Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 141
Þessi mynd var tekin um jól líklega 1963 eða 1964. Lengst til vinstri situr Bára Þórðardóttir með systur sína Laufey Þórðardóttur í fanginu. Við hlið þeirra er bróðir þeirra Hafsteinn Þórðarson en stúlkurnar til hægri eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson786
Göngufélagarnir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Sigurður Sigurðarson velta fyrir sér aldri ísmola úr Breiðamerkurlóni um verslunarmannahelgina 2013.
Ólafur Bernódusson962
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Helga Berndsen 113
Myndin var tekin á jólum heima á Karlsskála, líklega kringum 1965. Konan sem stendur til vinstri er húsmóðirin Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987). Við hlið hennar situr Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) með dóttur sína, Guðrúnu Guðmundsdóttur í fanginu. Guðrún Einarsdóttir situr lengst til vinstri og við hlið hennar situr Sesselja Guðmundsdóttir, dóttir Hildigunnar. Konan sem situr lengst til hægri er Helga Berndsen móðir Guðrúnar Einarsdóttur og dóttir Guðrúna Helgadóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 363
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Viktori Erni Einarssyni til vinstri og Elínu Ósk Björnsdóttur til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 207
Ánægðar stúlkur með verðlaun sín á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Frá vinstri: Bjarnhildur Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir og Særún Níelsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 162
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu. Fólkið er frá vinstri: Jón Gunnar Jósefsson, Stefán Jósefsson og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir.
Ólafur Bernódusson827
Þrjár galvaskar ungar íþróttakonur frá Skagaströnd á íþróttamóti 2. júlí 2009. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundssen, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Í baksýn sér í Pál Halldórsson og móður hans Sigríði Stefánsdóttur. Stúlkurnar tvær til vinstri eru óþekktar.
Ingibergur Guðmundsson 132
Hjónin Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) með börnum sínum. Sitjandi frá vinstri: Lára Guðmundsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Helga Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri:Ingibergur Guðmundsson, Soffía Lárusdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Guðmundur Jóhannesson og Karl Guðmundsson. Myndina Tók Stefán Pedersen á Sauðárkróki.
Ingibergur Guðmundsson 120
Hjörtur Guðmundsson í apríl 1986.
Helga Berndsen 109
Myndin var tekin á jólum 1984. Við borðið sitja frá vinstri: Sigríður Ólafsdóttir, Helga Berndsen og Karl Berndsen.
Ólafur Bernódusson956
Guðmundur Rúnar Krsitjansson húsasmiður, skáld og rithöfundur á sjómannadegi 6. júní 2009.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 160
Maðurinn í hvítu skyrtunni er Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir hina mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1177
Þetta fólk starfaði við höfnina. Frá vinstri: Haraldur Árnason hjá fiskmarkaðnum, Sigurður Ingimarsson hjá fiskmarkaðnum, Reynir Lýðsson framkvæmdastjóri fiskmarkaðarins og Þórey Jónsdóttir hafnarvörður á Skagastrandarhöfn.
Ingibergur Guðmundsson 297
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni eru fjórir starfsmenn vinnslunnar í reykingapásu. Frá vinstri: Magnús B. Blöndal (d. 7.9.2001), Hjalti H. Indriðason (d.17.11.2020), Gunnar Hafdal og Valdimar Viggósson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 076
Gunnar Helgason (d.19.10.2007) vörubifreiðastjóri.
Helga Berndsen 071
Þrjú barnabörn í garðinum við Bankastræti 9 sumarið 1995. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sigurður Ernst Berndsen og Sonja Hjördís Berndsen.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 117
Aðalsteinn Jörgensen í bílaleik utan við Reykholt. Síðan myndin var tekin kringum 1965 hefur götumyndin í baksýn gjörbreyst. Húsin sem sjást eru frá vinstri: Baldursheimur, Akur og Asparlundur, Hólabraut 14, Vinaminni og Brautarholt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 272
Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Bjarni Jónasson að spjalla saman sunnan undir Gamla kaupfélaginu um miðjan september 2011. Halldór og Bjarni voru báðir starfsmenn BioPol á þessum tíma en skrifstofur félagsins eru í húsinu.
Ólafur Bernódusson803
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Pétur Atli Árnason, Ingólfur Eðvald Björnsson, Arna Rún Arnarsdóttir, Helgi Hreiðarr Sigurðarson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Magnús Sólberg Baldusrsson, Ástríður Helga Magnúsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Ólafur Halldórsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 057
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) bíður komu Örvars Hu 21 í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd í apríl 1982. Þó svo að myndin virðist segja að hann hafi einn tekið á móti skipinu var það ekki svo því fjölmenni var á bryggjunni þennan dag, flestir við bryggukantinn þar sem Örvar lagði að. Ef til vill hefur þessi aldni guðsmaður bara haft í huga það sem stendur í Biblíunni um að hinir síðustu munu verða fyrstir.....
