Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 245
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd við vinnu á skrifstofu sinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 155
Hér er Albert Haraldson (d.28.9.1980) með Harald Árnason, bróðurson sinn, fyrir utan heimili sitt Litla-Berg (Fellsbraut 2). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1956.
Ingibergur Guðmundsson 168
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 1992. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson stýrimaður með verðlaunabikarinn, Gestur Arnarsson, Sævar Hjaltason, Hafþór Gylfason, Ernst Berndsen, Ágúst Ómarsson og Stefán Sveinsson.
Ingibergur Guðmundsson 199
Verðlaunahafar á unglingamóti USAH á Blönduósi 1981. Frá vinstri: óþekktur, Árni Jón Guðmundsson (d.8.1.2006), Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Stefán Ægir Lárusson.
Ingibergur Guðmundsson 175
Skemmtiatriði á sjómannadegi 1993. Menn slást með belgjum á fríholti sem snýst undir þeim og því er nógu erfitt að halda jafnvæginu þó að engin væri að reyna að slá mann útaf með belg.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 067
Helgi Gunnarsson aðstoðar föður sinn, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í dekkjaslag vegna vörubíls hans.
Ólafur Bernódusson 621
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur eftir að hún hefur lokið leik sínum á píanóið.
Ólafur Bernódusson 626
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á myndinni er Ásdís Birta Árnadóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, í ræðustólnum.
Ingibergur Guðmundsson 122
Kaffiveisla í Skíðaskálanum í tilefni 40 ára brúðkaupsafmælis Guðmundar Jóhannessonar (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) 22. júní 1986. Á myndinni eru frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Kári kristjánsson (d.11.12.1990), Jónína Valdimarsdóttir og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993).
Helga Berndsen 038
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1965 í réttarskúrnum við Spákonufellsrétt. Þar seldu konur úr kvenfélaginu Eining kaffi og meðlæti á réttardögum. Á myndinni er allt til reiðu fyrir söluna. Frá vinstri: óþekktur strákur, Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) Stóra Bergi, Steinunn Jónsdóttir (d.6.4.1982) frá Stórholti, Guðríður Valdimarsdóttir (d.?) úr Vinaminni og Helga Berndsen úr Karlsskála sem heldur um dóttur sína Guðrúnu Einarsdóttur.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 040
Námsmeyjar Kvennaskólans á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 stilla sér upp við hlaðborð sem þær hafa útbúið. Standandi, fimmta frá hægri er Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk og næst henni til vinstri er Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 214
Þátttakendur frá umf. Fram á Skagaströnd í Hvammstangahlaupi 1988. Aftari röð frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir og tvíburasystir hennar Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Atli Þórsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Jón Heiðar Jónsson.
Barnaból - safn349
Valdimar Viggó Baldursson í útivist í Barnabóli 2008 - 2009.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 085
Molasopi í eldhúsinu hjá Dagnýju Guðmundsdóttur á Sunnuvegi 3. Frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) tengdamóðir hennar og Sigrún Guðmundsdóttir systir Dagnýjar.
Helga Berndsen 060
Systurnar Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) í Ásbyrgi til vinstri og Guðrún Helgadóttur (d.15.4.1987) á Karlsskála til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 250
Kaffitími í áhaldahúsinu 14. september 2010. Frá vinstri : Stefán Sveinsson og Geir Arnarson starfsmenn sveitarfélagsins.
Barnaból - safn359
Afmælisveisla í Barnabóli 2008 - 2009 vegna þriggja ára afmælis Stefaníu Hrundar Stefánsdóttur sem situr á stól lengst til vinstri. Allir fá íspinna í tilefni dagsins. Sóley Sif Jónsdóttir er í ljós bleikri peysu með slétt, ljóst hár. Aftan við hana, með tíkarspena í bláum gallabuxum, er Hugrún Antornía Sigurðardóttir. Strákurinn í bláu fötunum er Ásgeir Sigmar Björnsson og lengst til hægri er Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir. Strákurinn lengst til vinstri í rauðri peysu er Gunnar Snorri Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 97
Þórunn Bernódusdóttir um eins árs aldur.
