Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 134
Hluti af ritnefnd Húnavöku 1985. Frá vinstri: Björn Bergmann Jónasson (d. 30.5.1985) frá Marðanúpi, sem var reyndar ekki í ritnefndinni en ákafur velunnari Húnavökunnar, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli, ritstjóri og Jóhann Guðmundsson ritnefndarmaður í Holti.
Ingibergur Guðmundsson 257
Stjórnarfundur hjá umf. Fram á Skagaströnd árið 1989. Frá vinstri: stjórnarmennirnir Jóhanna Harðardóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Halldór Hermannsson formaður.
Jón Jónsson 501
Sjómannadagur 1971. Fólksfjöldi fylgist með koddaslag á staur sem er næst okkur á myndinni til vinstri. Eins og sjá má hefur hafnarsvæðið breyst mikið frá því að myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 231
Gabríel Sólon Sigurðsson í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 176
Þessir þrír heiðursmenn hittust stundum á rölti um grasagarðinn í Laugardalnum í Reykjavík. Frá vinstri: Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) sjómaður og verkamaður frá Akri á Skagaströnd, Þorsteinn Einarsson (d.5.1.2001) íþróttafulltrúi ríkisins og Georg Rafn Hjartarson (d. 13.9.2001) sjómaður, múrari og veiðimaður frá Vík á Skagaströnd.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 021
Brynjar Pétursson í útivist á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 025
Friðrik Gunnlaugsson að leika sér í bílaleik á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Ingibergur Guðmundsson 286
Vatnið í skíðaskálann á Skagaströnd er tekið úr lind norðan og ofan við skálann. Hluta af skurðinum fyrir vatnslögnina þurfti að grafa á höndum og á myndinni er unnið að því en hún var tekin í október 1984. Á myndinni eru Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri.
Helga Berndsen 089
Myndin var tekin í fermingarveislu Sverris Brynjars Berndsen vorið 1995. Á henni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen faðir fermingardrengsins, Óskar Jóhannesson afabróðir Sverris, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) amma Sverris og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) langamma hans.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 047
Líney Jósefsdóttir í skólaferðalagi kringum árið 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 118
Fjórar Hafsteinssystur frá Reykholti í íslenskum búningum. Frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008). Líklega var myndin tekin 1989 í tilefni af 50 ára afmælis Höfðahrepps.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 084
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24.mars 1988. Á henni eru frá vinstri: tvíburasysturnar Áslaug og Vilborg Jóhannsdætur, Særún Níelsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, þrjú óþekkt, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Berglind Karlsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjósson og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 246
Mæðgurnar Þorgerður Þóra Hlynsdóttir til vinstri og Sigurlaug Máney Sæmundsen til hægri á göngu á Fellsbrautinni 1. september 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 19
Karl Berndsen miðar byssunni sinni á okkur en stúlkan við hlið hans er Laufey Þórðardóttir en þau tvö voru systrabörn. Myndin var tekin 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 89
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) Frá Reykholti í ræðustól. Hafsteinn var bóndi, kaupmaður, skáld og rithöfundur.
Barnaból - safn417
Guðbjörg Eva Jóhannesdóttir að leika sér að sápukúlum í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Guðbjörg Eva er dóttir Jóhannesar Indriðasonar og Margrétar Magnúsdóttur.
Barnaból - safn416
Leikur með sápukúlur í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. María Gret Gunnarsdóttir til vinstri en óþekkt stúlka til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 258
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var spilað einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á myndinni eru að spila þau Jón Sveinsson og Sólveig Róarsdóttir á bridgekvöldi í Fellsborg.
Ingibergur Guðmundsson 159
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 1996. Frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson stýrimaður, Stefán Sveinsson, Slavko Velemir, Jóhannes Sveinsson, Börkur Árnason, Hedrik Berndsen og Guðmundur Gunnlaugsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 330
Unnið að viðhaldi á leiksskólanum Barnabóli í mars 2010. Smiðirnir eru Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Guðmundur Rúnar Kristjánsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 709
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Lögreglan fylgdi göngunni þar sem hún fór gegnum bæinn.
