Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Helga Berndsen 083
Frændurnir Sverrir Brynjar Berndsen til vinstri og Birkir Rafn Gíslason til hægri á fermingardaginn sinn vorið 1995.
Ólafur Bernódusson813
27. desember 2008 var haldin kvöldskemmtun í Kántrýbæ með alls konar uppákomum. Meðal annars tóku þessir gömlu spilafélagar nokkur lög fyrir gesti. Fannar Viggósson er lengst til vinstri með bassa, Viggó Brynjólfsson faðir hans þenur nikkuna og Hjörtur Guðbjartsson spilar á gítar lengst til hægri. Í baksýn má sjá Jón Ólaf Sigurjónsson sem var einn þeirra sem stóð fyrir skemmtuninni.
Ingibergur Guðmundsson 259
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) að spila í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 317
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni er Magnús að spjalla við krakkana og segja frá tilurð bókarinnar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 108
Þetta prúðbúna fólk er frá vinstri: Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Guðmundur Henry Stefánsson,.
Ingibergur Guðmundsson 184
Efrla María Lárusdóttir í sínu fínasta pússi heima á Hólabraut 24.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 183
Á aðventukvöldi í desember 2012 sýndu nokkrir krakkar helgileik í Hólaneskirkju undir stjórn séra Ursúlu Árnadóttur sóknarprests. Á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Jóhann Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Snæfríður Guðmundsdóttir, Aníta Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og séra Ursúla.
Hafliði Óskarsson 4
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar að svamla í sjónum í flotbúningum og bíða þess að verða hífðir um borð.
Ingibergur Guðmundsson 226
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Á þessari mynd stekkur Ægir Einarsson (d.3.1.2002) úr Fram á Skagaströnd þrístökk. Aðrir á myndinni eru óþekktir. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 031
Púslað úti í góða veðrinu á leikskólanum Barnaból vorið 1978. Sigurbjörg Guðmundsdóttir með húfu í miðið er Hafrún ?, og lengst til hægri er Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Helga Berndsen 011
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Margrét Ásmundsdóttir (Maddý) (d.11.11.2015), Jónas Tryggvason (d.17.8.1983) kórstjóri og bólstrari frá Blönduósi og kona hans Þorbjörg Bergþórsdóttir (d.7.5.1981).
Helga Berndsen 114
Systkinin: Laufey Berndsen, Karl Berndsen og Ernst Berndsen talið frá vinsri. Myndin var líklega tekin 1965 eða 1966.
Ólafur Bernódusson761
Myndin var tekin 15. janúar 2004 af þremur mönnum úr björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd við að bjarga bíl úr snjó vestan við Vélaverkstæðið. Þá var ný afstaðin stórhríð með miklu fannfergi svo miklu reyndar að þakið á verkstæðinu gaf sig undan snjóþunganum. Mennirnir eru óþekktir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 275
Þegar verið var að vinna við að ná varahlutum úr aflögðum Ford Pickup í gamla ketilhúsi verksmiðjunnar 24. október 2011 vildi svo illa til það kviknaði í honum. Þar sem hann var ekki á hjólum þurfti að hafa snör handtök og ná í lyftara sem dró hann út fyrir dyrnar þar sem honum var leyft að brenna að mestu. Á myndinni sér í Árna Guðbjartsson (d.20.2.2018) lengst til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson næst lengst til hægri en hann var eigandi bílsins sem brann. Hinir karlarnir eru óþekktir.
Helga Berndsen 131
Líklega var þessi mynd tekin veturinn 1965. Á henni eru að leik í snjónum við Karlsskála, frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 219
Þessar tvær ungu stúlkur eru við slátt á opnu svæði milli Túnbrautar og Fellsbrautar í júlí 2014. Stúlkurnar eru Sylvía Hrólfsdóttir til vinstri og Ellen Sigurjónsdóttir til hægri og voru í vinnu hjá vinnuskólanum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 366
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af þeim Auðunni Árna Þrastarsyni og Hallbjörgu Jónsdóttur í þrautabrautinni.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 59
Þessi drengur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn202
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í grennd við Bólstaðarhlíðarkirkju? né hvert tilefnið var. Í aftari röð eru frá vinstri: séra Hjálmar Jónsson og séra Pálmi Matthíasson. Í fremri röð eru frá vinstri: Jón Tryggvason (d.7.3.2007) organisti frá Ártúnum, séra Róbert Jack (d.11.2.1990), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) og séra Árni Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 282
Fundur hjá Lionklúbbi Skagastrandar 21. desember 2011. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 293
Sólarspjall í maí 2012 fyrir utan búðina á Skagaströnd. Sitjandi frá vinstri eru Gylfi Sigurðsson og Gunnar Sveinsson en hjá þeim stendur Rúnar Jósefsson.
