Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 323
Taflan skreytt fyrir jólin með jólalegum teikningum. Frá vinstri: Sólveig Erla Baldvinsdóttir, Katrín Ragna Gunnarsdóttir, Hugrún Antonía Sigurðardóttir (fjær), Logi Hrannar Jóhannsson (nær) og óþekkt stúlka.
Ólafur Bernódusson865
Þessi mynd var tekin 3. maí 2007 af þessum fjórum vinkonum við olíutankana sem þá stóðu á Höfðanum. Talið ofan frá eru stúlkurnar: Halla Björk Víðisdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir og Sonja Sif Ólafsdóttir.
Hrefna Jóhannesdóttir014
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Carl Ólafsson Reykjavík. Ef þú þekkir konuna og/eða barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson769
Þessi mynd var tekin af Björgvin Brynjólfssyni (d. 28.2.2007) 15. apríl 2005. Björgvin var bóksali og sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Skagastrandar þangað til Landsbankinn tók yfir sparisjóðinn. Björgvin var mikill baráttumaður jafnaðarstefnunnar og var meðal annars formaður Verkalýðsfélags Skagastrandar um árabil. Á efri árum gaf hann út sjálfsævisögu sína og var þá orðinn mikill baráttumaður fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn099
Myndin var tekin í október 1986. Á henni er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007), sem situr fremst, með systkinabörnum sínum. Frá vinstri: Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008), Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Ólöf Jóhanna Smith, Ragnar Smári Ingvarsson, Vala Rós Ingvarsdóttir, Gréta Ingvarsdóttir, Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Halla Björg Bernódusdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Lilja Bernódusdóttir (nær), Ólafur Bernódusson (fjær), Heiðar Elvan Friðriksson, Árni Geir Ingvarsson og Rúnar Ingvarsson.
Ólafur Bernódusson 2 717
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni er einn flokkur stráka að bíða eftir að vera ræstir af stað. Strákarnir eru óþekktir nema Kristján Ýmir Hjartarson sem er þriðji frá vinstri og hægra megin við hann er Alexander Ragnarsson. Ef þú þekkir einhvern hinna strákanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 287
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015) til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri.
Helga Berndsen 108
Karla Ingibjörg Helgadóttir (d.25.9.1986) Ásbergi, Skagaströnd. Myndin var tekin á jólum 1984.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 312
Götusala fyrir utan búðina á ágúst 2012. Þarna selur Ólafur Bernódusson hákarl, fjallagrös, bláber og rabbarbarasafa ásamt afastrákunum sínum og meðeigendum, bræðrunum Ólafi Halldórssyni framleiðslustjóra til vinstri og Páli Halldórssyni gjaldkera til hægri. Ingvar Gígjar Sigurðsson smakkar á hákarlinum til að átta sig á hvort rétt sé að fjárfesta í einni dós af honum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 056
Unnur Gunnarsdóttir á brúðkaupsdeginum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1167
Elías Gunnar Hafþórsson í pylsupartýi í bæjarvinnunni 11. júní 2009. Bak við hann má þekkja, frá vinstri: Torfi Friðrik Magnason, Alex Már Gunnarsson, Alma Eik Sævardóttir, Almar Freyr Fannarsson og Kristján Ýmir Hjartarson.
