Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 53
Þessar ungu stúlkur eru frá Reykholti. Í miðjunni í fremri röðinni er Áslaug Hafsteinsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Í aftari röð eru frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Stúlkan lengst til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 002
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega einhverntíma um 1974. Gylfi Guðjónsson er til vinstri bak við borðið en Árni Þórhallsson til hægri. Baksvipur Jóns Þorgeirssonar (d.21.1.2017) er fyrir miðju en til hægri, með axlabönd, er Matthías Guðmundsson.
Helga Berndsen 091
Myndin var tekin á gleðidegi þegar Helga Sigríður Ívarsdóttir útskrifaðist sem stúdent. Við hlið hennar er móðir hennar Guðrún Einarsdóttir og lengst til vinstri er amma hennar og móðir Guðrúnar, Helga Berndsen.
Ólafur Bernódusson709
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru þáverandi 5. og 6. bekkur að sýna atriði sitt. Sitjandi frá vinstri: Ástríður Helga Magnúsdóttir, Magnús Sólberg Baldursson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Arna Rún Arnardóttir, Daði Snær Stefánsson, Ólafur Halldórsson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Freydís Ósk Kristjánsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Dagný Dís Bessadóttir og óþekkt. Standandi frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Guðrúna Helga Björgvinsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 68
Kátar konur í saumaklúbbi. Frá vinstri: óþekkt, Áslaug Hafsteinsdóttir, Birna Blöndal, Ragna Friðriksdóttir (d.5.2.1981), Bára Þorvaldsdóttir, Björk Axelsdóttir og Kolbrún ?.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 24
Ekki er vitað í hvers sjötugsafmæli þetta prúðbúna fólk er statt. Þau eru frá vinstri: Ástrós Vilhelmsdóttir, Ernst Berndsen og Laufey Berndsen.
Ólafur Bernódusson816
Arnrún Guðjónsdóttir spilar á harmóniku á vortónleikum tónlistarskólans 28. apríl 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 152
Myndin var tekin í einhverri kaffiveislu í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Jón Hallur Pétursson, Vilhelm Harðarson og óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Berndsen 101
Myndin var líklega tekin á tröppunum á Karlsskála en senilega kringum 1910. Á henni eru ættingjar í stórfjölskyldu. Aftast til vinstri er Guðrún Gísladóttir ( sem Ernst Berndsen kallaði Gunnu gömlu Gísla), skyld Berndsen fjölskyldunni. Í dyragættinni, sést i höfuðið á ungum dreng sem er líklega Ernst Berndsen, strákur aftast með húfu er Emil Berndsen. Kona til vinstri er Jónína Jónsdóttir seinni kona Fritz Hendrik Berndsen, við hlið hennar er Steinunn Berndsen hún situr með yngstu dóttur sína Sigríði, fyrir aftan þær er Björg Berndsen en við hliðina á þeim er Fritz Hendrik, kallaður Hinni , neðan við hann, sá með hatt og skegg er Fritz Hendrik Berndsen sá elsti, fremst er Carl Berndsen með dóttur sína Ásu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1229
Freyja Dís Jóhannsdóttir vinstra megin og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 329
Einn af fjölmörgum smábátum sem gerður var út frá Skagaströnd á strandveiðar strandaði við Landsenda á Höfðanum 2. júlí 2012. Engin slys urðu á mönnum og báturinn skemmdist lítið en þurfti þó viðgerð á stýri og skrúfu áður en haldið var til veiða á ný.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 142
Þegar þessi mynd var tekin var stór gryfja eftir efnistöku rétt vestan við Spákonufellsrétt. Vatn safnaðist gjarnan í gryfjuna og var því vinsælt hjá yngri kynslóðinni að leika sér í pollinum meðan fullorðna fólkið stritaði í réttinni. Á steininum er líklega Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Vilhelm B. Harðarson og Aðalsteinn Jörgensen. Langt er nú orðið síðan gryfjan var fyllt upp aftur.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 011
Guðmundur Henry Stefánsson tveggja og hálfs árs við bakstur á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 9
Hjónin Guðríður Bergsdóttir (d.10.6.1996) og Þórður Jónsson (d.25.12.2009) úr Skjaldbreið á Skagaströnd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 71
