Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Helga Berndsen 029
Feðgarnir Björn Sigurðsson og Sigurður Björnsson smíðuðu nokkra báta í húsnæðinu sem sést á þessari mynd. Einkum voru það skektur sem þeir smíðuðu en einnig nokkrar trillur. Á myndinni er ein af þeim fyrstu ásamt kaupendunum og bátasmiðnum. Frá vinstri: kaupendurnir Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Helga Berndsen, Guðmunda Jónsdóttir, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) bátasmiður, Guðrún Einarsdóttir og Haraldur Jónsson. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Ingibergur Guðmundsson 294
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1987 af vinunum og vopnabræðrunum Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) til vinstri og Snorra Gíslasyni (d.29.5.1994) til hægri.
Helga Berndsen 062
Gunnlaugur Árnason (d. 14.9.2016) ekur skarfaafla dagsins heim í hjólbörum eftir vel heppnað skytterí sumarið 1995.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 185
Hjónin Björk Axelsdóttir og Jón S. Pálsson.
Barnaból - safn412
María Gret Gunnarsdóttir í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 182
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti. Hafsteinn bjó lengi í Háagerði og á Finnstöðum áður en hann byggði Reykholt og flutti þangað með fjölskyldu sína. Þar stundaði hann búskap, kaupmennsku og fæðissölu. Á efri árum sínum fór Hafsteinn að skrifa skáldögur og ljóð og voru gefnar út a.m.k. fimm skáldsögur auk bókar með ljóðum hans. Skáldverkin eru: Kjördóttirin á Bjarnalæk (1958), Draumurinn (1959), Þjóðbjargarflokkurinn rýfur Alþingi 10. október 1961: alþingismenn sendir á sjó (1961), Örlagastundin (1963), Stúdentinn á Akri (1970), Stökur og ljóð (1974). Auk þess skrifaði Hafsteinn sjálfsævisögu: Ævisaga Hafsteins Sigurbjarnarsonar, sem út kom árið sem hann dó, 1974.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 061
Um borð í Hólmadrang St 70 var fyrsta skrefið á vinnslulínunni að gera að fiskinum áður en hann fór áfram á línunni - hausun- flökun - snyrting - pökkun og frysting. Maðurinn næst okkur er Axel Jónsson frá Skálteigi í Norðfjarðarsveit. Hann var í áhöfn Hólmadrangs meðan Magni Kristjánsson frá Norðfirði var skipstjóri á Hólmadrangi. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 309
Stundum er þröngt í bílnum sem notaður er til að ferja vinnuskólafólk á milli verkefna í bænum . Á þessari mynd frá í ágúst 2012 eru í bílnum frá vinstri: Eva Dögg Björgvinsdóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Ásdís Birta Árnadóttir, Birta Dögg Bessadóttir og Aldís Embla Björnsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 178
Aðalsteinn Jörgensen.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 95
Tilefni þess að þetta fólk er saman komið er ekki þekkt. Á myndinni eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Hulda Pálsdóttir (d.2011), Edda Þórarinsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005), Gunda C. Jóhannsdóttir (d. 9.11.2013) og óþekkt kona. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 148
Tunnuhlaup er eitt af þeim atriðum sem oftast hafa verið á sjómannadögum á Skagaströnd. Þá er tveimur liðum stillt upp í boðhlaup. Liðin verða síðan að hlaup og skríða gegnum tunnu og leysa þar einhverja þraut. Klára síðan sprettinn svo næsti liðsmaður geti tekið við. Á þessrai mynd frá 1985 keppa þeir Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) til vinstri og Eðvarð Hallgrímsson til hægri. Til að geta klárað sprettinn verða þeir að blása í blöðru þar til hún springur.
Helga Berndsen 129
Vorið 1965 fyllti Húnaflói af hafís. Svo mikill var krafturinn í rekísnum að stórir jakar gengu á land eins og sjá má á þessari mynd þar sem Ernst Berndsen (d.21.8.1983) hefur stillt sér upp við einn jakann á Höfðanum.
