Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 485
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga.
Ingibergur Guðmundsson 274
Magnús B. Jónsson og Hallveig Ingimarsdóttir í frumsýningarkaffi í mars 1988 eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á "Fyrsta öngstræti til hægri".
Ingibergur Guðmundsson 295
Þráinn Bessi Gunnarsson handlangar sig eftir kaðli milli báta í höfninni á sjómannadaginn 1987. Að sjálfsögðu var kaðallinn svo slakur að þeir sem reyndu sig við hann blotnuðu vel á leiðinni.
Ingibergur Guðmundsson 296
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson að gella þorskhausa.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 223
Hressir drengir í vinnuskólanum í júlí 2014. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Róbert Björn Ingvarsson og Aron Snær Fannarsson.
Ólafur Bernódusson 646
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd eru krakkar að æfa kynningar sínar áður en húsið opnaði fyrir gesti. Frá vinstri: Kristján Róbertsson, Sigurjón Elí Eiríksson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eymundur Lórens Grétarsson, Victoría Hólmgeirsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Ívan Árni Róbertsson, María Gret Gunnarsdóttir, óþekkt, Jóna Marrét Sigurðardóttir, Rakel Elvarsdóttir, óþekktur (fjær), Gunnþór Kristjánsson og Daði Snær Stefánsson.
Ingibergur Guðmundsson 166
Á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson kynnir á sjómannadegi 1994 að hengja verðlaunapeninga í barm sigursveitar karla í kappróðri dagsins. Frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Gunnar Þór Gunnarsson, Jóhannes Sveinsson, Bjarni Ottósson, Sigurjón Ingólfsson, Ernst Berndsen, Finnur Kristinsson stýrimaður og Lárus Ægir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 024
Gunnar Halldór Hallbjörnsson tekur bunu á snjóþotu á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 82
Hér er fólk að vinna við að pakka banönum. Konan á miðri mynd er Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn340
Vinkonurnar Stefanía Hrund Stefánsdóttir til vinstri og Erla Mjöll Daðadóttir til hægri í leikskólanum 2008 -2009.
Helga Berndsen 116
Helga Berndsen. Myndin var tekin 1946 og þess vegna er gaman fyrir kunnuga á Skagaströnd að virða fyrir sér bakgrunn myndarinnar.
Ingibergur Guðmundsson 193
Hugrún Pálsdóttir svífur yfir hástökksrána á unglingamóti USAH í febrúar 1985.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 190
Á myndinni eru hjónin Hörður Ragnarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með börnum sínum þeim Pálínu Freyju Harðardóttur og Vilhelm B. Harðarsyni. Lengst til hægri er kona hans, Kristín Kristmundsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn193
Fermingarbörn í Hólaneskirkju eldri vorið 1976. Í fremri röð frá vinstri eru: Erla Björg Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Gestur Arnarson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Magnús Sigurðsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Vilhelm Björn Harðarson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Ottó Georgsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 135
Þetta prúðbúna fólk er óþekkt. Ef þú þekkir þau eða eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 327
Unnið við steinalögn við Suðurveg 1 í júní 2011. Frá vinstri: Vilhjálmur Jónsson, Stefán Sveinsson og Ólafur Ásgeirsson.
Ingibergur Guðmundsson 279
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Mokararnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 234
Gylfi Sigurðsson pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Gylfi, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Gylfi var munstraður sem stýrimaður, Hallgrímur var vélstórinn í hópnum og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 220
Ein af íþróttagreinunum á landsmóti á Húsavík 10.-13. júlí 1987 var Bridge. Á þessari mynd er sveit frá Skagaströnd sem þátt tók í keppninni. Frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Jón Ingi Ingvarsson, Eðvarð Hallgrímsson og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012).
Ingibergur Guðmundsson 147
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fjallgöngufólkinu né hvenær. Frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Jane Sillar (d. 2017) og William Sillar.
Helga Berndsen 059
Þessi mynd var tekin 1967 af systkinunum Laufey Berndsen og Ernst Berndsen en á milli þeirra situr frænka þeirra Guðrún Einarsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 277
Hópur áhugamanna á Skagaströnd lagði saman í púkk og keyptu nokkur líkamsræktartæki sem þeir komu fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla í mars 1986. Á þessari mynd er einn þessara áhugamanna, Rúnar Loftsson, við æfingar í tækjunum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 081
Þessir prúðbúnu vinir eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Gunnar Guðmundsson og Hildur Inga Rúnarsdóttir. Myndin var líklega tekin kringum 1988.
