Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hrefna Jóhannesdóttir018
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Sigríði Zoéga Reykjavík. Ef þú þekkir konuna og /eða börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 241
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 137
Þarna eru fimm frændsystkini á ferðalagi. Frá vinstri: Guðrún Björg Berndsen, Ernst Berndsen, Aðalsteinn Jörgensen, Laufey Berndsen og Adolf H. Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 221
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Keppendurnir á myndinni er Anna Benónýsdóttir (d. ?) til vinstri og Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d. 7.4.2011) til hægri, báðar úr Fram á Skagaströnd og hlaupa berfættar. Þú getur svo spreytt þig á að þekkja fólk í áhorfendahópnum. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Ólafur Bernódusson917
Guðrún Pálsdóttir stendur hjá ísuðum endurvarpanum á toppi Steinnýjarstaðafjalli í mars 2008.
Ingibergur Guðmundsson 229
Hólaneskirkja var vígð 20. október 1991. Þessi mynd hefur auljóslega verið tekin einhverntíma fyrir þá dagsetningu en hún sýnir aðal kirkjusmiðina að störfum þá Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) til vinstri og Sigurð Björnsson til hægri. Líklega eru þeir að smíða undirstöður undir predikunarstólinn sem stendur á gólfinu hjá þeim.
Helga Berndsen 122
Steinunn Berndsen ca þriggja ára að tína krækiber uppi á Höfða. Í baksýn sjást Olís - áður BP - tankarnir á Höfðanum og dæluskúrinn hjá þeim. Tankarnir eru nú löngu horfnir enda langt frá því að uppfylla þær mengunarkröfur sem gerðar eru til slíkra mannvirkja í dag (2018).
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 040
Þessi mynd var tekin við Laxá í Aðaldal í veiðtúr nokkurra félaga frá Skagaströnd líklega kringum 1980. Sigurbjörn Björgvinsson reynir að veiða en Jóhann Björn Þórarinsson og Steindór Gíslason (d.1985) fylgjast með. Steindór er lengst til vinstri.
Ólafur Bernódusson737
Guðbjörg Ólafsdótttir í garðvinnu við húsið sitt á Hólabraut 19 í september 2013.
Ingibergur Guðmundsson 155
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 1989. Líklega hafa þeir þeir verið í áhöfn Örvars Hu 21 sem er í baksýn. Frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson stýrimaður, Níels Grímsson, Gestur Arnarsson, Hafþór Gylfason, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Páll Jónsson og Ernst Berndsen.
Ólafur Bernódusson723
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru elstu nemendurnir að ljúka atriði sínu á hátíðinni og búa sig undir að hneigja sig. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Anton Þór Einarsson, Egill Örn Ingibergsson, Linda Rún Einarsdóttir, Elmar Jóhann Grétarsson, Friðmar Kári Eiríksson, Páll Halldórsson, Ísak Karl Tryggvason, Birta Dögg Bessadóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir, Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir og Guðmann Einar Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 239
Norðurá er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni er framkvæmdastjóri félagsins, Fannar Viggósson, á skrifstofu sinni. Utan við gluggann er bíll að koma upp á vigtina en allt rusl er vigtað áður en það er urðað á svæðinu.
Séra Pétur og Dómhildur - safn181
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) á efri árum.
Ólafur Bernódusson763
Myndin var tekin 21. apríl 2004 þegar löndun stóð sem hæst á frosnum afurðum úr Arnari Hu 1. Guðjón Guðjónsson skipstjóri Arnars til vinstri spjallar við löndunarmanninn Guðmund Eyþórsson um landsins gagn og nauðsynjar.
Ólafur Bernódusson821
Á vortónleikum tónlistarskólans 28. apríl 2010 spiluðu þessir krakkar saman á harmoniku. Frá vinstri: Arnrún Guðjónsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir og Guðmann Einar Magnússon.
Ólafur Bernódusson919
Þessar ungu stúlkur frá Skagaströnd útskrifuðust sem stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri 17. júní 2016. Frá vinstri: Heba Líf Jónsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Sigurbjörg Birta Berndsen. Allar stunda stúlkurnar háskólanám í dag (2018) hver á sínu sviði.
Helga Berndsen 081
Adolf J. Berndsen í fermingu tveggja afastráka vorið 1995. Afastrákarnir voru Sverrir Brynjar Berndsen og Birkir Rafn Gíslason.
Ólafur Bernódusson820
Ernst Guðni Hólmgeirsson einbeittur við bassaleik á vortónleikum tónlistarskólans 28. apríl 2010.
Ingibergur Guðmundsson 206
Sigurður Berndsen er ánægður með verðlaunabikar sinn sem hann fékk á aðalfundi umf Fram í febrúar 1990.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 187
Á myndinni eru Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Lárus Salómonsson (d.mars 1987) lögreglumaður og glímukappi.
Hafliði Óskarsson 3
Á myndinni eru áhafnir Örvars Hu 21 og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði á fyrirlestri um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Frá vinstri eru: Sigurbjörn Ingólfsson, Birgir Þórbjarnarson, Guðjón Guðjónsson, sjö óþekktir, Hafþór Gylfason og óþekktur.