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 179
Hjónin Hörður Ragnarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Ólafur Bernódusson711
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er hluti af yngst nemendunum að flytja atriði úr leikritinu Ávaxtakarfan. Frá vinstri: óþekktur, Hugrún Antonía Sigurðardóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Snæbjörn Elfar Arnarsson, Katrín Gunnarsdóttir og Mathis Grüenberger.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 298
Jarðvinna við Bankastræti 9 í október 2013. Adolf J. Berndsen eigandi íbúðar í húsinu fylgist með framkvæmdum lengst til hægri en hinir mennirnir eru óþekktir. Fjöllin skarta hausthrími til skrauts.
Helga Berndsen 066
Kaffisopi á "Krá Sölva Helgasonar" í Lónkoti á Skagafirði. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Sigríður Ólafsdóttir, Benedikt Alfonsson, Katrín Jónsdóttir og Helga Berndsen. Benedikt og Katrín eru foreldrar Jóns Atla Benediktssonar rektors Háskóla Íslands.
Sigurður Bjarnason - safn 053
Sigurður Bjarnason frá Bjargi með dætur sínar; Svava Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Inga Lára Sigurðardóttir til hægri. Myndin var líklega tekin um miðjan níunda áratuginn.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 032
Matartími á leikskólanum Barnaból vorið 1978. Við borðið sitja frá vinstri: Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir, Baldur Magnússon, Atli Þór Þórsson og Viggó Magnússson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1229
Freyja Dís Jóhannsdóttir vinstra megin og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 329
Einn af fjölmörgum smábátum sem gerður var út frá Skagaströnd á strandveiðar strandaði við Landsenda á Höfðanum 2. júlí 2012. Engin slys urðu á mönnum og báturinn skemmdist lítið en þurfti þó viðgerð á stýri og skrúfu áður en haldið var til veiða á ný.
Helga Berndsen 073
Hildigunnar Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) prúðbúin í þjóðbúningi. Myndin var tekin 1995.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 86
Strákarnir í bílaleiknum eru, frá vinstri: Vilhelm B. Harðarson, Kristinn Guðmundsson og óþekktur. Myndin var líklega tekin kringum 1970. Hvíta húsið í baksýn er Bergsstaðir en það er nú horfið. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 238
Birna Sveinsdóttir við vinnu í Landsbankaútibúinu á Skagaströnd. Myndin var greinilega tekin 8. apríl en ártalið er óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 200
Sigurvegarar á unglingamóti USAH á Blönduósi 1981. Frá visntri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Þórarinn Brynjar Ingvarsson, óþekktur og Páll Jónsson.
Ólafur Bernódusson979
Systkinin Stefán Ægir Lárusson og Soffía Lárusdóttir á sjómannadegi á Skagaströnd 6. júní 2009.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 123
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) var sóknarprestur á Skagaströnd í 40 ár.
Ólafur Bernódusson869
Vinkonurnar Guðrún Pálsdóttir til vinstri og Signý Richter til hægri. Myndin var tekin 1. apríl 2012.
Ólafur Bernódusson835
Konurnar á myndinni tilheyra kjarnanum í kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: systurnar Guðrún Sigurðardóttir og Hjördís Sigurðardóttir ásamt Báru Þorvaldsdóttur. Aftan við þær eru Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) til vinstri og Hrafnhildur Jóhannsdóttir til hægri. Saman eiga þessar konur hátt á annað hundrað ára farsælt starf í kórnum. Myndin var tekin 10. maí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 368
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Daða Snæ Stefánssyni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 299
Þór Arason byggir forstofu við Spákonuhofið í júní 2012.
Helga Berndsen 103
Á myndinni eru fjórir ættliðir kvenna á tröppunum við Karlsskála. Frá vinstri: Björg Berndsen (d.15.12.1963), Steinunn Berndsen (d.29.10.1953), Sigríður Ólafsdóttir og litla stúlkan er Sigríður Sigurðardóttir.
Helga Berndsen 133
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af hafís. Á myndinni eru börn að leik á strönduðum jaka í fjörunni neðan við Læk. Börnin eru Adolf H. Berndsen til vinstri, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) í miðið og Guðrún Einarsdóttir til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 316
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að vinna við vegggrindina í skálanum. Ólafur Bernódusson er lengst til vinstri við vinnu en börnin eru, frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, óþekktur, Halldór Gunnar Ólafsson og Auður Eva Guðmundsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 42
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir frá Reykholti.