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu í Gamla pósthúsinu (Bogabraut 10) né hvenær hún var. Á myndinni eru frá vinstri: Vilhelm B. Harðarson, tvær óþekktar konur, Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988), Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990) og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 252
Sigurgeir Árnason við vinnu í Bátanausti í mars 2011.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 46
Óþekktur drengur (?Hafsteinn Sigurbjarnarson? (d.18.5.1974)). Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson795
Þessar tvær konur reka spákonuhofið á Skagaströnd og spá þar fyrir fólki ef það hefur áhuga á því. Þessi mynd af þeim stöllum var tekin í golfskálanum á Háagerðisvelli þegar þær stóðu fyrir fjölsóttri gönguferð - Þórdísargöngu - á Spákonufellsborgina 4. júlí 2009. Þegar göngufólkið kom niður aftur tóku þær á móti því með kaffiveitingum í golfskálanum. Konurnar eru Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1065
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) að dorga í rigningu á bryggjunni 14. ágúst 2010 og tók með því þátt í dorgveiðikeppni á Kántrýdögum á Skagaströnd. Jónas var annars vanari að sýsla við stórvirkari veiðarfæri á sjó á sínum yngri árum.
Ólafur Bernódusson848
Þessi mynd var tekin 16. mars 2007 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru kynnarnir Helena Velemir og Patrik Bjarnason að draga í aðgöngumiðahappadrættinu. Helena heldur á tertu sem var í vinning í þetta sinn.
Ólafur Bernódusson857
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan á leið niður Fellsbraut undir forystu lögreglunnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1054
Stefán Jósefsson um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 í apríl 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 365
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á myndinni er Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari að hjálpa krökkunum í þrautabrautinni. Næst okkur á myndinni er Uloma Lísbet Rós Osualaen upp á hestinum er Elín Ósk Björnsdóttir í bleikum buxum og yfir hana sést í Guðný Evu Björnsdóttur. Á gólfinu er Sunna Steingrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 207
Óþekkt listakona stendur hjá verki sínu 30. ágúst 2012 á túnbletti við Vetrarbrautina. Seinna var komið fyrir mislitri lýsingu inn í verkinu sem gjörbreytti því.
Helga Berndsen 130
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af Hafís. Þá notaði margur unglingurinn tækifærið og stundaði þann hættulega leik að fara út á ísinn og stökkva milli jaka. Ekki þarf að spyrja að leikslokum ef þau hefðu farið niður um vakir á ísnum en sumsstaðar var þunnur hemi yfir vökunum sem ekki hélt þunga manns. Á myndinni eru þrír að leik á ísnum við Höfðann.
Ólafur Bernódusson 708
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Á þessari mynd er kröfugangan ný lögð af stað frá Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 229
Aron Snær Fannarsson slakar á í stund milli stríða í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Ólafur Bernódusson971
11. júní 2010 fengu þeir félagarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Sævar Hallgrímsson til hægri sjaldgæfan flatfisk í netin á Ólafi Magnússyni Hu 54. Um var að ræða sandhverfu. Sandhverfa lifir í ísöltu vatni t.d. í sjónum við árósa og jafnvel uppi í ósum. Hún er mjög sjaldgæf hér við land en þykir frábær matfiskur. Stærsta sandhverfan sem vitað er til að veiðst hafi hér við land veiddist í febrúar 2018 við Ingólfshöfða en hún vóg 12 kíló og var 82 sentimetra löng.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 192
Systurnar úr Reykholti. Aftari röð frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Fremri röð frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 159
Þessi mynd var tekin á sumardegi af hjónunum Herði Ragnarssyni og Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur með frumburð sinn, Vilhelm B. Harðarson. Bílinn átti Hörður en ekki er vitað um hvaða tegund hann var.
