Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 264
Hér njóta þeir sumarblíðunnar í júlí 2011 Níels Grímsson til vinstri og Sigurður Bjarnason til hægri á dyrahellunni hjá Sólbakka.
Helga Berndsen 054
Þrjár konur frá Skagaströnd sumarið 1966. Frá vinstri: Helga Kristjánsdóttir (d.3.6.2002), Helga Berndsen og Halldóra Ásmundsdóttir, dóttir Helgu Kristjánsdóttur. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 130
Ólína Gyða Hafsteinsdóttir frá Reykholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 093
Heiðrún Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (Hólabraut 9).
Helga Berndsen 080
Steinunn Berndsen í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 017
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún var tekin á verkstæði Hólness hf á neðri hæðinni í Salthúsinu sem nú hefur verið breytt í glæsilegt gistiheimili. Frá vinstri eru: Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985), Gunnar Albertsson og Pétur Eggertsson. Maðurinn sem snýr baki í okkur er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 129
Guðmundur Guðmundsson að passa bræður sína tvíburana Ingiberg Guðmundsson og Karl Guðmundsson í kerrunni. Myndin var líklega tekin 1955 eða 1956.
Ólafur Bernódusson 666
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni eru frá vinstri starfsstúlkurnar: Sigrún Þórisdóttir, Birna Sveinsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Eva Gunnarsdóttir. Lengst til hægri eru svo iðnaðarmennirnir Björn Hallbjörnsson rafvirki og Helgi Gunnarsson trésmiður.
Hrefna Jóhannesdóttir017
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda en hún var tekin á ljósmyndastofu í Kanada (Sinclair´s Studio, Yorkton, Sask.). Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Berndsen 082
Fritz Hendrik Berndsen í fermingarveislu 1995.
Ólafur Bernódusson867
Finnbogi Guðmundsson við vinnu sína sem íþróttakennari á sparkvellinum við Höfðaskóla í lok mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 280
Myndin var tekin á kaffistofu sveitarfélagsins í stjórnsýsluhúsinu í lok nóvember 2011. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir skrifstofustjóri, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Jóhanna Sigurjónsdóttir skrifstofustúlka.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 14
Myndin er af fyrstu sjoppunni á Skagaströnd en hún var rekin í græna timburhúsinu sem stendur vinstra megin við við Karlsskála. Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á Karlsskála var umboðsmaður fyrir olíufélagið BP á Íslandi og rak hann sjoppuna með Helgu dóttur sinni. Bensíndæla frá BP var fyrir utan sjoppuna eins og sést á myndinni. Ein af nýungunum sem sjoppan var með á sínum tíma var að fara að selja ís, pinnaís og ís í pökkum, upp úr frystikistu í sjoppunni. Lengst af var ekki fastur opnunartími í sjoppunni heldur þurfti að fara og banka á dyrnar á Karlsskála og biðja um afgreiðslu. Sjoppan var rekin í allmörg ár á árunum um og eftir 1960. Myndin var tekin á sjómannadaginn 1964 en strákarnir eru Vilhelm Harðarsson til vinstri og Aðalsteinn Jörgensen til hægri.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 33
Myndin var tekin í fermingarveislu tvíburanna Þrastar og Svans Árnasona að Hólabraut 22 vorið 1989. Fremst á myndinni eru Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) til vinstri og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir til hægri. Í baksýn eru frá vinstri: Þröstur Árnason, Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) og Hörður Ragnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 248
Börn hafa gaman af að halda "tombólu" eða hlutaveltu. Þá byrja þau gjarnan á að ganga í hús og betla einhverja hluti til að hafa á tombólunni hjá sér. Merkja svo hlutina og selja miða með samsvarandi númeri sem gefur þá viðkomandi hlut í skiptum fyrir miðann. Oftast nýtur Rauði krossinn eða önnur sambærileg samtök ágóðans af fyrirtækinu hjá krökkunum. Á myndinni eru þrjár ungar stúlkur að halda tombólu á planinu sunnan við söluskálann 1. september 2010. Stílkurnar eru frá vinstri: Telma Jónasdóttir, óþekkt stúlka og Victoría Hólmbertsdóttir. Standandi eru viðskiptavinirnir Harpa Hlín Ólafsdóttir til vinstri og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir til hægri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn197
Aftan á þessa mynd hefur séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) skrifað: "Brúðkaup Jóns Jósefss. Reykholti 28/10 ´75. Sr Pétur Ingj. , Dómhildur Jónsdóttir, Pálína Harðardóttir pósthúsi, Karl Berndsen."
