Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 224
Árni Geir Ingvarsson bæjarverkstjóri á Skagaströnd skoðar blómabeð utn við leikskólann Barnaból í ágúst 2014.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 055
Myndin var tekin á bílastæðinu við Lund einhverntíma kringum 1970. Fljóla Sigurðardóttir úr Höfðakoti er til vinstri og Unnur Gunnarsdóttir í Lundi til hægri. Í baksýn er líklega Helgi Gunnarsson bróðir Unnar.
Ingibergur Guðmundsson 103
Kolbrún Eðvarðsdóttir teygir sig í efri skápinn hjá frænku sinni Hrefnu Jóhannesdóttur sem dó 9. nóvember 2011 á 101. aldursári sínu.
Barnaból - safn382
Í stressinu í jólaundirbúningnum getur verið gott að kunna að slaka á en til þess eru margar aðferðir. Á myndinni er Stefanía Hrund Stefánsdóttir í Leikskólanum Barnabóli 19. desember 2008. Á henni hefur hún skriðið inn í bakaraofninn á eldavélinni til að slaka á - eða ef til vill var leikurinn upp úr sögunni um Hans og Grétu?
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 060
Trollið tekið um borð í Hólmadrang St 70. Bobbingalengjan er að koma úr kafinu og karlarnir að gera sig klára til að hífa belginn og pokann inn. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 64
Þessi unga kona er Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008) ein af sjö dætrum Hafsteins Sigurbjarnasonar og Laufeyjar Jónsdóttur í Reykholti.
Barnaból - safn351
Í Barnabóli 2008 - 2009. Barnið vinstra megin er Elísa Bríet Björnsdóttir en til hægri er Snæbjörn Elfar Arnarsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 124
Hjónin Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) og Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) með tvö af barnabörnunum sínum. Jósef heldur á Þorláki Sigurði Sveinssyni en Ragnheiður heldur á Guðmundi Henrý Stefánssyni.
Ingibergur Guðmundsson 308
Jón Ingi Ingvarsson leikur golf á Háagerðisvelli á fyrsta golmótinu þar í september 1985.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 064
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri. Hinn maðurinn er óþekktur
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 007
Fyrsta veggeining hússins að Hólabraut 20 reist fyrir hjónin Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017)og Halldóru Þorláksdóttur (d.27.12.2017). Húsið var byggt úr forsteyptum einingaplötum úr sérstaklega sterkri steypu og var því raðað upp eins og úr Lego kubbum. Síðan voru einingarnar boltaðar saman með þéttingu á milli eininga. Hús af þessari gerð hafa reynst vel. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1970. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 203
Ásdís Birta Árnadóttir við afgreiðslu í Djásn og Dúllerí 17. júlí 2012. Djásn og Dúllerí var verslun með handverk og heimilisiðnað sem rekin var nokkur sumur á neðst hæðinni í Gamla Kaupfélaginu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 242
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af Guðmundi Sigvaldasyni (d.8.2.2017) til vinstri sveitarstjóra Hörgárbyggðar og fyrrverandi sveitarstjóra á Skagaströnd og Magnúsi B. Jónssyni til hægri sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagaströnd. Þeir félagr voru á staðnum að kynna sér starfsemi Norðuráss.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 6
Systkinin Pálína Freyja Harðardóttir og Vilhelm Harðarson. Myndin var líklega tekin kringum 1972.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 107
Þessi börn eru óþekkt - líklega börn Ólínu Gyðu Hafsteinsdóttur. Ef þú veist nöfn þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 128
Hjónin Ólafur Guðlaugsson (d.17.5.1996) og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994) frá Sævarlandi með dóttur sína Laufey Sigríði Ólafsdóttur á milli sín. Jóninna heldur á bróður hennar Ara Má Ólafssyni. Líklega hefur myndin verið tekin á fermingardegi Laufeyjar vorið 1954.