Barnaból - safn419
Andri Már Gunnarsson kátur við sápukúlugerð í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 166
Hjónin Lúðvík Jónsson og Ólína Gyða Hafsteinsdóttir frá Reykholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 154
Vinkonurnar Þórey Ólafsdóttir (d.?) frá Árbakka til vinstri og Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) til hægri á ókunnum stað.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 016
Margrét Anna Jóhannsdóttir í ágúst 1977 þá þriggja ára á leikskólanum Barnaból. Margrét hafði tekið miklu ástfóstri við veskið sem hún er með og druslaðist með það með sér langtímum saman á leikskólanum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 023
Myndin var tekin á sjómannadaginn 14. júní 1981 þegar Lárus Ægir Guðmundsson heiðraði séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), til vinstri, fyrir hönd sjómannadagsráðs.
Jón Jónsson 464
Kátar konur við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Vinstra megin eru: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), óþekkt, Birna Blöndal og óþekkt. Hægra megin við bandið eru frá vinstri: Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010), óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Ardís Ólöf Arelíusdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 56
Ekki er vitað um tilefni samsætisins á myndinni. Myndin, sem var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd, var líklega tekin seint á áttunda áratugnum eitthvað í tengslum við hestamennsku. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Vilhjálmur Skaftason og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 138
Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988).
Ingibergur Guðmundsson 117
Kaffisopi í eldhúsinu í apríl 1986. Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993) til vinstri og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 191
Kristjana Jónsdóttir og Jón Arnarson með verðlaun sín fyrir víðavangshlaup á 17. júní 1985. Aftan við þau má m.a. sjá Sigfús Jónsson í hvítu, Rúnar Loftsson sem ber hönd fyrir augu og Bjarney Valdimarsdóttir bláklædda til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 281
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Til að fjármagna starfsemina, þar á meðal byggingu skíðaskálans, tóku jólasveinar á vegum skíðadeildarinnar að sér að bera út jólapóstinn á Skagaströnd. Á myndinni eru þeir að leggja af stað með póstinn frá Skíðaskálanum á Þorláksmessu.
Barnaból - safn408
Klara Ósk Hjartardóttir í leikskólanum Barnaból veturinn 2009 - 2010.
Adolf H Berndsen - safn110
Flötin á níundu braut á Háagerðisvelli er rétt hjá golfskálanum. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þrír óþekktir kylfingar að búa sig undir að pútta og klára þannig hringinn á þessum fallega stað.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 177
Karl Berndsen
Adolf H Berndsen - safn101
Rolf Árnason (d. 3.6.2014) var áhugasamur golleikari og lagði sína hönd á plóginn við uppbyggingu Háagerðisvallar á Skagaströnd. Á þessari mynd skálar Rolf í golfskálanum að afloknum góðum hring á vellinum. Ekki er vitað hvenær mynin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 131
Hárprúðir tvíburar og nýstúdentar við útskrift frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1973 með foreldrum sínum. Frá vinstri: Karl Guðmundsson, Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Ingibergur Guðmundsson.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 042
Kristín Sigurðardóttir við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 011
Ólafur Ingibjörnsson hífir um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Ingibergur Guðmundsson 157
Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadaginn 1986. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir með verðlaunabikarinn, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Edda Pálsdóttir
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 175
Kristinn Daníelsson (d.3.8.2011) maður Áslaugar Hafsteinsdóttur frá Reykholti. .
