Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 120
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1968. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Valdimarsson, Vilhelm B. Harðarson, Ernst Berndsen?, Valdimar Valdimarsson, Karl Berndsen, Bára Þórðardóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með barn í fanginu (?Pálína Freyja Harðardóttir?).
Ólafur Bernódusson896
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi flytur uppgefna kind á fjórhjólinu sínu til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 003
Myndin var tekin á leikskólanum Barnabóli, líklega sumarið 1977. Á henni eru frá vinstri: Sandra Ómarsdóttir, Stefán Sveinsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Björn Sigurðsson og Áslaug Sif Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson943
Hjónin Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Hjördís Sigurðardóttir í Fellsborg í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) hinn 1. maí 2009.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 059
Unnið við snyrtingu og pökkun á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Þorsteinn Jakobsson, óþekktur, Vilhelm Þórarinsson og Sævar Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson811
Guðrún Sigurðardóttir kankvís að vanda á þungbúnum sumardegi um miðjan júlí 2008.
Ólafur Bernódusson854
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri skera hákarl áður en honum er komið í kösina. Þar er hann látinn verkast ca 2 mánuði áður en hann er hengdur upp til þurrkunar í tvo til þrjá mánuði áður en hans er neytt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 55
Hér spá í spilin feðgarnir og frændurnir Vilhelm B. Harðarson til vinstri, Jóhannn Björn Þórarinsson í miðið og Hörður Ragnarsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Ingibergur Guðmundsson 323
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru skíðaáhugamenn, sem stóðu að byggingunni, að virða skálann fyrir sér og ákveða næstu skref. Frá vinstri á myndinni eru: Guðmundur Jón Björnsson, Ólafur Bernódusson, þrír óþekktir, Þorbjörg Magnúsdóttir?, Magnús B. Jónsson, Pétur Eggertsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1131
Steindór Rúniberg Haraldsson staddur í rafverkstæðinu Neistanum í lok nóvember 2002.
Ólafur Bernódusson947
Róbert Freyr Gunnarsson í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í Fellsborg 1. maí 2016.
Steinþór Karlsson 010
Þessi mynd af Gunnari Reynissyni við störf sín sem kokkur um borð í Arnari Hu 1 var tekin sumarið 1999.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 110
Vilhelm B. Harðarson og Steinunn Steinþórsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1966.
Ólafur Bernódusson741
Sjávarlíftæknifyrirtækið BioPol á Skagaströnd vaktar lífríkið í Húnaflóa. Meðal þess sem starfsmenn þess fylgjast með er þörungablómi í grennd við Skagaströnd. Sýni eru tekin vikulega frá vori fram á haust til að finna út þörungamagn á mismunandi dýpi og hiti og selta mæld og skráð. Á myndinni eru Karen Zech líffræðingur frá BioPol og Ólafur Bernódusson trillueigandi að skrá einhverja niðurstöðu mælinga um borð í Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin sumarið 2014.
Ingibergur Guðmundsson 326
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru þrjár konur að klæða vesturstafninn á efri hæðinni með álpappír eftir að hafa einangrað vegginn með glerull. Þær eru líka að koma fyrir neðstu lektunni undir panelinn sem veggirnir voru klæddi með. Skíðaáhugakonurnar eru frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Helga Berndsen 125
Fjölskyldan frá Læk á Skagaströnd. Aftast standa: Björn Helgason (d.11.3.1983) til vinstri og Axel Helgason (d.16.7.1971) til hægri. Sitjandi eru frá vinstri: Magdalena Helgadóttir (d.14.3.1954), María Gísladóttir (d.22.6.1937), Karla Helgadóttir (d.25.9.1986), Helgi Gíslason (d.22.4.1931) og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á þriðja áratugnum.
Ólafur Bernódusson934
Í júlí 2008 dvaldi Halldór Sveinsson í Nes listamiðstöðinni. Á þeim tíma hélt hann námskeið í listmálun og var myndin tekin af nokkrum þátttakendum í námskeiðinu. Frá vinstri: Signý Richter, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Halldór leiðbeinandi, Herdís Jakobsdóttir, Elva Þórisdóttir, og Linda Rós Ómarsdóttir. Í baksýn eru fleiri nemendur við vinnu sína.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 183
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Í baksýn er hjallur föður hennar Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974).
Ólafur Bernódusson942
Jónína Valdimarsdóttir í Fellsborg í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 11
Hafsteinn Sigurbjarnason (d.18.5.1974) í Reykholti. Hafsteinn var bóndi, kaupmaður og rithöfundur sem m.a. gaf út sjálfsævisögu sína sem er merk heimild um mannlífið á Skagaströnd á sínum tíma.
