Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 209
Á myndinni, sem var tekin á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990, er Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) að afhenda hjónunum Guðrúnu Guðbjörnsdóttur og Gylfa Sigurðssyni verðlaungrip Guðbjargar Gylfadóttur sem ekki gat verið viðstödd. Lengst til vinstri sér í Steinunni Steinþórsdóttur stjórnarmann í Fram.
Ingibergur Guðmundsson 242
Jóhanna Gunnlaugsdóttir til vinstri og Aðalheiður Harðardóttir til hægri vinna við að búa til sjávarréttapizzur í Marska hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn371
Hugrún Antonía Sigurðardóttir tilbúin í slaginn í leikskólanum Barnabóli á öskudaginn í febrúar 2009.
Adolf H Berndsen - safn068
Þetta hús var byggt á Hólanesi sem íbúðarhús Carls Berndsen (d.15.12.1954) verslunarmanns þar og konu hans Steinunnar Berndsen (d.29.10.1953). Húsið var síðan flutt 1919-1920 að Litla Felli þar sem stendur enn (í júní 2017). Maðurinn fyrir utan húsið á þessari mynd er Fritz H. Magnússon (d.19.10.1965).
Ólafur Bernódusson 631
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti hópsins, sem kynnti þekkta vestur íslendinga, að syngja ljóð eftir Káinn við lag eftir Baggalútinn Braga Valdimar Skúlason. Frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson, Trostan Agnarsson kennari aftan við Ívan. Sitjandi í aftari röð frá vinstri: Aron Fannarsson, Birgitta Rut Bjarnadóttir og María Gret Gunnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, óþekkt, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, óþekkt, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Gunnþór Kristjánsson og Kristmar
Dagný Sigmarsdóttir - safn 059
Stúlkurnar þrjár, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir, eru að leika hættulegan leik með því að fara út á ísinn. Jakarnir eru óstöðugir og valtir og ef þær detta í sjóinn getur verið erfitt að komast uppúr aftur. Að vísu eru þær á myndinni að leika sér rétt við fjöruborðið fyrir neðan Rækjuvinnsluna þannig að hættan er minni en ef farið er lengra frá landi.
Ólafur Bernódusson 696
Sjómennirnir Sævar R. Hallgrímsson til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri ræða aflabrögð meðan verið er að landa úr Öldu Hu 112 í Skagastrandarhöfn í lok mars 2013 .
Guðrún Sigurðardóttir - safn 057
Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Lengst til vinstri er Óli Bogason, maðurinn í miðjunni er óþekktur en til hægri er ?Sveinbjörn Blöndal? (d.7.4.2010).
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn084
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru þær í góðu stuði, frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir og Vigdís Ósk Ómarsdóttir.
Helga Berndsen 036
Myndin var tekin 19. janúar 1960 í eins árs afmæli Adolfs H. Berndsen sem er í fangi ömmu sinnar Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) frá Þórsmörk lengst til hægri. Til vinstri er hin amma hans, Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) í Karlasskála með Laufey Berndsen í fanginu. Milli þeirra stendur Guðrún Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 983
Þetta óþekkta fólk velur sér kaldan stað til að hvíla sig. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Adolf H Berndsen - safn053
Það hljóp heldur betur á snærið hjá frænkunum Sigurbjörgu Birtu Berndsen til vinstri og Fríðu Moniku Ágústsdóttur til hægri þegar þær hittu poppgoðið Bonnie Tyler á veitingastað árið 2000. Við hlið stelpnanna situr pabbi Fríðu, Ágúst Jónsson.
Barnaból - safn368
Kaffiboð í leikskólanum Barnabóli í janúar 2009. Vinstra megin skenkir Arnrún Hildur Hrólfsdóttir óþekktri vinkonu sinni kaffi.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 052
Jón Grímkell Pálsson (d.11.2.2012).