Adolf H Berndsen - safn096
Hjónin Adolf H. Berndsen og Dagný Marín Sigmarsdóttir eru bæði frambærilegir golfleikarar. Á þessari mynd eru þau með verðlaun sín sem þau unnu á golfmóti á Háagerðisvelli. Tímasetning er óþekkt en líklega hefur það verið einhverntíma kringum 2000.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 70
Frændsystkinin á þessari mynd eru börn þriggja systra frá Reykholti. Börnin eru frá vinstri: Ernst Berndsen, Aðalsteinn Jörgensen, Vilhelm B. Harðarson og Laufey Berndsen. Myndin var líklega tekin 1963 eða 1964.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 262
Einar Ari Einarsson í vinnunni hjá vinnuskólanum við golfvöllinn í júlí 2011.
Ingibergur Guðmundsson 260
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd eru verðlaunahafar á einhverju innanfélagsmóti 1989. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Haraldur Árnason, Ólafur Bernódusson, Sólveig Róarsdóttir og Kristín Björnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 276
Á myndinni eru Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Árni Halldór Eðvarðsson til hægri að undibúa að klæða utan húsið Bjarnaborg sem stendur við Strandgötu. Árni var eigandi hússins en Árni Halldór er starfsmaður Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Húsið sjálft á sér langa sögu. Byggt sem lagerhúsnæði fyrir verslunina Borg og þjónaði henni þar til hún hætti kringum 1970. Eftir það komst húsið í eigu Bjarna Helagsonar (d.30.12.1983) útgerðarmanns á Stíganda hu 9 og síðan Slysavarnadeildarinnar á Skagaströnd sem geymsla og höfuðstöðvar félagsins. Vík ehf eignaðist svo húsið en það félag var í eigu bræðranna Árna Guðbjartssonar og Sigurjóns Guðbjartssonar. Þegar félaginu var svo skipt upp eignaðist Árni húsið einn.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 025
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru konur í eldhúsinu í Fellsborg að hvíla sig augnablik á undirbúningi fyrir árshátíð Hólaness hf þá um kvöldið. Allur undirbúningur hátíðarinnar var í höndum starsfólks fyrirtækisins. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Sjöfn Guðmundsdóttir, Anna Skaftadóttir og Svava Svavarsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 116
Pálína Freyja Harðardóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Pálína er fædd 1969.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn072 - Copy
Unglingar flytja atriði sitt á árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Frá vinstri: Rebekka Þórarinsdóttir, þrjár óþekktar stúlkur, Eydís Ósk Einarsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir og Jóhann Már Berry. Drengurinn með gítarinn í baksýn er líklega Jón Atli Magnússon.
Barnaból - safn420
Þessi mynd var tekin um jólaleitið 2009 í leikskólanum Barnabóli. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Mikael Garðar Hólmgeirsson og Guðjón Dunbar D. Þorsteinsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 691
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir um borð í Öldunni Hu 112 á leið í afmælisveislu í Reykjafirði ásamt fleira fólki frá Skagaströnd.
Jónas Skaftason
Jónas Skaftason frá Dagsbrún á Skagaströnd lést 17. nóvember síðastliðinn, 76 ára að aldri. <br><br>Jónas var einn af þeim sem trúðu á sjálfan sig í lífinu og gekk sína götu, sannfærður um að vera á réttri leið, hvað sem öðrum fannst. Oft var hann með storminn í fangið en hélt alltaf ótrauður áfram, teinréttur, þrátt fyrir að stundum hefði kannski verið auðveldara að beygja af leið. Jónas bjó lengst af á Skagaströnd eða Blönduósi og var einn af þessum mönnum sem setti svip á bæinn þar sem hann átti heima hverju sinni. Samúð okkar er hjá börnum hans og öðrum aðstandendum sem nú kveðja mann sem ávallt sópaði af. <br><br>Útför Jónasar fer fram í kyrrþey. <br>
Helga Berndsen 030
Ernst G. Berndsen (d. 21.8.1983) í Karlsskála var fyrsti hafnarvörður Skagastrandarhafnar og gengdi því starfi í áratugi. Þá var hann lóðs í Húnaflóa og lóðsaði lítil og stór skip til hafnar í höfnunum við flóann. Ernst var lengi umboðsmaður fyrir BP eða Olíufélag Íslands - Olís en jafnframt því sótti hann sjó á eigin trillum þegar færi gafst. Þeir eru ófáir sjómennirnir sem fóru sinn fyrsta róður með Ensa, eins og hann var kallaður, og lærðu hjá honum réttu handtökin á sjó.