Ólafur Bernódusson 730
Steypireyður er stærsta skepna jarðarinnar og er reyndar talinn stærsta skepna sem nokkurn tíma hefur verið til enda geta þeir orðið 200 tonn að þyngd og yfir 30 metra langir. Einn slíkan rak dauðan í fjöruna sunnan við bæinn Ásbúðir á Skaga í ágúst 2010. Bræðurnir á Hrauni á Skaga þeir Jóhann og Steinn Rögnvaldssynir voru fengnir til að skera hvalinn og hreinsa beinan eins vel og kostur var því beinagrindin er varðveitt eftir langt hreinsunarferli, sem fól meðal annars í sér langa suðu á beinunum til að ná úr þeim lýsinu. Eftir þurrkun voru beinin síðan flutt til Húsvíkur þar sem þau voru sett saman og hægt er að sjá beinagrindina á hvalasafninu þar. Snemma á öldinni var mikið veitt af steypireyð þannig að hann var kominn í útrýmingarhættu en hann er alfriðaður í dag.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 36
Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985) utan við heimili sitt að Brautarholti. Vilhelm B. Harðarson skoðar hverfisteininn upp við vegg hússins. Myndin var líklega tekin tekin kringum 1965. Ólafur var yfirleitt alltaf kenndur við heimili sitt og kallaður Óli í Brautarholti eða Óli í Braut. Brautarholt er nú horfið en það stóð utan í hólnum sem er á milli Fellsbrautar 9 og 13.
Helga Berndsen 097
Eini maðurinn sem er þekktur á þessari mynd er Pétur Björnsson frá Móbergi sem er lengst til vinstri á myndinni. Myndin hefur verið tekin á fánadegi líklega annað hvort á sjómannadegi eða 17. júní við einhvern íþróttaviðburð ef dæma má eftir klæðaburði og fótabúnaði þeirra sem sitja fremst á myndinni. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða getur veitt einhverjar upplýsingar um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 065
Konur við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Signý Ástmarsdóttir, Sigurbjörg Björnsdóttir (d.3.4.1981) frá Grund og Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Jón Jónsson 481
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Borgarvirki. Maðurinn til vinstri er Georg Rafn Hjartarson (d. 13.9.2001) og næst kemur konan hans Helena Martha Ottósdóttir (d.22.11.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 202
Aðalfundur umf. Fram í febrúar 1990 var fjölmennur eins og sjá má. Fólki verður sjálfu látið eftir að þekkja þá sem eru á myndinni.
Helga Berndsen 072
Myndin var tekin 1995 í veislu í Bankastræti 9. Til vinstri er Laufey Berndsen með dóttur sína Fríðu í fanginu. Til hægri er Steinunn Berndsen.
Ólafur Bernódusson722
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni má sjá að áhorfendur í sal skemmtu sér vel yfir uppátækjum krakkanna á sviðinu.
Helga Berndsen 110
Konurnar á myndinni voru líklega í stjórn kvenfélagsins Eining á Skagaströnd þegar myndin var tekin. Ekki er vitað hvenær það var en sennilega hefur það verið upp úr 1980. Í aftari röð frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003). Fremri röð frá vinstri: Helga Berndsen, Björk Axelsdóttir og Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017).
Ingibergur Guðmundsson 275
22. nóvember 1985 hélt Leikklúbbur Skagastrandar upp á 10 ára afmæli sitt með því að félagarnir skemmtu hvor öðrum með ýmis konar atriðum sem ekki áttu öll erindi á opinberar skemmtanir. Á þessari mynd er Birna Blöndal að kenna ballet þeim, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ingibergur Guðmundsson, Ólafur Bernódusson og Guðmundur Haukur Sigurðsson. Að sjálfsögðu klæddu menn sig upp í viðeigandi búninga en grín var gert að Guðmundi fyrir að hann hefði ekki haft efni á að koma sér upp balletbúningi. Einnig má sjá að myndin var tekin löngu fyrir #metoo - byltinguna.
Ingibergur Guðmundsson 156
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadaginn 1986. Frá vinstri: Eiður Hilmarsson stýrimaður, Finnur Kristinsson, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Rúnar Jósefsson, Jón Gunnar Jósefsson, Friðrik Gígja og Ragnar Högnason með verðlaunabikarinn.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 7
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af þessu prúðbúna fólki né hvar. Frá vinstri á myndinni eru: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir (fjær), Fríða Sigurbjarnardóttir (d.?)(nær), Vilhelm Harðarson, Pálína Freyja Harðardóttir, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba) (d.26.8.2008), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994).
Helga Berndsen 069
Myndin var tekin 1995 á höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri á myndinni: Fritz Hendrik Berndsen, Gísli Snorrason, Sigurður Ernst Berndsen í kerrunni og Sigríður Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 217
Fjórar blómarósir gróðursetja blóm í júlí 2014 á vegum vinnuskólans. Frá vinstri: Victoría Hólmbertsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Bjarndís Sól Helenudóttir.
Ólafur Bernódusson 707
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Á þessari mynd er hluti hópsins með kröfuspjöld sín og dósir með smásteinum til að hrista og gera hávaða.