Ingibergur Guðmundsson 162
Jón Ingi Ingvarsson aðstoðar hér Harald Árnason í þríhjólahjólreiðum á sjómannadegi 1985. Áhorfendur skemmta sér greinilega vel.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 026
Þessi mynd var tekin 1961 af skátaflokknum Álftir í Sigurfara á Skagaströnd. Stúlkurnar í flokknum eru, talið frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Ester Axelsdóttir (d.?) frá Læk, Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, María Bjarnadóttir (d.1984) í Holti, Magdalena Axelsdóttir (d.?) frá Læk, Sigríður Ágústsdóttir í Blálandi, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti og Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý).
Ólafur Bernódusson 705
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, Anna Borkowska, Guðmundur Egill Erlingsson, Merete Rabölle, Lárus Ægir Guðmundsson, Stefán Þór Hauksson, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir (aftar), Monika Tischleder (framar), Kristín Björnsdóttir og Karl kennari.
Hjördís Sigurðardóttir - safn098
Golfarar fyrir utan golfskálann á Háagerðisvelli 25. júlí 1994. Fremst sitja frá vinstri talið: þrír óþekktir drengir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, óþekktur, Sverrir Brynjar Berndsen, Davíð Bragi Björgvinsson, Adolf Þór Lúðvíksson og tveir óþekktir. Miðröð frá vinstri: óþekktur, Jón Sigurðsson, óþekktur, Jón Jóhannsson, Dagný Sigmarsdóttir, Steindór Haraldsson, Fanney Zophoníasdóttir og Adolf H. Berndsen. Aftasta röð frá vinstri: Steinþór Karlsson, tvö óþekkt, Stefán Kristinsson (d.19.5.2011), Gunnar Guðjónsson, Guðmundur Kristinsson, Fríða Hafsteinsdóttir, tveir óþekktir og Karl Berndsen (d.12.2.1995). Ef þú þekkir einhvern sem er óþekktur á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn094
Á myndinni eru Unnar Agnarsson til vinstri og Stefán Á. Jónsson (d. 29.6.2009) frá Kagaðarhóli til hægri. Unnar var í ritnefnd Húnavökunnar en Stefán var ritstjóri þess góða rits.
Ólafur Bernódusson 581
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennari við píanóið, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson og Torfi Friðrik Magnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 142
Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) til vinstri leiðir óþekktan dreng. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1957. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson 2 35
Ingibergur Guðmundsson vinstra megin og Hafþór Gylfason til hægri að smíða tröppur fyrir Golfklúbb Skagastrandar þar sem þeir er báðir félagar.
Ólafur Bernódusson 694
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er fólk eitthvað að spá í bátinn af bryggjunni. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson (nær), Sævar R. Hallgrímsson (fjær), Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur og Sigurjón Ástmarsson.
Ingibergur Guðmundsson 179
Ekki er vitað hvenær þesssi mynd var tekin en á henni eru, frá vinstri: hjónin Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jakob G. Jakobsson og foreldrar Þorbjargar, Eðvarð Hallgrímsson og Helga Guðmundsdóttir.
Barnaból - safn397
Almar Atli Ólafsson á 5 ára afmælinu í Barnabóli 3. nóvember 2009.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 044
Dagný Hannesdóttir til vinstri og Hugrún Sigurðardóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson 496
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974 að Hólum í Hjaltadal. Þar lék hópur fremstu leikara landsins leikrit um Jón Arason biskup að Hólum og aftöku hans. Mikill mannfjöldi fylgdist með í blíðu sumarveðri.
Ingibergur Guðmundsson 285
Vatnið í skíðaskálann á Skagaströnd er tekið úr lind norðan og ofan við skálann. Hluta af skurðinum fyrir vatnslögnina þurfti að grafa á höndum og á myndinni er unnið að því en hún var tekin í október 1984. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Ólafur Bernódusson. Þess má geta að vatnið úr lindinni þykir einstaklega hreint og gott.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn077
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Þessi mynd var tekin af Dagný Marín Sigmarsdóttur úti í Hrísey undir stýri á strætisvagni eyjarinnar.