Ingibergur Guðmundsson 261
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd eru verðlaunahafar á einhverju innanfélagsmóti 1989. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Rúnar Jóhannsson, Gunnar Stefánsson og Gunnar Sveinsson.
Jón Jónsson 489
Hátíðahöld vegna 100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974. Fjölmennur kór syngur fyrir gesti. Ekki er vitað hvar myndin var tekin, Kirkjuhvammur við Hvammstanga?. Ef þú veist hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 208
Myndin var tekin á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Á henni takast í hendur þeir Ingólfur Bjarnason og Halldór Hermannsson. Ingólfur var að taka við sem formaður af Halldóri á fundinum.
Ingibergur Guðmundsson 106
Þessi mynd var tekin á tröppunum á Hólabraut 25 á Skagaströnd. Á henni eru frá vinstri: Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) maður hennar, Lára Guðmundsdóttir dóttir þeirra með dóttur sína Gunnhildi Gunnarsdóttur í fanginu, Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993) móðir Soffíu, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011) systir Guðmundar og Gunnar Svanlaugsson maður Láru og faðir Gunnhildar.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 079
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Eiður Þórsson, Hilmar Árdal Eðvarðsson, Gunnar Guðmundsson, Jón Haukdal Þorgeirsson og Jóhannes William Grétarsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 063
Systkini frá Þórsmörk, frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson og Guðrún Sigurðardóttir.
Barnaból - safn427
Leikskólabörn úr Barnabóli í útivist. Frá vinstri: Karen Líf Sigurbjargardóttir, Gabríel Goði Tryggvason, Guðjón Dunbar Þorsteinsson, Klara Ósk Hjartardóttir og Hlynur Hafliðason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 197
Svala Þyrí Steingrímsdóttir. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) sumarið 1959.
Ólafur Bernódusson712
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru nokkrir strákar að sýna spennandi vísindatilraun. Frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Sigurbjörn Björgvinsson, Róbert Vattnes og Leifur Ragnarsson.
Barnaból - safn421
Guðjón Dunbar Þorsteinsson á fimm ára afmælinu sínu í leikskólanum Barnabóli 18. janúar 2010.
Ingibergur Guðmundsson 282
Stjórnarfundur í skíðadeild Fram. Á fundinum eru stjórnarmenn að undirbúa vígslu skíðaskálans í apríl 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Magnús B. Jónsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Ólafur Bernódusson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 078
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Viktor Pétursson, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Jóhannes Heiðmar Indriðason.
Ólafur Bernódusson 703
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Monika Jónasdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Þórlaug Arnardóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Jón Gunnarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir og Karl Lúðvíksson kennari.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 009
Magnús Sigurðsson vélstjóri mundar logsuðutækin um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 033
Þessi mynd var tekin þegar verið var að steypa plötu í trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar. Sigurður Björnsson tekur á móti steypu með skflu í hönd. Baldur Haraldsson múrari stendur með "sladdann". Maðurinn lengst til hægri með hjólbörurnar er Karl Lúðvíksson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 40
Krakkarnir á myndinni eru talið frá vinstri: Laufey Karlsdóttir Berndsen, Karl Berndsen, Aðalsteinn Jörgensen, Jón Gunnar Jósefsson og Guðmundur Viðar Guðmundsson. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1967.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 202
Fermingarbörn fædd árið 1954 ganga til Hólaneskirkju vorið 1968 á eftir séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Á móti þeim tekur prestmaddaman Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).
