Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Helga Berndsen 065
Samkvæmt því sem skrifað er á þessa mynd bjuggu hjónin frá Karlsskála, þau Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987), í þessu húsi á Akureyri 1930 - 1931. Á myndinni sitja fyrir utan húsið, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Guðrún Einarsdóttir og sonur hennar Einar Þór Ívarsson.
Ingibergur Guðmundsson 195
Anna Dröfn Guðjónsdóttir stekkur langastökk á unglingamóti USAH í febrúar 1985.
Hrefna Jóhannesdóttir009
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Daníel Davíðssyni Sauðárkrók einhverntíma á árunum 1902 -1910 og er af Maríusi Pálssyni (1873 - 1950) verkamanni á Sauðárkrók skv Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.
Helga Berndsen 133
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af hafís. Á myndinni eru börn að leik á strönduðum jaka í fjörunni neðan við Læk. Börnin eru Adolf H. Berndsen til vinstri, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) í miðið og Guðrún Einarsdóttir til hægri.
Helga Berndsen 042
Myndin var tekin sunnan undir gömlu sjoppunni hjá Karlsskála 1963 eða 1964. Fremst á myndinni er Adolf H. Berndsen í indíánaleik en aftar er Árný Viggósdóttir með Guðrúnu Björgu Berndsen ? í fanginu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1061
Ólafur Bernódusson að flaka fisk í útgerðarskúrnum sínum 9. ágúst 2007.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 167
Karl Berndsen (d.12.2.1995) til vinstri og Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972) til hægri. Bílinn sem þeir standa við átti Númi og stundaði á honum flutninga milli Skagastrandar og Reykjavíkur. Eins og sjá má var langt hús á bílnum þannig að Númi gat tekið með sér nokkra farþega í hverri ferð. Þegar þessi mynd var tekin, líklega einhverntíma kringum 1960, var það a.m.k. átta tíma ferðalag að fara þessa leið að sumri til með Núma. .
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 74
Áslaug Hafsteinsdóttir í Reykholti lítur í blað meðan hún þurkar á sér hárið. Svona hárþurkur voru algengar og vinsælar á árum áður eða þar til hand-hárblásarar komu til sögunnar.
Ólafur Bernódusson752
Þessi mynd var tekin þegar starfsmannafélag Arnars og Skagstrendingur hf færðu Höfðaskóla peningaupphæð til tækjakaupa veturinn 2002 -2003. Á myndinni eru frá vinstri: Finnur Kristinsson frá starfsmannafélaginu, Stella Kristjánsdóttir skólastjóri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 034
Myndin var tekin á slökkviæfingu Slökkviliðs Skagastrandar. Hér er verið að sprauta froðu á Höfðanum en bíllinn var staðsettur niður á vegi austan við hann. Hörður Ragnarsson (ber að ofan) og Gunnar Albertsson munda stútinn en Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Helgi Gunnarsson fylgjast með ásamt tveimur óþekktum mönnum.
Ólafur Bernódusson946
Frændurnir Fannar Viggósson sitjandi með gítar og Viggó Magnússon taka lagið í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í Fellsborg 1. maí 2009.
Helga Berndsen 021
Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) (Laugi Árna) og Helga Berndsen (Bíbí). Myndin var tekin 1991.
Helga Berndsen 068
Á myndinni, sem var tekin 1995, eru bræðurnir Guðmundur Árnason (d.14.10.2009) í bláum bol og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) með hjálm, að undirbúa málningu á þakinu á Karlsskála.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 84
Frændsystkinin Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir á góðri stund.
Ólafur Bernódusson916
Guðrún Pálsdóttir á leið upp á Steinnýjarstaðafjall í mars 2008. Í baksýn "Skín við sólu Skagafjörður" með Málmey, Drangey og Þórðarhöfða.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 1
Hafsteinn Þórðarson leikur sér á Farmal Cub dráttarvél Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) afa síns fyrir utan Reykholt. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Ólafur Bernódusson891
Guðmundur Jónsson til vinstri og Þorvaldur Skaftason til hægri skemmta gestum á Kántrýdögum í ágúst 2007.
Ólafur Bernódusson794
Adolf J. Berndsen þáverandi oddviti Höfðahrepps - nú Sveitarfélagið Skagaströnd - vígir dráttarbrautina á Skagaströnd með því að gangsetja dráttarvindurnar 6. apríl 1985.
Séra Pétur og Dómhildur - safn189
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrir utan kirkjuna sína, Hólaneskirkju á Skagaströnd. Pétur þjónaði í kirkjunni í af mikilli manngæsku í 40 ár sem prestur og prófastur.