Ingibergur Guðmundsson 125
Guðmundur Guðmundsson 17. ágúst 1986.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 027
Myndin var tekin á skátamóti í Vaglaskógi einhvertíma snemma á sjöunda áratugnum. Á henni eru skátar úr Sigurfara á Skagaströnd og líklega frá Blönduósi.
Ingibergur Guðmundsson 139
Hluti ritnefndar Húnavökunnar á Akureyri 1985. Þangað fór ritnefndin á hverju vori til að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu Húnavökunnar fyrir prentun. Frá vinstri: Unnar Agnarsson Blönduósi, Páll Ingþór Kristinsson Blönduósi, Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) Kagaðarhóli og Jóhann Guðmundsson Holti. Á myndina vantar ritnefndarmanninn Ingiberg Guðmundsson en hann tók myndina.
Ingibergur Guðmundsson 223
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Hástökkvarinn á myndinni er Hörður Lárusson en hann notar hástökksstíl sem kallaður var "saxið". Við hástökkssúluna til vinstri standa Friðjón Guðmundsson? (d. 7.1.2001) til vinstri og Einar Guðlaugsson (d.1.4.2008) til hægri. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Þórunn Bernódusdóttir - safn 018
Á þessari mynd eru Anne (?Jóhannsdóttir?) til vinstri og Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) (Elsa) til hægri. Líklega var myndin tekin kringum 1950.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn097 - Copy
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri talið: Jensína Lýðsdóttir, Elva Þórisdóttir, Signý Richter, tvær óþekktar, Dagný Marín Sigmarsdóttir. Hægra megin eru frá vinstri: tvær óþekktar, Sigríður Ásgeirsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Linda Björk Ævarsdóttir og Sigurður Magnússon.
Ingibergur Guðmundsson 137
Björn Bergmann Jónasson (d.30.5.1985) frá Marðanúpi á hóteli á Akureyri í apríl 1985. Hann var mikill velunnari Húnavökunnar og fór oft með ritnefndinni, sem fór á Akureyri á hverju vori til að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu ritsins fyrir prentun. Björn var merkur maður, kennari, fræðimaður og ljósmyndari og að mörgu leiti á undan sinni samtíð.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 49
Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 280
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd frá því í mars 1987 er moksturinn langt kominn og vírinn að mestu kominn upp úr snjónum. Mokararnir á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson sem lyftir vírnum eins hátt og hægt er.
Jón Jónsson 491
Hátíðahöld vegna 100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en líklega hefur það verið í Kirkjuhvammi við Hvammstanga. Á henni eru ungmenni að sýna fimleika.
Helga Berndsen 045
Systkini frá Karlsskála. Frá vinstri: Adolf J. Benrdsen, Helga Berndsen og Karl Berndsen (d.12.2.1995). Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Barnaból - safn343
Byggingameistari á leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009, Ásgeir Sigmar Björnsson.
Barnaból - safn367
Ásgeir Sigmar Björnsson í leikskólanum Barnabóli í apríl 2009.
Helga Berndsen 023
Systkinin Steinunn Berndsen og Hendrik Berndsen á tröppunum á Karlsskála 21. júlí 1991.
Ingibergur Guðmundsson 283
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Sumarið 1984 og veturinn á eftir byggði skíðadeildarfólkið skíðakála við hlið lyftunnar. Skálinn var vígður formlega 5. apríl 1985 og þá var húsfyllir í skálnum eins og sjá má á þessari mynd enda var skíðamennska almenn og vinsæl hjá ungum sem öldnum.
