Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 109
Vala Rós Ingvarsdóttir grillar á stéttinni heima á Bogabraut 16. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 116
Mynd frá sjómannadegi á Skagaströnd 12. júní 1949. Myndin sýnir að strax þá var sjómannadagurinn vel sóttur. Fólkið á myndinni er óþekkt og ekki er ljóst hvar á Skagaströnd hátíðahöldin hafa verið.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 027
Myndin var tekin á skátamóti í Vaglaskógi einhvertíma snemma á sjöunda áratugnum. Á henni eru skátar úr Sigurfara á Skagaströnd og líklega frá Blönduósi.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn074
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Lagt var upp frá íþróttahúsinu á Skagaströnd þar sem þessi mynd var tekin. Frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir, Ásthildur GHuðmundsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Elva Þórisdóttir og Helga Bergsdóttir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 003
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega snemma á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Matthías Guðmundsson, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) og Sævar Hallgrímsson.
Barnaból - safn405
Bylgja Hrund Ágústsdóttir í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Barnaból - safn361
Ásgeir Sigmar Björnsson að leira á leikskólanum Barnaból 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 699
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er Gunnar Albertsson að skoða gamlar slóðir því hann var vélstjóri á Húna II í nokkur ár meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 054
Unnur Gunnarsdóttir passar Björn Hallbjörnsson á tröppunum í Lundi þar sem þau áttu heima í sinn hvorum endanum. Myndin var tekin kringum 1970.
Ingibergur Guðmundsson 150
Skemmtisigling á sjómannadegi nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Dagrún St 12 úr einni slíkri með fullan bát af glöðu fólki árið 2000.
Helga Berndsen 053
Þessi mynd var tekin 1967 á Reyðarfirði. Á henni eru frá vinstri: Kristján Pétur Ásmundsson, Ásmundur Magnússon (d.2.2.1996) pabbi hans, Helga Berndsen og dóttir hennar Guðrún Einarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 574
Þessir krakkar voru í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 2008. Þau tóku upp á því að búa til vinabönd sem þau sendu öllum bæjarbúum með bréfi um mikilvægi vináttunnar og þess að sýna hvort öðru umburðarlyndi. Vinaböndin voru snúin saman úr marglitu garni og það tók krakkana töluverðan tíma að búa til nægjanlega mörg bönd handa öllum íbúum Skagastrandar og Skagabyggðar. Herdís Baldvinsdóttir umsjónakennari bekkjarins hafði umsjón með verkinu og hjálpaði þeim með framkvæmdina. Krakkarnir eru frá vinstri: Heba Líf Jónsdóttir, Svandís Hallgrímsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen, Anna Dís Ragnarsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Herdís Baldvinsdóttir kennari, Sigurlaug Máney Sæmundsen (nær), Arnar Páll Guðjónsson (fjær), Einar Ari Einarsson, Bergrós Hafsteinsdóttir, Freyja Einarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 8
Karl Berndsen er hér að spjalla við móðursystur sína Ragheiði Birnu Hafsteinsdóttur (Bibbu) (d.26.8.2008). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn128
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sigfús Jónsson, Þór Gunnlaugsson, Steinunn Berndsen, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Jóney Gylfadóttir. Litla stúlkan á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 125
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1956 við gömlu kirkjuna. Aftan á henni stendur skrifað:<br> "Til Þórunnar Samsonardóttir Akri Skagaströnd. Hjartanleg hamingjuósk á afmælisdaginn. Lifðu heil. Klemensína í Ægissíðu". <br>Líklega hefur Guðmundur Guðnason, sonur Klemensínu tekið myndina. Annar frá vinstri á henni er Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) svo kemur Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Stúlkan með ljósa hárið, sem kemur næst, er Ingibjörg Elfa Kristinsdóttir. Á kirkjutröppunum stendur Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) með upplyfta hendi. Maðurinn með hvítu húfuna er óþekktur en aftan við hann er Þórhallur Árnason (d.4.2.2008). Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) stendur í tröppunum með staf á handleggnum. Konan með merki í barminum og svart veski er önnur hvor tvíburasystranna, Guðrún eða Sigurbjörg Angantýsdóttir en litla stúlkan lengst til hægri er systir þeirra Dagný Hannesdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 617
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Guðrúnu Rós Hjaltadóttur eftir að hún hefur lokið leik sínum á píanóið.