Helga Berndsen 137
Myndin var tekin á jóla-barnaballi 1966. Þá héldu konurnar í kvenfélaginu Eining ballið í Höfðaskóla. Á myndinni spilar Adolf J. Berndsen fyrir dansi á harmonikuna sína. Á töflunni aftan við hann er jólamynd til skrauts. Undir glugganum situr Ásalug Hafsteinsdóttir með barn á hnjánum en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn389
Börn í leikskólanum Barnaból. Þessi börn voru í yngri deildinni, Sæbóli þegar myndin var tekin 4. júlí 2008. Frá vinstri í aftari röð: óþekkt, Hugrún Antonía Sigurðardóttir, Guðbjörg Eva Jóhannesdóttir, Gabríel Goði Tryggvason, Stefanía Hrund Stefánsdóttir og Gunnar Snorri Guðjónsson. Fremri röð frá vinstri: Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir og Mikael Örn Benjamínsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 042
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1980. Hún er af félögum frá Skagaströnd í veiðitúr í Laxá í Aðaldal að borða grillmat. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen (fjær), Jóhann Björn Þórarinsson, Sigurbjörn Björgvinsson og Steindór Gíslason (d.1985).
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 205
Óþekkta listakona og tvær aðstoðarstúlkur njóta blíðunnar í hólunum vestan við stjórnsýsluhúsið 20. ágúst 2012. Með óþekktu listakonunni til vinstri eru þær Ásdís Birta Árnadóttir og Aldís Embla Björnsdóttir sem er með húfu.
Ingibergur Guðmundsson 126
Konurnar á myndinni eru tengdar. Frá vinstri: Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) mágkona systranna Jóhönnu Helgu Skagfjörð Jóhannesdóttur (d.5.10.2002) og Hrefnu Jóhannesdóttur (d.9.11.2011) en lengst til hægri er Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993), móðir Soffíu. Myndin var tekin í ágúst 1986.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 243
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af tveimur sorphirðumönnum. Vinstra megin er Ómar Kjartansson hjá Ó.K. gámaþjónustu á Sauðárkróki en til hægri er Vilhelm B. Harðarson hjá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar á Skagaströnd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 45
Líney Jósefsdóttir frá Reykholti.
Ingibergur Guðmundsson 240
Börnin í Barnabóli sest í "hólfin" sín og bíða spennt eftir hvað gerist næst. Á myndinni eru, frá hægri:<br>Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Júlía Guðmundsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Rúna Lilja Nótt Sævarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Friðvin Ingi Ernstson, Elínborg Ásdís Árnadóttir, Eyþór Kári Egilsson og Kristinn Daníel Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1028
Gömlu skipsfélagarnir Rúnar Jósefsson til vinsti og Ómar Jakobsson til hægri á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2012.