Ólafur Bernódusson 697
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður í Vík ehf lagar til balana á bílpallinum eftir löndun úr bát sínum, Öldunni Hu 112, í lok mars 2013.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 029
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980 á árshátíð Hólaness hf. Á henni er stjórn og framkvæmdastjóri félagsins á sviðinu í Fellsborg ásamt Vigdísi Viggósdóttur, sem var starfsstúlka í frystihúsinu. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen, Gunnar Sveinsson og Hjalti Skaftason stjórnarmenn og til hægri er framkvæmdastjórinn, Steindór Gíslason (d.1985).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 66
Mikið fjör í sætaferð líklega á dansleik einhversstaðar í héraðinu. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Þráinn Bessi Gunnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Ægir Lárusson, Jón Arnarson og Hulda Magnúsdóttir. Aftar eru í vinstri röð: Óli Hjörvar Kristmundsson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og óþekkt. Lengst til hægri er Ægir Jónsson. Aðrir eru óþekktir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 017
Krakkar í sólbaði á leikskólanum Barnaból sumarið 1977. Frá vinstri: Þorsteinn Styrmir Jónsson sex ára, Viggó Magnússon sex ára og Berglind ? átta ára.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 28
Hörður Ragnarsson horfir á börnin sín Vilhelm B. Harðarson, sem er að gefa systur sinni Pálínu Freyju Harðardóttur bita, heima á Bogabraut 10.<br>
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 149
Hér skála þær með kaffibollunum sínum Áslaug Hafsteinsdóttir til vinstri og Helga Berndsen til hægri.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 50
Brautarholt stóð utan í hólnum sem er á milli Fellsbrautar 9 og 13. Hóllinn var kallaður Gónhóll eða Sjónhóll því í gamla daga fóru konurnar upp á hólinn til að kanna hvort menn þeirra væru að koma í land af sjónum. Á þessari mynd er Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985), íbúi þar til hægri. Konan á myndinni er Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti og drengurinn er frændi hennar, Vilhelm Björn Harðarson. Ólafur eða Óli í Braut eins og hann var oft kallaður, bjó þarna alla tíð barnlaus ásamt konu sinni Þuríði Jakobsdóttur (d.19.7.1965) og móður Elísabetu Ferdinantsdóttur (d.11.12.1958). Ólafur var fróðleiksfús og hneigðari til bókar og skriftar en erfiðisvinnu. Varð hann læs bæði á ensku og dönsku, sem ekki var algengt með fátæka verkamenn á hans tíð og las mikið. Honum var einnig létt um mál og tók gjarnan til máls á mál- og framboðsfundum. Ólafur var blindur síðustu æviár sín og naut þá aðstoðar Áslaugar meðal annarra. Húsið sem sér í lengst til hægri er Röðulfell. Þegar Ólafur dó var Brautarholt eina torfhúsið á Skagaströnd og hafði þá staðið af sér allar nýsköpun. Myndin var líklega tekin 1968.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 174
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Aðalsteins Jörgensen 1973. Á myndinni situr hann milli afa síns, Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974), og móður sinnar Áslaugar Hafsteinsdóttur.
Ingibergur Guðmundsson 302
1987 voru þessir ungu menn skipverjar á Ólafi Magnússyni Hu 54. Þegar myndin var tekin voru þeir nýkomnir úr róðri. Hjörtur Guðmundsson til vinstri og Vilhelm Harðarsson til hægri.
Barnaból - safn401
Útivist í Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Strákarnir eru frá vinstri: Mikael Garðar Hólmgeirsson, Einar Hjálmtýr Gunnarsson og Andri Már Gunnarsson.
1
…
148
149
150
…
167
Leita í myndasafninu
Leita