Barnaból - safn409
Stefanía Hrund Stefánsdóttir í leikskólanum Barnaból veturinn 2009 - 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 88
Þessi mynd var tekin í einhverju strákapartýi líklega kringum 1974. Fremst á myndinni er Pálína Freyja Harðardóttir en strákarnir eru, frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Vilhelm B. Harðarson, Kristinn Guðmundsson og Hjörtur Guðmundsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 158
Hjónin Hörður Ragnarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 301
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að leggja grásleppunet á bát sínum vorið 1987. Maðurinn á bryggjukantinum er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 192
Þessi mynd var tekin 17. júní 1985 á tröppum Fellsborgar eftir vel heppnað víðavangshlaup umf. Fram. Í fremri röð frá vinstri: Sigfús Jónsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Heimir Sigurbjörnsson og Kristín Jónsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson með litla frænku sína í fanginu, Lárus Ægir Guðmundsson og Rúnar Loftsson. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Jón Jónsson 480
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 143
Ragnar Smári Ingvarsson ca 16 ára.
Adolf H Berndsen - safn100
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin af golfkonunum, frá vinstri: óþekkt, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn 093
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru skipstjórnarmennirnir sem tóku við togaranum þeir Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.6.2017) skipstjóri til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson fyrsti stýrimaður til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 115
Harpa Friðjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 087
Myndin var tekin á tröppunum á Bogabraut 16. Aftast er Gréta Ingvarsdóttir með barn. Systir hennar Vala Rós Ingvarsdóttir er í hvítri peysu og konan með kaffibollann er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007), móðursystir þeirra systra. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 120
Ína Jensen (d.17.2.1997) var kjördóttir Carls F. Jensen (d.25.6.1948) kaupmanns í Kúvíkum á Ströndum. Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) á Skagaströnd var einnig alinn upp hjá Carli og kallað því Ínu systur sína.
Ingibergur Guðmundsson 182
Útskriftardagur Unnar Elfu. Frá vinstri: Sigurlaug Magnúsdóttir, Alfa Lára Guðmundsdóttir, Unnur Elfa Guðmundsdóttir nýstúdent, Guðmundur Víðir Guðmundsson og Guðmundur Guðmundsson,
Ingibergur Guðmundsson 125
Guðmundur Guðmundsson 17. ágúst 1986.
Ólafur Bernódusson 637
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er fólk að skoða líkan af íslendingabyggðinni í Gimli og spjalla. Frá vinstri: Sæþór Ágústsson, Ágúst Ómarsson, Ólafur Ásgeirsson, Elva Þórisdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Barnaból - safn388
Guðbjörg Eva Jóhannesdóttir á þriggja ára afmælinu sínu í leikskólanum Barnbóli 15. janúar 2009.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 008
Fjórar ungar konur á ferðalagi á óþekktum stað. Frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Vera ?, Guðrún Sigurðardóttir og Engilráð Guðmundsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helga Berndsen 022
Fjórir hressir karlar á sólardegi 21. júlí 1991 fyrir utan gömlu sjoppuna við Karlsskála. Frá vinstri: óþekktur, Ólafur Benediktsson, Adolf H. Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 82
Systurnar Hallbjörg og Sigrún Jónsdætur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn365
Sunginn hreyfisöngur í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009. Til vinstri er Ísabella Líf Tryggvadóttir en Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir er til hægri.
Ólafur Bernódusson 664
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni takast þau í hendur Magnús Stefánsson þáverandi félagsmálaráðherra og Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar. Aftan við þau má þekkja Búa Þór Birgisson (d. 18.9.2009) og Sigríði Stefánsdóttur systur Magnúsar ráðherra.
Barnaból - safn354
Sóley Sif Jónsdóttir leikur með kubba í Barnabóli 2008 - 2009.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 125
Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) frá Brúarlandi en seinna húsmóðir í Reykholti.