Ólafur Bernódusson 2 712
8. bekkur Höfðaskóla vann viku Danmerkurferð í reykleysis-áróðurs keppni í maí 2001. Krakkarnir halda á vinningsplakötum sem þau unnu saman og sendu inn ásamt einhverjum skrifum gegn reykingum. Það var Tóbaksvarnanefnd sem stóð fyrir keppninni ásamt Krabbameinsfélaginu. Krakkarnir eru, í aftari röð frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Linda ?, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Hanna Lísa Gestsdóttir og Rósa Björk Einarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstson, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 218
Róbert Björn Ingvarsson í vinnuskólanum 7. júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 315
Erna Hreinsdóttir hjálpar tveimur af nemendum sínum í einu í Höfðaskóla rétt fyrir jólin 2014. Ísabella Tryggvadóttir er til hægri en hitt barnið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1265
Hjónin Árni Geir Ingvarsson og Herdís Jakobdóttir um miðjan desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1021
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd er Sigríður Stefánsdóttir í hlutverki sínu í skemmtirevíu kvöldsins.
Ólafur Bernódusson762
Um borð í Arnari Hu 1 21. apríl 2004. Mennirnir á myndinni voru þá í áhöfn skipsins. Frá vinstri: Arnar Óskarsson með barn, Guðjón Guðjónsson (Jonni), Slavko Velemir og Sigurjón Ingólfsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn
Adolf Jakob Berndsen f. 28.12.1934 d. 27.08.2018. Oddviti Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1978 - 1990.
Ólafur Bernódusson775
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á Arnari Hu 1 sýnir hér branduglu sem settist á Arnar úti á sjó og var fönguð. Henni virtist líða ágætlega vel um borð og át hrátt kjöt með ágætri lyst úr höndum Finns. Henni var svo sleppt þegar komið var í höfn og lét sig þá hverfa án þess að þakka fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það sumarið 2005.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 4
Steinþór Ólafsson (d.18.9.1985). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 274
Hausttiltekt í garðinum við Hólabraut 16 í október 2011. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Geir Arnarson og Haraldur ?.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 252
Sigurgeir Árnason við vinnu í Bátanausti í mars 2011.
Ólafur Bernódusson974
Ólafur Bernódusson hvílir sig á snúrustaur við heimili sitt 1. apríl 2006 eftir hring á gönguskíðum. Eins og sjá má er mikill snjór ennþá því það rétt grillir í hinn snúrustaurinn aftan við Ólaf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 341
Sigurður Bjarnason vinnur við að flokka pappír og plast til endurvinnslu hjá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar við Fjörubraut. Myndin var tekin í febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson802
Myndin af þessum prúðbúnu drengjum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Ingólfur Eðvald Björnsson, Pétur Atli Árnason, Helgi Hreiðarr Sigurðarson, Magnús Sólberg Baldursson, Ívan Orri Eiríksson og Ólafur Halldórsson.
Helga Berndsen 070
Myndin var tekin á tröppunum á Bankastræti 9 af þeim Báru Björnsdóttur, konu Hendriks Berndsen til vinstri og Laufey Berndsen til hægri. Bak við þær í gættinni sér í Gunnlaug Árnason (d. 14.9.2016).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1057
Einar Guðmannsson til vinstri með frænda sínum Páli Valdimar Magnússyni (d. 12.3.2011) í fjáragi heima á Vindhæli í september 2005.
Ólafur Bernódusson770
Þessar konur frá Skagaströnd og úr Skagabyggð sóttu smurbrauðsnámskeið hjá Maritu Jakobsen í Skagabúð árið 2005. Á myndinni sína þær framleiðslu sína í lok námskeiðsins. Aftar standa frá vinstri: Jóhann Sigurjónsdóttir, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Gunnur Gísladóttir. Í fremri röðinni eru frá vinstri: Erla Hauksdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir?, Lilja Karlsdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, óþekkt, Hrönn Árnadóttir, Vigdís Þorgeirsdóttir, Linda Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Erna Högnadóttir, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir, Árný Hjaltadóttir og Marita Jakobsen.
Ólafur Bernódusson839
Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk spilar á gítar í garðpartýi á Kántrýhátíð 20. águst 2006. Konan í baksýn er óþekkt.
