Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hrefna Jóhannesdóttir004
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Birni Pálssyni á Ísafirði. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 310
Bergrós Helga Hafsteinsdóttir í vinnuskólanum í ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson841
Einar Haukur Arason á Húnavöku á Blönduósi 17. júlí 2010.
Ólafur Bernódusson838
Hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir á vortónleikum Tónlistarskólans 10. maí 2010 í Hólaneskirkju. Þá störfuðu þau bæði sem kennarar við skólann.
Ingibergur Guðmundsson 246
Guðrún Pálsdóttir við vinnu á skrifstofu Hólaness hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 180
Áslaug Hafsteinsdóttir við skiptiborðið á símstöðinni. Öll símtöl fóru í gegnum miðstöðina hvort sem þau voru innanbæjar eða út úr plássinu.
Helga Berndsen 008
Myndin var tekin af á tröppum Karlsskála, líklega kringum 1970. Í dyrunum standa Ernst G. Berndsen (d.21.8.1983) til vinstri og Valur Pálsson til hægri. Framan við þá krýpur Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) kona Ernst. Stelpurnar sem standa eru Guðrún Einarsdóttir til vinstri og Laufey Berndsen til hægri. Sitjandi eru frá vinstri: Hendrik Berndsen, Hermann Valsson, Karl Berndsen, Ernst Berndsen, Páll Valsson, Steinunn Berndsen og Karl Steinar Valsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1027
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd eru leikarar að syngja grín um vandamál tengd klósettferðum. Frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Árni Halldór Eðvarðsson, María Ösp Ómarsdóttir,Tostan Agnarsson, Sigríður Stefánsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Hafþór Smári Gylfason, Elva Dröfn Árnadóttir og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Ólafur Bernódusson864
Bekkjarmynd tekin á litlu jólum 19. desember 2011. Lengst til vinstri er Atli Víðir Hjartarson umsjónarkennari hópsins. Nemendurnir eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Aron Breki Hjartarson, Aldís Embla Björnsdóttir, Róbert Björn Ingvarsson, Kristján Róbertsson, Ásdís Birta Árnadóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015) og Gunnþór Ingi Kristánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1009
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 á einu slíku blóti af Jökulrós Grímsdóttur að fara með gamanmál fyrir heimilisfólk og gesti.
Ólafur Bernódusson929
15. maí 2008 voru haldir styrktartónleikar í Hólaneskirkju til styrktar Jóni Gunnari Einarssonar sem slasaðist illa í bifhjólaslysi nokkru fyrr. Á myndinni eru hálfsystur Jóns að þakka fyrir góðar móttökur. Frá vinstri: Ingibjörg María Reynisdóttir, Þórunn Elfa Ævarsdóttir og Linda Björk Ævarsdóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 001
Atli Þór Þórsson 2,8 ára gamall á leikskólanum Barnaból. Myndin var tekin sumarið 1977.
Hafliði Óskarsson 5
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar í flotgöllum að æfa hífingar úr sjó. Gunnar Reynisson er annar frá vinstri og Gestur Arnarson sá fjórði frá vinstri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn186
Myndin var tekin vorið 1971 í Hólaneskirkju eldri. Þá var kirkjuskólinn alltaf kallaður sunnudagaskóli enda haldinn á sunnudagsmorgnum. Fremst til vinstri er Víkingur Viggósson. Stúlkan á fjórða bekk, í hvítum buxum, er Ásdís Þórbjarnardóttir en í næsta bekk aftan við hana er Sólveig Gunnarsdóttir til hægri og Lilja Kristinsdóttir til vinstri. Standandi lengst til hægri á myndinni er ?Laufey Berndsen?. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 187
Yngstu þátttakendurnir í víðavangshlaup umf Fram á Skagaströnd vorið 1985. Uppstillt frá vinstri eru: Elva Dröfn Árnadóttir, ? Kristjánsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Birkir Rafn Gíslason, Sverrir Berndsen, óþekkt og Ólafur Guðmundsson. Aftan við Elvu stendur Jósef Ægir Stefánsson, aftan við Arnór er Jóhanna Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson er aftan við Sverri og konan lengt til hægri er Eygló Gunnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1072
Guðríður Líneik Daníelsdóttir og Gunnar Reynisson að dunda í garðinum við heimili sitt að Ránarbraut 11 í lok maí 2011.
Ólafur Bernódusson778
15. desember 2005 undirrituðu Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra og Helgi Gunnarsson verktaki samning um að Helgi byggði nýtt hús yfir heilsugæsluna á Skagaströnd. Undirritunin fór fram í Bjarmanesi. Jón er til vinstri en Helgi hægra megin. Húsið var svo tekið í notkun fullfrágengið í september 2006.