Helga Berndsen 019
Á myndinni eru þrír ættliðir kvenna. Frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) dóttir hennar Sesselja Guðmundsdóttir sem heldur á dóttur sinni Sigurrós Ósk Rúnarsdóttur. Myndin var tekin 1991.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 058
Unnið við snyrtingu á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Sævar Hallgrímsson, Ragnar Högnason og óþekktur maður.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 069
Þessi mynd var tekin 3. júní 1989. Á henni eru, frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Vilhelm Þórarinsson.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 023
Þessir krakkar leika sér í snjónum við leikskólann Barnaból í mars/apríl 1978. Frá vinstri: Leifur Vilhelmsson, Brynjar Pétursson, Guðmundur Henry Stefánsson og Guðný Finnsdóttir?.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 188
Börnin á myndinni eru frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, Kristjana Steinþórsdóttir, Aðalsteinn Jörgensen og Steinunn Steinþórsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 19650.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 171
Á myndinni er verið að draga þorskanet skammt fram af Skagaströnd. Líklega var myndin tekin um borð í Vísi Hu 10 kringum 1962. Áhöfnin í þessum róðri hefur verið frekar óvenjuleg því á myndinni má sjá þrjá sem fóru með sem gestir. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur (?Stefán Stefánsson?(d.2.1.1988)), Áslaug Hafsteinsdóttir, Jón Stefánsson (d.3.8.1991), Sigurður Kristinsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) (fjær), Sigurður Árnason (d.26.3.2013) (nær) og Jón Gunnar Jósefsson. <br>Á þessum tíma var Vísir Hu 10 í eigu bræðranna, Jóns, Jósefs og Stefáns Stefánssona og Sigurðar Árnasonar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 75
Fjölskyldan á Sævarlandi. Hjónin Ólafur Guðlaugsson (d.17.5.1996) og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994) með börnum sínum, Ara Má Ólafssyni og Laufey Sigríði Ólafsdóttur.
Ólafur Bernódusson799
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Vinstra megin er Birgitta Rut Bjarnadóttir en til hægri er Anita Ósk Ragnarsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 96
Á myndinni eru tvö ungviði. Drengurinn er Vilhelm B. Harðarson en kálfurinn er nafnlaus. Myndin var líklega tekin kringum 1968.
Ingibergur Guðmundsson 222
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Keppendurnir í langhlaupinu á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur S. Guðmundsson (d.29.8.1976) Fossum, Lárus Konráðsson (d.28.3.2008)Brúsastöðum, Sigfús Guðmundsson (d.16.6.2008) Eiríksstöðum og Sigvaldi Sigurjónsson (d. ?)Rútsstöðum. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 76
Systurnar frá Reykholti standa við veisluborð í afgreiðslusalnum í Gamla pósthúsinu. Bak við þær má sjá dyrnar að símaklefunum tveimur sem þar voru. Systurnar eru frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 90
Konan lengst til hægri er Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Á myndinni er hún að pakka banönum ásamt fleira fólki.
Hrefna Jóhannesdóttir018
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Sigríði Zoéga Reykjavík. Ef þú þekkir konuna og /eða börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 232
Steindór R. Haraldsson rak hótel Dagsbrún um nokkurn tíma og þá var þessi mynd tekin af honum við vinnu á barnum.
Ingibergur Guðmundsson 268
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd, sem tekin var á 20 ára afmælismóti klúbbsins 5. janúar 1986, spila þeir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Sveinn Ingólfsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 294
Sólarspjall á stéttinni við búðina á Skagaströnd í maí 2012. Guðrún Guðbjörnsdóttir og Stefán Stefánsson.