Ólafur Bernódusson851
Sungið af innlifun á árshátíð Höfðaskóla 16. mars 2007. Frá vinstri: Freyja Einarsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Bergrós Hafsteinsdóttir og Anna Dís Ragnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson938
Nes listamiðstöð stendur fyrir opnu húsi mánaðarlega en þá er gestum boðið að koma og sjá hvað listamenn mánaðarins eru að skapa. Þessi mynd var tekin á einu slíku 27. mars 2009. Frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, óþekkt listakona, Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Lárusdóttir, Igibergur Guðmundsson, Signý Richter (situr), Guðrún Pálsdóttir og litla stúlkan er Laufey Lind Ingibergsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 150
Þau eru dreymin á svip á myndinni mæðginin Aðalsteinn Jörgensen og Áslaug Hafsteinsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1966.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 129
Konan til vinstri er Sigríður Björnsdóttir en til hægri er Sveinbjörg Björnsdóttir sem lengi bjó í Kambakoti.
Ólafur Bernódusson754
Bændurnir á Brúsastöðum í Vatnsdal, Gróa Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson, hafa lengi verið í fremstu röð kúabænda á landinu og margverðlaunuð fyrir góða framleiðslu og mikil afköst. Þessi mynd af þeim hjónum var tekin í febrúar 2003.
Ólafur Bernódusson984
Myndin var tekin á fótboltamóti á Blönduósvelli 24. Júní 2007. Á henni er Ágúst Ingi Ágústsson þjálfari Fram á Skagaströnd að "peppa upp" stráka úr liðinu. Fótboltakapparnir eru frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Elvar Geir Ágústsson, Ívan Árni Róbertsson og Ísak Tryggvason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn207
Á myndinni eru tvenn hjón. Til vinstri eru hjónin séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) en til hægri hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir(d. ?) og Hilmar Árnason (d.16.3.1988) frá Hofi.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 153
Þrenns konar flutningatæki má sjá á þessari mynd. Leikfanga-vörubíll bíður eftir nýjum farmi, Aðalsteinn Jörgensen? ekur hjólbörum og fulllestaður vörubíll bíður tilbúinn að aka á áfangastað. Maðurinn sem er að koma út úr bílnum er óþekktur. Myndin var tekin utan við Reykholt en ekki er vitað hvenær.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 159
Þessi mynd var tekin á sumardegi af hjónunum Herði Ragnarssyni og Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur með frumburð sinn, Vilhelm B. Harðarson. Bílinn átti Hörður en ekki er vitað um hvaða tegund hann var.
Ólafur Bernódusson940
Feðgarnir Hjalti Sævar Hjaltason til vinstri og Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skaggjastöðum til hægri. Myndin var tekin í Fellsborg í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.<br>
Ólafur Bernódusson877
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst. Krakkarnir buðu gestum upp á veitingar í sumum kofunum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Elmar Grétarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, þrjú óþekkt börn, Páll Halldórsson, Adolf H. Berndsen og Dagný Sigmarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 267
Sólarpása sunnan undir Spákonuhofinu í ágúst 2011. Á bekknum sitja frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Hallbjörn Björnsson og Björn Hallbjörnsson. Sitjandi í grasinu er Dagný Marín Sigmarsdóttir.
Hrefna Jóhannesdóttir002
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Birni Pálssyni á Ísafirði. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn199
Pétur Eggertsson heldur á synin sínum Brynjari Péturssyni undir skírn hjá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) 25. desember 1973 í Hólaneskirkju eldri. Hjá þeim stendur elsti sonur Péturs, Hrólfur Péturson, í matrosafötunum sínum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 106
Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin af þessu glaða fólki. Frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir og óþekkt kona og maður. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 288
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Strákurinn á myndinni er Gunnþór Ingi Kristjánsson.
Helga Berndsen 112
Þessar spariklæddu og brosandi jólastúlkur eru Guðrún Einarsdóttir til vinstri og Sesselja Guðmundsdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1965.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 024
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni er Steindór Gíslason (d.?) framkvæmdastjóri Hólaness hf að blanda fordrykk fyrir árshátíð fyritækisins sem haldin var í Fellsborg sama kvöld.
Ólafur Bernódusson902
Lárus Ægir Guðmundsson fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson967
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 6. júní 2009 bíður þess að taka við verðlaunum sínum. Frá vinstri: Finnur Kristinsson stýrimaður, Tryggvi Hlynsson með barn í fanginu, Skúli Tómas Hjartarson, Guðmundur Henry Stefánsson, Björn Sigurðsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 138
Vinirnir Hörður Aðils Vilhelmsson til vinstri og Hallbjörn Freyr Ómarsson til hægri. Myndin ver tekin í janúar 2002.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1036
Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
1
…
157
158
159
…
167
Leita í myndasafninu
Leita