Ólafur Bernódusson940
Feðgarnir Hjalti Sævar Hjaltason til vinstri og Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skaggjastöðum til hægri. Myndin var tekin í Fellsborg í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.<br>
Helga Berndsen 073
Hildigunnar Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) prúðbúin í þjóðbúningi. Myndin var tekin 1995.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 006
Atli Þór Þórsson á leikskólanum Barnaból sumarið 1977 í skrýtnum búningi.
Ólafur Bernódusson939
Ólafur Bernódusson við vörðu á toppi Kistufells við Hesteyrarfjörð um páska 2009. Í baksýn sést eyðibyggðin á Hesteyri þar sem rekin er nokkur ferðaþjónusta á sumrin annars hefur refurinn þar frítt spil.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1266
Árni Halldór Eðvarðsson í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Helga Berndsen 078
Gísli Snorrason í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1148
Ekkert er vitað um þessa mynd sem virðist þó vera nokkuð gömul. Ef þú þekkir einhver á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 364
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Guðný Evu Björnsdóttur til vinstri og Uloma Lísbet Rós Osuala til hægri.
Helga Berndsen 018
Guðrún Einarsdóttir á fermingardaginn sinn vorið 1971.
Ólafur Bernódusson987
Í júlí 2010 fóru nokkrir Skagstrendingar í nokkurra daga útilegu í Reykjarfjörð nyrðri á Hornströndum. Hópurinn var einstaklega heppinn með veður þessa daga sem voru nýttir til gönguferða um nágrennið. Á myndinni er hluti hópsins að borða í kvöldsólinni. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Gunnar Svanlaugsson, tveir óþekktir, Sigurjón Atli Sigurðsson. Ólafur Bernódusson situr við enda borðsins en við endann nær okkur er baksvipur Láru Guðmundsdóttur. Hægra megin við borðið eru talið inn eftir borðinu: Amy Ósk Ómarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Steindór R. Haraldsson og Jóney Hrönn Gylfadóttir. Fjallið til vinstri í baksýn er Geirólfsnúpur en upp á hann fór hluti hópsins þennan dag.
Ólafur Bernódusson988
21.3.2013 stóð Gleðibankinn fyrir bíósýningu í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar. Sýndar voru þrjár stuttar myndir sem allar tengdust Skagaströnd á einhvern hátt. Húsfyllir var á sýningunni eins og sjá má og skemmti fólk sér hið besta.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 133
Þrjár systur frá Reykholti með mönnum sínum. Lengst til vinstri er Þórður Kristjánsson (d.30.6.1991) sem situr á móti konu sinni Pálínu Margréti Hafsteinsdóttur (d.22.7.2008). Við hlið þórðar eru hjónin Kristinn Daníelsson (d.3.8.2011) og Áslaug Hafsteinsdóttir og síðan Karl Berndsen (d.12.2.1995) hjá konu sinni Ingibjörgu Fríðu Hafsteinsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson957
Sigurður Skagfjörð Bjarnason á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson766
Krakkarnir í Barnabóli skoða stóran krabba sem einhver kom með á leikskólann til þeirra um miðjan október 2004. Páll Halldórsson er til vinstri og horfir í myndavélina en til hægri er Laufey Lind Ingibergsdóttir einnig að horfa í myndavélina. Önnur börn á myndinni eru óþekkt. Ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 120
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1968. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Valdimarsson, Vilhelm B. Harðarson, Ernst Berndsen?, Valdimar Valdimarsson, Karl Berndsen, Bára Þórðardóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með barn í fanginu (?Pálína Freyja Harðardóttir?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1246
Á myndinni, sem tekin var 4. desember 2012 á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, eru starfsmenn keppninnar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson kynnir, Skarphéðinn Einarsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir sem skipuðu dómnefnd kvöldsins og lengst til hægri er Trostan Agnarsson kennari sem var framkvæmdastjóri keppninnar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 127
Vilhelm B. Harðarson á hestbaki. Myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma kringum 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 156
Hjónin Ragnar Smári Ingvarsson og Kristín Jónsdóttir eru greinilega ánægð með hvort annað. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 20
Þórður Kristjánsson (d.30.6.1991) heldur utan um konuna sína Pálínu Hafsteinsdóttur (d.22.7.2008) frá Reykholti. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 013
Bryndís Ingimarsdóttir þriggja ára gömul í ágúst 1977 á leikskólanum Barnaból.
