Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 116
Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Guðmundur Haukur Sigurðsson í kleinukaffi í apríl 1986.
Ingibergur Guðmundsson 269
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd úr Fellsborg er Jón Ingi Ingvarsson einbeittur í að spila í keppni við klúbbinn á Hvammstanga í mars 1986.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 090
Systurnar Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) til vinstri og Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) til hægri að fá sér kaffisopa í eldhúsinu á Bogabraut 16, heimili Karitasar.
Ólafur Bernódusson 711
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Þeir vor stoltir af spjöldunum sínum Dagur Freyr Róbertsson til vinstri og Auðunn Árni Þrastarson til hægri enda skilaboðin skýr.
Ingibergur Guðmundsson 107
Mæðgurnar Lára Guðmundsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir um áramótin 1985 - 1986.
Helga Berndsen 077
Frænkurnar Laufey Berndsen til vinstri og Steinunn Berndsen til hægri í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Ingibergur Guðmundsson 244
Kristinn Guðmundsson skrifstofustjóri hjá Hólanesi hf við vinnu sína hjá fyrirtækinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 003
Á myndinni er Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d. 12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) með börn sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Myndin hefur líklega verið tekin 1953 eða 54. Á hestinum situr Óskar Axelsson, en strákurinn í röndóttu peysunni er Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011). Bogga heldur svo á systur þeirra Guðríði Gígju Axelsdóttur í fanginu. Líklega standa þau við gamla bæinn á Höfðahólum.
Helga Berndsen 085
Myndin var tekin í fermingarveislu vorið 1995. Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir móðir Steinunnar og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir svilkona Hjördísar.
Jón Jónsson 505
Sjómannadagur 1971. Á myndinni sýna félagar úr björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd björgun með fluglínutækjum. Þarna er verið að draga mann í land á Litlu bryggjuna í björgunarstól af bát sem lá úti í höfninni.
Ingibergur Guðmundsson 105
Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Kári Sigurbjörn Lárusson til hægri í 70 ára afmælisveislu Kára Kristjánssonar (d.11.12.1990) á Kárastöðum 5. desember 1984.
Ólafur Bernódusson 669
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd og Anna Kristín Gunnarsdóttir varaþingmaður.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 062
Haustið og veturinn 1994 byggðu Helgi Gunnarsson og starfsmenn hans tvö ræsi á og við þjóðveginn við Húnaver. Á þessari mynd er fyrra ræsinu lokið og grillir í það aftan við karlana en framkvæmdir standa yfir við síðara ræsið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Baldvin Hjaltason, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), Hrólfur Pétursson og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011).
Barnaból - safn406
María Gret Gunnarsdóttir til vinstri með Einari Hjálmtý Gunnarssyni til hægri að leik í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Barnaból - safn399
Mikael Örn Benjamínsson í Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn073 - Copy
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Það er venja á árshátíðum að kennararnir séu með eitt atriði á dagskránni þar sem þeir sleppa gjarnan fram af sér beislinu í léttu gríni. Þessi mynd er af þeirra atriði þetta árið. Af augljósum ástæðum eru kennararnir óþekktir á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 152
Sigursveit í kappróðri kvenna á sjómannadaginn 1989. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason stýrimaður, Katrín Sigurjónsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir og Erna Magnúsdóttir með kvennabikarinn í höndum.
Ingibergur Guðmundsson 251
Halldór Gunnar Ólafsson um borð í rækjubát að vinna við löndun á rækju sumarið 1989.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 261
Elvar Geir Ágústsson sýnir vöðvana í vinnunni við golfvöllin í júlí 2011.
Ingibergur Guðmundsson 108
Fjögur af systkinunum frá Garði í 75 ára afmæli Elínar Jóhannesdóttur í október 1985. Frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Elín Jóhannesdóttir (d. ?), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011) og Þorleifur Jóhannesson (d.6.11.1988).