Helga Berndsen 093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en maðurinn til hægri er Ernst Berndsen (d. 21.8.1983). Konan er Pálína Árnadóttir (d.6.2.1962)frá Hrísey sem var gift Kristni Ásgrímssyni (d.21.12.1971) en þau voru lengi búsett á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson960
Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ingibergur Guðmundsson 256
Þessi mynd var tekin í október 1985 á stofnfundi Norræna félags-deildar á Skagaströnd. Í fremstu röð frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Í miðröð frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Steinunn Friðriksdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson og Guðrún Soffía Pétursdóttir. Í öftustu röð frá vinstri: óþekkt, Þórunn Bernódusdóttir með dóttur sína Auði Evu Guðmundsdóttur í fanginu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1042
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Á myndinni er Luis að afhenda Hallbirni viðurkenninguna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 255
Fjórar ungar stúlkur í heimsókn hjá hárgreiðslustofunni Viva í viðeigandi klæðnaði á öskudaginn í mars 2011. Frá vinstri: Hekla Guðrún Þrastardóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir og Arna Rún Arnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson880
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst og er af einum "íbúa" þorpsins, Auðunni Árna Þrastarsyni þar sem hann gáir til veðurs úr kvistherbergi sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1250
Börn flytja helgileik á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 2. desember 2012 við logandi kertaljós. Börnin eru, frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benný Blær Sæmundssen Árnadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Snæfríður Guðmundsdóttir, Dagur Freyr Róbertsson og Ástríður Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson785
Áning í Hálsskógi í ágúst 2013. Frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Gunnar Svanlaugsson og Lára Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson897
Jónmundur Ólafsson (d. 19.4.2017) fyrrverandi bóndi Kambakoti í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Hrefna Jóhannesdóttir015
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson903
Nágrannarnir Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi til vinstri og Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II til hægri á spjalli í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 367
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á henni fylgist Monika Jónsdóttir með Uloma Lísbet Rós Osuala til vinstri og Elínu Ósk Björnsdóttur til hægri í þrautabrautinni.
Helga Berndsen 102
Í stýrishúsinu stendur Ernst Berndsen (d.21.8.1983) eigandi Litla Guls, eins og báturinn var kallaður. Framan við húsið sitja frá vinstri: Pálína Árnadóttir (d.?), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991), Anný Jóhannsdóttir (d.?), Unnur Björnsdóttir (d. 14.12.1990) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Myndina tók Helga Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1193
Ungir menn í bæjarvinnunni í júlí 2009. Guðmundur Árnason til vinstri og Einar Ari Einarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 333
Unnið að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Sigurður Bjarnason, sem er lengst til vinstri, er að kíkja á hvernig verkið gengur hjá smiðunum Guðmundi Rúnari Kristjánssyni til vinstri og Árna Halldóri Eðvarðssyni til hægri.
Ólafur Bernódusson760
Bræðurnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri um borð í nýsmíðaðri Öldu Hu 12 í september 2003 sem þeir áttu saman gengum Vík sf. Aldan Hu 12 var ein af mörgum bátum sem þeir bræður áttu saman og gerðu út gegnum tíðina.
Ingibergur Guðmundsson 109
Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993) á 85 ára afmælinu sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1147
Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) og mágur hennar Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) við bíslagið á Draumalandi. Draumaland var örlítð hús sem stóð við Bankastræti á sínum tíma, rétt norðan við Stórholt.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 028
Það má með sanni segja að snemma beygist krókurinn hvað varðar starfsval hjá Guðmundi Henry Stefánssyni skipsstjóra. Hér er hann við uppáhaldsiðju sína á leikskólanum Barnaból: að sigla. Myndin var tekin sumarið 1978.
Séra Pétur og Dómhildur - safn185
Myndin er af ný útskrifuðum húsmæðrakennurum 2. júlí 1948. Önnur frá vinstri í fremri röð er Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd. Aðrar konur á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 32
Kristinn Daníelsson (d.3.8.2011) maður Áslaugar Hafsteinsdóttur vinnur við uppslátt. Myndin var tekin 1964.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 157
Vilhelm Björn Harðarson fyrir utan Ásgarð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 020
Greinileg hafa þeir hitt á það í þessu hali á karfaveiðunum sumarið 1999 á Arnari Hu 1. Aflinn í trollinu á myndinni eru einhverjir tugir tonna. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 213 - Copy
Guðrún Guðmundsdóttir með ömmustrákinn sinn Ellert Atla Þrastarson í júlí 2012.
