Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 50
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með þáverandi togara Skagstrendings hf í baksýn, ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 til vinstri og frystitogarinn Örvar Hu 21 til hægri. Báðir voru þeir happa- og aflaskip.
Hjördís Sigurðardóttir - safn111
Fólk við golfskálann á Háagerðisvelli 28. júlí 1996. Fremri röð: Friðvin Ingi Ernstsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Karl Berndsen, Arnór Snorri Gíslason, óþekkt, Sonja Hjördís Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir, Þórunn Óladóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Aftari röð frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Hendrik Berndsen, Adolf J. Berndsen, Steinunn Berndsen, Helga Berndsen, Laufey Berndsen, Guðrún Björg Berndsen og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 123
Kántrýhátíðin 2002 var fjölsótt en því miður var helgin blaut eins og sést á myndinni. Konan til vinstri í ljósa jakkanum er Herdís Jakobsdóttir en Lovísa Vattnes er í rauðri slá. Aðrir eru óþekktir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn098
Bergþóra Kristjánsdóttir (d. 9.5.2011) með langömmustrákinn sinn, Guðjón Dunbar, í september 2005.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 051
Á þessari mynd er Bragi Ingason til vinstri en drengurinn til hægri er Pétur Ingason bróðir hans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið upp úr 1950.
Helga Berndsen 025
Frændsystkinin Karl Berndsen og Steinunn Berndsen 22. júlí 1991.
Ingibergur Guðmundsson 136
Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli ritstjóri Húnavökunnar innritar sig á hótel á Akureyri vorið 1985. Þangað fer ritnefndin á hverju vori til að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu Húnavökunnar fyrir prentun.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 47
Systurnar frá Reykholti: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir neðst, þá Áslaug Hafsteinsdóttir næst lengst til vinstri og ofan við hana, í röð, eru: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Pálína Hafsteinsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 151
Fjölskyldan í Reykholti Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974)<br>með dætrum sínum sjö. Aftari röð frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinisdóttir (d.24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinisdóttir (d.26.8.2008), Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Hafsteinn Sigurbjarnarson og Áslaug Hafsteinsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 17
Jósef Stefánsson er til hægri á myndinni og barnið er líklega Vilhelm Harðarson. Myndin var tekin utan við Reykholt 1968.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 170
Herbert Ólafsson (d. 25.4. 2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 306
Þessi mynd var tekin á Hólatúni (tjaldsvæðinu) á Skagaströnd 16. júlí 1985 þegar golf var leikið í fyrsta sinn á Skagaströnd. Þá hafði Golfklúbbur Vindhældihrepps hins forna verið stofnaður nokkrum dögum fyrr. Seinna var nafni klúbbsins breytt í núverandi horf - Golfklúbbur Skagastrandar. Í þetta fyrsta sinn voru notaðar ein kylfa og einn púttari því fólkið átti ekki fleiri áhöld til golfiðkunar og allir notuð þessar sömu kylfur. Á myndinni eru frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson, Stefán Ægir Lárusson, Sigurbjörn Kristjánsson og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012). Á myndina vantar Ingiberg Guðmundsson en hann tók myndina.
Ingibergur Guðmundsson 233
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Hallgrímur, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Hallgrímur var vélstórinn í hópnum, Gylfi stýrimaður og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 062
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Maðurinn lengst til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri frá Neskaupstað sem var skipstjóri á Hólmadrang nýjum. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 22
Systurnar sjö frá Reykholti. Frá vinstri í aftari röð: Áslaug Hafsteinsdóttir, Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Í fremri röð frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008).
Barnaból - safn381
Óðinn Örn Gunnarsson til vinstri og Valdimar Viggó Baldursson til hægri að vega salt í leiksskólanum Barnabóli 4. febrúar 2009.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn100
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni eru kennararnir Sigurður Magnússon til vinstri og Einar Sigurbergur Arason til hægri en þeir voru einu karlarnir í hópnum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn055 - Copy
Árni Guðbjartsson og Aðalheiður Guðmundsdóttir dansa í Kántrýbæ 2. október 2004 en saman hafa þau dansað gegnum lífið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 166
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 55
Ekki er vitað um tilefni samsætisins á myndinni. Myndin, sem var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd, var líklega tekin seint á áttunda áratugnum eitthvað í tengslum við hestamennsku. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Einar Haukur Arason, Kári Lárusson, Sigrún Guðmundsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, óþekkt og Sólveig Eiðsdóttir.