Guðrún Sigurðardóttir - safn 056
Viggó Brynjólfsson
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 136
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru frá vinstri: óþekkt stúlka, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d. 22.7.2008) (fjær), Karl Berndsen (nær), Aðalsteinn Jörgensen, Áslaug Hafsteinsdóttir og Kristinn Daníelsson (d.3.8.2011). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 154
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari tekur þátt í einhverjum leik á sjómannadegi 1996. Hallbjörn þarf að aka í hjólastól ákveðna vegalengd og leysa síðan einhverja þraut við enda brautarinnar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 2
Vilhjálmur Skaftason. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 201
Hluti keppenda frá USAH á meistaramóti Íslands 14 ára og yngri í Kópavogi 1976. Krjúpandi er óþekkt. Standandi frá vinstri: Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Soffía Guðmundsdóttir.
Jón Jónsson 497
Fólkið á þessari mynd úr Stafnsrétt er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 045
Unnur Gunnarsdóttir til vinstri og Anna Guðmannsdóttir til hægri sumarið 1969.
Barnaból - safn383
Mikael Örn Benjamínsson á tveggja ára afmælinu sínu í leikskólanum Barnabóli 19. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 277
Nágrannar á Bogabraut spjalla saman um lífið og tilveruna í nóvember 2011. Frá vinstri: hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson á tali við Gunnar Sveinsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 37
Bílaleikur á götunni framan við Reykholt (Fellsbraut 6). Strákurinn lengt til hægri er líklega Aðalsteinn Jörgensen en hinir tveir eru Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001)með skófluna en bak við hann er Valdimar Lárus Guðmundsson (d.4.4.2015). Húsin lengst til hægri eru nú horfin en þau voru, frá hægri: Baldursheimur, Goðhóll og Akurgerði. Húsið hinum megin við götuna er svo Skjaldbreið eða Fellsbraut 7.
Helga Berndsen 105
Menn leggja sig ávallt alla fram í reiptoginu á sjómannadegi. Á þessari mynd eru á reipinu, frá vinstri: Skúli Tómas Hjartarson, Guðni Már Lýðsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Tryggvi Hlynsson. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 050
Á myndinni eru Helgi Þórðarson f. 3.3.1877 að Oddstöðum í Staðarhreppi í Hrútafirði d. 11.12.1951. Hann flutti vestur um haf. Með honum á myndinni eru fyrri kona hans Ragnhildur Andresdóttir f.20.7.1879 og d. 7.7. 1904 og dóttir þeirra Lára Kristín f.12.7. 1902 og d. 13.8.1985.
Ingibergur Guðmundsson 110
Þessi mynd var tekin 6. apríl 1986 af Láru Kristjánsdóttur (d.6.9.1993) á 85 ára afmæli hennar. Með henni á myndinni er hluti af barnabarnabörnum hennar. Fremri röð frá vinstri: Jósef Stefánsson, Soffía Lárusdóttir, Alfa Lára Guðmundsdóttir, Guðmundur Víðir Guðmundsson og óþekktur. Aftari röð frá vinstri: óþekktur, Kolbrún Eðvarðsdóttir, óþekkt, Lára, Erla María Lárusdóttir og Bára Kristinsdóttir.
Helga Berndsen 047
Hjónin Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 076
Systurnar Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015) til vinstri og Guðrún Sigurðardóttir til hægri frá Þórsmörk á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 54
Systkinin Hafsteinn Þórðarson og Bára Þórðardóttir eldri börn Pálínu M. Hafsteinsdóttur (d.22.7.2008) frá Reykholti.
Ingibergur Guðmundsson 124
Guðmundur Guðmundsson með foreldrum sínum þeim Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010). Tilefni myndatökunnar var skírn á syni Láru dóttur þeirra, Guðlaugi Inga Gunnarssyni, 17. ágúst 1986.
Ingibergur Guðmundsson 305
Systurnar Aðalheiður Sif Árnadóttir til vinstri og Halla Kristín Árnadóttir að vinna í skólagörðunum 1984.
Barnaból - safn353
Ásgeir Sigmar Björnsson til vinstri og Valdimar Viggó Baldursson leika sér í dótakassa í Barnabóli 2008 - 2009.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 072
Eygló Gunnarsdóttir 2. júlí 1989.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 131
Rúnar Jósefsson kampakátur með lambhrút í fanginu í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 264
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er Sævar Hallgrímsson að spila í Fellsborg 1989.