Ingibergur Guðmundsson 271
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd eru verðlaunahafar á innanfélagsmóti vorið 1987. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Vilhelm Jónsson og Sveinn Ingólfsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 135
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Laufeyjar Sigríðar Ólafsdóttur frá Sævarlandi vorið 1954. Hún situr á milli afa síns og ömmu; Laufeyjar Jónsdóttur (d.25.12.1969) og Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) frá Reykholti.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 58
Á árum áður var það nánast lífsspursmál að eiga kú til heimilisþarfa. Á þessari mynd er Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) í Reykholti með kusu sína.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 93
Vinirnir Vilhelm B. Harðarson til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri róla saman líklega kringum 1967.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 61
Vilhelm B. Harðarson situr stoltur á kassabílnum sínum fyrir utan Gamla Pósthúsið (Bogabraut 10). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 112
Mæðginin Karitas Ólafsdóttir og Árni Geir Ingvarsson leiða Helgu Dögg Jónsdóttur árið 1994. Myndin var líklega tekin við minnisvarða á Kaldranarinda en hann var reistur til minningar um vegagerð kvenna í kvenfélaginu Heklu í Skagabyggð. Þær lögðu þrjá vegarkafla 1930 - 1933 yfir Digramúla og nálægt Kálfshamarsvík á stöðum þar sem áður hafið verið villugjarnt og illfært. Það gerðu þær af eigin frumkvæði og án hjálpar karla sinna. Minnisvarðinn var vígður 2. júlí 1989.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 049
Hjónin Helgi Þórðarson f. 3.3.1877 og d. 11.12.1951 og seinni kona hans Ingibjörg Skarphéðinsdóttir f. 6.7.1904 og d. 9.9.1965. Þau bjuggu síðast í Skálholti á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson720
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni syngja elstu nemendurnir í atriði sínu. Frá vinstri: Guðmann Einar Magnússon, Anton Þór Einarsson, Friðmar Kári Eiríksson, Ísak Karl Tryggvason, Páll Halldórsson, Egill Örn Ingibergsson, tvær óþekktar stúlkur og Elmar Jóhann Grétarsson.
Hrefna Jóhannesdóttir008
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi skemmtilega mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 031
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980 árshátíð Hólaness hf. Á henni eru starfsmenn Hólaness og makar þeirra að njóta kaffiveitinga. Vinstra megin við borðið nær okkur eru frá vinstri: Agnar Hávarðarson, Gunnar Helgason (d.19.10.2007), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) og óþekkt. Hægra megin við borðið frá vinstri: Heiðdís Sigurðardóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Steindór Gíslason (d.1985), Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir. Við næsta borð má þekkja Kolbrúnu Viggósdóttur í ljósri blússu og Sigþrúði Magnúsdóttur dökkklædda hinum megin við borðið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 727
Á markaðsdegi Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd var hægt að kaupa notaðan fatnað á góðu verði. Einnig var hægt að kaupa sér kakó/kaffi og vöfflu með rjóma. Á myndinni, sem tekin var 1. maí 2006, eru nokkrir gestir að njóta veitinganna í fundarherberginu á annarri hæð í Rauða kross húsinu. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir Guðrún Guðbjörnsdóttir, Adolf H. Berndsen, Gylfi Sigurðsson, Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 23
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru frá vinstri: óþekkt, Áslaug Hafsteinsdóttir og Pálína Hafsteinsdóttir?. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 38
Barnið á myndinni er Pálína Freyja Harðardóttir en hjá henni situr langamma hennar Vilhelmína Andrésdóttir (d.24.8.1977) í Ásgarði á Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1971.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 090
Anna Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum grímubúin sem nunna á leið á grímuball. Líklega var myndin tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson734
Hljómsveitin Janus spilar á Kántrýhátíð 17. ágúst 2007. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri talið: Hjörtur Guðbjartsson, Guðmundur Jónsson, Þorvaldur Skaftason, Kristján Blöndal, Fannar Viggósson og Þórarinn Grétarsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 051
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Þessi vörubíll, H 17, sem var rækilega merktur á hurðunum, var í eigu Engilberts Óskarssonar (d.13.9.1982). Seinna fékk hann sér stærri bíl með flutningskassa og stundaði flutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar á honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en í baksýn sér í gamla kaupfélagið.
Helga Berndsen 128
Myndin var tekin 1970 í póst- og símaafgreiðslunni á Skagaströnd þegar fagnað var vígslu sjálfvirks síma á Skagaströnd. Maðurinn til hægri er Birgir Sigurjónsson umdæmisstjóri í Brú en Helga Berndsen stöðvarstjóri Pósts og síma á Skagaströnd situr til vinstri. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Sama má segja um unga drenginn sem gægist út um afgreiðslulúguna til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 270
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er spilað í Fellsborg veturinn 1984-1985. Við borðið í forgrunni eru frá vinstri: Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993), Ólafur Bernódusson, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012). Hjá þeim stendur Jón Ingi Ingvarsson og fylgist með. Spilararnir við hitt borðið eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 262
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er Charlotta Traustadóttir að spila í Fellsborg 1989.
Helga Berndsen 064
Þessi mynd var tekin á tröppunum á Karlsskála í sólskini sumarið 1995. Á myndinni stendur að þetta fólk sé frá vinstri talið: Sigríður Ólafsdóttir, Kata, Helga Sigríður Ívarsdóttir, Benni og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016)
Helga Berndsen 048
Vinirnir Karl Berndsen og Anna Elínborg Gunnarsdóttir. Þessi hugleiðslumynd var tekin 1990 eða 1991.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 339
Snæbjörn Elfar Arnarson spenntur í skólanum síðasta dag fyrir jólafrí 2014.