Ólafur Bernódusson923
Ellen Lind Sigurjónsdóttir í Höfðaskóla í mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 335
Menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar vinna að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Helgi Gunnarsson til vinstri og Gunnlaugur Sigmarsson til hægri stilla sér upp fyrir myndatökuna. Á bakvið eru starfsmenn Helga við vinnu sína á þakinu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 114
Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 674
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er Adolf H. Berndsen oddviti Sveitarfálagsins Skagaströnd að flytja tölu. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hlustar á en aftan við þá eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Valgarð Hilmarsson og Sigríður Stefánsdóttir.
Ólafur Bernódusson945
Þórunn Valdís Rúnarsdóttir með barn sitt Aþenu Guðbjörgu Baldursdóttur í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í Fellsborg 1. maí 2009.
Helga Berndsen 067
Heiðursmennirnir tveir í forgrunninum eru Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) frá Reykholti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum til hægri. Þrátt fyrir að vera hættir að vinna vegna aldurs fylgdust þeir vel með á höfninni alveg fram í andlátið. Myndin var tekin 1995.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 143
Á myndinni er annað hvort verið að leggja af stað í ferðalag eða koma heim úr ferðalagi. Ástmar Ingvarsson (d.10.10.1977) er lengst til vinstri en hann átti bílinn og gerði hann út til farþegaflutninga. Vilhelm B. Harðarson er strákurinn en pabbi hans Hörður Ragnarsson er til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 148
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu á Gamla pósthúsinu né hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Elín Njálsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Steinunn Steinþórsdóttir, Eiður Hilmarsson og Hilmar Snorrason. Pétur Eggertsson stendur og mundar myndavél.
Ingibergur Guðmundsson 299
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni eru þeir Snorri Gíslason (d.29.5.1994) til vinstri og Börkur Árnason til hægri við vinnu sína í vinnslunni.
Helga Berndsen 017
Myndin var tekin vegna fermingar Guðrúnar Einarsdóttur vorið 1971. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Helga Berndsen, Guðrún fermingarbarn, Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) og Ernst Berndsen (d.21.8.1983).
Hrefna Jóhannesdóttir022
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Aftan á þessa mynd, sem tekin var í Kanada, er skrifað:"Myndirnar eru af börnum mínum. Þorbergur stendur, Helga Sigríður dökkklædd, Guðrún Jónína hvítklædd. B Th.". Ef þú veist föðurnafn fólksins vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 113
Myndin var tekin utan við Gamla pósthúsið líklega kringum 1966. Frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, óþekktur og Aðalsteinn Jörgensen. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 216
Þessi hópur frá umf. Fram á Skagaströnd tók þátt í friðarhlaupi í júlí 1987. Fólkið í hópnum hljóp til skiptis ákveðinn spöl með logandi friðakyndil sem var á hringferð um landið í höndum félaga í ungmenna- og íþróttafélögum allt í kringum landið. Það kom í hlut Fram að hlaupa með kyndilinn í Langadalnum niður að Blönduósi þar sem félagar í Hvöt tóku við honum. Á myndinni eru frá vinstri: Björn Sigurðsson(fjær),óþekktur (nær), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Stefán Sveinsson sem heldur utan um Jón Heiðar Jónsson, Atli Þórsson heldur um axlir Jónasar Fanndal Þorvaldssonar, Baldur Magnússon, Kristján Karlsson, Adolf J. Berndsen, Vilhjálmur Skaftason, Róbert Gunnarsson, Kristjana Jónsdóttir, Herborg Þorláksdóttir með barn, Guðný Finnsdóttir (nær), Jóhanna Sveinsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, óþekktur strákur (nær), óþekktur, Magnús B. Jónsson og Jónas Jónasson bílstjóri hópsins.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 026
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból leika sér í snjónum í mars 1978. Frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sandra Ómarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir (fjær), Skúli Tómas Hjartarson (nær), Atli Þór Þórsson, Leifur Vilhelmsson, Guðný Finnsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 102