Helga Berndsen 075
Á myndinni eru þrír ættliðir. Frá vinstri: Helga Sigríður Ívarsdóttir, Guðrún Einarsdóttir og Helga Berndsen. Guðrún er móðir Helgu Sigríðar og Helga er móðir Guðrúnar. Myndin var tekin 1995.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 211 - Copy
Á myndinni eru félagar í Lionklúbbi Skagastrandar með jólarósir sem þeir færðu eldri borgurum að gjöf fyrir jólin 2012. Frá vinstri: Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Guðjón Guðjónsson, Róbert Kristjánsson, Slavko Velemir og Adolf H. Berndsen.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 012
Björn Sigurðsson til vinstri og Kolbeinn Vopni Sigurðsson til hægri í bílaleik í sandkassanum á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 199
Þessar þrjá blómarósir eru óþekktar. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir konurnar á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 215
Framarar sem þátt tóki í Viðavangshlsupi Íslands 1988. Frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir, Þóra Lísbet Gestsdóttir? og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 035
Soffía Lárusdóttir að leik á leikskólanum Barnaból vorið 1978.
Hrefna Jóhannesdóttir005
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af H. Einarssyni á Akureyri. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hrefna Jóhannesdóttir023
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda en aftan á hana er ritað:"G.Þ.". Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 289
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Stúlkan á myndinni er Sigurbjörg Birta Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 251
Jakop Guðmundsson til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til hægri spjalla saman í Bátanausti á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 244
Dagrún Hu 121 er gerð út til netaveiða meira og minna allt árið. Lengi var Lýður Hallbertsson maðurinn í brúnni en synir hans, einkum Eiríkur Lýðsson, voru með honum til sjós. Þegar þessi mynd var tekin 19. ágúst 2011 er Lýður kominn í land og sestur á bryggjupollann en Eiríkur tekinn við í brúnni með syni sína með sér á sjónum. Á myndinni eru þeir feðgar Lýður og Eiríkur að gera klárt fyrir næsta róður.
Ólafur Bernódusson707
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Ungu mennirnir á myndinni eru að draga í kökuhappdrættinu vinsæla sem er á milli atriða á dagskránni. Frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Guðmann Einar Magnússon og Friðmar Kári Eiríksson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 173
Kaffiveisla í Fellsborg líklega 1991 í tilefni af vígslu Hólaneskirkju. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), óþekkt kona, Guðmann Magnússon (d.22.11.2000), María Ólafsdóttir (d.13.5.2006), Hörður Aðils Vilhelmsson, Vilhelm B. Harðarson.
Barnaból - safn366
Þær eru að skemmta sér mis mikið í hólfunum sínum þær Arnrún Hildur Hrólfsdóttir til vinstri og Sóley Sif Jónsdóttir til hægri. Myndin var tekin í apríl 2009 í leikskólanum Barnabóli.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 283
Fundur hjá Lionklúbbi Skagastrandar 21. desember 2011. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðmundur Finnbogason og Slavko Velemir. Þessir menn voru í stjórn klúbbsins á þessum tíma.
Helga Berndsen 024
Ættingjar við gömlu sjoppuna við Karlsskála 21. júlí 1991. Frá vinstri: Jón Örn Berndsen, Adolf H. Berndsen, Knútur Berndsen (d.31.8.2013) faðir Jóns Arnar, Benedikt ?, Helga Berndsen, Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) maður Helgu, Björg Berndsen kona Benedikts og Adolf J. Berndsen sem er faðir Adolfs H.. Adolf J. og Helga eru systkini en þau og Björg eru bræðrabörn.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 35
Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) póstur frá Ægissíðu fær hér aðstoð við að flokka póstinn frá óþekktu litlu barni. Guðmundur var góður ljósmyndari og eftir hann eru fjöldi mynda á Ljósmyndasafninu. Hann var líka póstburðarmaður á Skagaströnd í áratugi.