Jón Jónsson 492
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974 að Hólum í Hjaltadal. Þar lék hópur fremstu leikara landsins leikrit um Jón Arason biskup að Hólum og aftöku hans. Mikill mannfjöldi fylgdist með í blíðu sumarveðri.
Ingibergur Guðmundsson 267
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd, sem tekin var 5. janúar 1986 á 20 ára afmælismóti klúbbsins, eru Málfríður Jóhannsdóttir og Kristófer Árnason (d.10.5.2000) að spila.
Barnaból - safn347
Kubbaleikur í Barnabóli 2008 - 2009. Frá vinstri: Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Valdimar Viggó Baldursson og Óðinn Örn Gunnarsson.
Ingibergur Guðmundsson 235
Þrír góðir á höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri: Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013). Jón Ólafur er líklega að hífa afla upp úr Helgu Björgu Hu 7 þar sem hann var skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 005
Högni Jensson á kunnuglegum slóðum sem kokkur um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin snemma á áttunda áratugnum.
Ingibergur Guðmundsson 210
Verðlaunahafar á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Karen Peta Karlsdóttir, Sigrún Líndal, Áslaug/Vilborg? Jóhannsdóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Birkir Rafn Gíslason, Þóra Ágústsdóttir og Vignir Hafþórsson. Aftan við hópinn eru Ingólfur Bjarnason til vinstri og Halldór Hermannsson til hægri. Guðmunda var að taka við verðlaunum fyrir hönd sonar síns Víðis Ólafssonar sem ekki gat verið viðstaddur
Ingibergur Guðmundsson 118
Hjónin Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) í skíðaskálanum 22. júní 1986 að halda upp á 40 ára brúðkaupsafmæli sitt.
Barnaból - safn418
Mikael Garðar Hólmgeirsson í sápukúluleik í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 -2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 131
Mynd af Árna Geir Ingvarssyni vegna fermingar hans vorið 1977.
Ingibergur Guðmundsson 219
Nokkrir krakkar úr USAH á landsmóti á Húsavík 10.-13. júlí 1987. Frá vinstri: Bjarni Gaukur Sigurðsson, Jóna Finndís Jónsdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Hrefna Bára Guðmundsdóttir Guðný Finnsdóttir, Reynir Lýðsson, Jón Heiðar Jónsson og Atli Þórsson.
Ólafur Bernódusson 583
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að hneigja sig eftir að hafa flutt sitt atriði. Frá vinstri: Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Unnar Leví Sigurbjörnsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Ingmar Guðjónsson og Torfi Friðrik Magnason.
Ólafur Bernódusson 661
Kennarar og starfsfólk Höfðaskóla hittast gjarnan kvöldstund til að halda upp á lok skólaársins einhverntíma í lok maí. Þá leika þessir aðila sér og grínast á margvíslegan hátt m.a. stundum með því að klæðast einhverjum búningum og fara í ýmsa partýleiki. Þessi mynd var tekin vorið 2007 í Bjarmnesi þegar verið er að undirbúa einn leikinn. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir, Hildur Ingólfsdóttir, Elva Þórisdóttir, Einar Sigurbergur Arason, Sigríður Ásgeirsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Halldótr Gunnar Ólafsson, Guðrún Pálsdóttir og Heiðrún Tryggvadóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 21
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af skólastúlkum við Kvennaskólann á Blönduósi. Fimmta frá vinstri er Guðrún Sigurðardóttir úr Þórsmörk en lengst til hægri er Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrar á myndinni eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 3
Fermingarbörn ganga úr Hólaneskirkju eldri eftir ferminguna vorið 1976. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson býr sig undir að taka í hönd Vilhelms Harðarsonar sem fermdist þennan dag. Konan til hægri er Jóhanna Jónasdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 592
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 af Stefáni Jónassyni kennara þar sem hann er að kynna næsta nemanda til leiks.
Ólafur Bernódusson 706
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er.
Barnaból - safn384
Halla Björg Bernódusdóttir í heimsókn í leikskólanum Barnabóli 12.ágúst 2008. Meðferðis hefur hún kanínu sem vakti mikinn áhuga barnanna. María Gret Gunnarsdóttir og Ingólfur Edvald Björnsson halda sig í öruggri fjarlægð en hin börnin eru óþekkt.