Ólafur Bernódusson788
Mæðginin Ólafur Halldórsson og Sigríður Stefánsdóttir gera sig klár fyrir skemmtisiglingu um Breiðamerkurlón um verslunarmennahelgina 2013.
Ólafur Bernódusson 710
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Krakkarnir voru búin að búa sér til dósahristur í skólanum og voru þær óspart notaðar til að vekja athygli á málstaðnum. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Björgvinsdóttir, Brynjar Finnbogason, Ólafur Halldórsson, Magnús Sólberg Baldursson, Almar Atli Ólafsson, óþekktur með kröfuspjald, Andri Már Gunnarsson, Ingólfur Eðvald Björnsson og Sindri Freyr Björnsson.
Ólafur Bernódusson 726
Markaður í Rauða kross húsinu. Þar var seldur notaður fatnaður og einnig nýtt prónles. Þá var líka hægt að kaupa sér kakó/kaffi og vöfflu með rjóma. Á myndinni, sem tekin var 1. maí 2006, er Sigurlaug Kristjánsdóttir frá Tjörn lengst til vinstri, Árný Hjaltadóttir frá Steinnýjarstöðum er í miðið og til hægri er Katrín Guðmundsdóttir frá Skagaströnd. Stúlkan lengst til hægri er óþekkt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 15
Þessi mynd var tekin á svölunum á gamla pósthúsinu (Bogabraut 10). Á henni eru frá vinstri: Ernst Berndsen, Karl Berndsen, Vilhelm Harðarson, Áslaug Hafsteinsdóttir og Pálína Freyja Harðardóttir. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 69
Þessi mynd var tekin þegar Lárus Ægir Guðmundsson, sem stendur á bakkanum, var að kenna sund í lauginni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1970. Í lauginni eru, frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Hafþór Smári Gylfason, Valdimar Valdimarsson, Vilhelm B. Harðarson, óþekktur, Kristinn Guðmundsson, tveir óþekktir, Páll Jónsson, Sigurður Guðmundsson, óþekktur og Stefán Þór Árnason. Ef þú þekkir óþekktu drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 322
Bára Þorvaldsdóttir stuðningsfulltrúi og bókavörður til vinstri og Jóhanna Karlsdóttir stuðningsfulltrúi til hægri í Höfðaskóla síðasta dag fyrir jólafrí 2014.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 010
Skipsfélagarnir Finnur Kristinsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 032
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi af skemmtiatriðum sem fólust í því að íturvaxnar konur sýndu samkvæmisdansa með nokkrum körlum. Konurnar voru að sjálfsögðu karlmenn í kvenfötum - dragdrottningar - en þær birtust á höfninni þegar þær voru hífðar af dekki Örvars Hu 21 í kari. Eins og sjá má var dansinn ástríðufullur í meira lagi.
Ólafur Bernódusson806
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Helga Berndsen 086
Hjördís Sigurðardóttir vorið 1995.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 085
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru skólastjórnendurnir Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til vinstri og Páll Leó Jónsson skólastjóri til hægri. Milli þeirra er William Sillar kennari.
Helga Berndsen 101
Myndin var líklega tekin á tröppunum á Karlsskála en senilega kringum 1910. Á henni eru ættingjar í stórfjölskyldu. Aftast til vinstri er Guðrún Gísladóttir ( sem Ernst Berndsen kallaði Gunnu gömlu Gísla), skyld Berndsen fjölskyldunni. Í dyragættinni, sést i höfuðið á ungum dreng sem er líklega Ernst Berndsen, strákur aftast með húfu er Emil Berndsen. Kona til vinstri er Jónína Jónsdóttir seinni kona Fritz Hendrik Berndsen, við hlið hennar er Steinunn Berndsen hún situr með yngstu dóttur sína Sigríði, fyrir aftan þær er Björg Berndsen en við hliðina á þeim er Fritz Hendrik, kallaður Hinni , neðan við hann, sá með hatt og skegg er Fritz Hendrik Berndsen sá elsti, fremst er Carl Berndsen með dóttur sína Ásu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 364
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Guðný Evu Björnsdóttur til vinstri og Uloma Lísbet Rós Osuala til hægri.
Helga Berndsen 018
Guðrún Einarsdóttir á fermingardaginn sinn vorið 1971.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 53
Þessar ungu stúlkur eru frá Reykholti. Í miðjunni í fremri röðinni er Áslaug Hafsteinsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Í aftari röð eru frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Stúlkan lengst til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1266
Árni Halldór Eðvarðsson í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 24
Ekki er vitað í hvers sjötugsafmæli þetta prúðbúna fólk er statt. Þau eru frá vinstri: Ástrós Vilhelmsdóttir, Ernst Berndsen og Laufey Berndsen.
1
…
155
156
157
…
167
Leita í myndasafninu
Leita