Ingibergur Guðmundsson 146
Fjallgöngufólk á Spákonufellsborg eða á Borgarhausnum eins og yfirleitt er sagt. Skagaströnd er í baksýn við fólkið, sem er frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Milan Djurica og Kristinn Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 111
Líklega er þetta mynd af tveimur af systrunum sjö frá Reykholti. Ef þú veist hverjar þeirra þetta eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 121
Líklega eru þetta systurnar frá Reykholti, dætur Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) og Laufeyjar Jónsdóttur (d.25.12.1969). Ef þú þekkir hver er hver vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 101
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) á hestbaki. Hafsteinn var bóndi, kaupmaður, skáld og rithöfundur sem kenndur var við Reykholt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn203
Sunnudagaskólinn á Skagaströnd 1980 á tröppunum sem voru vestan á Höfðaskóla: Í neðstu tröppunni eru frá vinstri: Óskar Hjaltason, Pálína Hjaltadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Friðrik Gunnlaugsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Íris Gunnarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Í næst fremstu röð frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Hallgrímur Oddsson, Hugrún Pálsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Áslaug Gunnarsdóttir, Steinþór Karlsson og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).Í þriðju röð frá vinstri: Eva Björg Jónasdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir (eru uppi í handriðinu), Halldór Gunnar Ólafsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Friðrik Birgisson, Jóney Gylfadóttir (uppi í handriðinu) og Anna Þóra Birgisdóttir. Næsta röð ofar frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Þorlákur Sigurður Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Erlingsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Pálína Freyja Harðardóttir. Aftasta röð frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Soffía Lárusdóttir (uppi á handriðinu), Sigrún Lárusdóttir, Birna Sveinsdóttir, Bergþóra Huld Birgisdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson og Ingvar Jónsson. Framan við Ingvar eru Berglind Stefánsdóttir og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson
Ólafur Bernódusson 659
Kennarar og starfsfólk Höfðaskóla hittast gjarnan kvöldstund til að halda upp á lok skólaársins einhverntíma í lok maí. Þá leika þessir aðila sér og grínast á margvíslegan hátt m.a. stundum með því að klæðast einhverjum búningum og fara í ýmsa partýleiki. Þessi mynd var tekin vorið 2007 af borðhaldinu í Bjarmnesi. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Helena ??dóttir, Dagný Úlfarsdóttir (fjær), Hugrún Sif Hallgrímsdóttir (nær), Heiðrún Tryggvadóttir, Hildur Ingólfsdóttir (fjær), Magnea Valdimarsdóttir (nær), Erna Berglind Hreinsdóttir, Elva Þórisdóttir, tvær óþekktar og Sigrún Guðmundsdóttir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 071
Gunnar Guðmundsson úti í skógi 2. júlí 1989.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 266
Kátar stúlkur í vinnuskólanum sumarið 2011. Heba Líf Jónsdóttir til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri. Lengra inni í rörinu grillir í Bergrósu Helgu Hafsteinsdóttur.
Helga Berndsen 043
Á myndinni, sem líklega var tekin 1987, er Fríða Hafsteinsdóttir með tveimur af börnum sínum þeim Laufey Berndsen og Karli Berndsen í veislu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 29
Bræðurnir frá Reykholti. Frá vinstri: Stefán Jósefsson, Rúnar Jósefsson og Jón Gunnar Jósefsson. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Hrefna Jóhannesdóttir006
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Á. Thorsteinson Reykjavík. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 080
Myndin var tekin 24. mars 1988 á árshátíð Höfðaskóla. Á myndinni eru ungir nemendur í hlutverkum sínum. Frá vinstri: Ástmar Sigurjónsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, óþekktur, Fjóla Ómarsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Erla María Lárusdóttir, Rakel Karlsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Kristinn Björgvinsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Kristín Dís Sigurðardóttir, óþekktur og Auður Eva Guðmundsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 130
Tvíburabræðurnir Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Karl Guðmundsson til hægri eftir útskrift sem stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1973.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 351
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Victoríu Sif Hólmgeirsdóttur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 017
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún var tekin á verkstæði Hólness hf á neðri hæðinni í Salthúsinu sem nú hefur verið breytt í glæsilegt gistiheimili. Frá vinstri eru: Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985), Gunnar Albertsson og Pétur Eggertsson. Maðurinn sem snýr baki í okkur er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 129
Guðmundur Guðmundsson að passa bræður sína tvíburana Ingiberg Guðmundsson og Karl Guðmundsson í kerrunni. Myndin var líklega tekin 1955 eða 1956.
Ólafur Bernódusson 666
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni eru frá vinstri starfsstúlkurnar: Sigrún Þórisdóttir, Birna Sveinsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Eva Gunnarsdóttir. Lengst til hægri eru svo iðnaðarmennirnir Björn Hallbjörnsson rafvirki og Helgi Gunnarsson trésmiður.
Helga Berndsen 054
Þrjár konur frá Skagaströnd sumarið 1966. Frá vinstri: Helga Kristjánsdóttir (d.3.6.2002), Helga Berndsen og Halldóra Ásmundsdóttir, dóttir Helgu Kristjánsdóttur. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 130
Ólína Gyða Hafsteinsdóttir frá Reykholti.
Ingibergur Guðmundsson 140
Ritnefnd Húnavökunnar í kaffipásu á Hótel KEA á Akureyri vorið 1985. Erindi ritnefndarinnar þangað var að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu ritsins fyrir prentun á Akureyri. Frá vinstri: Óþekkt stúlka, Unnar Agnarsson Blönduósi, Jóhann Guðmundsson Holti, Páll Ingþór Kristinssson Blönduósi, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) Kagaðarhóli og Ingibergur Guðmundsson Skagaströnd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 112
Jón Stefánsson (d.3.8.1991) frá Kambakoti.
Ingibergur Guðmundsson 205
Myndin var tekin á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Á henni er Jóney Gylfadóttir með bikar sem Halldór Hermannsson þáverandi formaður Fram er nýbúinn að afhenda.
1
…
151
152
153
…
167
Leita í myndasafninu
Leita