Ólafur Bernódusson862
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er Harpa Hlín Ólafsdóttir að keppa í Húla-húla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 254
Tveir atvinnurekendur á Skagaströnd. Gísli Snorrason til vinstri rekur Vélaverkstæði Skagastrandar, sem er í baksýn. Vilhelm Björn Harðarson til hægri á og rekur Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar. Myndin var tekin í september 2010.
Ingibergur Guðmundsson 291
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 af Ægisgrund 5 á kafi í snjó. Barnið á myndinni er Rebekka Laufey Ólafsdóttir
Ólafur Bernódusson 701
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd eru fjórar samstarfskonur úr greiðslustofunni á námskeiðinu. Frá vinstri: Jensýna Lýðsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Helga Berndsen 084
Arnór Snorri Gíslason í fermingarveislu vorið 1995.
Ólafur Bernódusson869
Vinkonurnar Guðrún Pálsdóttir til vinstri og Signý Richter til hægri. Myndin var tekin 1. apríl 2012.
Helga Berndsen 015
Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 1971 -72. Á henni er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) með vinkonurnar Unni Gunnarsdóttur til vinstri og Guðrúnu Einarsdóttur til hægri.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 39
Vinirnir Anna Sjöfn Jónasdóttir og Vilhelm Björn Harðarson. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1968.
Hrefna Jóhannesdóttir010
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Á. Thorsteinson Reykjavík. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Berndsen 139
Á þessari mynd eru þrír athafnamenn á Skagaströnd við kaffiborð á Strandgötu 10. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1970. Á henni eru frá vinstri: Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972) sem stundaði vöruflutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar um árabil. Karl Berndsen sem situr í fangi föður síns Karls Berndsen (d.12.2.1995) og Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985). Þeir Karl og Þórarinn ráku saman Vélsmiðju Karls og Þórarins og Karl síðar Vélsmiðju Karls Berndsen allt til dauðadags.
Ólafur Bernódusson738
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mikil vinna fór í að keyra út malarlagi í göngustíginn á vélinni sem sést á myndinni og raka stíginn til. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni eru frá vinstri: Atli Þór Þórsson, Ólafur Bernódusson, Árni Geir Ingvarsson og Ari Þórsson.
Helga Berndsen 140
Á myndinni situr Ernst Berndsen (d.21.8.1983) í Karlsskála á rúmstokknum hjá vini sínum Gísla Einarssyni (d. 27.10.1969) frá Viðvík. Gísli var þá orðinn veikur en Ernst heimsótti hann á sjúkrabeðið með hvítan hest í farteskinu (White Horse Wisky) til að hressa vin sinn. Myndin var líklega tekin skömmu áður en Gísli lést.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 72
Þessi mynd var tekin utan við Háagerði. Maðurinn á myndinni er Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) bóndi þar en seinna kaupmaður og rithöfundur í Reykholti.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 43
Hjónin Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) í Reykholti sitjandi úti á túni með Spákonufellið í baksýn.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 083
Myndin var tekin 24. mars 1988 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni er einhver leikþáttur í gangi. Þar eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, óþekkt stúlka, Jósef Stefánsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 111
Myndin var tekin 6.apríl 1986 í afmælisveislu Láru Kristjánsdóttur (d. 6.9.1993) er hún varð 85 ára. Á myndinni eru frá vinstri: Þórdís Sigurðardóttir, Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) og Erla Valdimarsdóttir (d.29.9.2008).
Helga Berndsen 051
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin árið 1966 en á henni eru, frá vinstri: Vilborg Jónsdóttir (d.?), Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) verksmiðjustjóri á Skagaströnd, Ingveldur Anna Pálsdóttir og barn.
Ólafur Bernódusson879
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af fjórum prúðbúnum stúlkum sem buðu upp á veitingar hjá kofanum sínum. Frá Vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Helga Berndsen 124
Frænkurnar Helga Berndsen á Karlsskála til vinstri og Magdalena Axelsdóttir (d.3.7.2015) á Læk til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1955.
Ingibergur Guðmundsson 273
Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) og Ingibergur Guðmundsson fagna frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á "Fyrsta öngstræti til hægri" í mars 1988. Dóra lék en Ingibergur var starfsmaður við sýninguna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 232
Egill Örn Ingibergsson í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Ólafur Bernódusson765
Eftir miklar endurbætur á Bjarmanesi var þar opnað kaffihús sumarið 2004. Á myndinni eru konurnar þrjár sem ráku kaffihúsið fyrstu misserin. Frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Kristín Krismundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 336
Bryggjudorg er eitthvað sem flestir hafa prófað, sem aldir eru upp í sjávarplássum landsins. Hvað afla varðar getur rétt beita skipt sköpum. Hér eru tveir ungir menn að útvega sér beitu með því að kroppa notaða beitu af krókunum á línu sem bíður þess að vera beitt á ný. Ólafur Halldórsson er til hægri en hinn drengurinn er líklega Almar Atli Ólafsson.