Helga Berndsen 052
Halldóra Ásmundsdóttir yngsta bróður sinn, Magnús Ásmundsson á handleggnum. Myndin var tekin 1966.
Ingibergur Guðmundsson 138
Húnavöku-ritnefndarmennirnir Jóhann Guðmundsson frá Holti til vinstri og Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) frá Kagaðarhóli ritstjóri, önnum kafnir við að lesa prófarkir Húnavökunnar í apríl 1985.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 91
Hörður Ragnarsson vörubifreiðastjóri vinnur að dekkjaskiptum á bílnum sínum. Hjá honum, alveg tilbúinn að hjálpa til, er afastrákurinn hans, Hörður Aðils Vilhelmsson. Myndin var líklega tekin kringum 1988.
Helga Berndsen 104
Þær eru kátar konurnar á myndinni. Helga Berndsen er lengst til vinstri en hinar konurnar eru mágkonur hennar. Hjördís Sigurðardóttir situr nær Helgu og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir fjær henni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 292
Hjónin Guðbjörg Ólafsdóttir og Finnur Kristinsson að dytta að skemmunni sinni við Fjörubraut í maí 2012.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 79
Þórunn Bernódusdóttir á vinnustað sínum sem símaafgreiðslustúlka á Gamla pósthúsinu. Fyrir tíma sjálfvirkninnar þurfti símastúlkan að gefa samband milli númera í kerfinu og "gefa línu" eins og kallað var gegnum tengiborðið sem sést til hægri. Á þessari mynd, sem líklega var tekin einhverntíma kringum 1975, hefur Pálína Freyja Harðardóttir komið í heimsókn af efri hæðinni þar sem hún átti heima á þessum tíma.
Barnaból - safn393
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni les Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri á afmæliskortið. Til vinstri í lopapeysu er Helena Mara Velemir og svo glittir í Sigríði Ásgeirsdóttur og Lilju Ingólfsdóttur. Guðbjörg Viggósdóttir situr aftast í grænni peysu en Guðlaug Grétarsdóttir er til hægri hjá Hildi Ingólfsdóttur skólastjóra Höfðaskóla.
Helga Berndsen 123
Á myndinni eru hjónin Steinunn Berndsen (d.29.10.1953) og Carl Berndsen (d.15.12.1954) frá Karlsskála með Árna Ólaf Ólafsson, son Ólafs Lárussonar (d.30.5.1953) og Bjargar Berndsen (d.15.12.1963). Árni Ólafur varð ekki langlífur því hann lést í slysi við höfnina á Skagaströnd 1938.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 75
Árni Geir Ingvarsson lætur sig dreyma um vélfáka, líklega kringum 1980.
Ingibergur Guðmundsson 213
Kristjana Jónsdóttir og Hjörtur Guðmundsson með verðlaunagrip eftir innanhússmót USAH 1988.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 186
Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994) frá Reykholti og seinna úr Sævarlandi.
Ingibergur Guðmundsson 123
Myndin var tekin eftir skírn Guðlaugs Inga Gunnarssonar 17.8.1986. Á myndinni er hann með foreldrum sínum, Gunnari Svanlaugssyni og Láru Guðmundsdóttur og prestinum séra Geir Waage.
Ingibergur Guðmundsson 227
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Á myndinni stekkur Jón Hannesson (d.10.9.2002) úr Hvöt á Blönduósi hástökk með "grúfu" stíl. Lengst til vinstri fylgist Einar Guðlaugsson (d.1.4.2008) með. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Ingibergur Guðmundsson 212
Víðir Ólafsson með verðlaunagrip í höndum eftir keppni á innanhússmóti USAH 1988.
Barnaból - safn415
Brynjar Daði Finnbogason blæs sápukúlur í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 084
Harpa Friðjónsdóttir frá Lækjarhvammi (Sunnuvegi 1).
Helga Berndsen 013
Sambýlisfólkið Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Helga Berndsen.
Helga Berndsen 058
Guðrún Einarsdóttir á Karlsskála með splunkunýtt reiðhjól. Í baksýn eru trillubátar Skagstrendinga í fjörunni neðan við Læk en þar voru þær gjarnan geymdar yfir veturinn þegar veður voru vályndi og ekki var róið. Myndin var líklega tekin einhventíma kringum 1965.
Barnaból - safn395
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni eru leikskólakrakkarnir að syngja fyrir starfsfólk og nemendur Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 258
Stund milli stríða hjá þeim Stefáni Sveinssyni til vinstri og Sævari Hlyn Tryggvasyni til hægri í júní 2011.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 046
Myndin var tekin vorið 1969 framan við Karlsskála. Frá vinstri: Karl Berndsen, Guðrún Björg Berndsen, Fritz Hendrik Berndsen og Steinunnn Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 300
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) að salta yfir fisk í kari í vinnslunni.
1
…
147
148
149
…
167
Leita í myndasafninu
Leita