Ólafur Bernódusson899
Erna Högnadóttir húsfreyja á Vindhæli fylgist eð réttarstörfum í Kjalarlandrétt 8. september 2007. Stúlkan við hlið hennar er óþekkt.
Ólafur Bernódusson776
Myndin af Gunnlaugi Sigmarssyni útibússtjóra Landsbankans á Skagaströnd og Erlu Hauksdóttur 16. júní 2005 í tilefni af því að Erla var fyrsti viðskiptavinur harðabnkans sem komið var fyrir í anddyri úibúsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 316
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni er Magnús að spjalla við kennara krakkanna, Sonju Dröfn Helgadóttur. Sigríður Kristín Guðmundsdóttir situr til vinstri og svo sér á bak Aþenu Baldursdóttur til hægri. Stúlkan sem hallar sér fram á borðið er óþekkt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 146
Á myndinni er fólk samankomið í veislu, líklega í tilefni af fermingu Vilhelms B. Harðarsonar vorið 1976. Frá vinstri Aðalbjörg Hafsteinsdóttir móðir Vilhelms, Gunda C. Jóhannsdóttir (d.9.11.2013) kona Þórarins Björnssonar (d.24.5.1985) sem er lengst til hægri. Hjónin Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996) og Sigríður Björnsdóttir (d.17.6.1979) systir Þórarins. Fermingarbarnið Vilhelm B. Harðarson sem heldur um axlir langömmu sinnar Vilhelmínu Andrésdóttur (d.24.8.1977) en hún var móðir Þórarins og Sigríðar.
Steinþór Karlsson 027
Bæring Skarphéðinsson mokar karfa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn til hægri er óþekktur.
Ólafur Bernódusson909
Í byrjun nóvember 2007 fóru starfsmenn Hólness hf í ferð til London og eyddu þar nokkrum dögum saman. Á þessari mynd er stund milli stríða í skoðunarferð um borgina. Þá er sjálfsagt að fá sér einn bjór í hitanum og hvíla lúin bein. Frá vinstri: Ágúst Jónsson, Kristín Björnsdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 63
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu í Gamla pósthúsinu (Bogabraut 10) né hvenær hún var. Á myndinni eru frá vinstri: Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990), Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008), Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994) og Rósa Pétursdóttir (d.10.10.1998).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 27
Vilhelm B. Harðarson til vinstri og Kristinn Guðmundsson til hægri úti á svölum á Gamla pósthúsinu (Bogabraut 10).
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 075
Ungt par með frumburð sinn. Sólveig Sveinsdóttir og Sigurbjörn Kristjánsson með Kristján Frey Sigurbjörnsson í fanginu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Kristján Freyr fæddist 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1256
Eiríkur Lýðsson um borð í Dagrúnu Hu 121 sem hann gerir út og stýrir.
Ingibergur Guðmundsson 307
Þessi mynd var tekin af þátttakendum á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Gunnar Borg Jónsson, Jón Ingi Ingvarsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Guðjón Árnason, baksvipur Sigríðar Gestsdóttur, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Stefán Jósefsson, Tveir óþekktir, Hjörtur Guðmundsson með dökk gleraugu, Halldór Gunnar Ólafsson með rauða og hvíta húfu, óþekkt, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Viggó Magnússon, Ómar Jakobsson, Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson, Adolf H. Berndsen (fjær), Dagný Sigmarsdóttir (nær), Magnús B. Jónsson, Oliver Oliversson og Rúnar Loftsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 144
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti. Hafsteinn bjó lengi í Háagerði og á Finnstöðum áður en hann byggði Reykholt og flutti þangað með fjölskyldu sína. Þar stundaði hann búskap, kaupmennsku og fæðissölu. Á efri árum sínum fór Hafsteinn að skrifa skáldögur og ljóð og voru gefnar út a.m.k. fimm skáldsögur auk bókar með ljóðum hans. Skáldverkin eru: Kjördóttirin á Bjarnalæk (1958), Draumurinn (1959), Þjóðbjargarflokkurinn rýfur Alþingi 10. október 1961: alþingismenn sendir á sjó (1961), Örlagastundin (1963), Stúdentinn á Akri (1970), Stökur og ljóð (1974). Auk þess skrifaði Hafsteinn sjálfsævisögu: Ævisaga Hafsteins Sigurbjarnarsonar, sem út kom árið sem hann dó, 1974.
