bikarar fyrir góðan árangur í íþróttum. Þorlákur Guðjónsson til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 263
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er Kristinn Jóhannsson að spila í Fellsborg 1989.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 030
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980 árshátíð Hólaness hf. Á henni eru starfsmenn Hólaness og makar þeirra að njóta kaffiveitinga. Við borðið nær gluggunum eru frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Guðmundur J. Björnsson og Þórunn Bernódusdóttir en aðrir eru óþekktir. Við borðið nær okkur eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörn Björgvinsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigurjón Ingólfsson, Steinunn Berndsen, ?Gísli Snorrason?, Gunnar Sveinsson, Eðvarð Hallgrímsson, Hrefna Björnsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Þorlákur Jónsson, Kristján Blöndal og Guðmundur Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 647
Þessi mynd var tekin af Guðbjörgu Viggósdóttur á leikskólanum Barnabóli þegar þar stóð yfir piparkökubakstur 21. desember 2006.
Ingibergur Guðmundsson 173
Arnar Ólafur Viggósson tekur þátt í leik á sjómannadegi 1996. Leikurinn fólst í því að draga sig í kari frá Smágarði við Skúffugarði og til lands neðan við Hafnarhúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 117
Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 72
Starfsfólk Hólaness hf í skemmtiferð. Efst eru frá vinstri: óþekktur (Ingvar Jónsson?), Þorlákur Jónsson og Ottó Ákason (d.17.9.2005). Næst efst frá vinstri: Kristján Ólafsson, Steindór Gíslason (d.?), Hlíf Sveinbjörnsdóttir og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Sigurbjörn Björgvinsson er með sólgleraugu á miðri mynd. Hægra megin við hann eru talið ofan frá: Fjóla Jónsdóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir og tveir óþekktir. Neðast fyrir miðju er Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Helga Berndsen 046
Helga Berndsen í vinnu sinni sem verslunarmaður. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Jón Jónsson 495
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974 að Hólum í Hjaltadal. Þar lék hópur fremstu leikara landsins leikrit um Jón Arason biskup að Hólum og aftöku hans. Mikill mannfjöldi fylgdist með í blíðu sumarveðri.
Ólafur Bernódusson 673
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru yfirmenn stofnunarinnar. Frá vinstri: Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra. Aftan við Gissur sér í Adolf H. Berndsen oddvita Sveitarfélagsins Skagaströnd. Aðrir eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn064
Myndin var tekin á sveitarstjórnarskrifstofunni á Skagaströnd þegar hún var í Fellsborg. Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri á Skagaströnd 1972 - 1985 gluggar í pappíra og Guðrún Pálsdóttir, sem lengi vann með Lárusi, skoðar reikninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 028
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru gestir á árshátíð Hólaness hf að njóta kaffiveitinga. Næst okkur eru frá vinstri: Hrefna Björnsdóttir, Gunnar Albertsson og Gunnlaugur Sigmarsson. Við borðið fjær eru frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Líney Jósefsdóttir, Sveinn Ingi Grímsson, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) og Sigrún Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 128
Ingibergur Guðmundsson 7 ára gamall ánægður í nýju strigaskónum sínum.
Ólafur Bernódusson 678
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Eftir ræðuhöld og formlegheit vegna opnunarinnar léttist yfir athöfninni og fólk brast í söng við undileik félæagsmálaráðherra á gítar. Þá dönsuðu nokkrar starfsstúlkur kántrýdansa og þessi mynd sýnir slíkan dans í gangi við mikla ánægju viðstaddra. Frá vinstri: Kristín Leifsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, og Eygló Gunnarsdóttir sem er lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helga Berndsen 016
Þessi systkini voru frá Læk á Skagaströnd. Frá vinstri: Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) Björn Helgason (d.11.3.1983) og Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987). Öll giftust þau og eyddu æfinni á Skagaströnd.
1
…
141
142
143
…
167
Leita í myndasafninu
Leita