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn106
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er verið að flyta sér útgáfu af ævintýrinu um Rauðhettu. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 121
Jón Hallur Pétursson
Barnaból - safn402
Málningavinna í gangi í Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Börnin eru, frá vinstri:Gunnar Andri Elvarsson, ?Stefanía Stefánsdóttir?, Mikael Örn Benjamínsson og ?Hugrún Antonía Sigurðardóttir?. Vinsamlega sendu okkur athugasemd ef þú þekkir stúlkurnar sem eru með spurningamerki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 165
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 101
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 233
Sjötti ágúst 2014 hlýtur að hafa verið bjartur og sólríkur ef miða má við sólgleraugun sem þau eru með Victoría Hólmbertsdóttir og Geir Arnarson starfsmenn vinnuskólans.
Jón Jónsson 465
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helga Berndsen 098
Helga Berndsen frá Karlsskála á reiðhjóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma kringum 1950.
Ólafur Bernódusson 704
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn að undirbúa flutning á sjúklingi undir leiðsögn Karls. Sjúklingurinn er leikinn af Lilju Ingólfsdóttur en hjálparfólkið er, talið frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Monika Tischleder, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Guðmundur Egill Erlingsson og Árni Geir Ingvarsson. Karl er lengst til vinstri að segja fólkinu til.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 134
Þessi maður er óþekktur. Myndin er líklega tekin í Reykjarfirði á Ströndum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn400
Þrjár stúlkur að leik í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Vinstra megin er María Gret Gunnarsdóttir en stúlkurnar til hægri eru óþekktar.
Ingibergur Guðmundsson 247
Lúðrasveit Skagastrandar leikur fyrir gesti á sjómannadegi. Flestir spilararnir voru frá Skagaströnd og voru við nám í Tónlistarskóla A-Hún. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Skarphéðinn Einarsson skólastjóri tónlistarskólans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 61
Bræðurnir Þorvaldur Skaftason til vinstri og Vilhjálmur Skaftason til hægri.
Helga Berndsen 044
Á myndinni eru þrenn hjón. Lengst til vinstri eru Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen maður hennar. Í miðið eru Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og lengst til hægri eru hjónin Fríða Hafsteinsdóttir og Karl Berndsen (d.12.2.1995). Líklega var myndin tekin 1990 eða 1991.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 80
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) er fremstur á myndinni. Aftan við hann er óþekkt kona og síðan Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Aðrir á myndinni eru óþekkir en hún var tekin í skemmtiferð starfsfólks Hólaness hf um Norð - austurland.
Ingibergur Guðmundsson 228
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Á myndinni stekkur Helgi Björnsson (d. ?) þrístökk fyrir Fram á Skagaströnd. Krjúpandi, tilbúinn að mæla stökkið, er Steinþór Ólafsson (d. 18.9.1985) póstmeistari á Skagaströnd. Aðrir á myndinni eru óþekktir. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 088
Jóninna Pálsdóttir (d.21.3.2018) með dóttur sína Sigrúnu Kristófersdóttur fyrir utan heimili þeirra að Sunnuhvoli (Sunnuvegur 1)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 108
Stelpurnar á myndinni eru óþekktar en strákurinn er Árni Geir Ingvarsson sem var á þriðja ári þegar hún var tekin 1965. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn099
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005 af þeim Guðrúnu Pálsdóttur til vinstri og Guðbjörgu Viggósdóttur til hægri.
Barnaból - safn362
Hugrún Antonía Sigurðardóttir að leira í leikskólanum Barnaból 2008 - 2009.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 038
Gunnar Guðmundsson virðir fyrir sér skíðin í gini dauðrar hrefnu á höfninni á Skagaströnd. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1985. Slík sjón var ekki óalgeng á Skagastrandarhöfn á sumrin um nokkuð árabil því hrefnurnar voru skotnar í Húnaflóa og gjarnan skornar á höfninni.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 60
Myndin var tekin af líkfylgd Þórarins Jónssonar sem lést af slysförum 1963. Þessi mannfjöldi fylgdi honum síðasta spölin í kirkjugarðinn að Spákonufelli.
1
…
145
146
147
…
167
Leita í myndasafninu
Leita