Ólafur Bernódusson792
Veturinn 2006 hélt Farskóli Norðurlands vestra nokkurra vikna námskeið í skrifstofutækni á Skagaströnd. Námskeiðið var fjölsótt, gagnlegt og skemmtilegt. Á þessari mynd sem tekin var 21. febrúar var kennsla í fullum gangi. Á myndinni eru: við borðið til vinstri: Jóhannes Indriðason, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Birna Sveinsdóttir, Kristín Leifsdóttir og óþekkt. Konurnar tvær við bakvegginn eru: Vigdís Ómarsdóttir til vinstri og Guðrún Guðbjörnsdóttir til hægri. Vinstra megin við miðborðið eru: Gígja Óskarsdóttir, Svenny Hallbjörnsdóttir, Erla Hauksdóttir og Stefán Þór Árnason. Hægra megin við borðið eru svo, talið frá vinstri: Dagbjört Bæringsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir, tvær óþekktar og Sigríður Ásgeirsdóttir. Konurnar þrjár lengst til hægri eru , talið frá vinstri: Elín Ósk Ómarsdóttir, óþekkt og Sandra Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson783
Göngufélagar í Hálsskógi í Morsárdal við Skaftafell 3. ágúst 2013. Frá vinstri: Inga Sigurðardóttir, Bjarki Sigurðarson, Stefán Ægir Lárusson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Torfhildur Rúna Gunnarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Lára Guðmundsdóttir og Sigurður Sigurðarson.
Ólafur Bernódusson800
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Vinstra megin er Hekla Guðrún Þrastardóttir en Freyja Dís Jóhannsdóttir er til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 235
Þessir tveir drengir voru í starfsliði vinnuskólans í ágúst 2014. Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 2 720
Víðavangshlaup umf.Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni er yngst drengjahópurinn að koma sér fyrir á ráslínunni. Drengirnir eru óþekktir nema sá sem er þriðji frá hægri í grænni úlpu með ljósum bekkjum og gulleita húfu en það er Egill Örn Ingibergsson. Ef þú þekkir einhvern hinna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 307
Stelpurnar vinna við snyrtingu á beðum á tjaldsvæðinu í ágúst 2012. Frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Heba Líf Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson810
Litlu jólin í Höfðaskóla 2009 voru 17. desember. Á myndinni syngja nokkrir nemendur frumsaminn texta með kennaranum sínum á jólaballinu í íþróttahúsinu. Frá vinstri: Viktor Valdimarsson, Þorgerður Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Ólafur Bernódusson kennari, Guðjón Páll Hafsteinsson, Stefán Velemir og Telma Dögg Bjarnadóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 030
Myndin var tekin í maí 1978 í leikskólanum Barnaból. Frá vinstri: Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Guðmundur Henry Stefánsson, Atli Þór Þórsson og Viggó Magnússon.
Helga Berndsen 125
Fjölskyldan frá Læk á Skagaströnd. Aftast standa: Björn Helgason (d.11.3.1983) til vinstri og Axel Helgason (d.16.7.1971) til hægri. Sitjandi eru frá vinstri: Magdalena Helgadóttir (d.14.3.1954), María Gísladóttir (d.22.6.1937), Karla Helgadóttir (d.25.9.1986), Helgi Gíslason (d.22.4.1931) og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á þriðja áratugnum.
Ólafur Bernódusson934
Í júlí 2008 dvaldi Halldór Sveinsson í Nes listamiðstöðinni. Á þeim tíma hélt hann námskeið í listmálun og var myndin tekin af nokkrum þátttakendum í námskeiðinu. Frá vinstri: Signý Richter, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Halldór leiðbeinandi, Herdís Jakobsdóttir, Elva Þórisdóttir, og Linda Rós Ómarsdóttir. Í baksýn eru fleiri nemendur við vinnu sína.
1
…
156
157
158
…
167
Leita í myndasafninu
Leita