Barnaból - safn377
Óðinn Örn Gunnarsson í leikskólanum Barnabóli 3. október 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 65
Anna Sjöfn Jónasdóttir
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 26
Á þessari fjölskyldumynd eru hjónin Hörður Ragnarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með börnum sínum þeim Pálínu Freyju Harðardóttur og Vilhelm Birni Harðarsyni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 196
Þessi hópur fór frá USAH til að taka þátt í bikarkeppni 3. deildar sem haldin var í Vík í Mýrdal einhvertíma kringum 1980. Krjúpandi frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Þorsteinn Sigurðsson, Þórhalla Guðbjartsdóttir, Helgi Þór Helgason (fjær), óþekkt (nær), óþekkt, Sigríður Gestsdóttir með barn, Mette Loyche, Kristján Frímannsson og Kristinn Guðmundsson. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ingibergur Guðmundsson, Hjörtur Guðmundsson, þorsteinn Sigurðsson, Kári Einarsson, Þórður Daði Njálsson og óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 198
Verðlaunahafar á héraðasmóti USAH á Skagaströnd 1981. Frá vinstri á sviðinu í Fellsborg: Berglind Stefánsdóttir, Birna Sveinsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir og Guðrún Berndsen.
Barnaból - safn387
Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir með trékubba í leikskólanum Barnabóli 23. febrúar 2009.
Ingibergur Guðmundsson 197
Þessi mynd var tekin í Fellsborg eftir héraðsmót USAH á Skagaströnd 1981 af systkinabörnum sem öll tóku þátt í keppnum dagsins. Aftast frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigríður Gestsdóttir og Kristinn Guðmundsson. Miðröð frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Sigurður Guðmundsson. Fremsta röð frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Sigríður, Kristinn, Hjörtur, Sigurður, Soffía og Sigurbjörg eru systkin. Lárus og Ingibergur eru bræður en Þorbjörg er systurdóttir þeirra. <br>
Helga Berndsen 032
Myndin var tekin 1960 af þeim Guðrúnu Einarsdóttur tveggja ára og Guðrúnu Þórbjarnardóttir vinkonu hennar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 10
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvar. Á henni eru frá vinstri: óþekktur, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), óþekktur, Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Pálína M. Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008) og Pálína Freyja Harðardóttir. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 700
Sigurður Sigurðarson á toppnum í gönguferð um nágrenni Landmannalauga 26. júlí 2012. Sigurður er mikill göngu- og útivistargarpur sem gjörþekkir svæðið við Landmannalaugar og víðar á hálendinu.
Helga Berndsen 041
Þessi mynd var tekin sunnan undir gömlu sjoppunni við Karlsskála 1963 eða 1964. Frá vinstri á myndinni: Laufey Berndsen, Arnljót Eysteinsdóttir Hemmert, Guðrún Einarsdóttir með brúðu í kerru, Adolf H. Berndsen og Guðrún Þórbjarnardóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn112
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Stúlkurnar þrjár sem eru með einhverja gjöf í höndunum eru frá vinstri: Linda Björk Ævarsdóttir, Erna Hreinsdóttir og Aðalheiður Sif Árnadóttir. Helga Ólína Aradóttir (dökkklædd) og Elva Þórisdóttir fylgjast með úr sætum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 109
Vala Rós Ingvarsdóttir grillar á stéttinni heima á Bogabraut 16. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 116
Mynd frá sjómannadegi á Skagaströnd 12. júní 1949. Myndin sýnir að strax þá var sjómannadagurinn vel sóttur. Fólkið á myndinni er óþekkt og ekki er ljóst hvar á Skagaströnd hátíðahöldin hafa verið.
Ólafur Bernódusson 637
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er fólk að skoða líkan af íslendingabyggðinni í Gimli og spjalla. Frá vinstri: Sæþór Ágústsson, Ágúst Ómarsson, Ólafur Ásgeirsson, Elva Þórisdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Barnaból - safn388
Guðbjörg Eva Jóhannesdóttir á þriggja ára afmælinu sínu í leikskólanum Barnbóli 15. janúar 2009.
1
…
142
143
144
…
167
Leita í myndasafninu
Leita