Ingibergur Guðmundsson 334
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson að koma fyrir skólplögn frá skálanum og rotþró snemma vors 1985.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 278
Nágrannar á Bogabrautinni spjalla um lífið og tilveruna í nóvember 2011. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson á Bogabraut 17 og Róbert Gunnarsson á Bogabraut 19.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 295
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból í gönguferð með starfsstúlkunum þar í apríl 2011. Starfsstúlkurnar eru frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 104
Á þessari mynd eru systurnar sjö frá Reykholti ásamt dóttur einnar þeirra. Standandi frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008), Laufey Sigríður Ólafsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Áslaug Hafsteinsdóttir. Sitjandi frá vinstri: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994) sem var móðir Laufeyjar Sigríðar.
Ólafur Bernódusson832
Hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir hress í götugrilli á Bogabrautinni 13. ágúst 2009.
Helga Berndsen 049
Á myndinni eru frændurnir og vinirnir Adolf J. Berndsen til vinstri og Steinþór Ólafsson (d.18.9.1985) til hægri.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 021
Gunnar Jónsson
Ólafur Bernódusson914
24. janúar 2088 fengu þeir á Hafrúnu Hu 12 sérkennilegan afla á línuna. Það var þorskurinn á myndinni því í baki hans var fastur fimm metra langur haki. þorskurinn var greinilega búinn að vera að dragnast með hakann í bakinu í nokkurn tíma því skaftið var með hrúðurkörlum á. Skipstjórinn á Hafrúnu, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, heldur í hakann á myndinni.
Helga Berndsen 055
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1965. Á myndinni eru, frá vinstri: Sigrún Sveinsdóttir (d.15.6.1971), sem var alin upp á Efri-Læk á Skagaströnd, Helga Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen (d.21.8.1983) og Kristján Guðmundsson (Stjáni blái) (d.30.8.1977) kaupmaður í versluninni Krónunni í Reykjavík sem var fyrst á Vesturgötu og síðar í Mávahlíð 25.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 184
Vinkonurnar Hrönn Árnadóttir til vinstri og Líney Jósefsdóttir til hægri.
Helga Berndsen 056
Krakkar að renna sér á skíðum í Tjaldklaufinni í Höfðanum veturinn 1965. Tjaldklaufin var vinsælt skíðasvæði á þessum tíma áður en meira var byggt af íbúðarhúsum við Bankastrætið. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 150
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986).
Helga Berndsen 126
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af þessum systkinum. Frá vinstri: séra Helgi Konráðsson (d.30.6.1959) vinsæll prestur og prófastur á Sauðárkróki og víðar, Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974) kaupkona í Versluninni Borg á Skagaströnd ásamt manni sínum Sigurði Sölvasyni (d. 24.9.1968). Jón Konráðsson (d.19.3.1986) bóndi og kennari, Sesselja Konráðsdóttir (d.22.4.1987) skólastjóri og móðir Eyjólfs Konráðs Jónssonar (d.6.3.1997) Alþingismanns og Magnús Konráðsson (d.23.1.1986) verkfræðingur hjá Hafnamálastofnun m.a. yfirverkfræðingur við gerð Skagastrandarhafnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 344
Steindór Haraldsson spjallar við björgunarsveitarmenn í gúmmíbát utan myndar í júlí 2012. Bak við Steindór er hafnarvörðurinn Þórey Jónsdóttir og í bílnum er Péturína Laufey Jakobsdóttir og barn hennar.
Helga Berndsen 012
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru frá vinstri: Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974) versluninni Borg, Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) Ásbyrgi , Vilhelmína Andrésdóttir (d.24.8.1977) Ásgarði og Karitas Pálsdóttir (d.3.5.1989). Myndin var tekin á Karlsskála.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 018
Atli Þór Þórsson lítur í bók í sólinni utan við Leikskólann Barnaból sumarið 1977.
Helga Berndsen 087
Myndin var tekin vorið 1995 í fermingarveislu. Til vinstri er Gísli Snorrason en hægra megin er Gunnlaugur Árnason (d. 14.9.2016)
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 009
Á Barnabóli sumarið 1977. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir fjögurra ára, Bryndís Ingimarsdóttir þriggja ára, Jósef Ægir Stefánsson á fyrsta ári, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir fjögurra ára, Viggó Magnússon sex ára og Baldur Magnússon þriggja ára.
Helga Berndsen 100
Líklega var þessi mynd tekin í barnaafmæli á Karlsskála einhverntíma krinhgum 1968. Frá vinstri á myndinni eru: Helga Berndsen, Laufey Berndsen, Karl Berndsen, Sigríður Birna Björnsdóttir?, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Björg Berndsen, Ernst Berndsen, Steinunn Berndsen og Adolf H. Berndsen.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 034
Viggó Magnússon í bílaleik í leikskólanum Barnaból vorið 1978.