Steinþór Karlsson 026
Víðir Jóhannesson háseti um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 57
Leikbræður fyrir utan Reykholt kringum 1960. Frá vinstri: Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), Aðalsteinn Jörgensen og Valdimar L. Guðmundsson (d.4.4.2015). Húsin í baksýn til hægri eru öll horfin en þau voru, frá hægri: Baldursheimur, Goðhóll og Akurgerði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 355
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á myndinni eru nokkur börn að bíða á bekknum eftir að röðin komi að þeim. Frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Uloma Lísbet Rós Osuala, Auðunn Árni Þrastarson og Sigurður Aron Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1150
Myndin var tekin við húsvegginn í Sólvangi. Á henni eru uppeldissystkinin og jafnaldrarnir Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) og Sigrún Jósteinsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950.
Steinþór Karlsson 031
Víðir Jóhannesson gengur á trollinu fullu af karfa og undirbýr að losa úr pokanum niður á vinnsludekkið. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 85
Þessi mynd er dálítið skrítin. Hún hefur greinilega verið tekin ofan í aðra mynd og kemur því út eins og hún hafi verið tekin fyrir Sálarrannsóknarfélagið. Á henni eru í heyskap hjónin Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti. "Draugarnir" á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson924
Feðgarnir Guðjón Páll Hafsteinsson til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri á opnum degi í Höfðaskóla í mars 2008.
Hafliði Óskarsson 2
Gunnar Reynisson í flotbúningi um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Þá var áhöfnin á Örvari Hu 21 þar í slysavarnaskóla sjómanna ásamt fleiri sjómönnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1324
Myndin var tekin í villibráðaveislu 16. október 2012 á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Á myndinni eru, vinstra megin við borðið, frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og óþekktur. Hægra megin frá vinstri: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Herdís Jakobsdóttir. Matinn eldaði bróðir Ragnars og Árna Geirs, Þórarinn B. Ingvarsson sem þá var kokkur á hótelinu.
Valdimar Viggósson 7
Árið 1993 gaf Valdimar Viggósson, sem er hæfileikaríkur teiknari, út dagatal með skopmyndum af fólki á Skagaströnd sem hann hafði teiknað. Þessi mynd af Vilhelm Þórarinssyni við verkstæðisvinnu prýddi janúarmánuð á dagatalinu.
Hrefna Jóhannesdóttir013
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki.Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Ól. Oddson & Dahlmann Þingholtsstræti 2 Reykjavík. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson92A
Þessi mynd var tekin 2009 af Jónínu Valdimarsdóttur sem varð 102 ára 29. nóvember síðast liðinn. Hún er því elsti Skagstrendingurinn í dag og líklega hefur enginn annar Skagstrendingur náð svo háum aldri áður. Jónína, eða Nína á Kárastöðum eins og hún er oft kölluð, hefur búið síðustu 30 árin á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Áður bjó hún á Kárastöðum í áratugi sem ráðskona hjá bræðrunum Kára og Sigurbirni Kristjánssonum. Nína eignaðist tvö börn, Svavar Sigurðsson, sem er látinn fyrir nokkrum árum og Kristínu Ragnhildi Sigurðardóttur sem býr í Tjaldanesi í Dalabyggð. Nína er sæmilega ern og hefur fótaferð þó heyrn og sjón séu verulega farin að gefa sig. Við óskum Jónínu Valdimarsdóttur innilega til hamingju með afmælið.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 165
Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) í Reykholti kastar mæðinni á annasömum degi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
158
159
160
…
167
Leita í myndasafninu
Leita