Adolf H Berndsen - safn077
Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason af kirkjukór Hólaneskirkju á heimili séra Péturs Þ. Ingjaldssonar í Höfða árið 1971. Sitjandi frá vinstri: Elísabet Árnadóttir, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Guðrún Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989), Bjarni Harðarson, Rúnar Hartmannsson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Edda Pálsdóttir (d. 8.4.2016), Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Þorvaldur Skaftason nýkjörinn formaður kórsins.<br>
Adolf H Berndsen - safn095
Haustið 1985 voru fyrstu skrefin í golfleik á Skagaströnd tekin á túninu þar sem nú er tjaldsvæði Skagastrandar. Á myndinni mundar Ómar Jakobsson kylfuna en hann var einn af frumkvöðlunum golfklúbbsins.
Helga Berndsen 010
Hjónin Anna Björnsdóttir (d.6.12.1948) og Björn Helgason (d.11.3.1983) frá Efri-Læk.
Ingibergur Guðmundsson 112
Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) til vinstri og Bára Berndsen til hægri í 85 ára afmæli Láru Kristjánsdóttur (d.6.9.1993) 6. apríl 1986.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 204
Starfsfólk vinnuskólans á Skagaströnd að gera sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. júlí 2012. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Einarsson.
Barnaból - safn424
Hluti barna á leikskólanum Barnaból veturinn 2009 - 2010. Fremst frá vinstri: Guðjón Dunbar Þorsteinsson og Mikael Garðar Hólmgeirsson. Röð tvö frá vinstri: Almar Atli Ólafsson og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Klara Ósk Hjartardóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Fjórða röð frá vinstri: óþekkt og María Gret Gunnarsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Einar Hjálmtýr Gunnarsson og Sindri Freyr Björnsson.
Ólafur Bernódusson 693
Hafþór Gylfason um borð í Öldu Hu 112 býr sig undir að landa eftir góðan línuróður. Myndin var tekin í mars 2013.
Helga Berndsen 096
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1940 á tröppunum á Karlsskála. Á henni eru Steinunn Berndsen (fædd Siemsen) (d.29.10.11953) og Karl Berndsen (d.12.2.1995).
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn095 - Copy
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir með son sinn Guðjón Dunbar á bakinu við Hvítserk í september 2005.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 006
Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 14 eða Arnari Hu 1 en báðum þeim skipum stjórnaði hann með frábærum árangri.
Ingibergur Guðmundsson 266
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd, sem var tekin í Fellsborg á 20 ára afmælismóti klúbbsins 5. janúar 1986, eru keppnisstjórarnir Adolf H. Berndsen til vinstri og Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) til hægri.
Helga Berndsen 050
Björg Berndsen til vinstri og Sigríður Ólafsdóttir til hægri. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Helga Berndsen 009
Þessi mynd var líklega tekin heima á Karlsskála rétt fyrir 1970. Á myndinni eru frá vinstri: Karla Helgadóttir (d.25.9.1986), Helga Berndsen, Guðrún Einarsdóttir og Aðalsteinn Norberg. Karla var móðusystir Helgu sem er móðir Guðrúnar.
Helga Berndsen 074
Mydnin var tekin 1995 í fjölskylduboði. Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Karl Berndsen, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Guðrún Björg Berndsen.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 62
Fremst á þessri mynd eru hjónin Vilhlem B. Harðarson og Kristín Kristmundsdóttir. Með þeim eru börn þeirra og tengdabörn. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Þráinsdóttir og Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir. Mennirnir eru, frá vinstri: óþekktur, Hörður Aðils Vilhelmsson og Guðmundur Henry Stefánsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 52
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti teflir hér við einn af afastrákunum sínum, Aðalstein Jörgensen. Í baksýn er Jónatan Jónsson (d.?) kennari við Höfðaskóla. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1968.
Helga Berndsen 020
Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996). Myndin var tekin sumarið 1991.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 001
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1974 um borð í Arnari Hu 1. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri situr í stólnum en í baksýn er Árni Ólafur Sigurðsson sem seinna varð farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf.
1
…
146
147
148
…
167
Leita í myndasafninu
Leita