Ólafur Bernódusson787
Stefán Ægir Lárusson fær sér kaffisopa í þjónustumiðstöðinni við Breiðamerkurlón um verslunarmannahelgina 2013. Á borðinu hjá honum er kristaltær ísmoli úr lóninu.
Steinþór Karlsson 035
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1. Tveir hásetar eru að setja stroffu á belginn þegar verið er að taka trollið. Annar toghlerinn sést til vinstri með tveimur "gluggum".
Helga Berndsen 034
Bergur Jón Þórðarson og Guðrún Einarsdóttir í Karlsskála 1959 en þá var Guðrún eins árs.
Ingibergur Guðmundsson 255
Myndin var tekin 31. maí 1987 í vinabæ Skagastrandar Hönefoss í Noregi. Á henni sýna stjórnarmenn í Norræna félaginu mynd, sem Skagaströnd færði félaginu að göf á þessu fyrsta vinabæjarmóti sem Skagstrendingar tóku þátt í. Frá vinstri: óþekktur stjórnarmaður, Ólafur Bernódusson þáverandi formaður Norræna félagsins á Skagaströnd, Elsa ? stjórnarkona og Ingibergur Guðmundsson stjórnarmaður í Norræna félaginu á Skagaströnd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 082
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Nemendurnir á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Atli Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, óþekktur, Svava Magnúsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Berndsen 035
Myndin var tekin 19. janúar 1960 í eins árs afmæli Adolfs H. Berndsen. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Berndsen með dóttur sína Guðrúnu Einarsdóttur, Hjördís Sigurðardóttir með son sinn og afmælisbarn dagsins Adolf H. Berndsen, Karla Helgadóttir (d.25.9.1986), Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) amma barnanna á myndinni og Fríða Hafsteinsdóttir með dóttur sína Laufey Berndsen.
Ólafur Bernódusson753
Þessi mynd var tekin 31. desember 2002 við áramótabrennu. Á henni eru frá vinstri: Sigurrós Rúnarsdóttir, Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir, Carl Erik Jakobsen, Ísak Jakobsen, Erla Hauksdóttir og Páll Halldórsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn190
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) á kunnuglegum stað í predikunarstólnum í Hólaneskirkju eldri að tala við söfnuð sinn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn200
Á myndinni sitja þeir saman Björn Hallbjörnsson og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 206
Á myndinni, sem tekin var 21. ágúst 2012, eru Geir Arnarson til vinstri og Vilhelm Björn Harðarson til hægri að koma fyrir einu af listaverkum Erlendar Magnússonar í hólunum vestan við stjórnsýsluhúsið.
Ólafur Bernódusson736
Elías Gunnar Hafþórsson á litlu jólum í Höfðaskóla 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 334
Menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar vinna að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Helgi Gunnarsson heldur á tösku meðan hann spjallar við Sigurð Bjarnason. Í baksýn er Árni Halldór Eðvarðsson starfsmaður hjá Helga.
Ingibergur Guðmundsson 165
Hér taka þeir Guðbrandur Magnússon til vinstri og Kristján Karlsson til hægri, þátt í skemmtiatriði á sjómannadegi 1996 með því að leysa ýmsar þrautir í ákveðinni braut. Þarna eru þeir að borða harðsoðið egg og drekka súrmjólk með.
Ingibergur Guðmundsson 171
Jóhannes Sveinsson tekur þátt í erfiðum leik á sjómannadaginn 1987. Leikurinn fólst í að handlanga sig eftir kaðli milli bryggja í höfninni. Viljandi var kaðallinn hafður það slakur að menn blotnuðu á leiðinni. Sumir komust ekki alla leið og urðu að láta sig gossa í sjóinn þar sem björgunarsveitarmenn hirtu þá upp í bát.
Ólafur Bernódusson719
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Egill Örn Ingibergsson, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir, Páll Halldórsson og Friðmar Kári Eiríksson.
Ingibergur Guðmundsson 158
Börkur Árnason til vinstri og Skúli Tómas Hjartarson til hægri róa á fiskikari í höfninni á sjómannadegi 1993 og taka þar með þátt í skemmtiatriðum dagsins.
Ólafur Bernódusson715
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Hallbjörg Jónsdóttir að leika í einu atriðanna sem voru á dagskránni.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 002
Inga Rós Sævarsdóttir á leikskólanum Barnaból í júní 1977.
Barnaból - safn342
Í Barnabóli 2008 - 2009. Drengurinn til vinstri er Mikael Örn Benjamínsson en stúlka hægra megin er Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir.
1
…
153
154
155
…
167
Leita í myndasafninu
Leita