Þessi mynd var tekin þegar þær Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) lengst til vinstri og Helga Berndsen, í miðið, voru með vörukynningu í kaupfélagshúsin. Konan sem er að smakka hjá þeim er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en dagatalið á veggnum segir að það hafi verið þann 20. einhvers mánaðar en ekki er hægt að lesa ártalið. Myndina tók Þórður Jónsson (d.25.12.2010)
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 132
Systurnar frá Reykholti. Frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008), Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir og Ólína Gyða Hafsteinsdóttir. Maðurinn á myndinni er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 220
Krakkarnir í vinnuskólanum vinna gott starf við að halda bænum hreinum og fínum. Hér er hópur þeirra við slátt á túnbletti milli Túnbrautar og Fellsbrautar í júlí 2014. Frá vinstri: óþekktur, Sylvía Hrólfsdóttir, Ellen Sigurjónsdóttir, Róbert Björn Ingvarsson, Jóhannes Sigurpálsson og Viktor Einarsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 176
Á þessari mynd eru hjónin Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti með dætrum sínum sjö og einni stúlku til viðbótar. Jóninna Margrét (d.24.11.2994) stendur við hlið móður sinnar og Ragnheiður Birna (d.26.8.2008) stendur aftan við föður sinn. Hinar dæturnar eru í aldursröð: Pálína Margrét (d.22.7.2008), Ingibjörg Fríða, Aðalbjörg, Áslaug og Ólína Gyða en ekki er vitað hver þeirra er hver. "Auka" stúlkan er líka óþekkt. Ef þú getur sagt til um hver er hver af stúlkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn407
Sigurbjörg Birta Jónasdóttir í þungum þönkum í Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 163
Ólafur Thorarensen (d.?) í Kúvíkum 1950.
Ólafur Bernódusson791
Hópavinna á einhverju námskeiði fyrir fullorðna í Höfðaskóla í febrúar 2006. Frá vinstri: Erla Hauksdóttir, Svenny Hallbjörnsdóttir og Ása Ásgeirsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 67
Frændurnir Vilhelm Þór Þórarinsson til vinstri og Vilhelm Björn Harðarson fyrir utan Ásgarð þar sem amma þeirra bjó. Myndin var líllega tekin kringum 1964.
Ingibergur Guðmundsson 289
Á myndinni er verið að skipta um planka í Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Fjærst okkur á myndinni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður svo er óþekktur maður en næst okkur er Gunnar Þór Gunnarsson. Myndin var tekin í mars 1989.
Árni Geir Ingvarsson 2 34
Stefán Jósefsson útgerðarmaður og skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54 í Skagastrandarhöfn.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 066
Gunnar Helgason (d.19.10.2007) dyttar að vörubílnum sínum.
Ólafur Bernódusson907
Í byrjun nóvember 2007 fóru starfsmenn Hólness hf í ferð til London og eyddu þar nokkrum dögum saman. Á þessari mynd eru Juanita Silod Boncales til vinstri og Cristina Silod Yecyec til hægri í móttökunni á hótelinu áður en lagt var upp í skoðunarferð um borgina.
Ingibergur Guðmundsson 309
Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) tekur við verðlaunum úr höndum Ólafs Bernódussonar á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985.
Ólafur Bernódusson759
Á myndinni eru krakkar í Höfðaskóla vorið 2003 sem fengu viðurkenningar fyir myndirnar sínar, sem sjást á veggnum bak við þau. Þema myndanna er óþekkt en það hafði verið ákeðið fyrrfram. Krakkarnir eru frá vinstri: Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Hanna Gestsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Eyþór Kári Egilsson, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 289
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Stúlkan á myndinni er Sigurbjörg Birta Berndsen.
Barnaból - safn345
Ísabella Líf Tryggvadóttir byggir í Barnabóli 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson885
Birgitta Rut Bjarnadóttir í ágúst 2007.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 077
Barnaafmæli 1.maí 1988. Börnin eru, frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Magnús Filip Sævarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Rakel Karlsdóttir, Ólafur Guðmundsson, baksvipur Gunnars Helgasonar, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir og Gunnar Guðmundsson.
1
…
150
151
152
…
167
Leita í myndasafninu
Leita