Helga Berndsen 076
Hjónin Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) frá Karlsskála. Myndin var tekin í apríl 1995.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 103
Fjölskyldan í Reykholti. Hjónin Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) og Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) með dætrum sínum sjö. Sú yngsta, Ólína Gyða Hafsteinsdóttir er í fangi móður sinnar. Aftast til hægri er sú elsta Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994). Aftast til vinstri er líklega sú næst elsta, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008). Hinar eru í aldursröð frá þeirri elstu: Pálína M. Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Áslaug Hafsteinsdóttir. Ekki er vitað hver þeirra er hver en ef þú þekkir þær í sundur vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var líklega tekin 1941 eða 1942.
Helga Berndsen 121
Hjónin Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir með son sinn Fritz Hendrik Berndsen. Myndin var líklega tekin 1966.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 56
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) frá Reykholti á baki hests sem henni þykir greinilega mjög vænt um. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 119
Elsa Lára Blöndalúr Hjarðarholti (Fellsbraut 4). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Elsa Lára er fædd 1955.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 297
Þrír ungir menn að snyrta blettinn austan við Rækjuvinnsluna í júní 2012. Frá vinstri: Friðmar Kári Eiríksson, Ísak Karl Tryggvason og Elmar Jóhann Grétarsson.
Ólafur Bernódusson 724
17.október 2009 var dagur Rauða krossins. Þá komu nokkrir félagar í deildinni á Skagaströnd saman við Einbúann og mynduðu mannlegan rauðan kross eins og myndin sýnir. Álfarnir í Einbúanum tóku þessu framtaki vel enda eiga þeir ýmislegt sameiginlegt með Rauða kross-fólki.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 164
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu í afgreiðslusal Gamla pósthússins. Á myndinni eru frá vinstri: baksvipir hjónanna Björgvins Brynjólfssonar (d. 28.2.2007) og Rósu Pétursdóttur (d.10.10.1998), Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996), Syvía Hrólfsdóttir, Hörður Ragnarsson, Þórunn Óladóttir, Amy Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Hallbjörn Hjartarson, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) og Elín Njálsdóttir. Í baksýn má sjá símaklefana tvo sem voru þarna á pósthúsinu/símstöðinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 320
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni eru nemendur í 1. og 2. bekk búin að stilla sér upp til myndatöku. Frá vinstri: Birgitta Rún Finnbogadóttir, Sigríður Kristín Guðmundsdóttir, Aþena Guðbjörg Baldursdóttir, Mathis Grüenberger, Snæbjörn Elfar Arnarson, Elsa Fanney Gunnarsdóttir, Valdimar Viggó Baldursson, Katrín Ragna Gunnarsdóttir, Ásgeir Sigmar Björnsson, Logi Hrannar Jóhannsson og Vésteinn Sigurðarson.
Ólafur Bernódusson856
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan á leið niður Fellsbrautina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 363
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Viktori Erni Einarssyni til vinstri og Elínu Ósk Björnsdóttur til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 207
Ánægðar stúlkur með verðlaun sín á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Frá vinstri: Bjarnhildur Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir og Særún Níelsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 162
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu. Fólkið er frá vinstri: Jón Gunnar Jósefsson, Stefán Jósefsson og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir.
Ólafur Bernódusson827
Þrjár galvaskar ungar íþróttakonur frá Skagaströnd á íþróttamóti 2. júlí 2009. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundssen, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Í baksýn sér í Pál Halldórsson og móður hans Sigríði Stefánsdóttur. Stúlkurnar tvær til vinstri eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 332
Gísli Snorrason vinnur að einhverju viðhaldi við íbúð tengdaforeldra sinna að Bankastræti 9 í mars 2010. Adolf J. Berndsen eigandinn og tengdafaðir Gísla fylgist með og handlangar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 370
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á henni eru krakkarnir í einhvers konar reiptogi "einbjörn í tvíbjörn...". Fremstur er Auðunn Árni Þrastarson, þá Sigurður Aron Björnsson, Daði Snær Stefánsson, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Benóný Bergmann Sæmundsen.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 30
Aðalsteinn Jörgensen bjargar hananum vini sínum úr uppslætti sem haninn hafði asnast upp í. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 163
Frændurnir Vilhelm Þórarinsson til vinstri og Vilhelm B. Harðarson til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1965.
1
…
154
155
156
…
167
Leita í myndasafninu
Leita