Ólafur Bernódusson982
Í mörg á var skólastarf Höfðskóla brotið upp með svokallaðri Vinnuviku. Þá fengu nemendurnir að fást við ýmis óvenjuleg verkefni sem mörg hver tilheyrðu ekki hefbundnu skólastarfi. Þessi mynd var tekin í einni slíkri vinnuviku vorið 1996. Á myndinni eru krakkarnir að draga vélarvana bíl frá höfninni upp að skóla. Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir er með svart hárband fyrir miðri mynd, María Markovic er dökkhærð til vinstri og aftan við hana er ljóshærð Elva Gunnarsdóttir og Anna María Magnúsdóttir henni á vinstri hönd. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1112
Sigríður Stefánsdóttir að hengja upp götuskreytingar fyrir utan húsið sitt á Hólabraut 23 um miðjan ágúst 2008 vegna kántrýdaga sem þá voru haldnir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 007
Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból sumarið 1977. Fremstur á myndinni er Friðrik Birgisson. Aftan við hann eru frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir? og ljóshærða stúlkan lengst til hægri er Jóhann Viktoría Sveinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Hrefna Jóhannesdóttir026
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Daníel Davíðssyni Sauðárkróki einhverntíma á árunum 1902 -1910. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 033
Sandra Ómarsdóttir fjögurra ára á leikskólanum Barnaból í 1978.
Ólafur Bernódusson824
Helgi Gunnarsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri á sjómannadaginn 6. júní 2009.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 074
Barnaafmæli 1.maí 1989. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Ólafur Guðmundsson, óþekktur, Elvar Arinbjörrn Grétarsson og Gunnar Guðmundsson. Bak við Rakel Petreu grillir í Kára Sigurbjörn Lárusson.
Ólafur Benródusson871
Íbúar Bogabrautar tóku sig til um miðjan ágúst 2007 og komu saman í götugrill við Bogabraut 19. Á myndinni eru frá vinstri: Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Gunnar Sveinsson, Bára Sif Magnúsdóttir, Magnús Geir Pálsson (d.19.5.2014), óþekkt, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Bára Þorvaldsdóttir (fjær), Guðrún Pálsdóttir (nær) og baksvipur Signýjar Richter.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 100
Þessi mynd var líklega tekin í barnaafmæli kringum 1968. Á myndinni eru frá vinstri: Laufey Berndsen, Líney Jósefsdóttir, Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) frá Viðvík, Aðalsteinn Jörgensen, Vilhelm B. Harðarson, Ernst Berndsen, Karl Berndsen og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1056
Þór Arason (d.11.8.2018) smiður og Ernst Backman hönnuður og þúsundþjalasmiður við opnum Spákonuhofsins 30. júní 2011. Báðir komu þeir mikið að vinnunni við að skapa Spákonuhofið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 325
Sævar Hallgrímsson sker af netum í febrúar 2012 og Gunnar Sveinsson fylgist með.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 191
Systkinin Laufey Berndsen og Karl Berndsen.
Hrefna Jóhannesdóttir003
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Birni Pálssyni á Ísafirði af tveimur börnum. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 272
Anna Sjöfn Jónasdóttir og William Sillar þegar Leikklúbbur Skagastrandar frumsýndi "Fyrsta öngstræti til hægri" í Fellsborg í mars 1988. Eins og sjá má léku þau lögreglumenn í sýningunni.