Barnaból - safn369
Stefanía Hrund Stefánsdóttir tilbúin í slaginn í leikskólanum Barnabóli á öskudaginn í febrúar 2009.
Barnaból - safn410
Karen Líf Sigurbjargardóttir í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 98
Systurnar sjö úr Reykholti með móður sinni og mökum. Frá vinstri: Karl Berndsen (d.12.2.1995), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Þórður Kristjánsson (d.30.6.1991), Ólafur Guðlaugsson (d.17.5.1996)(fjær), Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008) (nær), Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Fríða Sigurbjarnardóttir (d.?) föðursystir systranna, óþekktur (?Lúðvík?), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir (nær), Áslaug Hafsteinsdóttir (Fjær), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d. 26.8.2008) og Hörður Ragnarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 1969.
Barnaból - safn355
Hugrún Antonía Sigurðardóttir í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 020
Samstarfsmenn úr frystihúsi Hólaness hf á spjalli með tár í glasi. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurbjörn Björgvinsson, Gunnar Jónsson og Jóhann Björn Þórarinsson,
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn110
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Eftir að hafa borðað saman góðan mat og verið með heimatilbúin skemmtiatriði brá hópurinn sér yfir í danssalinn í Fellsborg og dansaði kántrýdansa. Frá vinstri á myndinni eru: Bára Þorvaldsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Ásta Ásgeirsdóttir, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Helga Ólína Aradóttir (nær), Þórunn Bernódusdóttir (fjær), óþekkt, Vigdís Ómarsdóttir, Jensína Lýðsdóttir og Einar Sigurbjörn Arason.
Ingibergur Guðmundsson 180
Þessi mynd var tekin á niðjamóti Soffíu og Guðmundar einhverntíma kringum 1990. Á myndinni eru, frá vinstri: Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) (nær), Guðmundur Guðmundsson (fjær), Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Jakob G. Jakobsson, Soffía Lárusdóttir, Gunnar Svanlaugsson, Lára Guðmundsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson (fjær), Kolbrún Eðvarðsdóttir (nær), Sigríður Einarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir, Alfa Lára Guðmundsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Erla María Lárusdóttir (í miðið), Guðlaugur Ingi Gunnarsson (fremst), Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, Karl Guðmundsson, Fjóla Björk Karlsdóttir, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Hallgrímur Örn Karlsson og Guðmundur Víðir Guðmundsson.
Ingibergur Guðmundsson 265
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd eru nokkrir meðlimir klúbbsins með viðurkenningar fyrir sigur í barometer spilamennsku í janúar 1987. Frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Súsanna Þórhallsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Gunnar Sveinsson og Gunnar Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson 636
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd kynna þrjár stúlkur íslenskan teiknimyndahöfund senm starfaði m.a. fyrir Walt Disney og skapaði nokkrar af frægustu fígúrum Disney samsteypunnar. Stúlkurnar eru frá vinstri: María Gret Gunnarsdóttir, Anita Ragnarsdóttir og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Ingibergur Guðmundsson 203
Aðalfundur umf. Fram í febrúar 1990 í Fellsborg var fjölmennur eins og sjá má. Fólki verður sjálfu látið eftir að þekkja þá sem eru á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 106
Um borð í Sæljóni Re 317 haustið 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) stendur í dyrunum en Kolbeinn ? er í glugganum.
Barnaból - safn422
Klara Ósk Hjartardóttir og Guðjón Dunbar Þorsteinsson í leikskólanum Barnaból veturinn 2009 - 2010.
Barnaból - safn414
Sindri Freyr Björnsson blæs sápukúlur í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 148
Ánægðir með góðan afla. Bæðurnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinstri og Þórarinn Brynjar Ingvarsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 612
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Hallbjörgu Jónsdóttur að spila á þverflautu.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 040
Sigrún Lárusdóttir og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) við störf í pökkunardeild Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 127
Íþróttamaðurinn Ingibergur Guðmundsson á æfingu 1982.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 69
Adolf H. Berndsen og Guðbjörg Gylfadóttir eru systkinabörn og vinir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 091
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 078
Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006).
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 022
Pálfríður Bjarnadóttir
1
…
143
144
145
…
167
Leita í myndasafninu
Leita