Helga Berndsen 117
Feðginin Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) og Helga Berndsen á góðum degi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega gert kringum 1960.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 053
Myndin var tekin 1969. Til vinstri er Heiðar Elvan Friðriksson en Ingvar Ástmarsson er til hægri.
Adolf H Berndsen - safn052
Vinnu- og kynnisferð á vegum Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna til Grimsby 1995. Á myndinni eru fulltrúar frá Skagstrendingi hf. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Jóel Kristjánsson og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 149
Örvar Hu 21 kemur í höfn á Skagaströnd úr túr í austan garra. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip og tekjulind enda yfirleitt úrvals og metnaðarfull áhöfn um borð.
Hjördís Sigurðardóttir - safn126
Myndin var tekin í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlí árið 2000. Á henni eru, frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Helga Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 135
Húnavöku-ritnefndarmennirnir Jóhann Guðmundsson frá Holti til vinstri og Unnar Agnarsson á Blönduósi til hægri, innrita sig á hótel á Akureyri 1985. Þangað fer ritnefndin á hverju vori til að lesa yfir prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu Húnavökunnar fyrir prentun.
Ólafur Bernódusson 638
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er Hallbjörg Jónsdóttir við hluta af verki hennar hóps sem fjallaði um ferðamáta fólks frá Íslandi til Kanada og síðan áfram þangað sem fólkið valdi sér búsetu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 170
Viggó Brynjólfsson með mjólkurbrúsa. Ef til vill keypti hann mjólk af Hafsteini Sigurbjarnarsyni (d.18.5.1974) í Reykholti?
Barnaból - safn380
Arnrún Hildur Hrólfsdóttir tveggja ára í leikskólanum Barnabóli 12. septembar 2008.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 070
Ólafur Guðmundsson úti í skógi 2. júlí 1989
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 198
Víðir Gk 510 fullur af fólki, líklega á Reykjarfirði syðri.
Ingibergur Guðmundsson 145
Ingibergur Guðmundsson og Elín Njálsdóttir bregða á leik á æfingu á leikritinu "Er þetta ekki mitt líf?", árið 1983. Annars fjallar leikritið um þá alvarlegu spurningu hvort leyfa eigi líknardráp fólks og hvort fólk eigi sjálft að fá að ráða hvenær það deyr.
Barnaból - safn413
Einar Hjálmtýr Gunnarsson í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 122
Karlmennirnir á myndinni eru allir skyldir. Jóhann Björn Þórarinsson, lengst til vinstri, og Hörður Ragnarsson, við hlið hans, eru frændur. Vilhelm B. Harðarson er sonur Harðar og lengst til hægri er svo sonur hans, Hörður Aðils Vilhelmsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 16
Ekki er vitað um tilefni veislunnar sem sýnd er á myndinni en hún var tekin 1967. Á henni eru frá vinstri: Jón Gunnar Jósefsson, Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 075
Um borð í Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988) frá Kambakoti. Á myndinni er Stefán að skera grásleppu og safna hrognunum í dalla. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu.
Ólafur Bernódusson 613
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af harmónikutríói að leika fyrir gesti. Frá vinstri: Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir og Guðman Magnússon.
Adolf H Berndsen - safn065
Hjónin í Lundi á Skagaströnd; Margrét Jóhannesdóttir (d. ?) og Ole Aamundsen (d. ?).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 18
Myndin var tekin utan við Reykholt einhverntíma kringum 1970. Áslaug Hafsteinsdóttir faðmar son sinn Aðalstein Jörgensen en drengurinn með hjólið er Víkingur Viggósson.
Barnaból - safn375
Valdimar Viggó Baldursson í leikskólanum Barnabóli 28. nóvember 2008.
Ingibergur Guðmundsson 189
Arna Guðrún Jónsdóttir og Jónas Fanndal Þorvaldsson stolt með verðlaunin sín fyrir víðavangshlaup á 17. júní 1985.
Ingibergur Guðmundsson 163
Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi 1994. Frá vinstri: Finnur Kristinsson stýrimaður, Erna Magnúsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Ólafur Bernódusson 598
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Jónu Margréti Sigurðardóttur eftir að hún hefur lokið leik sínum.
1
…
144
145
146
…
167
Leita í myndasafninu
Leita