Ólafur Bernódusson 633
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd fylgjast gestir með kynningu þeirra Ívans Árna Róbertssonar og Sigurbjargar Birtu Berndsen á verkefni síns hóps.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 249
Sigurður Skagfjörð Bjarnson vinnur með loftbor inni í gömlu Tunnunni um miðjan september 2010. Þarna er að verið taka fyrstu skrefin við endurgerð hússins að innan til að hægt sé að koma þar fyrir Spákonuhofinu, sem er í húsinu í dag.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 154
Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) í Reykholti talar í símann.
Helga Berndsen 079
Lúðvík Jóhann Ásgeirsson með dóttur sína í fanginu. Steinunn Berndsen til vinstri. Myndin var tekin í fermingarveislu 13.apríl 1995.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 13
Stefán V. Stefánsson (d.2.1.1988) í Bræðraminni áður í Kambakoti.
Helga Berndsen 115
Myndin var tekin á tröppunum á Karlsskála af hjónunum Guðrúnu Helgadóttur (d.15.4.1987) lengst til vinstri og Ernst Berndsen (d.21.8.1983). Hjá þeim situr dóttir þeirra, Helga Berndsen og framar situr Björg Berndsen (d.15.12.1963) systir Ernst.
Ingibergur Guðmundsson 164
Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi 1993. Frá vinstri: Erna Magnúsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Þórdís Skúladóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður. Á myndina vantar eina stúlkuna úr sveitinni því róið er með sex árum í kappróðrinum. Ekki er vitað hver sjötta stúlkan var.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 65
Stefán Þór Árnason á hjólinu sínu utan við Reykholt. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Helga Berndsen 027
Ernst Berndsen umboðsmaður BP á Skagaströnd dælir bensíni á bíl Jón Steindórssonar. Bensínafgreiðslan var í skemmunni við vestan við Karlsskála, sem sést í baksýn. Í skemmunni var einnig selt sælgæti, ís og gosdrykkir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á áttunda áratugnum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 004
Guðmundur Ólafsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 253
Bogga í Vík Hu 6 sjósett 9. mars 2011. Um borð er eigandinn Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 99
Víkingur Viggósson. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 147
Ole Aamundsen (d.?) frá Lundi við skreiðarhjallinn sinn. Ole var norskur og var athafnamaður á Skagströnd kringum miðja 20. öldina gjarnan kallaður Óli norski. Rak hann m.a. útgerð, fiskvinnslu og lýsisbræðslu. Auk þess var hann umboðsmaður olíufélagsins Shell á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 225
Ísak Karl Tryggvason við vinnu í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Barnaból - safn358
Afmæli Stefaníu Hrundar Stefánsdóttur, sem situr í hásætinu. Allir fá íspinna í tilefni dagsins. Á gólfinu sitja, frá vinstri: Óðinn Örn Gunnarsson, Valdimar Viggó Baldursson, Gunnar Snorri Guðjónsson, tvö óþekkt börn, Sóley Sif Jónsdóttir, óþekkt stúlka og Hugrún Antonía Sigurðardóttir. Myndin var tekin 2008 eða 2009 í leikskólanum Barnabóli.
Ólafur Bernódusson717
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Anton Þór Einarsson að leika í einu atriðanna sem voru á dagskránni.
Ingibergur Guðmundsson 153
Konur "taka áðí" í reiptogi á sjómannadegi 1993. Talið frá hægri: Dagbjört Bæringsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Erna Magnúsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Sigríður Gestsdóttir. Ekki er vitað við hverja þær voru að keppa né hvernig fór.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 029
Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból á fyrsta heita degi sumarsins í maí 1978. Frá vinstri eru: Baldur Magnússon, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Viggó Magnússon, Atli Þór Þórsson og Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir. Í sandkassanum í baksýn eru Leifur Vilhelmsson og Hafrún ?.
Helga Berndsen 033
Anna Sölvadóttir (d.10.10.1965) og Guðrún Einarsdóttir tveggja ára. Anna var frá Spákonufelli en var lengi í Karlsskála.
Ingibergur Guðmundsson 304
Eftir miklar breytingar og uppbyggingu var sundlaugin á Skagaströnd endurvígð í október 1986. Fjölmenni mætti til að skoða breytingarnar sem þóttu hafa tekist vel. Á myndinni er fólk að hlusta á Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps, lengst til vinstri, lýsa framkvæmdunum.
Helga Berndsen 028
Rifjað upp á gamla mátann með hrífum. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), óþekkt kona, Helga Berndsen og Jón Steindórsson. Í baksýn má sjá Farmal Cub dráttavél með rakstrarvél aftan í. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 87
Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti og Björn Haraldsson (d.21.9.1988) frá Iðavöllum að skemmta sér á óþekktum stað.
1
…
149
150
151
…
167
Leita í myndasafninu
Leita