Ólafur Bernódusson 2 718
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni rýkur einn hópur stráka af stað í hlaupið, sem var mislangt eftir aldri þátttakendanna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 311
Anna Dís Ragnarsdóttir í vinnuskólanum í ágúst 2012.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 77
Myndin var tekin utan við Gamla pósthúsið (Bogabraut 10). Frá vinstri: Hafsteinn þórðarson, Stefán Jósefsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Ari Már Ólafsson og Jón Gunnar Jósefsson. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 216
Róbert Björn Ingvarsson í vinnuskólanum í júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 313
Slavko Velemir í vinnunni við að flísaleggja í ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1080
Foreldrar og börn ganga kringum jólatréð á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Ólafur Bernódusson710
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru þáverandi 5. og 6. bekkur að sýna atriði sitt sem fólst í að herma eftir starfsfólki skólans, eins og sjá má á merkimiðunum framan á þeim. Frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Arna Rún Arnarsdóttir, Daði Snær Stefánsson, Ólafur Halldórsson, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir og Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1138
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) í heimsókn í áhaldahúsinu í mars 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1179
Gísli Snorrason vinstra megin og Hjörtur Guðbjartsson til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar koma fyrir rampi fyrir hjólastóla við innganginn í félagsheimilið Fellsborg í apríl 2009.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 139
Systkinin Hafsteinn Þórðarson, Bára Þórðardóttir og litla barnið er Laufey Þórðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 221
Frændsystkinin Róbert Björn Ingvarsson og Ellen Sigurjónsdóttir í júlí 2014.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 109
Stoltur af bílnum sínum situr Hörður Ragnarsson á húddinu á bílnum sínum fyrir utan Ásgarð á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 273
Í lok september 2011 var haldin sjóbjörgunaræfing á Skagaströnd þar sem björgunarsveitir af öllu norðurlandi tók þátt. Þessi mynd er af hluta af bátaflotanum sem notaður var í æfingunni utan við hús björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 186
Þessi fríði hópur frá Skagaströnd tók þátt í Víðavangshlaupi Íslands 1986 á Miklatúni í Reykjavík. Standandi frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir og Sigfús Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Björn Sigurðsson, Skúli Tómas Hjartarson, óþekktur, Reynir Lýðsson, Atli Þórsson, Jón Heiðar Jónsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson878
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst. Stelpurnar á myndinni buðu gestum og gangandi upp á veitingar, prúðbúnar og kurteisar. Frá vinstri: Tvær óþekktar, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
Ólafur Bernódusson742
Adolf H. Berndsen oddviti Sveitarfélagsins Skagaströnd til vinsti og óþekktur forstöðumaðu hjá Mílu til hægri handala samning um að Míla sjái um lagningu á ljósleiðara í sveitarfélaginu. Undirskrifaður samningur liggur á borðinu milli þeirra. Myndin var tekin 10. maí 2013 í elsta húsi bæjarins, Árnesi.
Ólafur Bernódusson915
Þessir hressu krakkar sköpuðu þennan glæsilega snjókarl í mars 2008 á íþróttavellinum enda var þá nægur efniviður í karlinn á vellinum. Krakkarnir eru frá vinstri: Laufey Sigurpálsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Birkir Freyr Gunnarsson og Páll Halldórsson.
Ólafur Bernódusson901
Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skeggjastöðum fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson 2 722
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Sumum af yngstu hlaupurunum gekk illa að klára hlaupið en komu kannski gangandi í mark eftir dúk og disk. Á myndinni hleypur Ingibergur Guðmundsson með syni sínum Agli Erni Ingibergssyni síðustu metrana að marklínunni.
Helga Berndsen 063
Hér koma þau að bryggju í blíðu veðri sumarið 1995, líklega eftir að hafa vitjað um silunganet, Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) úr Karlsskála og Helga Sigríður Ívarsdóttir afastelpan hans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1258
Þau eru ekki gömul börnin á myndinni úr réttunum 8. september 2012 en áhuginn leynir sér ekki. Maðurinn í bláröndóttu peysunni er Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli. Sá sem bograr við að skoða mark á lambi er Jóhann Ásgeirsson bóndi í Kambakoti og næst honum eru börnin hans tvö Freyja Dís Jóhannsdóttir og Logi Hrannar Jóhannsson. Með þeim eru svo Victoria Hólmgeirsdóttir með hvíta húfu og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1013
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 á einu slíku blóti af gömlu vinnufélögunum Pétri Eggertssyni til vinstri og Jóhanni Birni Þórarinssyni til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 360
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Degi Frey Róbertssyni á fullri ferð í þrautabrautinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 230
Sláttuteymi vinnuskólans að færa sig milli túna í ágúst 2014. Frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Ellen Sigurjónsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1082
Klappað og sungið með jólasveinunum á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Ingibergur Guðmundsson 239
Svanur Árnason í pásu líklega í vinnu við sorphirðu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hrefna Jóhannesdóttir019
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein af nýlegri myndunum í safni Hrefnu. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 350
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Benóný Bergmann Sæmundsen.
Helga Berndsen 136
Myndin var tekin á jóla-barnaballi 1966 í Höfðaskóla. Þá héldu konurnar í kvenfélaginu Eining ballið og á myndinni má sjá tvær þeirra sem störfuðu í félaginu í áratugi. Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) er til vinstri og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) er til hægri. Á myndinni er jólasveinninn að úthluta börnunum epli, sem þótti góður fengur á þessum árum, þegar slík munaðarvara var bara í boði um jólin.
1
…
159
160
161
…
167
Leita í myndasafninu
Leita