Ingibergur Guðmundsson 190
Guðný Finnsdóttir og Reynir Lýðsson með verðlaun sín fyrir víðavangshlaup á 17. júní 1985.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn096
Þessi mynd var tekin í október 1986. Á henni er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007), sem situr fremst, með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Frá vinstri: Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d. 14.2.2008) með dóttur sína Fjólu Ómarsdóttur, Hjörtur Erlendsson, Ólöf Jóhanna Smith, Herdís Heiðarsdóttir, Björg, Gunnhildur Linda Vigfúsdóttir (d.30.1.2018), Herbert Heiðarsson, Heiðar Elvan Friðriksson, Arnar Haukur Ómarsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) og Hrönn Héðinsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 140
Þessi fjárflutningabíll með þessum langa palli var í eigu Harðar Ragnarssonar. Á myndinni er bíllinn við Spákonufellsrétt en hjá bílnum er kona Harðar, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með börn þeirra, Vilhelm Björn Harðarson, sem er að klifra í stiganum, og Pálínu Freyju Harðardóttur. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 260
Halda mætti að Stefán Sveinsson væri að leita að fjársjóði þar sem liggur marflatur og lýsir með vasaljósi niður í þrönga holu í lok júní 2011. Ekki er vitað hvort leitin bar árangur eða ekki.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 012
Björn Sigurðsson til vinstri og Kolbeinn Vopni Sigurðsson til hægri í bílaleik í sandkassanum á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 199
Þessar þrjá blómarósir eru óþekktar. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir konurnar á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 215
Framarar sem þátt tóki í Viðavangshlsupi Íslands 1988. Frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir, Þóra Lísbet Gestsdóttir? og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 177
Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001).
Ingibergur Guðmundsson 225
Íþróttamenn úr Svínavatnshreppi á mynd sem tekin var fyrir 1950. Frá vinstri: Steingrímur Þorleifsson (d. ?) Sólheimum, Sigvaldi Sigurjónsson (d. ?) Rútsstöðum, Hannes Guðmundsson (d.10.9.2008) Auðkúlu, Arnljótur Guðmundsson (d.7.7.2002) Auðkúlu, Haraldur Eyþórsson (d. 25.11.2008) Syðri-Löngumýri og Jóhannes Pétursson (d. ?) Svínavatni.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 181
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) - Bibba í Reykholti - við eldhúsborðið.
Hafliði Óskarsson 3
Á myndinni eru áhafnir Örvars Hu 21 og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði á fyrirlestri um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Frá vinstri eru: Sigurbjörn Ingólfsson, Birgir Þórbjarnarson, Guðjón Guðjónsson, sjö óþekktir, Hafþór Gylfason og óþekktur.
Helga Berndsen 075
Á myndinni eru þrír ættliðir. Frá vinstri: Helga Sigríður Ívarsdóttir, Guðrún Einarsdóttir og Helga Berndsen. Guðrún er móðir Helgu Sigríðar og Helga er móðir Guðrúnar. Myndin var tekin 1995.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 211 - Copy
Á myndinni eru félagar í Lionklúbbi Skagastrandar með jólarósir sem þeir færðu eldri borgurum að gjöf fyrir jólin 2012. Frá vinstri: Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Guðjón Guðjónsson, Róbert Kristjánsson, Slavko Velemir og Adolf H. Berndsen.
Ólafur Bernódusson894
Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II með tvo til reiðar rekur fé til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson873
Íbúar Bogabrautar tóku sig til um miðjan ágúst 2007 og komu saman í götugrill við Bogabraut 19. Á myndinni eru frá vinstri: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Fannar Viggósson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Róbert Freyr Gunnarsson, óþekkt stúlka, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Viggó Brynjólfsson, Erna Berglind Hreinsdóttir (fjær) og óþekkt stúlka (nær).
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 043
Sigurbjörn Björgvinsson með vænan silung úr Laxá í Aðaldal sennilega kringum 1980.
Helga Berndsen 107
Hjónin á myndinni, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Karl Berndsen (d.12.2.1995) urðu bæði fimmtug haustið 1983, hún í september en hann í október. Í tilefni afmælisins buðu þau nokkrum vinum heim í veislu og þá var þessi mynd tekin af þeim.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 378
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Lilju Dögg Hjaltadóttur að koma úr þrautabrautinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 133
Guðrún Teitsdóttir (d. 7.6.1978) ljósmóðir frá Kringlu sem seinna bjó í Árnesi á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson744
Sveitarstjórnin á Skagaströnd samdi við Mílu um að leggja ljósleiðara heim í öll hús á Skagaströnd. Undirskrift samningsins fór fram í Árnesi 10. maí 2013. Við það tækifæri var þessi mynd tekin af mönnum frá Mílu, oddvita, sveitarstjóra og varaoddvita Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir utan Árnes. Frá vinstri: tveir óþekktir fulltrúar Mílu, Adolf H. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Halldór Gunnar Ólafsson varaoddviti.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 189
Strákarnir þrír til vinstri eru bræður en sá fjórði er frændi þeirra. Frá vinstri: Stefán Jósefsson, Rúnar Jósefsson og Jón Gunnar Jósefsson úr Reykholti og lengst til hægri er Ari Már Ólafsson frá Sævarlandi. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 063
Pokarnir koma um borð í Hólmadrang ST 70 með sæmilegan afla. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson836
Jón Ólafur Sigurjónsson er fjölhæfur tónlitarmaður með meiru. Á myndinni frá 10. maí 2010 er hann með bassann sinn að bíða eftir að spila undir á tónleikum kirkjukórs Hólaneskirkju.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 161
Áslaug Hafsteinsdóttir með þremur kúrekum. Sá í miðjunni er líklega Stefán Jósefsson en hinir eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1006
Jón Ólafur Ívarsson (Daddi)(d. 29.12.2013) í heimsókn á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg 3. febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson959
Gunnlaugur Sigmarsson bankamaður og múrari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 44
Hafsteinn Sigurbjarnason (d.18.5.1974) bóndi, kaupmaður og rithöfundur frá Reykholti.<br>
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 134
Þessar konur eru óþekktar. Ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 115
Vilhelm B. Harðarson til vinstri spilar fótboltaspil við Kristinn Guðmundsson. Á milli þeirra fylgist Pálína Freyja Harðardóttir, systir Vilhelms, glaðbeitt með. Myndin var líklega tekin 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 12
Þessi mynd er líklega tekin af konum sem voru saman í saumaklúbbi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Frá vinstri í aftari röð: Björk Axelsdóttir, Birna Blöndal, óþekkt og Bára Þorvaldsdóttir. Í fremri röðinni eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Kolbrún ? og Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1982).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 222
Vinnuskólinn sér um að slá auða bletti og umferðareyjar á Skagaströnd á sumrin. Þessi mynd var tekin í júlí 2014 af nokkrum starfsmönnum við að losa hey úr söfnunarpokum. Heyinu er síðan fargað. menirnir eru frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Róbert Björn Ingvarsson, Geir Arnarson og Aron Snær Fannarsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 026
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru nokkrar starfskonur Hólaness hf að æfa söng við undirleik Þorsteins Jakobssonar á harmoniku fyrir árshátíð fyrirtækisins. konurnar eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir, Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991), Guðrún Jónsdóttir (d.?), óþekkt kona, Kristín Jónsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Lilja Kristinsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Svava Svavarsdóttir og Kristín Karlsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Berndsen 119
Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) á Karlsskála situr hér undir tveimur af barnabörnum sínum. Líklega eru það frændurnir Fritz Hendrik Berndsen vinstra megin og Karl Berndsen hægra megin. Myndin var tekin kringum 1966.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 039
Guðmundur Ólafsson búinn að fiska í matinn í Laxá í Aðaldal en þangað fóru nokkrum sinnum félagar sem tengdust frystihúsi Hólaness hf á einn eða annan hátt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 94
Frændsystkin. Frá vinstri: Hafsteinn Þórðarson, Jón Gunnar Jósefsson, Bára Þórðardóttir, Ari Már Ólafsson, Stefán Jósefsson og Rúnar Jósefsson.
1
…
152
153
154
…
167
Leita í myndasafninu
Leita